Morgunblaðið - 24.12.1999, Page 39

Morgunblaðið - 24.12.1999, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999 39 LISTIR Klaustrin í Kirkjubæ og Veri BÆKUR H é r a ð s r i t DYNSKÓGAR Rit Vestur-Skaftfellinga, 7. hefti Vík. Dynskógar. Sögnfélag Vest- ur-Skaftfellinga, 1999, 221 bls. Af klaustrum og kennimönnum í Skaftafellsþingi. Sérprent úr Dynskógum, 7. hefti, 202 bls. HIÐ myndarlega ársrit Vest- ur-Skaftfellinga kemur nú út í sjöunda sinn undir ritstjórn Hönnu Hjartardóttur, Sigurgeirs Jónssonar og Sigþórs Sigurðs- sonar. Að þessu sinni er það að langmestu leyti helgað erindum, sem flutt voru á ráðstefnu á Kirkjubæjarklaustri 13.-14.mars 1999. Alls eru hér prentuð ellefu erindi og eru þau jafnframt árs- ritinu gefin út sem sérstök bók. Þeir sem erindin fluttu voru: Hjalti Hugason, Gunnar Friðrik Guðmundsson, Vilborg Davíðs- dóttir, Asdís Egilsdóttir, Her- mann Pálsson (tvö erindi), Guð- rún Ása Grímsdóttir, Sigurjón Einarsson, Loftur Guttormsson, Gunnar Kristjánsson og Sigurjón Páll ísaksson og Þorgeir Helga- son. Vítt svið spanna þessi erindi: sagnfræði, bókmenntir og forn- leifafræði. Ekki er það á mínu færi að gera neina úttekt á erind- um þessum. En víst er um það, að allmiklu fróðari er ég eftir en áð- ur og áhugaverður þótti mér lest- urinn. Býst ég við, að sum erind- anna nýtist einmitt betur við lestur en hlustun, t.a.m. fyrirlest- ur Hjalta Hugasonar, Hermanns Pálssonar og Guðrúnar Asu Grímsdóttur, sem allir eru mjög efnismiklir og fræðilegir. Aðrir eru léttari og aðgengilegri við íyrstu sýn. Það fer varla á milli mála, að ráðstefna þessi hefur verið hin merkasta og því þarft verk að koma erindunum á prent. í ársritinu er að loknu framan- greindu efni Annáll úr Mýrdals- hreppi 1990-1998 og Annálar Skaftárhrepps fyrir sama tímabil. Heldur þykja mér þeir stuttara- legir sé miðað við annála sumra annarra héraðsrita. En gæta ber þess, að hér er um níu ára tímabil að ræða. Verði slík skýrsla birt árlega er líklegt að ítarlegar verði sagt frá. Þarflaust ætti að vera að benda á hversu þýðingarmikil slík skrif eru fyrir sögu héraðsins. Dynskógar eru fallegt rit, prentað á góðan pappír og í fal- legu bandi. Allmikið er af mynd- um í ritinu. Sigurjón Björnsson Hernaðarumsvif á Austurlandi BÆKUR Sagnfræði FREMSTA VÍGLÍNA Átök og hemaðarumsvif á Austur- landi í heirnsstyrjöldinni síðari eftir Friðþór Eydal. Útgefandi Blá- skeggur, Reykjavík, 1999, 277 bls. ÞETTA mun vera önnur bók sama höfundar um styrjaldarárin síðari. Nefndist sú fyrri Vígdrekar og vopnagnýr (1997). Bók þessi er í tuttugu og fimm köflum, flestum fremur stuttum. Eftir að höfundur hefur í fyrstu tveimur köflunum kynnt efnið með yfirliti, eru tekin fyrir hemaðarum- svif í einstökum byggðarlögum, Seyðisfirði, Reyðarfirði og Eskifirði. Inn á milli eru kaflar um einstaka viðburði, s.s. er þýsk flugvél fórst við Reyðarfjörð, loftárás á Seyðisfjörð og þegar El-Grillo var sökkt í Seyð- isfirði - eða einstakar aðgerðir s.s. herskipalægi í Seyðisfirði, strand- varnarvirki á Sandsheiði, ratsjár- stöðvar, ógn af tundurduflum, þýskir kafbátar á Austfjörðum. I síðasta kafla segir frá öryggisþjónustu hers- ins og þýskum njósnurum á Aust- fjörðum. Umfjöllun höfundar einkennist af því, að megnið af upplýsingum hans er fengið frá hernaðaryfirvöldunum sjálfum, fjölmörgum skýrslum þeirra og óprentuðum endurminn- ingum sumra háttsettra manna í hernum. Gerii- þetta frásögn hans ólíka því, sem áður hef- ur sést, líkari því sem útlendingur skrifi. Að vísu er einnig vísað til íslendinga, s.s. Hjálm- ars Vilhjálmssonar, en minna er um það. Ekki er mér kunnugt um hvernig höfundur hefur farið að því að nálgast öll þessi gögn. En af þessu leiðir m.a. að frá- sögnin er oft mjög tæknileg og því líklega nokkuð framandleg venjulegum íslenskum lesanda. Geysimikið er af myndum í bókinni og kemur megnið af þeim frá herjunum sjálfum. Þær hafa því ekki sést hér áður og eru margar hverjar einkar upplýsandi. Þá eru einnig mörg kort frá hemum, t.a.m. kort, sem sýna tundurduflalagnir. Hafa þær vafalaust verið mikið hern- aðarleyndarmál á sínum tíma, eins og raunar margar aðrar upplýsing- ar, sem hér er að finna. Vissulega er bók þessi afar fróðleg og mikilsvert framlag til þessara við- burðaríku ára í sögu þjóðarinnar. Er ekki að efa, að til hennar mun oft verða vitnað. En því ber ekki að neita, að ekki er hún þægileg af- lestrar. Stíll höfundar og frásagnarmáti er þurr og ópersónulegur, stuttaralegur og fjar- lægur. Minnir hann fulloft á skýrslugerð, þó að út af bregði raun- ar stöku sinnum. Býst ég við að það stafi mest af eðli þeirra heimilda, sem notaðar hafa ver- ið. I sjálfu sér er ekk- ert við það að athuga annað en það, að varla er það vel fallið til vin- sælda nema hjá þröng- um hópi manna. Bókin er prentuð á góðan pappír og verður það til þess að myndir prentast vel. Margar þeirra eru ágætlega gerðar, líklega af kunnáttumönnum. Texti er tvídálka með skýru og vel læsilegu letri. Illa kann ég þó því, að texti skuli ekki jafnaður hægra meg- in. Það gefur blaðsíðunum fremur leiðinlegan svip. Sigurjón Björnsson r-WOKPANNA- Wokpanna kr. 1.600. Gufu-bamöuspottur frá kr. 950. Suzi-borðbúnaður. PIPAROGSALT Klapparstíg 44 ♦ Sími 562 3614 I Friðþór Eydal JOLA Bjarna Arasyni, Ragnari Bjarnasyni, Bogomil Font og Páli Óskari 26. desember, annan í jólum, í Súlnasal á Hótel Sögu Bjarni Arason Ragnar Bjamason Bogomil Font Laugaveg 168 - www.centrum.is/samspil Forsala aðgöngumiða í andyri Súlnasals á Hótel Sögu 26. desember frá kl. 13*20 Spariklæðnaður Miðaverð kr. 1.800 Húsið opnað kl. 22.00

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.