Morgunblaðið - 24.12.1999, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
250 lækn-
ar grun-
aðir um
fjársvik
ALLT að 250 geislalæknar í
Astralíu eiga yfír höfði sér
málsókn vegna gruns um að
þeir hafi svikið út andvirði
tuga milljóna króna úr sjúkra-
tryggingakerfinu, að sögn
Michaels Wooldridge, heil-
brigðismálaráðherra landsins
ígær.
Málið tengist þeirri ákvörð-
un ástralska þingsins í maí á
síðasta ári að heimila
áströlsku sjúkratrygginga-
stofnuninni að endurgreiða
andvirði 22.000 króna fyrir
hverja segulsneiðmyndun sem
óskað var eftir fyrir 12. maí
það ár. Flestir læknanna 250
eru grunaðir um að hafa
breytt dagsetningum rann-
sóknarbeiðna til að geta feng-
ið endurgreiðslumar.
„Þetta er viðamesta
fjársvikarannsókn sem gerð
hefur verið í tengslum við
sjúkratryggingakerfið,“ sagði
Wooldridge. „Þetta er mjög
alvarlegt mál og við ætlum að
fylgja því eftir af fullri hörku í
samræmi við lögin.“
Verði læknarnir fundnir
sekir eiga þeir yfir höfði sér
að verða sviptir starfsleyfi,
sektaðir eða dæmdir í fang-
elsi.
Estoniu sökkt
með sprengju?
SÉRFRÆÐINGANEFND
sem þýska skipasmíðastöðin
Meyer-Werft kom á fót
hyggst leggja fram sannanir
fyrir því að ferjunni Estoniu
hafi verið sökkt með
sprengju, segir í frétt Ritzau-
fréttastofunnar. Alls fórust
852 með ferjunni sem sökk
skammt frá finnsku eyjunni
Utö í september 1994. Öpin-
ber nefnd skipuð Svíum,
Finnum og Eistlendingum
komst að þeirri niðurstöðu að
hönnunargalli hefði valdið
slysinu en ferjan var smíðuð
hjá Meyer-Werft sem er í
Rostock.
„Stærsta
jólatré
heims“
KVEIKT verður á rúmlega
5.000 ljósaperum á sjónvarps-
tuminum í
Vilnius, höf-
uðborg Lithá-
ens, í dag
þegar honum
verður breytt
í „stærsta
jólatré"
heims. Það
verður rúm-
lega 326
metra hátt en
stærsta jóla-
tré Evrópu til
þessa, málm-
tré í Aþenu,
er aðeins 38
metra hátt.
Skipuleggj-
endurnir hafa óskað eftir því
að „tréð“ verði skráð í heims-
metabók Guinness. Verkefnið
kostaði andvirði rúmra níu
milljóna króna og var fjár-
magnað með framlögum fyrir-
tækja og einstaklinga.
Sjónvarpsturninn
í Vilnius
Enn eitt flugslysið hjá Korean Airlines
Boeing 747-200 flutningaþotan
var á leið til Mílanó á Ítalíu hlaðin
rafmagnstækjum og efnum á borð
við bensón. Vélin skall niður á opnu
landssvæði skömmu eftir flugtak
og varð mikil sprenging í flakinu.
Fjögurra manna áhöfn vélarinnar
lést og hafa yfírmenn flugfélagsins
ekki viljað tjá sig um hvort hrap
vélarinnar kunni að tengjast þeim
varningi sem hún bar, en segja
ólíklegt að um mannleg mistök sé
að ræða þar sem flugmaður og
áhöfn hafi verið þaulreynd. Von var
á fulltrúum frá Suður-Kóreu til St>
anstead-flugvallar seinni partinn í
gær til að taka þátt í rannsókninni.
Loka varð flugvellinum í kjölfar
slyssins og fresta flugi 80 véla og
biðu þúsundir farþega þess að flug-
völlurinn væri opnaður á ný í gær-
morgun.
Vélar Korean Airlines hafa átt
hlut að máli í fimm óhöppum á síð-
ustu tveimur árum. Síðast í apríl
hrapaði flutningaþota félagsins á
byggingarsvæði í Shanghai stuttu
eftir flugtak með þeim afleiðingum
að níu manns létust og þrjátíu slös-
uðust.
„Við munum gera okkar besta til
að upplýsa hver var orsök slyssins
hið fyrsta og gera viðeigandi ráð-
stafanir," sagði Han Sang-bum,
upplýsingafulltrúi Korean Airlines,
á blaðamannafundi í Seoul í gær.
„Okkur þykir miður að þetta hafí
gerst, einmitt á sama tíma og við
leggjum mikla áherslu á að bæta
öryggismál okkar.“
Segja mannleg
mistök ólfldeg
Breskir lögreglumenn kanna flak kóresku flugvélarinnar.
Hefur orð á sér fyrir slæma
aðgæslu í öryggismálum
Stanstead. Reuters, AP, AFP.
ENN liggja ekki fyrir orsaldr þess
að flutningavél Korean Airlines
hrapaði skömmu eftir flugtak frá
Stanstead-flugvelli norður af
London á miðvikudag.
Að sögn lögreglu í Essex bárust
engin neyðarköll frá flugmönnun-
um áður en vélin skall á jörðinni.
„Hvað sem annars gerðist þama
þá gafst flugmönnunum ekki tími
til að hafa samband,“ sagði Charles
Clark aðstoðarlögreglustjóri Es-
sex-lögreglunnar. Þegar hefur einn
af svörtu kössum vélarinnar fund-
ist og er hins leitað.
Kóresk stjórnvöld hafa vítt Kor-
ean Airlines vegna atburðarins. En
félagið hefur slæmt orð á sér í ör-
yggismálum og hafa kóresk stjórn-
völd framlengt árs bann á fjölgun
alþjóðlegra flugleiða félagsins um
sex mánuði. Fyrra bannið tók gildi
í síðasta mánuði.
'm
Viðvaranir um hryðjuverkahættu
í Bandarrkjunum yfír hátíðarnar
Bandarískir borg
arar hvattir til
að halda ró sinni
Washington. ^AP.
Skattalækkun í Þýzkalandi
Jólagjöf sem bætir
stöðu Schröders
Berlín. Reuters.
BANDARISK stjómvöld hvetja
þessa dagana íbúa Bandaríkjanna
til að halda ró sinni en vera jafn-
framt á varðbergi vegna hugsan-
legra hryðjuverkaárása. Verið er að
rannsaka tengsl milli grunsamlegra
manna sem hafa verið handteknir í
Bandaríkjunum og Osama bin
Lad8ens, sem grunaður er um að
standa á bak við alþjóðlega hryðju-
verkastarfsemi.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti og
háttsettir menn í lögreglunni og
bandaríska utanríkisráðuneytinu
voru allir varkárir í yfirlýsingum í
gær. Var fólk almennt hvatt til að
láta hugsanlega hryðjuverkahættu
ekki hafa áhrif á áform sín yfir há-
tíðamar, en jafnframt ætti það að
hafa augun hjá sér og láta vita ef
það yrði vart við pakka sem skildir
hefðu verið eftir eða aðrar hugsan-
legar vísbendingar um undirbúning
hryðjuverka.
„Við erum augljóslega að reyna
að feta viðeigandi meðalveg," sagði
aðstoðarríkissaksóknari alríkis-
stjómarinnar, Eric Holder, á fundi
með blaðamönnum í Washington.
Hann ráðlagði bandarískum ríkis-
borgurum, sem hygðust vera á
ferðalagi erlendis yfir hátíðamar, að
forðast fjöldasamkomur, en sagði að
óhætt yrði að taka þátt í fjöldahátíð-
um á gamlárskvöld í Bandaríkjun-
um, þar sem löggæzla yrði mikil.
Varað við bögglapósti
Alríkislögreglan FBI gaf á
þriðjudag út viðvöran vegna til-
kynningar sem borizt hafði frá
þýzkum löggæzluyfirvöldum í
Frankfurt um „óstaðfestar upplýs-
ingar um að vissir einstaklingar
væru að undirbúa að senda sprengj-
ur í litlum bögglum á heimilisfóng í
Bandaríkjunum“.
Ekkert var tiltekið nánar í til-
kynningu FBI hverjir þessir „ein-
staklingar" kynnu að vera.
En rúmlega þrítugur Alsíringur,
sem var handtekinn 14. desember á
landamærum Kanada og Bandaríkj-
anna, var í gær formlega ákærður í
Seattle fyrir að hafa logið að toll-
verði og reynt að smygla sprengi-
efni yfir landamærin.
TALIÐ er að allt að tíu manns geti
nú verið með nýja gerð af
Creutzfeldt-Jacobs-veikinni, heila-
sjúkdómi sem álitið er að fólk fái ef
það leggur sér til munns nautakjöt af
dýrum með kúariðu, segir í breska
blaðinu The Sunday Times.
Allt er fólkið á lífi og flest er það
ungt að árum, yngst er 13 ára stúlka.
Vitað er að 48 Bretar hafa látist af
völdum veikinnar en nýju tilvikin
valda miklum ugg, að sögn blaðsins.
Er ástæðan sú að meira en áratugur
er síðan stjómvöld bönnuðu að slát>
urafurðir úr nautgripum væru notað-
ar sem fóður fyrir lifandi nautgripi.
Nýju tilfellin bendi til þess að annað-
GERHARD Schröder, kanzlara
Þýzkalands, var í fyrradag lýst
sem jólasveini þýzkra stjórnmála,
er leiðarahöfundar þarlendra fjöl-
miðla fógnuðu nýjum áformum rík-
isstjórnarinnar um 70 milljarða
marka skattalækkanir, andvirði
2700 milljarða króna; þær væm
þýzkum kjósendum vafalaust kær-
komin jólagjöf.
Með helzta stjómarandstöðu-
flokkinn staddan á kafi í fjármála-
hneykslismálum sögðu sérfræðingar
í viðhorfskönnunum að skattalækk-
unaráformin, sem era þau umfangs-
mestu í sögu Þýzkalands, gætu ekki
annað en bætt enn stöðu kanzlarans
í augum almennings, en að undan-
fomu hefur honum tekizt að snúa
vöm í sókn á þeim vígstöðvum.
hvort sé meðgöngutími sóttarinnar
mjög langur eða sýkt kjöt berist enn
á markaðinn.
The Sunday Times hefur eftir
heimildarmönnum sínum að margir
bændur hafi brotið og brjóti enn
gegn banninu við að selja kjöt af dýr-
um sem talin era hættuleg. Sé beitt
ýmiss konar brögðum, meðal annars
séu upplýsingar um aldur sláturdýr-
anna falsaðar.
Breska stjórnin ákvað á sínum
tíma að bregðast við innnflutnings-
banni í Frakklandi og fleiri löndum
með því að öllum nautgripum eldri en
30 mánaða skyldi slátrað. Hafði
meira en 2,5 milljónum gripa verið
„Fólk fer í jólafrí með jákvæðar
tilfínningar í garð þessarar ríkis-
stjórnar," sagði Dieter Walz hjá
Emnid-stofnuninni, sem sérhæfir
sig í skoðanakönnunum. „Schröder
hefur tekizt að landa óvæntum
pólitískum sigri, sem mun styrkja
þá uppsveiflu [í vinsældum hansj
sem við höfum þegar orðið vitni
að,“ hefur Reuters eftir Walz.
Lítilla viðbragða varð vart á fjár-
málamörkuðum, en kauphaflar-
spekingar eru á því, að þessi
ákvörðun stjórnarinnar í skatta-
málum væri mjög góðar fréttir fyr-
ir evrana, þar sem hún muni auka
traust fjárfesta á hæfni ríkisstjóm-
ar Schröders til að gera nauðsyn-
legar umbætur á stærsta hagkerfi
Evrópu.
slátrað af þessum sökum í september
í fyrra.
Haft er eftir Graham Bell, sem vann
hjá opinberri stofnun er fékkst við
þessi mál, að ekki hefði verið fylgst vel
með framkvæmdinni og alls ekki nógu
vel til að koma í veg fyrir svik.
Bell sendi frönskum yfirvöldum
greinargerð um málið og breskir
rannsóknarmenn segjast vera að fara
yfir 50 mál þar sem allt bendi til að
beitt hafi verið skjalafalsi. Hafa
bresk stjómvöld viðurkennt að upp-
lýsingar um 90.000 nautgripi vanti í
opinberar skýrslur. Enn greinast um
1.600 dýr árlega með kúariðu í land-
inu.
Creutzfeldt-Jacobs-veikin
Skjöl um kúariðuna
sögð vera fölsuð