Morgunblaðið - 24.12.1999, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999
MORGUN BLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Gatnager ðargj öld
fjölbýlishrisa
hækka um 50,4%
Hafnarfjörður
LAGÐAR hafa verið fyrir
bæjarráð Hafnarfjarðar til-
lögur að breyttu gatnagerð-
argjaldi. Þær fela í sér
50,4% hækkun vegna fjöl-
býlishúsa og 8,3% hækkun
vegna raðhúsa, parhúsa og
tvíbýlishúsa.
Magnús Gunnarsson, bæj-
arstjóri Hafnarfjarðar, sagði
í samtali við Morgunblaðið
að tillögur þessar þýddu
ekki að Hafnfirðingar væru
að fara í kjölfar borgar-
stjórnar Reykjavíkur sem
lét verð á tilboðsmarkaði
ráða gjaldtöku vegna lóða í
Grafarholti.
„Það er ekki verið að fara
út í Reykjavíkurleiðina,“
sagði Magnús.
Hann segir að þegar nú-
gildandi gjaldskrá tók gildi
fyrir nokkrum árum hafi
verið farið að miða gjald-
töku við fermetrastærð lóð-
ar en ekki stærð húss í rúm-
metrum eins og áður. „Það
virðist ekki hafa verið litið
til þess að nýtingarhlutfall
lóða er mismunandi eftir
húsgerð," sagði Magnús.
„Fyrri gjaldskrá tók mið af
þessu og þess vegna voru
rúmmetragjöld af raðhúsum
lægri en af einbýlishúsum
og rúmmetragjöld af fjölbýl-
ishúsum lægri en af raðhús-
um. Nú eru þessi rök ekki
lengur fyrir hendi; raðhúsa-
lóð hefur nýtingarhlutfall
40-45%, einbýlishúslóðir 35-
40% og fjölbýlishúsalóðir
um 65%. Þannig verður
gjaldið á byggðan fermetra í
fjölbýlishúsi mun lægra en í
einbýlishúsi þótt sama gjald
sé á fermetra í lóð. Tillög-
urnar þýða í reynd að við
erum að samræma gatna-
gerðargjöldin en um leið ér-
um við að horfa til þess að
gatnagerðargjöldin þurfa
auðvitað að standa undir
gatnagerð í viðkomandi
kerfi. Það má því segja að
gjaldskráin hafi í upphafi
verið of lág, sérstaklega
varðandi fjölbýlishúsin. Það
er óeðlilegt að einbýlishúsin,
tvíbýlishúsin og raðhúsin
eigi að bera uppi þessa
skekkju sem varð við breyt-
ingu úr rúmmetragjaldi í
fermetragjald," sagði Magn-
ús.
Hann sagði að bæjarverk-
fræðingur hefði reiknað út
að gatnagerðargjöld sam-
kvæmt gildandi gjaldskrá
stæðu ekki undir kostnaði
við gatnaframkvæmdir.
Tillögur bæjarverkfræð-
ings, sem bæjarráði hafa
verið kynntar, gera ráð fyrir
50,4% hækkun gatnagerðar-
gjalda vegna fjölbýlishúsa,
0,3% hækkun vegna einbýl-
ishúsa en 8,3% hækkun
vegna par-, rað-, og tvíbýlis-
húsa.
Magnús sagði að tillög-
urnar leiddu til þess að
gjaldskrá bæjarins yrði
áþekk gildandi gjaldskrá í
Garðabæ. Hann sagði stefnt
að því að þessi nýja gjald-
skrá mundi gilda fyrir út-
hlutun 2. áfanga í Áslandi en
um þessar mundir er verið
að auglýsa lóðaúthlutun þar.
Hann sagði tekið tillit til
þess að kröfur um umhverf-
isfrágang í hverfum hefðu
aukist verulega, einnig kröf-
ur vegna umferðaröryggis-
mála. „Varðandi 2. áfangann
í Áslandi má nefna að það
þarf að ganga frá tveimur
undirgöngum til að tryggja
íbúum Áslands greiða leið
niður í önnur hverfi bæjar-
ins. Annar þáttur er að Ás-
landshverfið er tiltölulega
dýrt í skipulagi; göturnar
rúmar og tengibraut hverf-
isins umlykur það og er til-
tölulega löng,“ sagði Magn-
ús Gunnarsson.
Beðið
eftir há-
tíðinni
Laugavegur
f kvöld kemur Ioksins að því
sem börn á öllum aldri hafa
beðið með óþreyju á aðvent-
unni. Hátíðin gengur í garð
með gleði og frið og líka góð-
um mat, sparifótum og jóla-
gjöfum. Kannski er bók í
pakka, sem hann fær, litli
bókaormurinn, sem stytti sér
stundir með bók í hönd með-
an foreldramir versluðu í
bókaverslun Máls og menn-
ingar.
Nýr forstöðumaður
félagsþjónustu
Hafnarfjörður
BÆJARSTJÓRN Hafnar-
fjarðar hefur ráðið Sæmund
Hafsteinsson í stöðu for-
stöðumanns Félagsþjón-
ustu Hafnarfjarðar. Níu
sóttu um starfið.
Á síðasta bæjarstjómar-
fundi fór íram atkvæða-
greiðsla og hlaut Sæmund-
ur 10 atkvæði en Þór
Garðar Þórarinsson 1. Eftir
atkvæðagreiðsluna var lýst
yfir ráðningu Sæmundar.
Fulltrúar Samfylkingai--
innar létu bóka um málið að
þeir hefðu greitt atkvæði
með þeim sem þeir teldu
hæfastan margra góðra um-
sækjenda til að halda vel ut-
an um starfsemi og rekstur
Félagsþjónustunnar og
ekki síst að tryggja það
starfsumhverfi og þann
starfsfrið sem sé nauðsyn-
legur svo mikilvægri þjón-
ustu. Um leið sé ítrekað að
vinnubrögð mehihluta bæj-
arstjómar við brottvikningu
íyrrverandi félagsmála-
stjóra og aðstoðarfélags-
málastjóra á sl. sumri hafi
verið óvenjuósmekkleg og
ólögmæt að mati fulltrúa
Samfylkingarinnar.
Morgunblaðið/Ásdís
Mikil óánægja er með ráðnimm skólastjóra Tónlistarskóla Garðabæjar
Skólanefndarformaður
segir af sér að óbreyttu
Garðabær
BÆJARRÁÐ Garðabæjar
hefur boðið skólanefnd Tón-
listarskóla bæjarins og full-
trúa kennara þar til fundar
næstkomandi þriðjudag til að
ræða ráðningu Agnesar Löve
í starf skólastjóra skólans og
óánægju starfsfólks með að
gengið var fram hjá Smára
Olasyni yfirkennara, sem
skólanefnd mælti með.
Skólanefndin hefur áréttað
tillögu sína um að Smári verði
ráðinn. Guðmundur Hall-
gn'msson, formaður skólan-
efndar Tónlistarskólans og
formaður Sjálfstæðisfélags
Garðabæjar, segir að afsögn
sín úr skólanefnd vofi yfir,
komi Agnes til starfa sem
skólastjóri.
Allir starfsmenn skólans
hafa undirritað yfirlýsingu
þar sem lýst er óánægju með
málsmeðferðina. Yfirlýsing
þeirra verður borin í öll hús í
bænum.
Óánægja óvenjuleg
þegar bæjarstjórn
er einhuga
„Það er ákvörðun bæjar-
stjórnar að ráða Agnesi Löve
í þetta starf og hún er sam-
róma um þá niðurstöðu,“
sagði Ingimundur Sigurpáls-
son bæjarstjóri í samtali við
Morgunblaðið. Hann segir
óvenjulegt að óánægja komi
upp í bæjarfélaginu um mál
sem bæjarstjórnin er einhuga
um.
Um gagnrýni starfsmanna
Tónlistarskólans á málsmeð-
ferðina sagði bæjarstjóri að
skólanefnd Tónlistarskólans
væri ráðgefandi nefnd fyrir
bæjarstjórn, samkvæmt sam-
þykktum sem bæjarstjórn
hefði sett. „Umsögn skólan-
efndar liggur fyrir en það úti-
lokar ekki að bæjarstjórn afli
umsagna hjá öðrum aðilum.
Það fer ekki milli mála að
bæjarstjórn ræður skóla-
stjóra samkvæmt sveitar-
stjórnarlögum og samþykkt-
um um stjórn Garðabæjar.
Að sjálfsögðu er tekið tillit til
umsagnar skólanefndar, eftir
því sem hægt er, og annarra
umsagna. En bæjarstjórn ber
ábyrgð á rekstri skólans og
hefur þar af leiðandi síðasta
orðið í sambandi við manna-
ráðningar,“ sagði bæjarstjóri.
Vona að við verðum öll
menn til að leysa málið
Spurður hvort hann hefði
áhyggjur af starfsanda og
starfsemi Tónlistarskólans á
nýju ári í ljósi megnrar
óánægju starfsmanna sagði
Ingimundur að vissulega
væri það alltaf miður þegar
svona mál koma upp. „Það fer
ekkert á milli mála. En ég
vona að við verðum öll menn
til þess að leysa það farsæl-
lega í þágu nemenda, kennara
og framtíðar Tónlistarskól-
ans,“ sagði Ingimundur.
Skólanefnd Tónlistarskól-
ans hefur með nýrri sam-
þykkt áréttað þá afstöðu sína
að ráða beri Smára Ólason,
yfirkennara, í starfið. Ingi-
mundur sagði að bæjarráð
hefði boðað skólanefndina og
fulltrúa kennara á sinn fund
næstkomandi þriðjudag.
„Meiningin er að fara yfir
ábyrgð bæjarstjórnarinnar
og feril þessa máls,“ sagði
Ingimundur. Hann sagði að
enginn gæti undið ofan af
samþykkt bæjarstjórnarinn-
ar annar en bæjarstjórnin
sjálf og næsti formlegi fundur
hennar verði eftir áramót.
Ingimundur kvaðst ekkert
geta sagt um hvort hugsan-
legt væri að málið yrði tekið
að nýju til meðferðar, og e.t.v.
endurskoðunar, í bæjar-
stjórn, þar sem ráðning Agn-
esar var ákveðin með atkvæð-
um allra fulltrúa. Með
samþykkt bæjarstjórnar um
að ráða Agnesi væri hún orð-
in aðili að málinu.
í máli Ólafs Elíassonar,
kennara við Tónlistarskól-
ann, í Morgunblaðinu í gær
kom fram gagnrýni
á að kosningin í bæj-
arstjórn virtist hafa
farið fram án um-
ræðu. Ingimundur
sagði að yfirleitt
færu mál í gegnum
bæjarráð og aðeins
fundargerð bæjar-
ráðs komi til umfjöll-
unar í bæjarstjórn.
Einungis brot þeirra
mála væru tekin til
umræðu í bæjar-
stjórn. „Þannig að
það er ekki óeðlilegt
að menn séu ekki að
ræða það á opinber-
um fundi hver er
ráðinn og forsendur
fyrir því. Ég minnist
þess reyndar ekki að
það hafi gerst,“
sagði bæjarstjóri.
Óvenjulegt væri hins vegar
að annar aðili en bæjarráð
væri umsagnaraðili. „I þessu
tilviki, af því að skólanefnd
var umsagnaraðili og bæjar-
ráðið hafði aðrar meiningar
en skólanefnd, var afgreiðsl-
an í bæjarráði sú að vísa þeim
tillögum sem lágu fyrir um
nöfn til afgreiðslu í bæjar-
stjórn. Það er ekkert óvenju-
legt við það að mál séu ekki
tekin upp og rædd sérstak-
lega í bæjarstjórninni. Það
sem er óvenjulegt í þessu er
að bæjarstjórnin skuli vera
einhuga í máli sem síðan er
misklíð um úti í bæ. Yfirleitt
eru svona mál tilkomin vegna
þess að það er verið að væna
menn um að vera með pólitísk
hrossakaup. Það að bæjar-
stjórn er einhuga ber að
minnsta kosti vott um að það
er ekki pólitík í þessu máli,“
sagði Ingimundur.
Varaði við stórslysi
Guðmundur Hallgrímsson,
formaður skólanefndar Tónl-
istarskóla Garðabæjar, sem
mælti með ráðningu Smára,
sagði í samtali við Morgun-
blaðið að sér þætti sú staða
sem komin er upp í málum
Tónlistarskólans ekki góð.
Hann segist ekki skilja hvað
búi að baki afgreiðslu bæjar-
stjórnar. „Ég var búinn að
vara meirihlutann alvarlega
við að það gæti orðið stórslys
ef þeir tækju ekki tillit til
þess sem ég var að segja,“
sagði Guðmundur. „Þessi
manneskja, sem þeir vilja fá,
hlýtur að vera búin gífurleg-
um kostum ef þeir vilja fara í
þennan slag og setja allt í
uppnám. Ég hef ekki fengið
skýringu á því. Reynsla mín
af yfirkennara skólans, sem
við mælum með, hefur verið
þannig að hann hefur vaxið í
áliti hjá mér. Við höfum átt
ágætt samstarf og hann á
stuðning fyrrverandi skólast-
jóra og allra kennara.“
Guðmundur segir að skól-
anefndin hafi lagt mikla vinnu
í að fara yfir umsóknir og
komast að þeirri niðurstöðu
að mæla með ráðningu
Smára. Hann kveðst telja að
bæjarstjórnin hafi vanmetið
stöðuna og telur þau vinnu-
brögð, að efna til atkvæða-
greiðslu án umræðu, furðuleg.
Hann kveðst þó ekki draga í
efa lagalegt vald bæjai-stjórn-
arinnar í málinu.
Skólanefndin hefur komið
saman til fundar og ítrekað
fyrri tillögu sína með rökstuð-
ningi. „Við segjum í seinna
áliti okkar að okkur finnist
það ekki góð stjórnsýsluað-
gerð að líta fram hjá tillögu
okkar án þess að gefa rök og
skýringar heldur fara beint í
atkvæðagreiðslu,“ segir hann.
Telur fleiri en einn munu
segja af sér úr skólanefnd
Á fundi með kennurum eftir
bæjarstjórnarfundinn lýsti
Guðmundur því yfir að hann
mundi segja af sér úr skólan-
efndinni gengi ráðning Agnes-
ar eftir og hann segir að sú yf-
irlýsing hafi verið eðlileg og
ekki gefin í neinu reiðikasti.
„Ég varð svo yfir mig hissa á
þessari afgi-eiðslu,“ sagði
hann. „Það var verið að segja
við mig að ég hefði ekki verið
traustsins verður í þessu
starfi og viðvörun mín var að
engu höfð. Ef Agnes kemur
þarna hef ég ekkert að gera í
skólanefnd og reikna með að
fleiri fari úr skólanefndinni -
en ekki allir.“
Guðmundur segist hafa
skilning á því að það hljóti að
vera erfitt fyrir bæjarstjórn-
ina að ljúka málinu undir
þrýstingi. Á hinn bóginn sé al-
varlegt að setja starfsemi
skólans í uppnám. „Menn
verða að vera vissir um nauð-
syn þess að skera upp ef þeir
ætla út í slíkar aðgerðir. Starf
skólans hefur verið í góðu lagi
og þar hefur ríkt góður andi.
Það hafa ekki komið neinar
ábendingar um nauðsyn þess
að fá nýtt blóð eða skera upp í
starfi skólans," segir hann.