Morgunblaðið - 24.12.1999, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999 59
félagi Reykjavíkur á Melavellinum
og einnig á Kvolviðarhóli í skíðadeild
ÍR. Einnig lærðum við iðn okkar,,
gullsmíði og úrsmíði" á svipuðum
tíma og áttum í því sambandi mörg
áhugamál þess efnis. Þórarinn tók
þátt í frjálsum íþróttum, aðallega
spretthlaupum, hann var með sveit
IR í öllum Reykjavíkurboðhlaupum
og Tjarnarboðhlaupum. Þórarinn
var einnig í hópi duglegastu og
áhugamestu manna í skíðadeild IR.
Margar voru stundir okkar saman
með heimsóknum mínum á verk-
stæði Þórarins og Bjarna Þ. Fyrst á
Laugaveg 18a, síðan oft á dag í
Bergstaðastræti 3 og Hverfisgöt-
una. Þessir staðir voru einskonar
stefnumótastaðir fyrir vini og félaga
og voru þá áhugamálin rædd og
lausnir fundnar á vandamálum sem
upp komu. Hjálp og greiðasemi í
gullsmiðafaginu og öðru var þekkt
meðal flestra hjá þeim félögum og
var það sár missir er Bjami féll frá,
sá góði félagi. Þórarinn var dugmik-
ill í fagi sínu, hann var greiðvikinn
og umhyggjusamur við viðskiptavini
sína og leysti þar öll vandamál ef
upp komu. Vinskapur fjölskyldna
okkar var mjög góður með sameigin-
legum áhugamálum. Veiðiferðir
voru áhugamál okkar, er ein slík í
Laxá í Leirársveit ógleymanleg,
ekki síst fyrir listaverk sem þeir
gullsmiðirnir færðu mér í afmælis-
gjöf sem minnti á þá skemmtilegu
veiðiferð, kórónuð með vísu eftir
Grím Sveinsson. Þær eru margar
góðar minningarnar um góðan vin
um langt árabil. Einnig nutum við
félagar og bræður hans í Oddfel-
lowi’eglunni vináttu, di’engskapar og
tryggðar sem hann átti óendalega af.
Þó í okkar feðrafold
falli allt sem lifir,
enginn getur mokað mold
minningamaryfii’.
(B.J.)
Innilegustu samúð og blessun
guðs sendum við Unnur Ástu og fjöl-
skyldu.
Magnús E. Baldvinsson.
Mig langar í örfáum orðum að
minnast vinar míns Þórarins Gunn-
arssonar.
í þau 45 ár sem við áttum farsæla
samleið, brá aldrei skugga á vináttu
okkar, en ég kynntist Þórami í fé-
lagsstarfi ÍR. Þrátt fyrir nokkurn
aldursmun tókst strax einlæg og góð
vinátta okkar í milli. Þórarinn var
mjög góður frjálsíþróttamaður á sín-
um yngi'i árum og einnig meðal
bestu skíðamanna landsins. Hann lét
sér ávallt mjög annt um IR og var
okkur sem stunduðum skíðaíþrótt-
ina oft og einatt mikil hjálparhella.
En leiðir okkar áttu eftir að liggja
saman á fleiri sviðum, því hann fékk
mig til liðs við Kiwanishreyfinguna
er hún var stofnuð og síðar urðum
við báðir félagar í Oddfellowregl-
unni, en þar sem við áttum eftir að
starfa mest saman var í félagsskap
sem kallaður er „K 21“, þar sem
samstarf okkar varð verulega náið.
Þórarinn var einn af þessum gæða-
mönnum sem verða virkilegir vinir
vina sinna, prúðmenni, úrræðagóð-
ur, leysti ágreiningsmál með lagni
og var áhrifamaður, því oftar en ekki
var leitað eftir röksemdum hans í
ágreiningsmálum. Einhverju sinni
vorum við tveir saman að leggja
keppnisbraut, fyrir Reykjavíkurmót
í svigi og vorum hálfnaðir með
brautina er snjóflóð hreif okkur og
brautina með sér niður alla fjalls-
hlíðina. Mér var venilega brugðið,
en þá reis Þórarinn upp úr fönnini og
sagði með sínu einlæga æðruleysi:
við verðum víst að byrja upp á nýtt,
Þórir minn.
Þórarinn var vandvirkur maður í
öllu sem hann tók sér fyrir hendur
og við eigum honum mikið að þakka
félagarnir í „K 21“. Marga árshátíð-
ina hefir hann undirbúið, með svo
miklum glæsibrag að fátítt má telja
og þar kom til góða, nákvæmni hans
og vandvirkni. Hann jafnvel setti of-
aní við þjónana ef honum líkaði ekki
hvernig þeir brutu saman servíett-
urnar. Þórarinn var lærður gull-
smiður og vann við iðn sína alla tíð
eða segjum frekar list sína því hann
var listfengur og hafði glöggt auga
fyrir mótun skartgripa. Andlát hans
bar mjög brátt að, en hann lést á
heimili sínu, á afmælisdegi konu
sinnar, hinn. 19. desember sl.
Allir sem til Þórarins þekktu
hljóta að sakna hans, við IR-ingar
söknum sárt fallins félaga og við fé-
lagarnir í „K 21“ erum harmi slegn-
ir.
Eftirlifandi eiginkonu hans, Ástu
Engilbertsdóttur, og börnum þeirra,
sendum við hjónin innilegar samúð-
arkveðjur um leið og ég sendi kveðj-
ur frá okkur félögunum í „K 21“.
Þórir Lárusson.
Þórarinn Gunnarsson - Tóti vinur
minn er horfinn úr þessu jarðneska
lífi. Hann var ekki aðeins vinur
minn, hann var heimilisvinur, dáður
af konu minni og fjórum dætrum.
Ég hrökk illa við er bílasíminn
hringdi og mér sagðar þessar fréttir.
Til þess að missa ekki sjónar á veg-
inum valdi ég fyrsta útskot til hægri
og var þar drjúga stund að reyna að
ná áttum.
Kynni okkar Tóta hófust veturinn
1948 er við vorum á leið á landsmót
skíðamanna á Akureyri. Við vorum í
kappliði Reykvíkinga. Tóti keppti
fyrir ÍR og ég fyrir Armann. Áuð-
vitað lögðu menn sig alla fram í
keppninni. Það merkilega var að úr-
slitin í keppninni skiptu sáralitlu
máli, það var keppnisandinn og vin-
skapurinn sem réð úrslitum um
framtíðina, sama hvort menn voru
IR-ingar, KR-ingar eða Ármenning-
ar. Upp frá þessu hófst á milli okkar
Tóta vinátta er aldrei nokkru sinni
bar skugga á.
Tóti var einn af okkar bestu skíða-
mönnum í alpagreinum á árunum
fyrir og eftir 1950. Hann var einnig
góður frjálsíþróttamaður, mjög góð-
ur spretthlaupari, keppti meðal ann-
ars í þeim frægu boðhlaupssveitum
IR-inga.
Tóti var lærður gullsmiður og rak
sitt eigið gullsmíðaverkstæði, sem
hann til fjölda ára rak með sínum
kollega Bjarna Bjarnasyni gullsmið,
miklum öðlingsmanni er látinn er
fyrir nokkrum árum.
Tóti var sannkallaður perludreng-
ur, allra manna hugljúfi, léttur í
lund, skemmtilegur og ákaflega
traustur vinur vina sinna. Hann var
félagslyndur mjög, var félagi í Odd-
fellowstúkunni Þorkell máni nr. 7.
Hann stundaði stúkustai’fið af mik-
illi alvöru og var þar mjög virtur fé-
lagi. Félagsstörf ýmiskonar stund-
aði hann einnig á öðrum vettvangi.
Tóti var mjög sjálfstæður í sínu
starfi. Flutti hann inn frá ýmsum
Evrópulöndum allt hráefni og vörur
tilheyrandi gullsmíðinni og dreifði til
gullsmiða og verslana vítt og breitt
um landið.
Þar sem við stunduðum báðir inn-
flutningsviðskipti í áratugi, sam-
ræmdum við oft á tíðum viðskipta-
ferðir okkar erlendis. Ég fann fljótt
hversu mikils álits hann naut hvar-
vetna, enda var hans aðall í viðskipt-
um heiðarleiki og traust. Þær voru
óteljandi ferðimar er við fórum sam-
an innanlands og erlendis. Kaup-
mannahöfn var nú bara eins og á
heimavelli, við flæktumst um á Spáni
á bílaleigubíl, og skoðuðum heims-
bikarinn á skíðum í Austurríki. Við
fórum eitt sinn fjórir félagar saman
og keyrðum um Hollywood, Las
Vegas, San Francisco o.fl.
Þau eru ófá gamlárskvöldin sem
Tóti leit við á heimili mínu til að
heilsa uppá fjölskylduna og óska
gleðilegs árs. Það verður tómlegt að
eiga ekki von á Tóta vini mínum á
gamlárskvöld.
Já, minningarnar hrannast upp
óteljandi.
Sorgin nístir hjartað við það að
missa slíkan félaga sem Þórarinn
Gunnarsson var og er hans sárt
saknað.
Við Didda sendum innilegustu
samúðarkveðjur til Ástu, Sigrúnar,
Birgis, Dunnu og annarra aðstand-
enda.
Víðir Finnbogason.
+
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
JÓN HERMANNSSON,
Álakvísl 41,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans aðfaranótt
mánudagsins 20. desember.
Jarðarförin fer fram frá Árbæjarkirkju þriðju-
daginn 28. desember kl. 10.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Heimahlynningu Krabbameins-
félagsins.
Gunnhildur Heiða Axelsdóttir,
Elísabet Ólöf Guðmundsdóttir,
Örk Guðmundsdóttir,
Guðmundur Arnar Guðmundsson.
+
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÍSLEIFUR ÓLAFSSON
stýrimaður,
áður til heimilis
á Vitastfg 20, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðju-
daginn 28. desember kl. 13.30.
Tómas Már ísleifsson,
Sigríður Dröfn Tómasdóttir, Sunneva Tómasdóttir,
Vilborg Auður fsleifsdóttir, Christian Bickel,
Tómas Bickel, Höskuldur Bickel.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS GUÐJÓNSSON,
Hrafnistu í Reykjavík,
áður búsettur á Hvammstanga,
sem lést fimmtudaginn 16. desember, verður
jarðsunginn frá Seljakirkju þriðjudaginn
28. desember, kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið,
Börn hins látna.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÞÓRARINN GUNNARSSON
gullsmiður,
Tjaldanesi 11,
Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu-
daginn 27. desember kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hans, er bent á Hjartavernd.
Ásta Engilbertsdóttir,
Sigrún Þórarinsdóttir, Ragnar Pálsson,
Birgir Þórarinsson, Dóra Sigurðardóttir,
Gunnhildur Þórarinsdóttir, Sveinn M. Ottósson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Faðir okkar og tengdafaðir,
NÚMI ÞORBERGSSON,
Furugerði 1,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 28. desember kl. 15.00.
Þórdís Númadóttir,
Björn Sævar Númason,
Guðrún G. Númadóttir,
Hafsteinn Númason,
Sigríður Númadóttir,
Inga Númadóttir,
Þorbjörn Númason,
Þórunn Ingólfsdóttir,
Hlöðver Hallgrímsson,
Sigrún Steinþóra Magnúsdóttir,
Örn Einarsson,
Guðmundur Helgason,
Sæfinna Sigurgeirsdóttir.
+
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegs afa okkar og
langafa,
SIGURÐAR AUÐUNSSONAR,
áður til heimilis í Varmahlíð 12,
Hveragerði.
Sigrún Birna Dagbjartsdóttir, Kristján Þór Guðmundsson,
Sigurður Vilberg Dagbjartsson, Kadri Hint,
Stfgur Lúðvík Dagbjartsson,
Garðar Bragason,
Baldur Bragason, Jónheiður Kristjánsdóttir
og barnabarnabörn.
Guðbjörg Guðjónsdóttir,
Margrét G. Einarsdóttir, Baldur Þ. Jónasson,
Guðrún ína Einarsdóttir, Rúnar H. Hermannsson,
Halla Einarsdóttir.
+
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför bróður míns, frænda okkar
og vinar,
GUÐBRANDS G. GUÐJÓNSSONAR,
Skeggjagötu 10,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeild-
ar Sjúkrahúss Reykjavíkur fyrir góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
+
Hugheilar þakkir fyrir vináttu og hlýhug við
fráfall og útför móður minnar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
BJARGAR BJARNADÓTTUR
frá Geitabergi.
Guð gefi ykkur gleðileg jól.
Edda Bergljót Jónasdóttir, Guðmundur Jóhannsson,
Jónas Guðmundsson,
Björg Guðmundsdóttir, Kristbjörn Orri Guðmundsson,
Þorvaldur, Edda Lind, Karen Ösp,
Guðmundur Ragnar.