Morgunblaðið - 13.01.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.01.2000, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Ásdís Fyrsta skipið tekið upp FYRSTA skipið var tekið upp í nýja flotkví Vélsmiðju Orms og Víglund- ar í nýju suðurhöfninni í Hafnar- firði í gærkvöldi. Mælifell, flutningaskip Sam- skipa, var tekið inn í kvína í öxul- drátt, málningu og almennt við- hald, að sögn Jóhanns Halldórssonar, vaktmanns hjá vélsmiðjunni. Auk nýju kvíarinnar hefur vél- smiðjan frá 10. janúar 1996 rekið aðra flotkví í Hafnarfjarðarhöfn og hefur þar fengið um 160 skip til viðgerða. Þyrla sótti veika konu ÞYRLA Landhelgisgæslunnar var kölluð út síðdegis í gær að koma til móts við sjúkrabíl með veika konu frá Hvammstanga. Sótti þyrlan konuna í Borgar- nes og flutti hana á Sjúki'ahús Reykjavíkur til aðhlynningar. Konan var ekki í líshættu og var líðan hennar eftir atvikum, að sögn vakthafandi iæknis á sjúkrahúsinu í gærkvöldi. Gengst hún undir frekari rann- sókn í dag. Ung kona flutt með sjúkraflugi frá fsafírði til Reykjavíkur Flogið langt út fyrir landið til að forðast norðanstreng SEX manna áhöfn, að meðtöldum tveimur læknum, fór á TF-LÍF, þyrlu Landhelgis- gæslunnar, frá Reykjavík til Isa- fjarðar í fyrrinótt til að sækja konu á þrítugsaldri með slæma lungna- bólgu. Hún var flutt á Sjúkrahús Reykjavíkur og liggur nú á gjör- gæsludeild tals- vert veik. Er það mat lækna kon- unnar að það hafi bjargað lífi hennar að þyrlunni tókst að brjótast til ísa- fjarðar við mjög erfið skilyrði. Flogið 12 mflur út fyrir Snæfellsnes Vegna sterks norðanstrengs yfir landinu reyndist ekki unnt að fljúga beina leið til Isafjarðar og varð þyrlan því að fara talsvert langt vestur fyrir landsteinana á leið sinni þangað. Skyggni var ágætt á útleiðinni en krókurinn olli því að fljúga varð um 210 mflur til að komast á áfangastað en 120 mfl- ur til baka, enda voru veðurs- kilyrði betri á heimleiðinni sam- kvæmt upplýsingum frá stjórnstöð Land- helgisgæslunnar. Tilkynning um sjúklinginn barst Landhelgisgæslunni um hálfri klukku- stund fyrir miðnætti á þriðjudagskvöld frá lækni á slysadeild Sjúkrahúss Reykja- víkur og var TF-LÍF komin í loftið rúmri hálfri annarri kluk- ustund síðar. Flogið var 12 sjómflur vest- ur fyrir Snæfellsnes og þyrlunni haldið í þeirri íjarlægð frá strandlengjunni á V estfj arðakj álkan- um uns komið var að fjallinu Barða í Dýrafirði. Lent var siðan á Isafirði klukkan 3.06 eftir tæplega tveggja stunda flug. Eftir um klukkustundar viðdvöl á Isa- firði var allt til reiðu fyrir sjúkra- flugið til Reykjavíkur og lenti þyrl- an við Sjúkrahús Reykjavíkur klukkan 5.16 í gærmorgun. Jakob Ólafsson, flugstjóri þyrl- unnar, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að áhöfnin hefði fengið góða aðstoð frá togveiðiskipi úti á miðunum sem hefði gefið áhöfninni mjög gagnlegar veðurupplýsingar. Hann sagði einnig að áður en TF-LÍF kom til sögunnar hefði ekki verið óalgengt að fljúga út fyrir landsteinana þegar veður væru válynd á landi. Engu að síður hefði verið valin sú leið að fljúga yfir sjó í þetta skiptið, þrátt fyrir nýrri og betri flugkost þar sem tímafrekt hefði verið að fljúga í sterkum mótvindi á landi og ekki víst að neinn tími hefði sparast við það. Jakob Ólafsson flugstjóri Héraðsdómur í máli vagnstjóra SYR gegn borgaryfírvöldum Fær greiddar bætur vegna uppsagnar Með Morgunblaðinu í dag er í fyrsta skipti dreift nýju tímariti, 24-7. Tímarit þetta er gefið út af rekstrarfélagi með sama heiti, 24-7 ehf. Ábyrgðarmaður blaðsins er Snorri Jónsson, fyrrverandi rit- stjóri og eigandi Undirtóna. Ætlun- in er að timaritinu verði dreift með Morgunblaðinu á fimmtudögum til áskrifenda og í lausasölu. Nafngiftin á blaðinu táknar 24 tíma sólarhringsins, alla daga vik- unnar. Upplag tímaritsins er 60 þúsund eintök. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt Reykjavíkurborg og Strætisvagna Reykjavíkur til að greiða Pétri I. Hraunfjörð, fyrrver- andi vagnstjóra, 275 þús. krónur ásamt dráttarvöxtum og 115 þús. í málskostnað vegna uppsagnar í starfi án þess að næg ástæða væri tilgreind. Pétur sagðist vera nokkuð ánægð- ur með þessa niðurstöðu. „Ég hef í það minnsta endurheimt mannorð- ið,“ sagði hann. „Þetta voru tilefnis- lausar uppsagnir án áminningar. Ég fékk enga áminningu í öll þessi ár.“ Pétur var einn þriggja starfsmanna, sem sagt var upp á sama tíma. Uppsögn eftir 15 ár Málavextir eru þeir að Pétri var sagt upp með bréfi 27. ágúst 1997 með þriggja mánaða uppsagnar- fresti eftir um 15 ár í starfi án þess að ástæður uppsagnarinnar væru tilgreindar og var ekki óskað eftir vinnuframlagi hans á uppsagnar- tíma. I framhaldi var óskað eftir skrif- legum rökstuðningi fyrir uppsögn- inni og í svari forstjóra SVR er ástæðan talin vera sú að Pétur hafi aðfaranótt 25. ágúst 1997 vikið af akstursleið og ekki ekið tæplega helming þeirrar leiðar sem honum bar að aka. Ennfremur er vísað til þess að hann hafi fengið munnlega áminningu fyrir að virða ekki tíma- setningar og að auki fengið tiltal vegna ýmissa atriða í starfi. Þessum rökstuðningi var mótmælt bréflega, þar sem gerð er grein fyrir að ein- ungis hafi tvær biðstöðvar verið eft- ir þegar hann hætti akstri. Vagninn hafi þá verið tómur og fyrir því væri áratugalöng venja að síðustu ferð sé hætt þegar síðasti farþeginn er far- inn úr vagninum og skammt að end- astöð. Þessum fullyrðingum mót- mælti forstjóri SVR. Fram kemur í yfirlýsingu ellefu núverandi vagn- stjóra að þessi venja hafi verið af- lögð um áramót 1997-1998 með sér- stakri tilkynningu til vagnstjóra. Vei'ði því að telja fram komið að venjan hafi verið að sleppa síðustu biðstöðvum í síðustu ferð að kvöldi, a.m.k. í mörgum tilvikum segir í dómnum. Ekki málefnaleg í dómnum segir ennfremur að það teljist ekki málefnaleg afstaða hjá forstjóra SVR að gefa ekki stefnanda, sem var 54 ára og hafði unnið hjá SVR í fjölda ára, annan möguleika á því að mæta á fund og gefa skýringar á því sem ámælisvert taldist, heldur segja stefnanda fyrir- varalaust upp störí'um vegna ávirð- inga, sem fólust í hegðun sem við- gengist hafði hjá fjölda starfsmanna í lengri tíma. Hjallasókn Séra Iris ráðin SÉRA íris Krist- jánsdóttir, prest- ur í Hjallasókn, hefur verið ráðin sóknarprestur í Hjallaprestakalli í Kópavogi. Verður hún sett í embætti 30. janúar nk„ að sögn Karls M. Kristjánssonar, formanns sóknar- nefndar. íris hefur gegnt starfi safn- aðarprests í Hjallasókn í tvö ár og verið settur sóknarprestur í veikind- um sóknarprests í eitt ár. Prestakall- ið var auglýst laust til umsóknai' eftir lát sóknarprestsins, sr. Kristjáns E. Þorvarðarsonar, sl. haust. Aðrir umsækjendur um stöðuna voru séra Bragi Ingibergsson, sókn- arprestur á Siglufirði, og séra Flóki Kristinsson, sem gegnt hefur sér- stöku prestsembætti á meginlandi Evrópu. Séra íris Kristjánsdóttir Sérblöð ídag Viðskiptablað Morgunblaðsins Sérblað um viðskipti/atvinnnlíf Weah byrjar vel hjá Chelsea/C3 Heiðar einn sá fyrsti í langri röð/C3 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.