Morgunblaðið - 31.12.1999, Page 41

Morgunblaðið - 31.12.1999, Page 41
M'ÓltölWfiMölÖ FÖSTITÐAÓUR'.W. ÐESEMBKR ii)99 4t LISTIR W&i l L # n | HR JU. J' Us ifés Á iéfs a'Mfe mst MYIVDLIST Listhús Sævars Karls MYNDVERK 99 LISTA- MENN Opið á afgreiðslutíma verslunar- innar. Til 15. janúar. Aðgangur ókeypis. Frá samsýningu listamanna sem sýnt hafa í Galleríi Sævars Karls. „Aldamót“ ALDAMÓT nálgast óðfluga og ný stóröld í sjónmáli, hvort heldur hún hefst 1. janúar 2000 eða 2001, um það mega vísir deila að vild, hér hangir nefnilega margt afstætt á spýtunni. Tímamótanna verður víða vart á myndlistarvettvangi austan hafs sem vestan, og hef ég þegar fjallað um einn risaframníng í Berlín. Þá var Whitney-safnið í New York með yfirlit á amerískri list í tveim hlutum, hinn fyrri spannaði tímabilið 1900-1950, en hinn seinni 1950-2000. Reyndi að koma því til leiðar að skrifað væri um báðar framkvæmdirnar í blað- ið, en einhverra hluta vegna fórst það fyrir. I nútímalistasafninu er hafin sýning í þrem hlutum „MoMA 2000“. Hinn fyrsti stendur til 14. marz og fjallar um tímabilið frá 1880-1920, og væri meira en æskilegt að um alla hlutina verði fjallað á siðum blaðsins, því í hverjum einstökum mun vafalítið falinn drjúgur lærdómur til margra átta. Hér á útskerinu hafa menn ekki verið jafn meðvitaðir í þessum efnum, þótt smá sýnishorn hafi sést í sölum Listasafns ís- lands, en engin skilvirk allsherjar úttekt né uppstokkun hefur neins staðar verið gerð né er í vændum svo ég viti til. Dæmir sig sjálft, er afar lýsandi um ástandið þ.e. rugl- ið á íslenzkum sýningarvettvangi, þar sem sprell og síbylja ófullkom- inna smásýninga vísar veginn. Sumir eru þó öðrum meðvitaðri um þessi tímamót þótt i hnotskurn sé, og þannig hefur listhús fata- verslunar Sævars Karls Ólasonar efnt til sýningar í tilefni aldamót- anna, og um leið tíu ára starfsaf- mælis. Kemur þá í ljós sem fæsta mun hafa grunað að sýnendur á tímabilinu fylla svo til hundraðið (!), og þar af hafa nokkrir sýnt oft- ar en einu sinni. Upprunalega var listhúsið staðsett í afar notalegu hornherbergi á annarri hæð gamla aðsetursins á Ingólfsstræti, en hef- ur fyrir nokkru flutt um set í stærra og sérhannað rými í kjall- ara nýju verslunarinnar í Banka- stræti. Listhúsið hefur náð því með reglulegum sýningum og metnaðarfullum frágangi að teljast fullgilt til umfjöllunar í fjölmiðlum, svona eins og Mokka Kaffi, og fjarska væri gaman ef kósí kaffi- húsið efndi til svipaðrar fram- kvæmdar á næsta ári. Þeir sem versla með hátisku- fatnað, eru sér oftar en ekki vel meðvitaðir um hræringar á vett- vangi myndlistar, enda er fram- sækin hönnun og samtímalist af skyldum meiði. Ymsir tískufröm- uðir hafa safnað samtímalist og er ekki úr vegi að nefna hér Jeanne Lanvin, sem var slík vit- og smekkmanneskja á almenna hönn- un, að munir frá heimili hennar eru til sýnis í sérstöku herbergi á Dekoratíva-safninu í París, sem er í þeim hluta Louvre-hallarinnar er snýr að Rue de Rivoli. Heila klabb- ið var ekta nútímahönnun í húsi Lanvin, allt frá dýrindis skatthol- um í klósettskálar. Fyrir rúmu ári skoðaði ég mikla sýningu á þróun tískufatnaðar á öldinni á safninu og var það lifun og lærdómur sem ég bý lengi að, öðru fremur fyrir þá sök hve margt var þar náskylt með hönnun og efniskennd, og því sem var að gerast í frjálsri mynd- list á sama tíma. Hér var um afar heilbrigða víxlverkun að ræða. Það telst á allan hátt virðingar- vert af fatakaupmanni, að vera meðvitaður um hræringar í sam- tímalist, ekki síst þá hugtakið, samtímalist, er rétt skilið og með- tekið. Samtímalist, er nefnilega heiti á allri framsækinni og gildri list á hverjum tíma, en síður af- markað svið og þannig séð er ald- ursforsetinn, Kristján Davíðsson, jafn virkur í núinu og þeir yngstu. Löngu kominn tími til að hugtök séu rétt skilin hér á útskerinu og nýlega las ég í virtu erlendu list- tímariti grein um sígildu módern- istana, van Gogh og Cézanne. Ætti að segja okkur að sporgöngumenn þeirra á heimaslóðum, Asgrímur, Jón Stefánsson og Kjarval eru það sömuleiðis. Og var það ekki Giov- anni Battista Tiepolo sem sagður er hafa lokað dyrunum eftir sér þegar hann dó í Madrid 1770, og þarmeð tímabili gömlu meistar- anna um leið? Það er því engum greiði gerður, sem fæddur er Morgunblaðið/Golli meira en hundrað árum seinna að nefna hann gamlan meistara. Hins vegar má tála um gamla meistara í annarri merkingu, svona líkt og gamla flínka kalla. Sævari Karli og aðstoðarmönn- um hans hefur tekist að koma sam- an merkilega skilvirkri sýningu 99 listamanna í ekki stærra húsnæði og ef vel er rýnt sér maður skipu- lag í kraðakinu. Ungt fólk og mið- aldra er í meirihluta en nokkuð stökk i aldursforsetann sem út- jafnar þetta töluvert, á annan veg verður aldursmunurinn trauðla greindur á myndverkum hans, sem eiga jafn vel heima á sýningunni og verk hinna yngstu. Þar getur annars að líta fjölmargar hræring- ar í núlistum, allt frá módernisma til post-módernista og post-post- post-módernisma. Eins og segir er hér hrært í margs konar tilfinning- um, allt frá gleði, söknuði, eftir- væntingu, bjartsýni, svartsýni, margsýni o.s.frv. Síður tilefni til að fara í samanburðarfræði né djúpar faglegar hugleiðingar í þessu skrifi, til þess er sýningin of snöggsoðin og sundurlaus. En hún er til eftirbreytni í stærra og skil- virkara formi, staðfestir um leið að Sævar Karl og fólk hans veit hvað það vill þegar skapandi atriði eru annars vegar, og hefur sóma af ... Bragi Ásgeirsson Reuters Fund- inn fjár- sjóður ÞESSI gyllti bikar frá sautj- ándu öld kom nýverið úr jörðu í Þýskalandi ásamt mergð annarra gripa úr svoncfndum Moritzburg-fjársjóði. Þar höfðu þeir legið frá því í seinna stríði að synir Emst Heinrichs greifa af Saxlandi grófu þá í skógi nærri höll sinni í námunda við Dresden áður en Rauði herinn stökkti þeim á flótta til Berlínar. Nefndur bikar, sem seldur verður á uppboði í Lundúnum á næstu dögum, er mctinn á ríflega 230 milljónir íslenskra króna. Alltaf rífandl sala! 4 &100 90 OsSlOOfO-fn5619091 SVipholti 50 b • 2 h»ð l v H0Ll*ÍI„ lonnum Ós£um íandsmc öflum gíeðflegs drs oy forseeftfar d nýju óri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.