Morgunblaðið - 31.12.1999, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999 33
ERLENT
George Harrison stunginn með hnífí
Mun ekki vera
í lífshættu
Henley-on-Thames. AFP, Reuters.
Hundruð
falla í átök-
um á Krydd-
eyjum
Jakarta. AFP, AP.
255 manns hafa beðið bana í átökum
milli múslima og kristinna manna á
Halmahera, einni af Kryddeyjunum í
Indónesíu, á síðustu þremur dögum.
Óttast er að mjög erfitt verði að koma
í veg fyrir að blóðsúthellingamar á
eyjunum stigmagnist. Stjóm Indón-
esíu tilkynnti í fyrradag að hemum
hefði verið falið að koma á lögum og
reglu á eyjunni Ambon.
Eftir blóðsúthellingarnar á Halma-
hera hafa að minnsta kosti 420 manns
fallið á einni viku í átökum múslima
og kristinna manna á Kryddeyjum,
eyjaklasa í austurhluta Indónesíu.
Aður höfðu 125 fallið á eyjunni Bura,
65 á Ambon og sjö á Ternate. Óttast
er að mannfall hafi einnig orðið á eyj-
unni Moratai.
Hundruð manna hafa særst í átök-
unum.
Mannskæðustu átök í áratugi
Atökin hófust í Ambon í janúai’ og
síðan hafa þau kostað rámlega 1.000
manns lífið. Era þettamannskæðustu
átök sem blossað hafa upp milli músl-
ima og kristinna Indónesa í áratugi.
Made Parsim höfuðsmaður, yfir-
maður herstöðvar á Halmahera,
sagði að dregið hefði úr átökunum í
gær og að um 12.000 manns hefðu
flúið í herbúðir á eyjunni. Hann sagði
að nokkur hús væra enn í Ijósum log-
um eftir að um 50.000 manns hefðu
tekið þátt í óeirðum og íkveikjum á
eyjunni.
Engar verslanir voru opnar á eyj-
unni og almenningssamgöngur lágu
niðri. Öeirðimar hófust á mánudag
þegar kristnir íbúar Halmahera
fréttu af því að kveikt hefði verið í
kirkju á Ambon. Þeir gengu ber-
serksgang á götunum, kveiktu í hús-
um, fyrirtækjum og moskum músl-
ima í bæjunum Tobelo og Galela og
nokkrum þorpum í nágrenninu.
Dagblaðið Bisnis Indonesia skýrði
frá því að óeirðaseggir hefðu síðan
ráðist inn í bæinn Daraba á nálægri
eyju, Moratai, en ekki var vitað í gær
hvort mannfall hefði orðið þar.
Enn barist á Ambon
Ekkert lát virtist á átökum músl-
ima og kristinna manna á Ambon í
gær þótt hernum hefði verið falið að
halda uppi öryggiseftirliti á eyjunni í
stað lögreglunnar. Hópar kristinna
manna, vopnaðir byssum og sprengj-
um, réðust inn í hverfi múslima í bæn-
um Ponogoro.
GEORGE Harrison, fyrrverandi
meðlimur popphljómsveitarinnar the
Beatles, liggur þungt haldinn á
sjúkrahúsi eftir að maður vopnaður
hnífi réðst á hann á heimili hans í
fyrrinótt. Hann
mun ekki vera í lífs-
hættu en læknar
segja að hann líði
kvalir vegna
stungusárs á bijósti
sem hann hlaut í
árásinni. Kona hans
hlaut minniháttar
áverka í átökum við
tilræðismanninn og
þarf ekki meðferð
Bresk lögregla hefur tilræðismann-
inn í haldi.
Árásin var gerð um klukkan 3:00
aðfaranótt fimmtudagsins. Mannin-
um hafði tekist að brjótast inn á
sveitasetur Harrisons, sem er í bæn-
um Henley-on-Thames skammt utan
við London. Fullkomið eftirlits- og
biófavamakerfi náði ekki að stöðva
manninn né heldui' urðu vaktmenn
og varðhundar varir við ferðir hans.
Ekki er vitað um ástæður árásarinn-
ar né heldur hvort maðurinn var inn-
brotsþjófur.
Til átaka kom milli tih'æðismann-
sins og Harrison-hjónanna. Maður-
inn stakk George í bijóstið og kona
hans, Olivia Harrison, hlaut áverka á
höfði. Lögregla á Englandi segir að
George Harrison hafi tekist að greiða
manninum höfuðhögg með þungum
hlut og var tilræðismaðurinn fluttur á
sjúkrahús í Oxford þar sem talið var
að höfuðkúpa hans hefði brákast við
höggið. Það munu hafa verið vinnu-
hjú Harrisons sem tilkynntu árásina í
síma og var tilræðismanninum haldið
á setrinu þar til lögregluna bar að.
19 ár frá morði Lennons
Lögregla hefur ekki gefið miklar
upplýsingai' um tilræðismanninn en
hann mun vera 33 ára og koma frá
Liverpool, fæðingarborg Bítlanna.
Hann mun hafa verið ókunnucrur
Harrison-hjónunum.
Nítján ár era nú liðin síðan John
Lennon, einn forsprakka Bítlanna,
var skotinn til bana af geðsjúkum að-
dáanda á götu í New York. George
Harrison, sem er 56 ára, hefur á síð-
ustu áram barist við krabbamein í
hálsi en hefur nú að eigin sögn sigrast
á því. Hann vakti síðast athygli á
dægurtónlistarsviðinu þegar hann
lék með hljómsveitinni The Travell-
ing Wilburys á áranum eftir 1990.
Harrison-hjónin hafa búið á sveita-
setrinu í Henley-on-Thames í tuttugu
ár. Setrið er mjög stórt og era um eitt
hundrað herbergi í því. Nágrannar
Harrisons segja að mjög öflug örygg-
isgæsla sé jafnan á setrinu og segjast
ekki skilja hvernig tilræðismanninum
tókst að komast óséðum inn á það.
Olivia er seinni kona Georges
Harrisons. Þau giftu sig árið 1978,
fimm áram eftir að fyrri kona hans,
Patti Boyd, skildi við hann og tók
saman við vin hans, gítarleikarann
Eric Clanton.
Óveðrið í V-Evrópu
Tjónið
gífurlegft
Parfa. AP, Reuters.
TILTEKT er nú í fullum gangi í
Frakklandi eftir alla eyðilegginguna
sem skaðræðisóveðrið, sem gekk yf-
ir í vikunni, skildi eftir sig.
Frönsk stjórnvöld eru í óða önn að
safna saman upplýsingum um skað-
ann. Franska innanríkisráðuneytið
greindi frá því í gær, að vitað væri
um 83 dauðsfoll af völdum veðurofs-
ans í Frakklandi einu, og 136 samtals
í þeim löndum Vestur-Evrópu sem
urðu fyrii' barðinu á sömu óveðurs-
lægðunum..
Tiltekt var í fullum gangi í gær, en
þrátt fyrir að fjöldi sjálfboðaliða og
hermenn legðu þar hönd á plóg er út-
lit fyrir að á þúsundum franskra
heimila verði áramótunum fagnað
við kertaljós.
í gær var enn yfir ein milljón
heimila í landinu rafmagnslaus. Iðn-
aðarmenn unnu baki brotnu að við-
gerðum, en að sögn talsmanns
frönsku ríkisrafveitunnar EDF
verður ekki hægt að koma rafmagni
á í þeim öllum fyiT en eftir áramót.
Franska stjórnin hefur heitið 140
milljóna franka aukafjárveitingu,
andvirði 1.540 milljóna króna, til að
fjármagna viðgerðir bæði á
skemmdum eftir óveðrið og hreinsun
strandarinnar við Biscayaflóann, þar
sem mikil olíumengun varð þegar
farmi olíuskipsins Eriku, sem brotn-
aði í tvennt og sökk suður af Bret-
agne-skaga 12. desember, skolaði á
land í óveðrinu. Að minnsta kosti
100.000 sjófuglar hafa drepizt vegna
olíumengunarinnar.
Viðgerðir merkra bygginga
kostnaðarsamar
Auk þess kostnaðar sem felst í þvi
að koma raf- og vatnsveitu- og síma-
sambandsmálum í samt lag út um
hinar dreifðu byggðir landsins verða
Frakkar líka að reikna með háum
viðgerðarkostnaði vegna skemmda
sem urðu á sögulegum byggingum
og minnismerkjum.
Menningarmálaráðuneytið hefur
áætlað að viðgerðir á frægum stöð-
um og byggingum svo sem Notre
Dame-dómkirkjunni í París og
gömlu konungshöllinni og hallar-
garðinum í Versölum muni kosta að
minnsta kosti 400 milljónir franka,
um 4,4 milljarða króna.
Tryggingafélög gera ráð fyrir að
skaðabætur vegna óveðurstjónsins í
V-Evrópu muni jafnvel nema hundr-
uðum milljarða króna.
AP
Sjálfboðaliðar hella olíu sem þeir hafa skafið upp af ströndinni nærri bænum Le Croisic á Bretagne-skaga í
tunnu, sem merkt hefur verið með stílfærðu merki TotalFina-olíufyrirtækisins, sem átti ohufarminn. Á blaðinu
stendur „Algjörlega ábyrgðarlaust, loks sekt“.
George
Harrison
á sjúkrahúsi.
Heimurinn „að mestu“
viðbúinn 2000-vandanum
Washington. AFP, Reuters.
HEIMSBYGGÐIN er „að mestu“ undir það
búin að takast á við 2000-vandann svokall-
aða og búist er við að hann valdi fáum alvar-
legum truflunum eða stórslysum, að sögn
yfirmanns alþjóðlegrar miðstöðvar í Wash-
ington sem samhæfir aðgerðir ríkja heims
gegn tölvuvandamálum sem kunna að koma
upp um árþúsundaskiptin.
2000-vandinn á rætur að rekja til þeirrar
ákvörðunar hugbúnaðarframleiðenda á átt-
unda og níunda áratugnum að nota aðeins
tvær síðustu tölurnar í ártölunum til að
spara tölvuminni. Sumar tölvur átta sig þess
vegna ekki á því að ártalið „00“ sé árið 2000
og ganga út frá þ'ví að átt sé við árið 1900.
Bruce McConnells, yfirmaður alþjóðlegu
miðstöðvarinnar í Washington, segir að
nokkur ríki séu illa undir það búin að takast,
á við vandamál sem geta komið upp þegar
aldamótaárið gengur í garð. Fimmtán ríki,
þeirra á meðal Norður-Kórea og Afganist-
an, höfnuðu samstarfi við miðstöðina, sem
starfar á vegum Sameinuðu þjóðanna, en
Alþjóðabankinn Ijármagnar starfsemina.
McConnell segir að miðstöðin hafi þó
meiri áhyggjur af Rússlandi og ríkjum í
Austur-Evrópu, sem eru einnig ofarlega á
lista yfir 80 ríki sem talin eru í mestri hættu
vegna tölvuvandans. Hugsanlegt er að
tölvukerfi hrynji eða dæli út röngum upp-
lýsiugum í þessuin löndum vegna þess að
tölvurnar þekki aðeins tvær síðustu tölurn-
ar í ártalinu 2000 og rugli því saman við árið
1900.
Afleiðingarnar óljósar
fyrstu vikurnar
McConnell bætti þó við að ekki yrði ljóst
fyrr en íþriðju viku janúar hvaða afleiðing-
ar tölvuvandinn myndi hafa. Ýmis vandamál
gætu hlaðist upp á þessum tíma og valdið
fólki „miklum óþægindum“ og hugsanlega
truflað hcimsviðskipti.
Hann sagði að sérfræðingar miðstöðvar-
innar myndu fylgjast grannt með fjarskipta-
stöðvum og orkuverum um allan heim
fyrstu tvo dagana í janúar til að meta áhrif
tölvuvandans. „Við búumst við fáum, ef
nokkrum, truflunum í þessum mannvirkjum
út um allan heim,“ sagði hann.
Ekki verður hægt að meta áhrif tölvu-
vandans á starfsemi banka og fjármálafyrir-
tækja fyrr en á mánudag, fyrsta virka deg-
inum á aldamótaái'inu í flestum ríkjum
heims. Fjármálamarkaðirnir í Kairó og
Kúveitborg verða þó opnaðir á sunnudag og
sérfræðingar miðstöðvarinnar eiga að fylgj-
ast með þróuninni þar.
„Heimsbyggðin er að mestu undir það
búin að takast á við 2000-vandann,“ sagði
McDonnell. „Það verða engin keðjuverkandi
áhrif.“
Hann sagði þó að í nokkrum löndum
kynnu að koma upp vandamál sem gætu
valdið rafmagnsleysi og fólk kynni til að
mynda að fá reikninga vegna skulda sem
tölvurnar telja að hafi gjaldfallið fyrir
hundrað árum.
Bandaríska stofnunin FEMA, sem sam-
hæfir viðbrögð yfirvalda í Bandaríkjunum
við neyðartilvikum, hefur sent sérfræðinga
til allra rfkja Bandaríkjanna til að takast á
við öll hugsanleg vandamál sem kunna að
koma upp um árþúsundaskiptin. Að sögn
stofnunarinnar eru sérfræðingarnir viðbún-
ir hinu versta, t.a.m. að tölvuvandinn valdi
„sprengingum, rafmagnsleysi á stórum
svæðum og slysum í kjarnorkuverum".
AP
Starfsmaður alþjóðaflugvallarins í Jak-
arta í Indónesfu við borða með áletrun
þess efnis að flugvöllurinn sé viðbúinn
2000-vandanum. Indónesía er ofarlega á
lista bandarísku leyniþjónustunnar CIA
yfir ríki sem eru talin illa undir það búin
að takast á við tölvuvandann.