Morgunblaðið - 24.12.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 24.12.1999, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Stækkun Fljótsdalsvirkiunar til skoðunar hjá Landsvirkjun Hækkun stíflunnar vænt- anlega besti kosturinn MEÐAL þeirra virkjunarkosta sem Landsvirkjun er að skoða er stækkun Fljótsdalsvirkjunar. Þetta yrði gert með því að hækka stífluna við Eyjabakka. Með stækkun virkjunar væri hægt að tryggja næga raforku fyrir 120 þúsund tonna álver í Reyðarfirði. Að sögn Helga Bjarnasonar, deildarstjóra umhverfisdeildar Landsvirkjunar, koma einna helst tveir möguleikar til greina sem viðbót við Fljótsdalsvirkjun. í fyrsta lagi er litið til stækkunar virkjunarinnar með hækkun stíflu Eyjabakkalóns um eina þrjá metra og með því að sækja meira vatn austur af fvi'irhuguðu Eyjabakka- lóni. í núverandi tilhögun er gert ráð fyrir Sauðárveitu austur af lóninu, en ef af stækkun yrði, yrði þar Hraunaveita meiri sem gerir ráð fyrir stærri lónum og veitum á því svæði. Með fyrrgreindri tilhögun, þ.e. hækkun stíflunnar um þrjá metra og stækkun Sauðárveitu í Hrauna- veitu meiri, er gert ráð fyrir rúm- lega 260 gígavattstunda orkugetu til viðbótar við núverandi tilhögun Fljótsdalsvirkjunar, sem gerir ráð fyrir 1.390 gígavattstundum. Ef af þessari stækkun yrði, verður orku- geta Fljótsdalsvirkjunar alls 1.650 gígavattstundir, sem samsvarar nokkurn veginn orkuþörf 120 þús- und tonna álvers, að sögn Helga. Bjarnarflag annar kostur I öðru lagi er litið til virkjunar í Bjarnarflagi í Mývatnssveit, en sá möguleiki er væntanlega óhag- kvæmari en sá fyrri, að sögn Helga. Næsta vor er gert ráð fyrir að rannsóknir á Hraunasvæðinu hefjist og ef Hraunaveita meiri reynist hagkvæm, er það álitlegri kostur en að fá viðbótarorku með Bjarnarflagsvirkjun, að sögn Helga. Að auki fæst viðbótarorka með samtengingu Fljótsdalsvirkj- unar við almenna raforkukerfíð, sem nemur um 100-200 gígavatt- stundum. Bjarnarflagsvirkjun, hækkun stíflunnar og Hraunaveita meiri eru skyldug til þess að fara í mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lög- um, að sögn Helga. í heimild Al- þingis fyrir Fljótsdalsvirkjun er gert ráð fyrir að hámarkshæð lón- syfirborðs á Eyjabökkum sé 667,5 metrar yfir sjávarmáli, en sam- kvæmt núverandi tilhögun er gert ráð fyrir lónsyfirborði í 664 m, þannig að leyfi er til þess að hækka núverandi stíflu um þrjá metra. Nýtt skip í flota Eimskipa- félagsins NÝTT fiutningaskip, Mánafoss, hefur bæst í flota Eimskipafélags Islands og kom það til hafnar í fyrsta skipti í gær. Á Mánafossi er ellefu manna áhöfn og skipstjóri verður Guð- mundur Kr. Kristjánsson, 1. stýri- maður Ægir Jónsson og yfir- vélstjóri Valdimar Jóhannsson. Skipið er 100 metra langt og smíðað í Qingshan í Kína snemma á þessu ári en búnaður er að öllu leyti vestrænn. 5.400 hestafla MAN aðalvél er í skipinu, Becker-stýri og bógskrúfa. Skipið nær 15,5 mflna ganghraða en ganghraði á öðrum skipum fé- lagsins er 12 til 14 mflur. Skipið hefur 5.575 tonna burð- argetu og tekur 518 gámaeining- ar þar af 120 frystigáma. Á Mánafossi eru tveir 40 tonna kranar og hentar því skipið vel til strandsiglinga hér við land þar sem oft er um að ræða þunga- flutninga og tækjabúnaður í höfn- um ekki fullnægjandi. Þá er unnt að opna lestar skipsins f hlutum sem auðveldar losun og lestun í smærri höfnum. Mánafoss mun verða í strand- siglingum við Island og fer í sína fyrstu ferð á nýársdag. Andlát HARALDUR MATTHÍASSON HARALDUR Matt- híasson, rithöfundur og fyrrverandi menntaskólakennari á Laugarvatni, er látinn á 92. aldursári. Hann fæddist í Háholti í Gnúpverjahreppi hinn 16. mars 1908 en ólst upp í Skarði. Foreldr- ar hans voru Matthías Jónsson bóndi á Skarði og síðar á Fossi í Hrunamanna- hreppi og Jóhanna Bjarnadóttir húsmóð- ir. Haraldur lauk kennaraprófí frá Kennaraskóla íslands árið 1930 og stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1948. Þá lauk hann Cand. mag. prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla íslands árið 1951 og varð dr. phil. við HÍ árið 1959 fyrir rit sitt Setningarform og stíll. Haraldur var ritari á Alþingi 1930 til 1951, skrifstofumaður hjá Skipaútgerð ríkisins 1941 til 1947, kennari við Héraðsskólann að Laugavatni árið 1951 til 1955 og síðan við Menntaskólann á Laug- arvatni 1951 til 1982. Þegar Haraldur varð 75 ára lét hann af kennslu og tók til við rit- störf og liggja eftir hann ritverk og þýðingar. Hann gaf út Landið og Landnáma árið 1983, þýddi bók P.E. Kristi- an Kálund, íslenskir sögustaðir, árið 1984 til 1986, gaf út orða- bók um íslenska tungu, Perlur málsins, árið 1996 og sl. vor kom út eftir hann bókin Þingrofið 14. apríl 1931. Þá má geta þess að hann hefur skrifað ófáar bækur fyrir Ferðafé- lag Islands. Auk þess að starfa sem kennari lengst af og síðar við ritstörf starf- aði Haraldur að íþróttamálum á árunum frá 1930 til 1946 og var í stjórn Knattspyrnufélags Reykja- víkur á árunum 1940 til 1946. Þá var Haraldur þekktur göngugar- pur varð hann heiðursfélagi Ferðafélags íslands árið 1977. Haraldur kvæntist Kristínu Sig- ríði Ólafsdóttur húsmóður og fyrrv. kennara árið 1944 og átti þau fjögur börn. Jóhönnu Vil- borgu, sem er sálfræðingur í Reykjavík, Ólaf Örn, sem er al- þingismaður, Matthías Björn stú- dent sem lést árið 1981 og Þrúði Guðrúnu sem er framkvæmda- stjóri. Mikil viðskipti hjá kortafyrir- tækjunum fyrir jólin Y erslað fyrir meira en milljön á mínútu KAUPMENN eru almennt sam- mála um að verslun fyrir þessi jól hafi aukist frá því í fyrra. Hjá VISA ísland fengust þær upplýsingar að viðskipti með debet- og kreditkort fyrirtækisins hefðu verið komin í 15 milljarða síðari hluta Þorláksmessu. Einar S. Einarsson.forstjóri VISA, segir að út úr þessari tölu megi lesa að tveir milljarðar fari í jólahaldið, en viðskipti með kortin nema um 13 milljörðum í venjulegum mánuði. Ragnar Ögmundsson, hjá Euro- Hverfjall en ekki Hverfell MENNTAMÁLARÁÐUNEYIÐ hefur úrskurðað að ömefnið Hverfjall skuli vera á landakortum frá Land- mælingum íslands á gjóskugíg einum í Skútustaðahreppi, en úrskurðurinn felur það í sér að ömefnið Hverfell sem einnig hefur verið notað um gíg- inn skuli fylgja með í sviga. Áður hafði ömefnanefnd fjallað um málið og úr- skurðað að hann skyldi kallast Hver- fjall en úrskurðurinn var kærður. pay ísland, segir að um fjögurleytið í gær hafi veltan í posakerfínu verið orðin álíka mikil og hún var daginn þar áður, eða hátt í milljarð. Hann segir að allt útlit væri fyrir að aukning yrði í viðskiptum frá því í fyrra. Verslun var með líflegasta móti í gær eins og jafnan er á Þorláks- messu. Til marks um það námu færslur með kortum frá VISA einni milljón króna á mínútu uppúr há- degi en þrem tímum síðar voru færslurnar komnar upp í eina og hálfa milljón á mínútu. Verslunin dreifist vegna lengri afgreiðslutíma Einar Halldórsson, framkvæmda- stjóri Kringlunar, bjóst við að tæp- lega 45 þúsund manns myndi heim- sækja Kringluna á Þorláksmessu. Hann sagði hljóðið í kaupmönnum væri gott og verslunin hefði verið svipuð og í fyrra, en það var mjög gott ár. Einar segir að vegna lengri afgreiðslutíma hafí verslunin verið jafnari en áður og ekki jafn mikið um toppa í verslun og áður hefur tíðkast. Rauði kross * Islands Margir sendifull- trúar er- lendis ALDREI hafa fleiri sendifull- trúar Rauða kross Islands verið við hjálparstörf erlendis, en þrjátíu hafa verið sendir utan á þessu ári. Sendifull- trúar Rauða kross Islands starfa á vegum Alþjóðasam- bands Rauðakrossfélaga og Alþjóðaráðs Rauða krossins og hafa frá upphafi komið að 205 verkefnum í þágu Alþjóða Rauða krossins. Meðal sendifulltrúa RKI sem eru nýfarnir út til starfa eru Andri Lúthersson blaða- maður sem fór til Skopje í Meakedóníu og starfar þar sem upplýsingafulltrúi Al- þjóða Rauða krossins í verk- efnum til aðstoðar fólki vegna átakanna á Balkanskaga. Pál- ína Ásgeirsdóttir hjúkrunar- fræðingur er farin til starfa á Austur-Tímor og verður yflr- hjúkrunarfræðingur á sjúkra- húsinu Alþjóða Rauða kross- ins í Dili. Áslaug Arnoldsdóttir, sem nýlega hefur lokið störfum í Georgíu þar sem hún stýrði berkla- verkefni Alþjóða Rauða kross- ins meðal fanga, er nýfarin til starfa sem heilbrigðisfulltrúi á svæðum Kúrda í Norður- Irak. Vinna í frak og Rúanda Aðrir sendifulltrúar sem eru að störfum um hátíðirnar eru Kristín Ólafsdóttir, sem vinnur að vernd stríðsfanga og almennra borgara í Rúanda, Þorkell Diego Þor- kelsson, sem sinnir stjórn flutninga og dreifingu bjálp- ai-gagna í Belgrad, Omar Valdimarsson, sem vinnur að upplýsinga- og kynningar- störfum fyrir félög Rauða krossins og Rauða hálfmán- ans í Suðaustur-Asíu og er staðsettur í Kuala Lumpur, Hólmfríður Garðarsdóttir hjúkrunarfræðingur, sem vinnur að neyðaraðstoð og uppbyggingu heilsugæslu í Norður-Kóreu og Hlín Baldv- insdóttir, sem stýrir sendin- efnd Alþjóðasambands Rauða- krossfélaga í írak þar sem unnið er að dreifingu matvæla og hjálpargagna. Meðal sendifulltrúa sem eru nýkomnir heim frá störf- um eru Eva H. Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur og Sig- ríður Vala Björnsdóttir sjúkraþjálfari, sem voru í Súdan þar sem Rauði kross- inn aðstoðar heimamenn við rekstur sjúkrahúsa vegna stríðsátaka í landinu. Jón Guðni Kristjánsson frétta- maður er nýkominn heim frá Albaníu þar sem hann starfaði sem upplýsingafulltrúi Rauða krossins vegna aðstoðar við flóttafólk frá Kosovo og Bryn- hildur Ólafsdóttir fréttamaður sem starfaði sem upplýsinga- fulltrúi í Honduras vegna að- stoðar við fórnarlömb felli- bylsins Mitch, er einnig nýkomin heim. Susan Martin viðskiptafræðingur og Sólveig Ólafsdóttir eru líka nýlega komnar heim frá störfum en Susan vann við fjármálastjórn sendinefndar Alþjóða Rauða krossins í Tibilisi í Georgiu og Sólveig var í Kína þar sem hún vann sem upplýsingafull- trúi í tengslum við flóðin þar og jarðskjálftana í Tævan.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.