Morgunblaðið - 24.12.1999, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Yfírlýsing frá Guðmundi Ólafssyni hagfræðingi
Hafnar ásökunum
um rangfærslur
Ingibjörg Ásgeirsdóttir, forsljóri Námsgagnastofnunar, og Ólafur
Loftsson, framkvæmdastjóri Æskunnar, undirrita samninginn.
Námsgagna-
stofnun býður út
gerð námsefnis
MORGUNBLAÐINU hefur borist
yllrlýsing frá Guðmundi Ólafssyni
hagfræðingi vegna svai'a forsvars-
manna Landsvirkjunar um útreikn-
inga á arðsemi Fljótsdalsvirkjunar.
„Niðurstöður mínar um arðsemi
fjármagnsins í fyrirhugaðri Fljóts-
dalsvirkjun samkvæmt þeim forsend-
um er fram komu hjá Finni Ingólfs-
syni í umræðum á Alþingi voru
þessar:
Forsendur
Fjárfesting í 100 ár 25 mmkr.
Rekstrarkostnaður 1% 0,25 mkr.
Framleiðsla GWst 1390
yerð 16 mills, 1,152 kWst 1,152 kr.
Ávöxtunarkrafa Finns 5,50%
Niðurstöður
Hagnaður -0,5475 mkr.
Arðsemi 5,38%
Vegna ummæla starfsmanna
Landsvirkjunar um að þessar for-
sendur séu ónákvæmar og rangar þá
skal eftirfarandi upplýst:
1. Fjárfestingarkostnaður 22 millj-
arðar króna er á heimasíðu Lands-
virkjunar. Við bætist kostnaður
vegna tengsla við almenna kerfíð,
spennuvirki og línur að upphæð 3
Mkr. Færustu sérfræðingar hafa
áætlað þetta fyrir mig.
2. Framleiðslugetan 1390 GWst er
komin frá Landsvirkjunarmönnum
sjálfum og Finni Ingólfssyni í ræðu á
alþingi.
3. Arðsemiskrafan 5,5% er komin
frá Finni Ingólfssyni í ræðu á alþingi.
4. Færustu sérfræðingar hafa sagt
mér að Landsvirkjun geti vart gert
ráð fyrir hærra verði en 1 kr á KWst.
Þeir segja einnig að samkvæmt sögu-
sögnum geri menn sér vonir um að fá
16 mills eða 1,152 kr. á KWst miðað
við gengið 72 kr. á bandaríkjadal.
5. Rekstrarkostnaður er metinn
1% af fjárfestingarverði á sama hátt
og Egill Hreinsson prófessor gerir í
sínum útreikningum í fyrirlestri um
arðsemi íslenskra virkjana nú nýver-
ið.
6. Endingartími virkjunar er met-
inn allt að 100 ár af undirrituðum.
Endingartími umfram 50 skiptir
sáralitlu máli.
Samkvæmt þessum forsendum er
tap á fjárfestingunni og er þá ekki
reiknað með neinum fjármagns-
kostnaði eða greiðslu fyrir land og
náttúruspjöll. Ekki er heldur gert ráð
fyrir bótagreiðslum og uppgræðslu-
verkefnum, líkt og til féllu í Blöndu-
virkjun. Reikningarnir mínir miðast
við að reyna að fá eins hagstæða út-
komu fyrir Landsvirkjun og frekast
er kostur, samkvæmt þeim tölum
sem stofnunin sjálf gefur upp. Það er
ekki þar með sagt að eitthvert vit sé í
arðsemiskröfu upp á 5,5% eins og
Finnur Ingólfsson segir að verði við-
miðunin. Ef bætt væri við rekstrar-
kostnaðinn hér að framan vaxta-
kostnaði upp á 5%, en það mun láta
nærri að sé vaxtakostnaður ríkisins
af verðtryggðum lánum sem stendur,
og miðað við að lánsupphæð sé 20
Mkr sem greiðist upp á 30 árum, þá
yrði tapið af virkjuninni, miðað við
5,5% ávöxtunarkröfu Finns Ingólfs-
sonar, að minnsta kosti 9,9 milljarðar
króna.
Samkvæmt þeim forsendum sem
að framan greinir og eru meira og
minna óumdeildar ásamt þessum hóf-
lega fjármagnskostnaði, þá þarf raf-
orkuverðið að fara yfír 21 mill eða
1,55 kr á KWst til þess að Landsvirkj-
un komist skaðlaust frá þessu ævin-
týri, og fæst þá ekkert fyrir land og
náttúruspjöll.
Svo virðist sem starfsmenn
Landsvirkjunar séu ekki búnir að
íleyga röksemdir sínar í þessu máli,
því að þær eru misvísandi og rugl-
ingslegar.
Þeir kvarta undan því að ég skuli
ekki hafa komið til þeirra og leitað
nánari upplýsinga. Því er til að svara,
að ég nota þær upplýsingar sem gefn-
ar hafa verið upp opinberlega og vill
síður fara að ónáða menn sem virðast
undir nokkrum pólitískum þrýstingi.
Landsvirkjunarmönnum, Finni
Ingólfssyni og öðrum landsmönnum
óska ég árs og friðar um hátíðamar,
þai' sem við munum njóta ljóss og yls
frá Landsvirkjun sem hingað til hef-
ur verið nokkuð gott fyrirtæki og
verður vonandi áfram.“
NÁMSGAGNASTOFNUN hefur
tekið upp þá nýbreytni að bjóða út
námsefnisgerð. Fram að þessu hafa
einungis prentun og aðrir fram-
leiðsluþættir verið boðin út en nú
bætast við ritun texta og gerð eða út-
vegun myndefnis.
I fréttatilkynningu frá Náms-
gagnastofnun segir að markmiðin
með útboðsleiðinni séu þau helst að
lækka útgáfukostnað, stytta útgáfu-
ferlið og ná fram aukinni fjölbreytni í
námsefnisgerð. Látið verði á það
reyna hvort þessi markmið nást með
útboðum og það síðan metið í ljósi
reynslunnar hvort þessi leið eykur
gæði og hagkvæmni í námsefnisgerð
fyrir grunnskóla.
Fyrsta verkið sem boðið var út var
gerð námsefnis í íþróttum, líkams-
og heilsurækt fyrir grunnskóla.
Hagstæðasta tilboðið barst frá Æsk-
unni ehf. og hefur verið undirritaður
samningur milli Námsgagnastofnun-
ar og Æskunnar um gerð efnisins.
Aðalhöfundur efnisins verður Jó-
hann Arnarson, íþróttakennari.
Utboð á næstu verkum hefur þeg-
ar verið auglýst og verða tilboð opn-
uð 12. og 14. janúar nk. Um er að
ræða þjóðfélagsfræði fyrir 10. bekk
og eðlis-, efna- og jarðvísindi fyTÚ'
miðstig.
Ríkiskaup hafa séð um útboð nám-
sefnisgerðar fyrir hönd Námsgagn-
astofnunar.
Flugfélag ís-
lands 2000-hæft
ALLT þetta ár hefur vinnuhópur á
vegum Flugfélags íslands unnið að
því að skilgreina og leysa hinn svo-
kallaða 2000-vanda. Allur tölvubún-
aður félagsins hefur verið yfirfarinn
og haft hefur verið samband við alla
lykilbirgja félagsins og þeir beðnh'
um vottun á 2000-hæfni kerfa. Fé-
lagið hefur einnig fylgst grannt með
vinnu vegna ástands flugvalla og
annarra aðila sem hafa bein áhrif á
rekstur félagsins.
Allri þessari vinnu er lokið fyrir
nokkru og er endurbótum og prófun-
um einnig lokið. Á síðustu vikum hef-
ur verið unnið að varaáætlunum og
lauk þeirri vinnu einnig í byrjun des-
ember. Flugfélag Islands er ekki í
vafa um, að þær aðgerðir sem búið er
að framkvæma muni reynast nægi-
legar til að tryggja hnökralausan
rekstur um aldamótin.
Jóla-
skreyting
á húsið
JÓLASKRAUTIÐ yljar
mörgum um hjartarætur í
skammdeginu og ekki er
seinna vænna en að koma
skreytingunum upp áður en
kirkjuklukkurnar hringja
jólin inn og landsmenn-
fagna jólum. Ljósmyndari
Morgunblaðsins rakst á
hann Þórhall Stefánsson á
dögunum er hann var að
koma þessum fagra kransi
upp á hús sitt. Ekki er
annað að greina úr svip
Þórhalls að hann leggi mik-
inn metnað í verkið enda
erekki um vandalaust verk
að ræða. '
Morgunblaðið/Ásdís
Yfirlýsing frá Holl-
ustuvernd ríkisins um
álver á Reyðarfirði
MORGUNBLAÐINU hefur borist
yfirlýsing frá Hollustuvernd ríkis-
ins vegna umræðna sem fram hafa
farið á Alþingi og í fjölmiðlum um
umsögn sem Hollustuvernd gaf um
álver á Reyðarfírði. Yfirlýsinguna
undirrita fyrir hönd stofnunarinnar
Hermann Sveinbjömsson forstjóri
og Davíð Egilsson, forstöðumaður
mengunarvarnasviðs.
,Á-ð undanförnu hafa fjölmiðlar
fjallað um gagnrýni formanns iðn-
aðarnefndar Alþingis á skipulag-
sstjóra ríkisins vegna málsmeð-
ferðar við úrskurð um mat á
umhverfisáhrifum álvers í Reyðar-
firði og þátt Hollustuverndar ríkis-
ins í því máli. í því sambandi óskar
Hollustuvernd eftir því að taka eft-
irfarandi fram:
1. Hollustuvernd hefur sérstöðu
í stjórnsýslunni þegar kemur að
mati á umhverfisáhrifum frá meng-
andi starfsemi. Stofnunin gefur
umsögn um matsskýrslur til Skipu-
lagsstjóra að ósk embættisins, en
ber síðan að vinna starfsleyfi fyrir
starfsemi og gefa það út m.a. á
grundvelli niðurstöðu mats á um-
hverfisáhrifum.
2. Hollustuvernd fékk mats-
skýrslu framkvæmdaaðila til um-
sagnar og var þar beðið um um-
sögn um 480 þúsund tonna álver í
Reyðarfirði. Stofnunin fór yfir
skýrsluna og taldi að þar væri
mörgum atriðum ósvarað og lagði
til að ráðist yrði í frekara mat.
3. Framkvæmdaaðili hafði
samband við Hollustuvernd og
sagðist hafa búist við umsögn um
480 tonna álver með 120 tonna upp-
hafsáfanga. Stofnunin sagði að er-
indi Skipulagsstofnunar væri skýrt
og við það væri litlu að bæta, en
hún myndi svara Skipulagsstofnun
ef sú stofnun beindi öðrum spurn-
ingum til Hollustuverndar.
4. Skipulagsstofnun hafði sam-
band við Hollustuvernd skömmu
síðar og lagði til að stofnunin gæfi
umsögn um 480 þúsund tonna álver
með 120 þúsund tonna fyrsta áf-
anga. Hollustuvernd sagðist
myndu svara slíku erindi en lét í
ljós um leið efasemdir um að það
breytti einhverju varðandi mats-
ferlið þar sem hin opinbera fyrir-
spurn og frummatsskýrsla fram-
kvæmdaaðila sneri að 480 þúsund
tonna álveri.
5. Hollustuvernd svaraði hinn
26. nóvember framkomnu bréfi
Skipulagsins dagsettu 18. nóvem-
ber um mat á 1. áfanga eins og
honum var lýst í frummatsskýrsl-
unni. Niðurstaða Hollustuverndar
var: Væri miðað við að lagt yrði
mat á áhrif 120 þúsund tonna ál-
vers, þá væru forsendur til að
vinna starfsleyfi fyrir álverið, að
uppfylltum ýmsum skilyrðum sem
talin eru upp í bréfínu. Það breytir
ekki á neinn hátt skoðun Hollustu-
verndar varðandi mat á umhverfis-
áhrifum 480 þúsund tonna álvers.
6. Framkvæmdaaðili fundaði, í
millitíðinni, með helstu umsagna-
raðilum þar sem hann fór yfir til-
tæk gögn og svaraði fyrirspurnum.
Hollustuvernd lagði fram fjölmarg-
ar sundurliðaðar spurningar á
þessum fundi. Framkvæmdaaðili
lagði síðar fram gögn sem svöruðu
mörgum af þeim spurningum sem
Hollustuvernd hafði borið fram.
7. Skipulagsstjóri kallaði eftir
athugasemdum við þessar viðbót-
arupplýsingar í bréfi dagsettu 29.
nóvember, en það bréf og svar
Hollustuverndar hinn 6. desember,
varðar í raun ekki hina opinberu
fyrirspurn heldur snýr að síðari
stigum, einkum þegar kemur að
starfsleyfisgerð sem Hollustuvernd
sér um. Hins vegar eru tilvitnuð
bréf í skrá yfir umsagnir og sér-
fræðiálit, sem fylgir úrskurði
Skipulagsstjóra.
Það er því mat Hollustuverndar
ríkisins að það sé fullkomlega eðli-
legt að úrskurður Skipulagsstjóra
snúi einkum að mati á umhverfís-
áhrifum 480 þúsund tonna álvers,
og að bréf Hollustuverndar frá 6.
desember sl. hafi ekki gefið Skipu-
lagsstjóra tilefni til að úrskurða um
annað en 480 þúsund tonna álver.
Þess vegna var, að mati Hollustu-
verndar, ekki nein forsenda fyrir
því að taka niðurlag úr bréfi stofn-
unarinnar, dags 6. desember sl., til
umfjöllunar í úrskurðinum."