Morgunblaðið - 13.01.2000, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.01.2000, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Ákvörðunar um framsal Pinochets að vænta fljótlega London, Madrid, Sanliago. AP, Reuters. JACK Straw, innanríkisráðherra Bretlands, tilkynnti í fyrrakvöld að hann hefði í hyggju að hafna kröfu Spánverja um framsal Augusto Pinochets, fyrrverandi einræðis- herra Chile. Astæðan sem innanríkisráðuneytið gefur er heilsufar Pinochets. Hann er sagð- ur ófær um að vera viðstaddur rétt- arhöld. Tilkynning Straws hefur vakið blendnar tilfínningar innan Bretlands sem utan. Stuðningsmenn Pinochets í Chile hafa fagnað ákaft á meðan andstæðingar ein- ræðisherrans fyrrverandi og ýmsir mannréttindahóp- ar eru því ósammála að Pinochet verði látinn laus. Ekki liggur þó endanlega fyrir hvort Pinochet verður framseldur til Spánar eða leyft að snúa heim til Chile. Straw hyggst veita mann- réttindahópum og nokkrum erlendum ríkjum sjö daga frest til að láta skoðanir sín- ar í ljós áður en endanleg ákvörðun verður tekin. Tilkynning Straw hefur þegar mætt nokkurri and- stöðu innan breska þings- ins. Ymsir þingmenn Verka- mannaflokksins lýstu til að mynda yfir áhyggjum af þessum málalokum og Ann Widdecombe, sem fer með innanríkismál í skugga- ráðuneyti Ihaldsflokksins, sagði aðlengi hafa verið vit- að um slæmt heilsufar Pinochets og því verði að telja það einkennilegt að svo langan tíma hafi tekið að komast að þessari niðurstöðu. Samdóma læknisálit Hópur lækna sem skoðaði Pino- chet í síðustu viku var sammála um að hann væri heilsuveill og því ekki fær um að vera viðstaddur réttar- höld. Pinochet, sem er 84 ára gam- all, hefur verið í stofufangelsi í Englandi sl. 15 mánuði, allt frá því að Spánverjar fóru í október 1998 fram á framsal hans til Spánar vegna mannréttindabrota gegn spænskum þegnum á stjórnarárum . hans í Chile. Breskir dómstólar samþykktu framsal Pinochet til Spánar í sept- ember á síðasta ári, en þeim dómi var áfrýjað og fór ríkisstjórn Chile fram á að breska innanríkisráðu- neytið samþykkti að Pinochet geng- ist undir ítarlega læknisskoðun. Hann er sykursjúkur, með gangráð og er nú sagður þjást af þunglyndi eftir stofufangelsisvistina, auk þess sem hann hefur tvisvar fengið að- kenningu að hjartaslagi á þessum tíma. Straw segist ekki telja það þjóna neinum tilgangi að halda áfram Sú niðurstaða breska innanríkisráðu- neytisins að ekki sé hægt að framselja Augosto Pinochet, fyrrum einræðisherra Chile, til Spánar vegna heilsubrests hefur mælst misjafnlega fyrir. Stuðningsmenn Pinochets fagna því að Bretar hafi ekki hug á að framselja einræðisherr- ann fyrrverandi, fyrir utan Pinochet-stofnunina í Santiago. undirbúningi að framsali Pinochets í ljósi niðurstaðna læknanna, en þær eru trúnaðarmál. Breska ríkis- stjórnin fór þess þó á leit við Pino- chet að hann léti niðurstöður lækn- anna Spánverjum í té, en hann hafnaði þeirri beiðni. Búist við skjótum viðbrögðum Straw hefur ekki greint frá hve- nær ákvörðun hans liggi fyrir. Dag- blaðið The Guardian hafði þó eftir ónafngreindum heimildarmanni í innanríkisráðuneytinu að Straw muni bregðast skjótt .við og svo geti farið að Pinochet haldi til Chile í næstu viku. Marc Weller, sem kennir alþjóða- fræði við Cambridge háskóla, sagði að hver sem niðurstaða Straws varðandi heilsufar Pinochets yrði, hefði verið sýnt fram á að fyrrum þjóðhöfðingjar nytu ekki friðhelgi gegn ákærum um mannréttinda- brot. Mannréttindasamtökin Amnne- sty International létu í ljós áhyggj- ur yfir að sá læknisfræðilegi vitnis- burður sem ákvörðun Straw byggði væri ekki öllum málsaðilum opin og kannar nú lagalega stöðu sína. Aðrir mannréttindahópar játuðu vonbrigði sín, en sögðu að málsmeð- ferðin hefði styrkt stöðu mannrétt- indalaga. „Þó okkur þyki miður að Pinochet og fórnarlömb hans muni aldrei hittast í réttarsalnum hefur málsmeðferðin frá upphafi verið sigur f'yrir þau grundvallaratriði sem mannréttindalög byggjast á,“ sagði Reed Brody frá samtökunum Human Rights Watch. Ekki hefur borist yfirlýsing frá Baltasar Garzon, spænska dómar- anum sem fór fram á framsal Pino- chets til Spánar, en lögfræðingar á hans vegum kváðust munu halda baráttunni áfram. Mörg fórnarlambanna enn verr sett Viðbrögð Chilebúa við mögulegri heimkomu Pinochet hafa verið mis- jöfn. Samtök ættingja fórnarlamba hans segja ákvörðun Straws kjafts- högg og Mireya Garcia, varafor- maður samtakanna, sagði að þrátt fyrir háan aldur væri Pinochet fær um að vera viðstaddur réttarhöld. Carlos Reyes, talsmaður Chile-búa í útlegð, sagði ennfremur að mörg fórnarlamba Pinochet væru eldri og veikari en hann. Það væri því hræðileg tilhugsun að réttlætinu yrði ekki fullnægt í þessu máli. Stuðningsmenn Pinochet hafa fagnað tilkynningunni og Margaret Thatcher, fyiTum forsætisráðherra Breta, sem áður hefur gagnrýnt Straw fyrir meðferð máls- ins, kvaðst nú treysta inn- anríkisráðherranum í þessu máli. „Hann er réttlátur maður,“ sagði Thatcher. Pinochet sjálfur var sagður ánægður með frétt- irnar meðan fjölskylda hans kvaðst ekki þora að trúa því að hann væri á leið heim fyrr en hann sæti í flugvél- inni. Þótt Pinochet verði látinn laus í Bretlandi kann hann engu að síður að verða dreginn fyrir rétt. Sendi- herra Chile í London, Pablo Cabrera, sagði í gær að ein- ræðisherrann kynni að verða sviptur friðhelgi við komuna til Chile. Fari svo gætu dómstólar í Chile krafist þess að Pinochet svaraði til saka fyrir rétti þar í landi, en nú þegar hafa rúmlega 50 dómsmál verið lögð fram gegn hon- um. Áhrif á forseta- kosningar? Framsal Pinochets hefur verið Chilebúum mikið þrætuepli auk þess sem samskiptin við Bretland og Spán hafa orðið stirðari í kjölfarið. Chilebúar skiptast í tvær fylkingar í málinu. Forsetakosningar í land- inu verða haidnar nk. sunnudag og hafa báðir forsetaframbjóðendurnir forðast að ræða skoðanir sínar á Pinochet. Þetta á jafnt við hinn vinstrisinn- aða Ricardo Lagos og hinn hægri- sinnaða Joaquin Lavin, sem var einn af stuðningsmönnum Pin- ochets í stjórnartíð hans á árunum 1973-1991. Stjórnmálaskýrendur eru ekki á eitt sáttir um hvort væntanleg heimkoma Pinochet komi til með að hafa áhrif á forsetakosningarnar. Þeir Lagos og Lavin voru hnífjafnir í fyrstu umferð kosninganna og munaði aðeins hálfu prósentustigi á þeim. Hugsanleg heimkoma Pinochet kynni því að skipta sköpum. Á hinn bóginn benda stjórnmálaskýrendur einnig á, að ekki muni liggja fyrir hvort hætt verði við framsal Pino- chet fyrr en að kosningum loknum- .Því segja stuðningsmenn hans nær útilokað að Pinochet verði kominn aftur til Chile fyrir kosningarnar. Reuters Skiptar skoðanir í Þýzkalandi um Wolfgang Schauble og fjármál CDU Almenningur á báðum áttum Bcrlín. AP, AFP. KRISTILEGIR demókratar í Þýzkalandi fylktu í gær liði um formann sinn, Wolfgang Scháuble, í kjölfar þess að hann viðurkenndi að hafa tekið við 100.000 mörkum í reiðufé úr hendi lykil- manns í fjármálahneykslinu sem hingað til hef- ur að mestu leyti snúið að fyrirrennara hans, Heimut Kohl. Scháuble viðurkenndi á þriðjudag að umrætt fjárframlag hefði ekki verið skráð í bókhald flokksins eins og vera bar, en lagði áherzlu á að hann hefði ekkert rangt gert og myndi ekki segja af sér. Þrátt fyrir að í sumum fjölmiðlum í Þýzkalandi hefðu komið fram áskoranir um af- sögn hans kom fram í niðurstöðum skoðana- könnunar sem birt var í gær, að þýzkur al- menningur er á báðum áttum. Fram kemur í niðurstöðum könnunarinnar, sem Forsa-stofnunin gerði, að 42% aðspurðra telja að Scháuble ætti að segja af sér en 45% sjá ekki ástæðu til þess. Munurinn, 3%, er jafn skekkjumörkum könnunarinnar. Greiðslan tengd byggingu vopnaverksmiðju? Athygli vekur að 38% aðspurðra, sem eru yf- irlýstir kjósendur CDU, töldu rétt að Scháuble segði af sér. Frekari afhjúpanir varðandi leynileg fjár- framlög í sjóði CDU héldu annars áfram í gær. Dagblaðið Die Welt greindi frá því, að þýzk- kanadíski vopnakaupmaðurinn sem er lykilmað- ur hneykslismálanna, Karlheinz Schreiber, lét féð af hendi rakna í tengslum við byggingu vopnaverksmiðju í Kanada á vegum dótturfyrir- tækis þýzka málmiðnaðarrisans Thyssen. Talsmaður þingflokks CDU, Walter Bajohr, vísaði því hins vegar á bug að féð hefði nokkuð með byggingu verksmiðjunnar að gera. Schreiber hefði látið Schauble fá peningana til að fjármagna kosningabaráttu; það hefði verið eina markmiðið, að sögn Bajohrs. Sjö sjó- menn taldir af TALIÐ er að sjö skoskir sjó- menn hafi drukknað er skel- veiðibátur þeirra, Solway Har- vester, hvarf á Irlandshafi, milli Bretlands og írlands, í gær í slæmu veðri og nokkrum sjó. I hópnum voru tveir bræð- ur og frændi þeirra. Neyðar- skeyti bárast frá bátnum sí- ðdegis á þriðjudag er hann var um 11 mílur frá eynni Mön. Báðir gúmbátar bátsins fund- ust mannlausir og hafði hvor- ugur verið blásinn upp sem þótti benda til að slysið hefði borið brátt að. Lögðverður áhersla á að finna flakið til að reyna að ganga úr skugga um orsök slyssins. Lögmaður Anwars handtekinn LÖGREGLAN í Malasíu hand- tók í gær lögmann Anwars Ibrahims, fyrrverandi fjármálaráðherra landsins sem er í haldi sakaður um ýmis af- brot og spillingu. Þrír menn að auki voru handteknir og vora þeir úr þrem flokkum stjórnar- andstöðunnar. Allh’ fjórir vora sakaðir um undirróður og er talið að um sé að ræða þátt í at- lögu stjórnar Mahathirs Mohamads forsætisráðherra, sem nýlega sigraði í þingkosn- ingum í landinu, gegn stjórnar- andstöðunni. Lögmaðurinn var handtekinn fyrir að segja í rétt- arhöldum yfir Anwar í septem- ber að reynt hefði verið að byrla skjólstæðingnum eitur. Alþýðulýð- veldi í Sussex BRESKA þorpið East Grin- stead í vesturhluta Sussex hef- ur lýst yfir sjálfstæði og nefnist nú Alþýðulýðveldi Ashurst Wood- þjóðríkisins, skamm- stafað PRAWNS er merkir rækjur. Krafist er vegabréfa á fjóram götum sem liggja inn í þorpið og íbúarnir hafa þegar stofnað nokkur ráðuneyti. Heil- brigðisráðuneytið er jafnframt þorpskrá. Upphaflega mun markmiðið hafa verið að efna til aldamótaskemmtunar með til- tækinu en nú er ætlunin að nota tækifærið til að fá héraðsyfir- völd til að sinna betur málum þorpsins sem er við fjölfarna hraðbraut, A22. Hyggjast vígja „lifandi búdda“ KÍNVERSK stjórnvöld ætla að vígja endurholdgaðan „lifandi búdda“ fyrir Tíbeta í mánuðin- um og eiga þá á hættu að nýjar deilur hefjist í kjölfar flótta eins af æðstu trúarleiðtogum landsins til Indlands nýverið, Karmapa lama. Stjórnamefnd í Kína hefur ákveðið að tveggja ára gamall drengur sé endur- holdgaður sjötti Reting, lama sem lést 1997, að sögn embætt- ismanns í höfuðstað Tíbet, Lhasa. Fulltrúi útlagastjórnar Tíbeta í Indlandi, sem er holl Dalaí lama, spáði því að vígslan gæti orðið til að auka enn deilur milli Dalaí lama og kommún- istastjórnarinnar í Peking.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.