Morgunblaðið - 13.01.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000 61
MINNINGAR
Elskulega tengdamóðir mín, Unn-
ur Ingvarsdóttir, lést 3. janúar. Þá er
kveðjustundin runnin upp og þú ert
búin að fá hvfld. Mig langar til að
kveðja þig með nokkrum orðum. Þú
tókst vel á móti mér þegar Ingvar og
ég komum til íslands og sagðir að ís-
land væri yndislegt land þótt nafnið
benti til annars. Þú hafðir yndi af
ferðalögum um landið og sagðh- mér
frá. Þú last mikið og varst fróð og
þegar Brynjar vantaði svör við
spurningum hafði amma svörin.
Elskaða Unnur, ég kveð þig með
þessum sálmi.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
GekkstþúmeðGuði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Kirsten Fredriksen.
Elsku amma mín er dáin. Ég vona
að þér líði betur núna, að kvalirnar
séu horfnar. Á svona stundu er
margs að minnast og erfitt að ákveða
hvað skal segja.
Þegar ég var stelpa kom ég oft til
Reykjavíkur með rútunni og gisti þá
hjá Unni ömmu, mér fannst það voða
sport. Hún hafði gaman af því að
hitta okkur barnabömin og fylgdist
vel með því sem við vorum að gera.
Ég átti vinkonu sem bjó í sama húsi
og amma, svo ég kom oft til að hitta
hana, við brölluðum ýmislegt hjá
ömmu. Þegar ég varð eldri þá feng-
um við oftast að vera lengur úti á
kvöldin hjá henni en við fengum þeg-
ar við vorum heima hjá okkur og það
kunnum við að meta. Amma treysti
okkur stelpunum svo vel. Amma var
mjög vel lesin og vissi ótrúlegustu
hluti, ég man að mér fannst svo skrít-
ið að hún var ekki menntuð meira en
hún var, en hún hafði bara þennan
mikla áhuga á að vita svo margt. Hún
var búin að ferðast um allt land og
þekkti nöfn á minnstu hólum að mér
fannst.
Elsku amma, ég kveð þig með tár á
brá, takk fyrir allt og allt.
Þín dótturdóttir,
Ásgerður Jóhannesddttir.
Vertu sæl, elsku amma okkai’.
Takk fyrh- öll góðu árin, sem við
geymum í minningunni.
Núna, þegar þú ert farin, rifjast
svo ótalmargt upp, stórt og smátt.
Öll skiptin, sem við gistum hjá þér
á Tómasarhaganum þegar við vorum
börn og fjölskyldan átti erindi í höf-
uðborgina.
Allir ísarnir sem þú keyptm handa
okkur í Dairy Queen á Hjarðarhag-
anum.
Öll skiptin sem þú lyftir okkur yfir
girðinguna til að komast á róló.
Öll rifsberin, sem við tíndum í
garðinum hjá þér.
Allar stundirnar, sem þú sast og
spilaðir við okkur.
Árin, sem Haukur bjó hjá þér, þeg-
ar hann var í framhaldsskóla í bæn-
um.
Þolinmæðin við að hjálpa Unni að
læra að sauma.
Og svo ótalmargt annað.
Eftir að við urðum fullorðin hættir
þú að vera „bara amma“ og varðst að
auki góður vinur okkar, sem alltaf
var hægt að leita til. Þeir eru ófáir
kaffibollarnir sem tæmdir voru við
eldhúsborðið þitt við umræðu um
pólitík, verkalýðsmál og hvað það,
sem efst var á baugi hverju sinni. Það
má kannski segja að þú hafir verið
okkar „félagsmálaskóli". Þú komst
líka alltaf fram við okkur sem jai'n-
ingja og virtir skoðanir okkar til jafns
við annarra, sem eldri voru.
Eftir að við eignuðumst okkar eig-
in fjölskyldur og þú varst orðin lang-
amma fengu langömmubörnin að
njóta elsku þinnar og örlætis. Þú
gladdist þó lítið yfir langömmutitlin-
um í upphafí, og hefðir trúlega frekar
viljað vera amma-Unnur áfram.
Já, það er margt sem við eigum þér
að þakka, elsku amma. Okkar lán er
að hafa átt þig að allan þennan tíma.
Nú þegar komið er að hinstu kveðju-
stund erum við full þakklætis fyrir að
hafa þekkt þig. Vertu sæl, elsku
amma-Unnur.
tlngibjörg Á.E.
Waage fæddist á
Litla-Kroppi í Flóka-
dal í Borgarfírði
hinn 17. ágúst 1905.
Hún andaðist á
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 31. desember
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Ólöf
Sigurðardóttir, f. 18.
maí 1870, d. 13. maí
1923, húsfreyja á
Litla-Kroppi, og
Eggert Guðmunds-
son Waage, f. 1. júlí
1867, d. 12. maí 1947,
bóndi á Litla-Kroppi. Ingibjörg
var fjórða í röð sjö systkina sem
öll eru látin. Þau voru: Guðrún, f.
1. júlí 1898, d. 8. okt. 1963, Jóna, f.
24. júní 1899, d. 3. nóv. 1973. Sig-
ríður, f. 5. okt. 1901, d. 16. ágúst
1960. Sigurður Óskar, f. 14. júlí
Elsku Inga mín. Nú hefur þú feng-
ið hvíldina, sem þú þráðir. Mér er
minnisstætt í síðustu skiptin sem við
kvöddumst á tröppunum í Efstasundi
30, og ég sagði: Við sjáumst aftur eft-
ir þrjá mánuði, elskan. Þá svaraðir
þú: „ Já, Ólöf mín, og ef ekki þá er það
gott.“ Þú áttir við að þá yrðir þú kom-
in til Guðs í hóp ættingja og vina, því
það var enginn vafi á að þar myndum
við öll hittast að lokum.
Ég og systkini mín eigum þér svo
mikið að þakka. Þegar Sigurður bróð-
ir þinn og pabbi okkar dó frá okkur
ungum, tókst þú okkur undir þinn
verndai’væng og alltaf áttum við
athvarf hjá þér og honum Gauja
blessuðum, þegar á þurfti að halda,
alltaf pláss hjá Ingu frænku.
Það var ekkert lítið tilhlökkunar-
efni, eftir að mamma og Egill stjúpi
okkar fluttu með okkur Eggert heit-
inn bróður austur á Eyi-arbakka, að
koma í orlof til Ingu frænku, og ég
tala nú ekki um ef það var seinnipart
sumars. Þá fengum við salatskyr,
hvítkál og fleira eins og við gátum
torgað, en þá var grænmeti ekki eins
algengt og nú.
Inga mín, þú varst svo dugleg að
rækta, ekki bara grænmeti heldur
einnig tré og öll blessuð blómin sem
voru þitt yndi. Það lék allt í höndum
þínum tU dæmis öll föt sem þú saum-
aðir fóru svo vel.
Um fimmtugsaldur fórstu á stutt
myndlistarnámskeið, og eftir það
málaðir þú mikið og gafst okkur öll-
um nánustu ættingjum þínum mál-
verk eftir þig. Ekki voru síðri hest-
1907, d. 7. mars 1942.
Guðmundur, f. 29.
júní 1909, d. 24. ágúst:
1975. Fóstursystir
Ingibjargar var Lilja
Guðmundsdóttir, f.
10. febrúar 1914, d.
28. janúar 1999.
Arið 1930 giftist
Ingibjörg Guðjóni
Bjarna Guðlaugssyni
trésmið, f. 4. ágúst
1906, d. 21. mars
1977. Sonur þeirra er
Eggert Guðjónsson
húsasmíðameistari
og eiginkona hans er
Eygló Guðmundsdóttir. Eiga þau
tvo syni, Guðjón Bjarna og Magn-
ús Þór, en kona hans er Sjöfn Guð-
laug Vilhjálmsdóttir. Þau eiga tvö
börn, Eggert og Bjarnfríði.
Ingibjörg var jarðsett í kyrrþey
12. janúar.
arnir sem þú saumaðir. Þeir voru
mikil listaverk, enda iögð mikil alúð
og vinna við þá. Islenski hesturinn
ijóslifandi, hver vöðvi á sínum stað og
öll smáatriði ásamt reiðtygjum, en
engir tveir hestanna voru eins. Hver
með sinn svip og einkenni, enda voru
þeir vinsælh-, og margir pantaðir
vestur um haf til Ameríku.
Þú varst mikil listakona, vel lesin
og stálminnug og fylgdist vel með öllu
sem var að gerast fram á síðasta dag.
Það var mikið áfall þegar sjóninni
þinni fór að hraka svo hratt, að þú
sást bara í þoku, ekki hægt að lesa
eða mála, en þú gast hlustað á útvarp-
ið og einnig á sögur og fróðleik af
spólum sem þú gerðir mikið af.
Elsku Inga mín. Þrátt fyrir alla
þína hæfileika, varst þú svo hlédræg
og vildir lítið láta á þér bera, þú
merkth' ekki einu sinni málverkin
þín. Þrátt fyrir sjónleysi, heyrnar-
depurð og gigt, gast þú verið heima í
Efstasundi 30 þai' til síðustu vikuna
eða svo, með dyggri aðstoð og um-
hyggju þíns góða sonar Eggerts og
konu hans Eyglóar, og ekki síst son-
arsonar þíns, hans Guðjóns, sem allt
vildi fyiir ömmu sína gera.
Ég þakka þér, elsku Inga mín,
hvað þú varst okkur systkinunum og
börnum okkar góð og trygg. Guð
blessi þig.
Elsku Eggi, Eygló, Guðjón, Magn-
ús og fjölskylda, ég votta ykkur inni-
lega samúð, og bið Guð að styrkja
ykkur.
Ólöf D. Signrðardóttir
Föðursystir okkar, + ÁSTA JÓNASDÓTTIR
frá Litladal,
andaðist á elliheimilinu Grund miðvikudaginn 12. janúar.
Bræðrabörn.
+
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
JÓRUNNAR ÍSLEIFSDÓTTUR,
Fjölnisvegi 15,
Reykjavík.
Birgir ísl. Gunnarsson, Sonja Backman,
Lilja Jóh. Gunnarsdóttir, Guðlaugur Stefánsson,
Björg Jóna Birgisdóttir, Már Vilhjálmsson,
Gunnar Jóh. Birgisson, Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Ingunn Mjöll Birgisdóttir, Kolbeinn Már Guðjónsson,
Lilja Dögg Birgisdóttir,
Stefán Guðlaugsson,
Jórunn Sjöfn Guðlaugsdóttir,
Halla Sif Guðlaugsdóttir
og barnabarnabörn.
INGIBJORG ARNY
EGGERTSDÓTTIR
WAAGE
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, sonur, afi, bróðir og tengdasonur,
SIGURÐUR O. PÉTURSSON
bankastarfsmaður,
Kambaseli 27,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 9. janúar.
Útför fer fram frá Seljakirkju mánudaginn
17. janúar kl. 13.30.
Anna Kjartansdóttir,
Kjartan Hauksson, Karina Pedersen,
Pétur Sigurðsson, Harpa Sigurðardóttir,
Gunnar Þór Sigurðsson,
Pétur Ottesen,
Sara Rut Kjartansdóttir,
Óskírður Pétursson,
Þór Ottesen,
Björn O. Pétursson,
Guðrún H. Vilhjálmsdóttir.
+
Móðir mín,
INGIBJÖRG Á. EGGERTSDÓTTIR WAAGE,
Efstasundi 30,
Reykjavík,
lést föstudaginn 31. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Fyrir hönd vandamanna,
Eggert Guðjónsson.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ANNA JÓNSDÓTTIR
frá Kaldárbakka,
Stigahlíð 12,
Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 29. desember sl.,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtu-
daginn 13. janúar kl. 13.30.
Ólafur Erlendsson, Helen Hannesdóttir,
Halla G. Erlendsdóttir, Trausti Kristinsson,
Pétur Erlendsson, Áslaug Andrésdóttir,
Agatha H. Erlendsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÁSDÍS STEINADÓTTIR,
Valdastöðum,
Kjós,
sem lést föstudaginn 7. janúar sl., verður
jarðsungin frá Reynivallakirkju í Kjós laugar-
daginn 15. janúar kl. 14.00.
Unnur Ólafsdóttir, Ásgeir Olsen,
Steinar Ólafsson, Ninna B. Sigurðardóttir,
Ólafur Þór Ólafsson, Þórdís Ólafsdóttir,
Tómas Ólafsson, Sigfríð Ó. Sigurðardóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
+
Elskulegur sonur minn, bróðir okkar, mágur og
frændi,
GUÐMUNDUR BJÖRGVINSSON,
Birtingakvísl 34,
sem lést föstudaginn 7. janúar, verður
jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn
15. janúar kl. 13.00.
Kristín Jósteinsdóttir,
Ingibjörg Björgvinsdóttir, Hörður Ingi Jóhannsson,
Brynja Björgvinsdóttir, Vilbergur Magni Óskarsson,
Svandís B. Björgvinsdóttir, Þórir Gunnarsson
og systrabörn.
Lokað
í dag, 13. janúar, vegna útfarar STEFÁNS JÓNSSONAR.
Café Krónika.
Unnur og Haukur.