Morgunblaðið - 24.12.1999, Side 18
18 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Samvinnusjóður íslands hf. selur hlutabráf
Ástæðan skammtíma-
vandi í fjármögmm
SAMVINNUSJÓÐUR íslands hf.
hefur undanfarið selt hlutabréf í eigu
sjóðsins, t.d. öll bréf sem sjóðurinn
átti í Olíufélaginu hf., og einnig hefur
m.a. VIS innleyst bréf sín í sjóðnum.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er ástæðan sú að vegna
stöðunnar á lausafjármarkaði hefur
sjóðurinn ekki fengið skammtímalán
til endurfjármögnunar á lengri tíma
lánum.
Bréfin sem keypt hafa verið af
Samvinnusjóðnum hafa verið sett í
eignarhaldsfélagið Traustfang hf.,
sem er í eigu VIS, Samvinnusjóðsins,
Samvinnulífeyrissjóðsins, Mundils
hf. og Oh'ufélagsins hf.
Auk þess sem Samvinnusjóðnum
hefur ekki tekist að fá endurfjár-
mögnun hefur honum reynst erfitt
að fá skammtímalán á erlendum
mörkuðum, en samdráttur í skamm-
tímalánum erlendra lánastofnana fór
að gera vart við sig strax í síðasta
mánuði vegna 2000-vandans.
Nú stendur yfir hlutafjáraukning í
Traustfangi og er boðið út hlutafé að
söluverði 1.700 milljónir króna. M.a.
með kaupum á bréfum Samvinnu-
sjóðs hefur hluti af núverandi hlut-
höfum skráð sig fyrir 74% af hækk-
uninni en samkvæmt því sem fram
kemur í tilkynningu til Verðbréfa-
þings rennur forkaupsréttur út 15.
janúar næstkomandi. Tilgangur fé-
lagsins er eignarhald á hlutabréfum
og hlutum í félögum, eignarhald á
fasteignum og rekstur þeirra, svo og
lánastarfsemi og skyldur rekstur.
Kaupþing með 5,5% í Eimskip
Markaðsvirðið um 2 milljarðar
KAUPÞING hf. hefur tilkynnt til
Verðbréfaþings Islands að eignar-
hlutur fyrirtækisins í Eimskipafé-
lagi íslands hf. sé komin úr 3,84% í
5,5%. Markaðsvirði hlutar Kaup-
þings í Eimskip er því ríflega tveir
milljarðar króna.
í morgunkorni Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins kemur fram
að gengi hlutabréfa í Eimskip hafi
hækkað um tæp 20% á síðastliðn-
um 30 dögum og ugglaust megi
rekja hækkunina að nokkru leyti
til kaupa Kaupþings á bréfum á
markaði. Markaðsvirði Eimskips
er nú ríflega 40 milljarðar króna
en hagnaður af reglulegri starf-
semi fyrir fyrstu sex mánuði ársins
nam 408 milljónum króna. „Og sé
gert ráð fyrir 800 m.kr. hagnaði af
reglulegri starfsemi á árinu er V/H
hlutfall félagsins 50. Rétt er að
taka fram að markaðsverð Eim-
skips byggist ekki síður á dulinni
eign í hlutabréfum en markaðs-
virði umfram bókfært virði hluta-
bréfa í eigu Burðaráss, fjárfesting-
arfélags Eimskips, miðað við
stöðuna um sl. áramót, nemur um
8,3 milljörðum króna,“ að því er
fram kemur í morgunkorni FBA í
gær.
Mikil viðskipti hafa verið með
hlutabréf Eimskips það sem af er
ári, rúmar 350 milljónir króna að
nafnverði eða um 3,3 milljarðar að
markaðsvirði og hefur gengi bréf-
anna hækkað um rúm 70% á árinu,
úr 7,70113,11.
Hluthafar 23. desember 1999
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
Hluthafi
Hlutafé, m.kr.
Nafnverð
Hlutur
3 P Fjárhús
Lífeyrissj. Norðurlands
Verkfræðistofan Meka
Alm. hlutabréfasjóðurinn
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins
Lífeyrissj. Vestfirðinga
Lífeyrissj. Verkfræðingafél. ísl.
Valdimar Snorrason
Faxeyri
Eignarhaldsfél. Alþýðubankinn
22,3
9,2 Pp 7,26%
5.7 4,47%
5.4 BH&I 4,28%
4.7 WM 3,72%
4,7 Bfl 3,69%
4.5 3,53%
4,0 HS 3,18%
3.5 H 2,76%
30 milljóna hlutafjárútboði Sæplasts lokiö
80% umframeftirspurn
UMFRAMEFTIRSPURN eftir
hlutabréfum í útboði Sæplasts var
um 80% en útboðinu lauk í gær.
Alls voru boðnar út 30 milljónir
króna að nafnverði á genginu 9 eða
sem nemur 270 milljónum að kaup-
verði til 375 hluthafa.
Áskriftarblöð bárust frá 177 hlut-
höfum sem áttu rétt á að skrá sig
fyrir 26,6 milljónum króna að nafn-
verði af þeim 30 milljónum sem
boðnar voru til sölu. 105 hluthafar
óskuðu eftir umframáskrift að fjár-
hæð samtals 27,3 milljónir króna að
nafnverði. Umframeftirspurnin nam
því um 80% og samtals var óskað
eftir hlutabréfum að fjárhæð 54
milljónir í útboðinu eða sem nemur
486 milljónum króna að kaupverði.
3,4 milljónir að nafnverði koma því
til skipta þeirra 105 hluthafa sem
óskuðu eftir umframáskrift.
Tilgangur útboðsins, sem Fjár-
festingarbanki atvinnulífsins hafði
umsjón með, er að styrkja eigin-
fjárstöðu félagsins vegna fjárfest-
inga á árinu. Þar er um að ræða
kaup á þremur verksmiðjum er-
lendis, tveimur í Noregi og einni í
Kanada.
Breytingar á lögum um tekju- og eignarskatt
Eign í ríkisbréfum ekki
að fullu frádráttarbær
Hlutafjárútboði
Hraðfrystihússins
Gunnvarar lokið
Allt selt til
forkaupsrétt-
arhafa
HLUTAFJÁRÚTBOÐI Hrað-
frystihússins-Gunnvarar hf. lauk í
gær með 58% umframeftirspum,
að því er fram kemur í tilkynningu
frá íslandsbanka F&M.
í boði var 50 milljóna króna nýtt
hlutafé í félaginu, að nafnverði á
genginu 6,25 eða samtals 312,5
milljónir króna að markaðsvirði.
Allt hlutafé í boði seldist til for-
kaupsréttarhafa og ennfremur
óskuðu hluthafar eftir 29 milljón-
um króna að nafnverði í umfram-
áskrift, sem þýðir að eftirspurn
umfram framboð var 58%.
EIGN mannaíríkisverðbréfum kem-
ur ekki að öllu leyti til frádráttar frá
skattskyldum eignum, heldur aðeins
sú eign í ríkisverðbréfum sem er um-
fram skuldir, samkvæmt breytingum
á annarri málsgrein 78. greinar laga
nr. 75 frá 1981 um tekju- og eignar-
skatt, sem samþykktar voru sem lög
frá Alþingi á seinasta þingfundi árs-
ins 21. desember síðastliðinn.
Fyrir breytinguna var öll eign
manna í ríkisverðbréfum óháð
skuldastöðu frádráttarbær frá eign-
arskattsstofni. Innstæður manna í
bönkum voru hins vegar aðeins frá-
dráttarbærar að því marki sem þær
voru umfram peningalegar skuldir.
jJ’essi breyting á lögunum þýðir
það fyrst og fremst að hjá þeim sem
eiga ríkisverðbréf, og ef þeir skulda
en eiga samt sem áður eignir yfir
skattleysismörkunum, eru rikisverð-
bréfin aðeins frádráttarbær að því
marki sem upphæð þeirra er umfram
skuldimar," segir Indriði H. Þorláks-
son, ríkisskattsstjóri, í samtali við
Morgunblaðið.
Samkvæmt áður gildandi lögum
var unnt að stofna til skulda og kaupa
fyrir ákveðna upphæð ríkisverðbréf,
án þess að þau sættu eignarskatts-
álagningu. „Með ráðstöfununum
mynda menn í raun eins konar tvöfalt
eignarskattsfrelsi þar sem skuld
vegna kaupa á ríkisbréfum er frá-
dráttarbær frá öðrum eignum um
leið og ríkisbréfin eru eignarskatts-
frjáls óháð skuldum," sagði í greinar-
gerð efnahags- og viðskiptanefndar
Alþingis sem lagði fram frumvarpið
til breytinga á lögunum. Þar sagði
einnig að forsendur fyrir annarri
málsgrein 78. greinar um skattfrelsi
ríkisverðbréfa hefði verið sú að örva
eðlileg viðskipti með verðbréf ríkis-
sjóðs.
Skuldir dragast frá
eign í ríkisverðbréfum
„Ríkisverðbréf hafa nú styrka
stöðu á markaði og eru almennt talin
góður og öruggur sparnaðarkostur
til lengri tíma. Á síðustu misserum
hefur hins vegar borið á því að ein-
staklingar taki fé að láni til að kaupa
ríkisverðbréf til skamms tíma um
áramót í því skyni að lækka eignar-
skatt sinn. Þjónusta í tengslum við
slíka geminga er beinlínis auglýst í
fjölmiðlum og þykir því nauðsynlegt
að taka afdráttarlaust á því í löggjöf
að slík viðskipti með ríkisbréf geti
aldrei orðið grundvöllur fyrir lækkun
eignarskattsstofns,“segir einnig.
Eftir breytinguna sem samþykkt
var 21. desember eru ríkisverðbréf
því enn frádráttarbær frá skatti.
Skuldir sem eigandinn hefur stofnað
til dragast hins vegar frá þeirri upp-
hæð þeirra sem dregst frá eignar-
skattsstofni, og er því ekki lengur
unnt að taka lán til kaupa á ríkisverð-
bréfum sem komi öll til frádráttar.
í umfjöllun Viðskiptablaðs Morg-
unblaðsins sem birtist fimmtudaginn
2. desember síðastliðinn, áður en
lagabreytingin varð, kom fram að
bankamir byggjust við 10-20 millj-
arða króna eftirspurn manna eftir
lánsfé til skamms tíma rétt fyrir ára-
mótin, sem varið yrði til kaupa á rík-
isverðbréfum sem yrðu svo aftur seld
skömmu eftir áramót til að fá frá-
drátt frá eignarskatti. Áramótin á
undan höfðu eignamenn gert shkt og
keypt ríkisverðbréf í stómm stíl í
þeim tilgangi að lækka eignarskatt.
Þetta hefði verið í smærri stíl, en for-
ráðamenn bankanna bjuggust við
meiri eftirspum nú.
Ekki veruleg áhrif
fyrir venjulega sparendur
Um það hvort breytingarnar þýði
lakari stöðu fyrir þá sem áttu ríkis-
verðbréf og skulduðu jafnframt, en
stunduðu þó ekki skammtímavið-
skipti af því tagi sem að ofan var lýst,
segir Indriði að athugun ríkisskatt-
stjóraembættisins, sem gerð var af
þessu tilefni, hafi leitt í Ijós að áhrifin
yrðu fremur lítil fyrir fólk sem væri
að spara í þessu formi, í eðlilegum til-
gangi.
„Mjög margir em skuldugir fyrir
vegna íbúðarkaupa, en þess ber þar
að geta að þeir skaðast þó því aðeins
að þeir greiði eignarskatt. Margir
sem eiga íbúðarhúsnæði á móti
skuldum eiga ekki miklar nettóeign-
ir, og eignarskattsstofninn hjá þeim
er þegar núll og hefur ekki áhrif.
Við álagningu á næsta ári verður í
gildi bráðabirgðaákvæði sem kveður
á um að eign upp að 2 miHjónum hjá
einstaklingi og 4 milljónum hjá hjón-
um í ríkisverðbréfum verður frá-
dráttarbær frá eignarskattsstofni
óháð skuldastöðunni," segir Indriði.
Indriði segir að vegna almennra
skattleysismarka geti einstaklingar
eða hjón átt einhverjar nettóeignir
og jafnframt átt töluverða upphæð í
þessum bréfum, án þess að til eignar-
skatts komi.
Tvær aðrar breytingar vora sam-
þykktar á lögunum um tekju- og
eignarskatt. Þær breytingar fela
annars vegar í sér að nú era ellilífeyr-
isgreiðslur skattlagðar hjá þeim sem
njóta greiðslnanna hafí verið samið
um skiptingu greiðslnanna. Hins
vegar vora samþykktar þær breyt-
ingar á lögunum að heimild til sam-
sköttunar móður- og dótturfélaga
tekur nú einnig til eignarskatts.
Við óskum viðskiptavinum okkar og umsækjendum
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
PricewaterhouseCoopers
Höfðabakka 9 • 112 Reykjavík • Sími 550 5300 • Bréfasími 550 5302 • www.pwcglobal.com/is
I