Morgunblaðið - 31.12.1999, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Gleðilegt nýtt ár.
Ný alkalíprófun á steinsteypu
tekur aðeins 16 daga
TEKIN hefur verið upp ný aðferð
við að prófa steinsteypu með tilliti til
alkalívirkni. Hefðbundin prófunar-
aðferð tekur eitt ár en nýja aðferðin
tekur aðeins 16 daga. Prófunarað-
ferðin hefur verið notuð í tvö ár hér-
lendis og lofar góðu. Þetta kemur
fram í Tæknipúlsinum, fréttablaði
Iðntæknistofnunar og Rannsókna-
stofnunar byggingariðnaðai-ins.
Þar segir að frá því farið var að
framleiða sement hér á landi hafi
hættan á alkalískemmdum vofað yfir
sökum þess hve hátt alkalímagnið er
í íslensku sementi. Ráðstafanir voru
gerðar til að sporna gegn alkalí-
virkni í steypu sem var notuð í stærri
mannvirki, svo sem allar virkjanir.
Útbúið var svokallað virkjanasem-
ent sem innihélt 25% fínmalað lípar-
ít. Fyrstu skemmdir í húsum voru
greindar árið 1975 en mannvirki þar
sem notað var virkjanasement hafa
reynst óskemmd af alkahvirkni en
ástæður fyrir þvi að virkjanasement
hefur ekki verið notað í venjulega
húsasteypu er m.a. aukinn kostnaðar
íyrir húseigendur.
Dr. Gísli Guðmundsson hjá Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins
segir að nýja prófunaraðferðin muni
stuðla að auknum gæðum íslenskrar
steinsteypu.
Vinningshafar i Jólapakkaleiknum
Brynja Björk CaröársdúWr tekur viö Pioneer NS9
hljómtækjasamstæöu úr hendi Braga Guðmundssonar,
deitdarstjóra htjómtækjadeitdar.
1. Pioneer hljómtækjasamstæða NS9
Brynja Björk Garðarsdóttir, Engimýri 10, Garðabær
2. AEG þvottavél W1030
ðlafur Níels, Sogavegi 117, Reykjavík
3. Oiympus C-830 stafræn myndavél
Helgi Eyjólfsson, Einibergi 9, Hafnaflörður
4. AEG uppþvottavél 6280
Sverrir Snær Ingimarsson, Árholti, Blönduós
5. SHARP heimabíósamstæða 671
6. Pioneer DVD-spilari 525
Hana Sveinsdóttir, Kotárgerði 28, Akureyri
7. Bosch hleðsluborvél
Hildur Pétursdóttir, Stekkjarhvammi 21, Hafnarfjörður
8. Nikon myndavél Zoom 400
Rut Jónsdóttir, Víðihvammi 5, Kópvogur
9. AEG Vampyrino ryksuga
Sigurbjörg Sveinsdóttir, Mýrarkoti, Húsavík
10. -14. Nintendo 64 leikjatölva
Jóhannes Öm Kristjánsson, Barónsstíg 11, Reykjavík
Rúnar Þór Gylfason, Hörpuiundi 9, Akureyri
Guðbjörg Vallaðsdóttir, Garðsstöðum 46, Reykjavik
Helga Kristjánsdóttir, Eyrarstíg 1, Reyðarfjörður
Valgeir Ólafsson, Bláhömrum 21, Reykjavík
15.-19. Game Boy Color leikjatöiva
Nanna Björnsdóttir, Tungugötu 2, Reyðarfjörður
Jónas Þorðarson, Heiðmörk 61, Hveragerði
Fjölskyldan, tágmóa 17,260 Njarðvik
Sigriður Löve, Laugateigi 15, Reykjavik
Ragnhildur Gísladóttir, Salthömrum 12, Reykjavík
20.-30. Nintendo Mini Classic leikir
Óskar Hálfdánsson, Holtasttg 16, bolungarvík
Mikael Þór Halldórsson, Eyjavöllum 7, Keflavík
Kolbrún Eva Bjarkadóttir, Skjólbraut 9, Kópavogur
Þómý G. Oddsdóttir, Útskálum 3, Hella
Gunnar M. Yngvason, Hringbraut 66, Keflavik
Elín Albertsdóttir, Akurgerði 14, Vogar
Helga Aðalsteinsdóttir, Borgarflöt 1, Stykkishólmur S
Bryndis Brynjólfsdóttir, Hagamel 52, Reykjavík
Sigurtaugur 0. Jónsson, Hólavegi 12, Siglufjörður
Alfreð Ásgelrsson, Hraunbæ 144, Reykjavík
jamg
Guðrún Haraldsdóttir, Munkaþverárstasti 18, Akureyri Gísli Sigurðsson, Sólbergi, Tálknafjörður
Þökkum þátttökuna
og viðskiptin á árinu
sem er að líða
_» BRÆÐURNIR
@ ORMSSON
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is
, « Ijnili'I lotty J
W
Vinníngar eru afhentir í Lógmúla 8 eða hjá umboðsmönnum um allt land
Forðumst augnslys um áramót
Ungir
drengir í
mestri hættu
UM ÁRAMÓT verða
oft slys á fólki
vegna flugelda,
blysa og annarra púður-
áhalda, ekki síst eru augu
fólks í hættu þegar það er
að sprengja eða skjóta
upp flugeldum. Að sögn
Friðberts Jónassonar
sérfræðings í augnlækn-
ingum er bannað víða um
lönd að aðrir en sérþjálfað
fólk fáist við flugelda og
púðursprengjur og hefur
hefur dregið verulega úr
slysum í þeim löndum
vegna þessa banns. Frið-
bert var spurður hvort
komið hefði til tals að inn-
leiða slíkt bann hér á
landi?
„Mér vitanlega hefur
ekki verið lagt til að
banna slíkt hér á landi en
Friðbert Jónasson
þó voru Tívolíbombur bannaðar
hér á landi 1988 og fækkaði þá
nokkuð alvarlegum augnslys-
um.“
- Hverjir verða helst fyrir
slysum af þessu tagi?
„Langflestir eru yngri en tutt-
ugu ára gamlir. Frá tíu til fjór-
tán ára aldri eru þessi slys mun
algengari og er drengjum fjór-
um sinnum hættara við að verða
fyrir slíkum augnáverka en
stúlkum samkvæmt rannsókn
sem gerð var og birt 1991 í
Læknablaðinu. Haraldur Sig-
urðsson, Guðmundur Viggósson
og undirritaður gerðu þessa
rannsókn.“
- Er yfirleitt um alvarleg slys
að ræða?
„Ofangreind rannsókn náði
eingöngu til svo alvarlegra
augnslysa að leggja varð við-
komandi inn á sjúkrahús að
meðaltali í eina viku og fékk
stór hluti varanlegan augnskaða,
einn missti augað.“
- Hvernig má fyrirbyggja
þessi slys án þess að banna
notkun alveg á flugeldum og
sprengjum meðal almennings?
„Það má gera með því að
banna kröftugustu sprengjurnar
eins og gert var með Tívolí-
bomburnar, þótt mörg alvarleg
slys verði jafnvel af völdum
minnstu flugelda. Með því að
nota hlífðargleraugu sem dreift
hefur verið við flugeldasölu á
undanförnum árum, með því að
sýna sérstaka aðgát, t.d. að nóg
frítt svæði sé þar sem verið er
að meðhöndla þessa hluti og
með því að alveg sérstakt eftirlit
sé haft með börnum og ungl-
ingum, ekki síst ungum drengj-
um.“
-Hvernig hefur þessu fólki
vegnað sem orðið hefur fyrir al-
varlegum augnskaða af völdum
flugelda?
„Á árunum 1985 til 1989 slös-
uðust átta sjúklingar
alvarlega og allir utan
einn bera varanlegan
sjónskaða. Það sem
yfirleitt skeður er
mar á auga og það
sem veldur einkum ——
sjónskerðingu er mar
á augnbotni sem eyðileggur
sjónhimnuna og skilur eftir ör-
vef. Menn bera því skaða allt frá
verulega skertri niður í enga
sjón á slasaða auganu. Einnig
kemur fyrir mar á fremri hluta
augans sem er oft ekki eins al-
varlegt, samfara því getur þó
► Friðbert Jónasson fæddist 25.
janúar 1955 á Súgandafirði.
Hann lauk stúdentsprófí frá
Menntaskólanum á Akureyri ár-
ið 1965 og læknaprófi frá háskól-
anum f Rostock í Þýskalandi
1972. Hann nam auglækningar
og augnskurðlækningar við há-
skólasjúkrahúsið í Edinborg og
lauk sérfræðingsprófi í London
1977. Hann hefur starfað sem
sérfræðingur í augnlækningum á
Landakotsspitala og Landspítala
og rekið eigin stofu frá 1979.
Hann er kvæntur Evu Jónasson
menntaskólakennara og eiga þau
tvö börn en einn son átti Friðbert
fyrir hjónaband.
verið blæðing inn í auga og vald-
ið þá viðvarandi sjónskerðingu.
Þá má nefna brunasár af völdum
blysa. Einnig höfum við séð hol-
und á auga (gat á auga) og jafn-
vel brot á andlitsbeinum. Þetta
eru allt hlutir sem ég hef verið
að sjá hjá sjúklingum hér á
þessu landi um áramót."
- Hefur fræðsla mikið að
segja í þá átt að minnka þessi
slys?
„Já, hún hefur mikið að segja
og þegar best hefur til tekist í
fjölmiðlum fyrir áramót hefur
tíðni slysa minnkað verulega og
sum ár hafa jafnvel ekki verið
nein alvarleg slys. Alvarleg slys
teljum við einkum þegar um
varanlegan sjónskaða er að
ræða.“
- Geta menn víða um land
meðhöndlað slys af því tagi sem
þú telur alvarleg?
„Öll þau slys sem við teljum
alvarleg eru send á augndeild
Landspítalans en önnur slys eru
meðhöndluð af öðrum læknum
eða augnlæknum."
- Hvað getur fólk gert til þess
að reyna að afstýra slysum um
þessi áramót - þegar
líklega verður óvenju-
lega mikil notkun á
flugeldum, blysum og
púðursprengjum?
„Mikilvægt er að
sýna fyllstu aðgát,
Brýnt að fylgj-
ast með böm-
um og ungl-
ingum
nota stöðugt hlífaðargleraugu og
aldrei verður brýrlt um of fyrir
foreldrum að fylgjast vel með
börnum, bæði þeim sem sjálf
eru að verki og hinum sem eru
nærstödd þegar farið er með
flugelda, blys eða sprengjur. Á
þann hátt má vissulega fækka
alvarlegum augnáverkum."