Morgunblaðið - 31.12.1999, Síða 38
;88 FÖST UD AGIJR ö l.DE SE MB BR .1909
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Messa eftir Gunnar Þdrðarson frumflutt í Víðistaðakirkju á nýársdag
Morgunblaðið/Asdís
Frá æfingu Aldamótakórsins og Kammersveitar Ilafnarfjarðar á Heilagri messu Gunnars Þórðarsonar í Víðistaðakirkju.
Arnar Jónsson í leikritinu
Abel Snorko býr einn.
Abel Snorko
af fjölunum
FIMM sýningar eru eftir á
leikritinu Abel Snorko býr
einn, sem sýnt hefur verið á
annað ár á Litla sviði Þjóðleik-
hússins. Sýningarnar eru
fyrstu vikuna í janúar en síðan
verður verkið að víkja um sinn
vegna næstu frumsýningar,
sem er leikritið Hægan, El-
ektra, eftir Hrafnhildi Hagalín
Guðmundsdóttur.
Abel Snorko býr einn er eftir
franska leikskáldið Eric-Emm-
anuel Schmitt og fjallar um
Nóbelsverðlaunahafa í bók-
menntum, sem ákveður að
veita blaðamanni viðtal á eyj-
unni, þar sem hann býr einn,
fjarri heimsins glaumi. Fundur
þessara bláókunnugu manna
verður upphafið að óvæntu og
mögnuðu uppgjöri.
Það eru þeir Arnar Jónsson
og Jóhann Sigurðarson sem
fara með hlutverkin tvö í leik-
ritinu.
„Dálítið annar heimur
dægur lagamúsíkin “
Á morgun, nýársdag, verður frumflutt í VíðÍ- hvemig sem á er litið. „Þetta er mjög
staðakirkju í Hafnarfírði Heilög messa eftir
Gunnar Þórðarson við texta séra Sigurðar
Helga Guðmundssonar. Margrét Sveinbjörns-
dóttir ræddi við tónskáldið, sem hingað til hef-
ur verið þekktara fyrir að semja dægurlög, og
heyri það á hljóðfæraleikurunum og
söngvurunum að þeim finnst þetta
skemmtilegt og þeir syngja og leika
með bros á vör. Ég held að þetta
hljóti að vera mesta verk Gunnars,“
segir séra Sigurður Helgi.
„Tónlistin verður að fara
inn í fólkið“
prestinn, sem telur messuna tímamótaverk í ís-
lenskri tónlistarsögu.
HEILÖG messa er
samin í tilefni kristni-
tökuafmælis og spann-
ar helstu þætti hefð-
bundinnar messu, auk
forspils og eftirspils.
Verkið er samið fyrir
einsöngvara, kór, org-
eloghljómsveit.
Af þessu tilefni hef-
ur verið settur saman
sextíu manna kór sem
fengið hefur nafnið
Aldamótakórinn, en
hann er skipaður
söngfólki af Alftanesi,
úr Garðabæ og Hafn-
arfirði. Einsöngvarar
eru þau Þórunn Guð-
mundsdóttir sópran og Sigurður
Skagfjörð Steingrímsson baríton.
Stjórnandi er Ulrik Ólason og honum
til aðstoðar eru þeir Helgi Bragason
og Jóhann Baldvinsson. Við upp-
færslu verksins leikur einnig Kam-
mersveit Hafnaríjarðar,
sem skipuð er fimmtán
hljóðfæraleikurum. Að
auki taka þátt í flutn-
ingnum prestar úr Hafn-
arfirði og Garðabæ og
djákni Víðistaðasóknar.
Blessun lýsir herra Sig-
urður Sigurðarson
vígslubiskup og Magnús
Gunnarsson, bæjarstjóri
í Hafnarfirði, flytur há-
tíðarræðu.
Þetta er í fyrsta sinn
sem Gunnar Þórðarson
semur messu og raunar
segist séra Sigurður
Helgi ekki vita til þess
að samin hafi verið
heildstæð messa hér á landi áður.
Hann minnist messusvara séra
• Bjarna Þorsteinssonar frá því fyrr á
öldinni og einnig segir hann að ýmsir
hafí áður samið einstaka messuþætti,
en messa Gunnars sé tímamótaverk
Gunnar
Þórðarson
Gunnar tók vel í það þegar séra
Sigurður Helgi hringdi í hann á síð-
astliðnu sumri og bað hann um að
semja messu. Hann segir það í raun
ekki mikið öðru vísi að semja kirkju-
tónlist en dægurlög. í báðum tilfell-
um þurfi að leggja merkingu í orðin
með tónum. „Ég reyndi að hafa þetta
dálítið lagrænt, þannig að fólk myndi
grípa það. Tónlistin verður að fara
inn í fólkið,“ segir Gunnar og bætir
við að hann vilji gjaman að messan
verði flutt oftar en einu sinni, ýmist í
heild eða einstakir hlutar hennar.
Hann segist hafa hlustað á nokkr-
ar messur gömlu meistaranna til
þess að setja sig í stellingar. Svo
megi segja að messan hafi runnið upp
úr honum. Hann segist á seinni árum
aðeins hafa verið að fitla við að semja
alvarlegri tónlist og hafi afskaplega
gaman því. „Þetta er vissulega dálítið
annar heimui- en dægurlagamúsík-
in,“ segir hann. En skyldi Gunnar
Þórðarson vera trúaður maður? „Já,
það held ég,“ segir hann hugsi, „þó ég
sé reyndar ekki mjög kirkjurækinn.
En ætli ég sé ekki dæmigerður ís-
lendingur að því leyti.“
I krafti guðs eða
einhvers annars
KVIKMYNDIR
Stjörnubfo/Bfóhöllin
The Messenger: The Story
of Joan of Arc
★ ★ ★
Leikstjóri: Luc Besson. Handrit:
Luc Besson og Andrew Birkin. Að-
alhlutverk: Milla Jovovich, John
Malkovich, Faye Dunaway, Dustin
Hoffman, Vincent Cassel, Richard
Ridings og Tchéky Karyo. Colum-
bia/Gaumont 1999.
í FLESTUM kvikmyndum sem
gerðar hafa verið um Jóhönnu af Örk
hefur köllun hennar frá guði alltaf
verið tekið sem sjálfsögðum hlut, líkt
og um frásögn í Bíblíunni væri að
ræða. Hinn ágæti leikstjóri Luc Bes-
son sem nú segir okkur söguna af
stúlkunni sem leiddi her Frakklands
til sigurs gegn Englendingum, fetar
að því leyti í fótspor Martins Scorse-
se í kvikmyndinni The Last Temptat-
ion of Christ, að hann leggur til, eða
frekur heldur þeim möguleika opn-
um, að Jóhanna hafi verið ósköp
mannleg, og hafi jafnvel framið
kraftaverkið í krafti geðveilu.
Sagan hefst árið 1420 þegar hópur
Englendinga, sem þá ráða yfir stór-
um hluta Frakklands, ræðst inn í
þorpið Domrémy og drepur systur
Jóhönnu sem þá er lítil stúlka. Til að
hugga Jóhönnu leggur prestur nokk-
ur til að kannski hafi guð hlíft henni,
því hann ætlaði henni sérstakt hlut-
verk í lífinu. Jóhanna tengir þessi orð
við þær guðlegu vitranir sem hún tel-
ur sig þegar hafa fengið. Nokkrum
árum seinna kemst hún á fund
krónprins Frakklands og lofar hon-
um að leiða Frakklandsher til sigurs
og hann skuli krýndur konungur fyrr
en varir. Prinsinn er til í þetta og
stúlkan stendur við orðin sín. En eft-
ir krýninguna hefur konungurinn
engan áhuga á að Jóhanna vinni fleiri
landsigra og selur hana í hendur
óvinanna sem eru fljótir að fá þessa
norn brennda á báli.
Útlit myndarinnar er býsna flott
eins og leikstjórans er von og vísa.
Besson tekst vel að endurskapa tíma-
bilið, en kannski var það sérstaklega
vegna frjálslegs talmáls að mér
fannst sagan alveg eins hafa getað
gerst í dag. Það er mjög skcmmtileg
nálgun, því í rauninni hefur mannsk-
epnan ekkert breyst á seinustu 500
ái'um. Mér finnst ótrúlegt að Jó-
hanna hafi fengið að stjóma þessum
her, og sé það illa gerast í dag.
Mér þykir bardagamyndir yfirleitt
leiðinlegar, enda skil ég aldrei hvað
er að gerast. En í þessari mynd
fannst mér bardagaatriðin bara
skemmtileg; einföld og markviss og
húmorinn aldrei langt undan.
Leikaramir standa sig allir með
prýði. Milla Jovovich er mjög sann-
færandi í hlutverki Jóhönnu; næstum
ennþá bam að aldri, full af krafti,
ákafa og trú á Drottin guð sinn. Mér
finnst kannski helst að hún hafi ekki
ráðið við fangelsisatriðin þar sem
samviskan talar við hana, enda er ég
ósátt við hvernig tekið er á þeim mál-
um. Þar er Dustin Hoffmann í hlut-
verki samviskunnar, og gerir vel, en
mér finnst ekki að hann ætti að vera
þar. John Malkovich og Faye Duna-
way era fín í hlutverkum krónprins-
ins og tengdamóður hans.
Bæði eru létt furðuleg, enda hefur
þetta sjálfsagt verið frekar raun-
veraleikafirrt fólk. Skemmtilegastir
og eðlilegustu persónumar vora þó
hermennii-nir sem stóðu að baki Jó-
hönnu, Tchéky Karyo, Richard Rid-
ings og Vineent Cassel.
Jóhanna af Örk er stundum tæt-
ingsleg kvikmynd, vantar kannski
aðeins meiri heildarstíl, og kraft á
köflum. En yfir höfuð skemmtileg
mynd og forvitnileg útfærsla af sögu
þessarar merku konu og kraftaverk-
inu hennar, hver svo sem stóð á bak
við það.
Hildur Loftsdóttir
Morgunblaðið/Þorkell
Sif Tulinius og Steinunn
Birna Ragnarsdóttir leika
á fyrstu áskriftartónleik-
um Txbrár árið 2000.
Fiðlu- Og
píanóleik-
ur á af-
mælistón-
leikum
Salarins
SIF Tulinius fiðluleikari og
Steinunn Biraa Ragnarsdóttir
píanóleikari koma fram á árs
afmæli Salarins fimmtudaginn
2. janúar kl. 20.30. Þær Sif og
Steinunn Biraa leika verk eft-
ir Beethoven, Handel, Ysafe,
Janacek og Ravel.
Eftir Beethoven verður flutt
Sónata í A-dúr op. 30 nr.l fyr-
ir fiðlu og píanó. Þá verður
flutt Chaconne í G-dúr fyrir
píanó eftir F. Handel. Eftir L.
Janacek flytja þær Sónötu fyr-
ir fiðlu og píanó og að lokum
Tzigan fyrir fiðlu og pianó eft-
ir Ravel.
Sif Tulinius lauk einleikara-
prófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík vorið 1991, undir
handleiðslu Guðnýjar Guð-
mundsdóttur konsertmeist-
ara. Hún stundaði fram-
haldsnám í Bandaríkjunum og
lauk BA-prófi frá Oberlin Col-
lege sem nemandi Almitu og
Rolands Vamos og meistara-
gráðu frá New York þar sem
kennarar hennar voru Joyce
Robbins og Joel Smirnoff,
fyrsti fíðluleikari Juilliard-
strengjakvartettsins. Sif hefur
unnið undir handleiðslu Juilli-
ard- og Amadeus-kvartett-
anna og einnig starfað með
ýmsum tónskáldum þ. á m.
Sofiu Gubaidulina og George
Crumb. Meðal verkefna hjá Sif
á næstunni er tónleikaferð
með tónlistarhópnum Ensem-
ble Modern í Evrópu.
Steinunn Birna kemur fram
á fjölmörgum tónleikum hér-
lendis og erlendis á ári hverju
og hefur undanfarin ár haldið
tónleika á vegum Listahátíðar
Reykjavíkur, Tónlistarfélags-
ins, Kamniermúsikklúbbsins
og Styrktarfélags fslensku óp-
erunnar og komið fram sem
einleikari með Sinfóníuhjjóm-
sveit Islands. Steinunn er list-
rænn stjórnandi Reykholtshá-
tíðar, tónlistarhátíðar sem
haldin er síðustu vikuna í júlí
ár hvert í Reykholti.
Þetta eru fyrstu tónleikarn-
ir í áskriftaröð 1, en sú röð
hefur alls að geyma fimm ein-
leiks- og samleikstónleika, að
meðaltali eina tónleika á mán-
uði fram til vors.