Morgunblaðið - 13.01.2000, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 13.01.2000, Blaðsíða 56
|6 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ HARALDUR , MATTHÍASSON OG KRISTÍN SIGRÍÐ UR ÓLAFSDÓTTIR + Haraldur Matt- híasson fæddist í Háholti, Gnúpverja- hreppi, 16. mars 1908. Hann lést 23. desember síðastlið- inn. Kristín Sigríður Ólafsdóttir fæddist í Reykjavík 16. apríl 1912. Hún lést 29. desember síðastlið- inn. Útför Haraldar og Kristínar fór fram frá Dómkirkjunni 7. janúar. Jarðsett var í grafreit á Laugar- vatni. Sæmdarhjónin Haraldur og Stína frænka eru dáin - farin sam- an til austursins eilífa. Þegar Ólaf- ur Örn frændi minn tilkynnti mér andlát föður sins gat hann þess í Jeiðinni að hann teldi að ekki yrði Wangt á milli þeirra. Sú varð og raunin. Þau höfðu verið samrýnd og samtaka í öllu, sem þau tóku sér fyrir hendur, og svo var einnig nú, þegar ferðin mikla var farin. I þessu sambandi langar mig að rifja upp atvik frá þeim árum þeg- ar þau felldu hugi saman. Það var í upphafi seinna stríðs sem ég þá ungur drengur kem í fóstur til afa- foreldra minna, Ólafs og Þrúðar, í nýbyggt hús á Flókagötu 18 í Reykjavík. Fjögur yngri systkini 'ymöður míns voru þá enn ógift í for- eldrahúsum og var Kristín næs- tyngst þeirra. Þegar ég kem sem yngsti meðlimur fjölskyldunnar inn á þetta stóra heimili tekur Stína frænka ástfóstri við mig og má segja að hún hafi gengið mér í móðurstað á þessum árum. Um þessar mundir kynnist hún Haraldi Matthíassyni. Kristín þá ung að ár- um var mikil útivistarkona, stund- aði fimleika, sund og skíðaíþrótt- ina. Þegar hún kynnist Haraldi býr hann í Reykjavík og er formaður skíðadeildar KR, ef ég man rétt. Stína hafði tekið mig með nokkur skipti í skíðaferðir að Kolviðarhóli við Hveradali. Einu sinni á páskum var ferðinni heitið upp að skíða- skála KR í Skálafelli, gömlum skála, sem var talsvert ofar í fjall- inu en núverandi skáli. Þegar við Stína erum mætt ásamt fleirum í rútu inn við Hlemm snarast inn í bílinn gjörvilegur maður, sem heilsar og Stína kynnir sem vin sinn Harald Matthíasson. Þegar komið var á áfangastað á Þing- vallavegi nærri Stardal hófst gang- an mikla á skíðum með viðlegubún- að á bakinu upp brattar hlíðar, en mikill snjór var í fjallinu. Ég minn- ist þess að frænka mín gaf þessum göngugarpi, vini sínum, ekkert eft- ir í göngunni upp hlíðarnar, en fyr- ir mig, ungan drenginn, var þetta hin mesta þrekraun. Átti ég fullt í fangi með að fylgja þeim eftir, enda engar lyfturnar. En það dugði ekki að láta deigan síga, það var ekki tekið til greina. „Það er ekki siður í okkar ætt að gefast upp,“ sagði Stína. Það dugði til leiðarenda. Eftir að þau stofnuðu heimili og voru búin að eignast myndarleg börn átti fyrir þeim að liggja að ganga saman um öræfi Islands þver og endilöng af sama krafti og þau sýndu upp hlíðar Skálafells forðum. Samheldni og ástríki ein- kenndi allt þeirra líf. Það þurfti áræði og seiglu fyrir Harald Matt- híasson að stofna heimili, taka menntaskólanámið utan skóla og fara síðan í háskólanám fertugur að aldri. Ég minnist þess að þegar ég heimsótti þau á Njálsgötu 72 var Haraldur stundum með Jó- hönnu, fyrsta barnið, á hnjánum og las námsbækur undir stúdentspróf. Ekki var slakað á eða kveinað, en sameiginlega stefnt að háleitu marki - menntun. Mér er ljúft að minnast þeirra nú með virðingu og þakklæti vegna mannkosta, að ógleymdri kímnigáfu, og hvað þess- ir eiginleikar þeirra voru samofnir í farsælu hjónabandi. Blessuð sé minning þeirra. Megi hinn hæsti höfuðsmiður himins og jarðar taka vel á móti þeim. Haraldur Valgarður Haraldsson. SESSELJA SVA VARSDÓTTIR + Sesselja Svavars- dóttir fæddist á Akranesi 31. ágúst 1922. Hún lést á Blönduósi 4. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Blönduósskirkju 10. janúar. ~ Elsku amma mín, eins og ég sakna þín sárt þá felst huggun mín í því að við sjá- umst aftur. Sem barn las ég oft ævintýrið um Bróður minn Ljónshjarta. Þar er sagt frá staðn- um Kirsuberjadal í Nangijala, ynd- islegri paradís. Núna færð þú að njóta slíkrar paradísar og tekur móti mér þegar minn tími kemur. Elsku amma, takk fyrir öll árin og alla þá hlýju sem þú sýndir mér ávallt. Við sjáumst aftur í Nangij- ala. Þín Rannveig Lena. Þegar hann pabbi sagði mér að amma væri dáin fann ég sáran þungan sting og tárin brutust fram í augun, þetta var svo sárt, líka það að heyra hvað pabbi átti erfitt. Ég eyddi því sem eftir var nætur sitj- andi með honum. Þegar við rædd- um um þetta fundum við það að þetta var það besta sem gat gerst, svona vildi hún fara, hljótt og án þess að liggja lengi veik. Ég fór undir morgun og vakti börnin mín ^og með hjálp Gumma sagði ég þeim trá þessu. Litla daman mín var fljót að sjá það góða í þessu öllu: Nú get- ur amma hoppað um eins og litlu lömbin og líka borðað sörurnar, nú líður ömmu vel. Það var alveg sama hvenær mað- ur datt þar inn um dyrnar, til var kaffi og amma til í að spjalla um íjfr'að sem var. Eins var um börnin, þau komu þar við bara til að sjá hana, en reyndar oftast til að athuga hvort amma væri ekki til í að gefa þeim eitthvað að drekka og ekki var verra að fá kökusneið með. Það verður skrítið að geta ekki farið og fengið kaffi hjá ömmu framar, en afi verður bara að sjá um að hella upp á í staðinn. Með þessari litlu bæn sem bömin mín báðu um að væri sett hér viljum við kveðja hana ömmu og vonum að guð hjálpi afa og okkur hinum líka í sorginni. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús þér ég sendi, bæn frá mínu brjósti sjáðu, blíði Jesús að mér gaðu. (Asmundur Eir.) Vertu yfir og allt um kring, með eilífri blessan þinni. Sitji guðs englar saman í hring, sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Valgerður, Guðmundur, Gísli Jóhannes og Svanhildur. Ég vaknaði við þegar systir mín kom til mín um miðja nótt og sagði mér að það væri síminn til mín. Pabbi var í simanum og hann sagði mér að þú værir dáin. Áhyggjur mínar af þér voru ekki að tilefnis- lausu, þú varst lasin og ég vissi af því. Svo þessa köldu nótt kvaddir þú okkur en skildir eftir þig fjölda góðra minninga sem aldrei munu gleymast. Ég reyndi að koma til þín á hverjum degi og stundum kom ég oft á dag. Ég get varla varist tárum þegar ég skrifa þessar línur. Ég sakna þín svo mikið. Ég vildi ekki trúa að þú værir farin frá okkur, ég sat á rúmstokknum hjá þér nokkr- um klukkutímum áður og talaði við þig, ég fann til undan því hversu lasin þú varst. Með semingi fór ég frá þér og kvaddi og sagði þér að ég ætlaði að koma aftur á morgun til að sjá hvernig heilsan væri. Eg kom aftur næsta dag en ekki í þeim til- gangi sem ég var búin að ætla mér. Ég kom inn um dyrnar og leit strax í stólinn þinn þar sem þú varst vön að sitja en sá þig ekki. Tárin runnu í stríðum straumum. Ég fékk að sjá þig, en augu þín voru lokuð. Ég beið samt eftir að þú myndir opna þau og bjóða góðan dag. Kinnar þínar sem áður voru rjóðar og sæl- ar, voru kaldar og hvítar. Amma mín, ég sakna þín svo sárt. Bara nú sl. gamlárskvöld kom ég til þín ásamt systrum mínum tveimur og mökum þeirra og þá varstu svo glöð og hamjngjusöm, hafðir engar áhyggjur. Ég sá tár renna niður kinnar þínar þegar Vala systir mín færði þér myndir af börnunum sínum tveimur. Þú varst svo glöð. Elsku amma mín, ég vil kveðja þig í hinsta sinn með þessum orð- um: Á hendur fel þú honum, sem himna stýrir borg, það allt, er áttu í vonum, og allt er veldur sorg. Hann bylgjur getur bundið og bugað storma her hann fótstig getur fundið sem fær sé handa þér. Ef vel þú vilt þér líði þín von á Guð sé fest. Hann styrkir þig í stríði og stjórnar öllu bezt. Að sýta sárt og kvfða á sjálfan þig er hrís. Nei, þú skalt biðja og bíða þá blessun Guðs er vís. (Þýð. Björn Halldórsson.) Elsku amma mín, ég kveð þig nú. Minningin um þig mun fylgja mér alla ævi. Elsku fjölskylda, megi Guð styrkja okkur í sorginni. Árný Sesselja Gísladóttir. STEFAN GRIMUR JONSSON + Stefán Grímur Jónsson fæddist í Reykjavík 7. maí 1923. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 4. janúar síð- astliðinn, 76 ára að aldri. Foreldrar hans voru Jón Grímsson, f. 12.7. 1892, d. 5.8. 1977, og Lilja G. Brands- dóttir, f. 22.5. 1889, d. 25.6. 1959. Stefán var þriðji yngstur níu systkina. Systk- ini hans: Aðalheiður Tryggvadóttir, f. 10.11. 1912, d. 22.9. 1994; Guðný Jónsdóttir, f. 24.6. 1914, d. 25.7. 1918; Vigdís Ó. Jónsdóttir, f. 8.1. 1917. d. 12.10. 1996; Sigurður G.K. Jóns- son, f. 23.3. 1918, d. 8.10. 1972; Jóhanna Jónsdóttir, f. 20.3. 1920, d. 11.6. 1973; Unnur Jóns- dóttir, f. 23.8. 1921; Bragi Jóns- son, f. 9.10. 1925; Logi Jónsson, f. 29.8. 1928. Stefán kvæntist 13. ágúst 1954 Þorbjörgu Hannesdóttur, f. 21.11. 1927, d. 12.7. 1992. Börn þeirra: 1) Stella, f. 26.4. 1956, í sambúð með Halldóri Sigurðs- syni. Synir Stellu eru Gunnar, Stefán Hrafn og Ólafur Þór Ólafssynir. Börn Halldórs eru Sigursteinn, Guð- björg Eva, Elísabet og Halldór Ægir. 2) Jón Hanncs, f. 26.9. 1963, kvæntur Gunnhildi Davíðs- dóttur. Dóttir þeirra er Þorbjörg Birta. Sonur Jóns er Grímur Ari. Móðir Gríms er K. Rut Stephens. Son- ur Gunnhildar er Davíð Aron Björnsson. Stefán nam véltæknifræði í Svíþjóð og starfaði síðan hjá Stálsmiðjunni í Reykjavík í 25 ár. Þá hóf hann störf hjá Berki hf. og vann þar til 64 ára aldurs. Útför Stefáns fer fram frá Háteigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elsku pabbi, ég kveð þig með söknuði og harma það að hafa ekki getað verið með þér þegar þú kvaddir þennann heim. Ég þakka þér fyrir allt og vona að þér líði bet- ur núna. Nú hefur þú sameinast mömmu á ný, ég elska ykkur bæði. 0 veit ég gætur gefið. Minn guð, sem ber að því, að stutta hér vist hef ég heimi þessum í. Sem fljótast fellur straumur, svo flýgur ævi manns, að lyktum líkt sem draumur er lífið gjörvallt hans. Menn hníga dag frá degi í duft sem visin strá. Svo skugga og annað eigi þá alla telja má. Menn leita og lúnir strita sér, litlum notum að, menn safna en síst þó vita hver síðar erfir það. Við hvað þá huggast get ég, mitt hjálpráð guðvið þig. Því traust mitt sífellt set ég, í sorg og gleðiáþig. Hér útlendingur er ég, en útlegð stutt er mín. Brátt heim til feðra fer ég í friðarhúsin þín. Sofðu rótt, elsku pabbi. þín, Stella. Elsku afi, nú ert þú horfinn okkur frá. Við þökkum þér fyrir allt sem þú hefur verið okkur í gegnum tíð- ina. Það kemur enginn reykur úr kofanum þínum lengur. Þú kyndir ekki framar þitt æðsta fómarbál. Hve dauðhljótt er inni, það ómar enginn strengur, sem áður fyrr var hreyfður af lífi þínu og sál. Þinn drengur reikað hljóður, og hiyggur er þinn maki, og heimilið er skuggi afþvísemáðurvar. En gott er þín að minnast, þvíallt sem eraðbaki afástþinnivarhelgað svo hvergi skugga bar. (Hólmfríður Jónsdóttir.) Blessuð sé minning þín, afi min. Gunnar, Stefán Hrafn og Ólafur Þór. Við fráfall Stefáns Jónssonar sjá- um við á bak góðum og trúverðug- um vini, er ekki mátti vamm sitt vita í einu eða neinu. Heiðarleiki hans og ljúfmennska voru af þeim toga sem maður getur hugsað sér best. Það voru ekki hans einkenni að berast mikið á né miklast af neinu. Þeim mun meiri áherslu lagði hann á umhyggju gagnvart börnum sín- um og öðrum nánustu, samhliða prúðmennsku og trúverðugleika gagnvart vinum og kunningjum. Þannig hygg ég að minningin sé rík- ust meðal þeirra er samleið áttu með Stefáni. Á sínum yngri árum var Stefán áhugasamur og mjög liðtækur íþróttamaður og iðkaði íþróttir sínar innan Glímufélagsins Armanns. M.a. var hann meðal okkar bestu hnefaleikara í sínum þyngdarflokki og þar eins og annars staðar var það heiðarleikinn í formi réttra leik- reglna og virðingar fyrir keppina- utnum sem sat í fyrirrúmi. Stefán var einnig ágætlega söngvinn og söng um árabil í kirkju- kór Háteigskirkju. Veit ég að hann naut þess ríkulega að vera þátttak- andi í kórstarfi kirkjunnar. Samgangur okkar hjóna við Stef- án og Bíbí konu hans var mikill og ánægjulegur um áratugaskeið, enda var Bíbí einstök kona öllum glað- værari og jákvæðari, þrátt fyrir nánast látlaust stríð við veikindi og fötlun. En þannig er það nú oft svo, að þeir sem mest hafa reynt af mót- lætinu eim skilningsríkastir á um- hverfið og afkastamestir í að skapa jákvætt hugarfar meðal annarra. Svo hagar til að synir okkar og börn Stefáns og Bíbíar eru á svipuð- um aldri. Ánægjustundirnar sem við áttum saman, m.a. við veiðiskap, hestamennsku og ferðalög lifa lengi í minningunni. Á slíkum stundum var Stefán ómetanlegur félagi, rösk- ur, hugsunarsamur og snyi-timenn- skan í hávegum höfð á öllum sviðum. Allar þessar ómældu samveru- stundir eru nú þakkaðar að leiðar- lokum um leið og Stellu og Jóni Hannesi ásamt barnabörnum og sambýlisfólki er óskað allra heilla og guðsblessunar í bráð og lengd. Sigrún, Sigurður Rúnar, Jóhann og Sigurður Magnússon. Minn Guð og Herra er hirðir minn, mér hjálpararm hann réttir sinn. Ég veit hann æ mér vill hið besta, ég veit hann ei mig lætur bresta það neitt, er getur gagnað mér, því góður hirðir Drottinn er. Um blómum stráða, græna grund mig Guðs míns leiðir fóðurmund að svalalindum silfurskærum og svalar mér úr lækjum tærum. Hans líknarhöndin hressir mig og hjálpar mér á réttan stig. Og þótt ég gangi um dimman dal, hans dimma mér ei ógna skal. Ef geng ég trúr á Guðs míns vegi, mér grandar dauðinn sjálfur eigi. Þín hrísla og stafur hugga mig, minn hirðir, Guð, ég vona á þig. (V. Briem.) Gunnhildur Davíðsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.