Morgunblaðið - 13.01.2000, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.01.2000, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000 15 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Úthlutun einbýlishúsalóða í 2. áfanga Grafarholts Krafíst 20 milljóna króna greiðslumats Grafarholt ANNAR áfangi lóðaúthlutun- ar í Þúsaldarhverfinu í Grafar- holti hefur verið auglýstur. Þau nýmæli eru í úthlutunar- reglum borgarverkfræðings- ins í Reykjavík, að áður en val lóða fyrir einbýlishús fer fram skal umsækjandi leggja fram skriflegt mat banka eða ann- arrar viðurkenndrar fjármála- stofnunar sem staðfestir að hann ráði við 20 milijóna króna húsbyggingu. Þeir sem ekki leggja fram fullnægjandi greiðslumat glata valrétti sín- um. Tillaga um þetta kom frá skrifstofu borgarverkfræð- ings og var samþykkt í borg- arráði. Tilboðum í lóðimar á að skUa fyrir 25. janúar nk. Dreg- ið verður úr umsóknum sem uppfylla skilyrði fyrir lóðimar og fá umsækjendur að velja lóðir í þeirri röð sem umsóknir þeirra verða dregnar út. Vahð fer fram 17. febrúar næstkom- andi. Agúst Jónsson, skrifstofu- stjóri hjá borgarverkfræðing- num, segir að þessi regla sé sett tU þess að menn reisi sér ekki hurðarás um öxl. Agúst segir að þetta hafi ekki verið gert með þessum hætti fyrr en hingað til, og eftir sem áður, fylU menn út lóðarumsókn. Hlutlaust mat á fjárhags- stöðu umsækjenda Þar er gert ráð fyrir að menn gefi upp upplýsingar um tekjur sínar, eignir, skuldir og að þeir séu ekki í vanskilum með opinber gjöld. Aldrei hafi verið kafað ofan í slíkar upp- lýsingar og gengið úr skugga um hvort þær em réttar. Nú verði fengið hlutlaust mat á fjárhagsstöðu umsækjenda. EinbýUshúsalóðimar sem auglýstar em nú, 22 talsins, era allar fyrir tveggja hæða hús; 5 lóðir þar sem hámarks- stærð húss er 185 fermetrar, 6 lóðir fyrir 210 fermetra hús að hámarki, 7 lóðir fyiir 240 fer- metra hús að hámarki og 4 lóð- ir fyrir 250 fermetra hús að hámarki. Byggingarrétturinn verður seldur á föstu verði. Einnig er nú leitað eftir kaup- tilboðum í byggingarrétt fyrir tólf tvíbýlishús á 2-3 hæðum og í tólf lóðir fyrir raðhús, keðjuhús og fjölbýUshús auk lóða fyrir húsaþyrpingar. Stuðst við útreikninga Rannsóknarstofnunar byggingaiðnaðarins Aðspurður um ástæðu þess að miðað væri við greiðslumat upp á 20 milljónir kr. sagði Ágúst, að þar væri stuðst við útreikninga Rannsóknarstofn- unar byggingaiðnaðarins. Miðað er við hús á einni hæð um 200 fermetrar að stærð og samkvæmt útreikningum stofnunarinnar er byggingar- kostnaður vegna slíks hús um 102.000 kr. á fermetra. Borg- arverkfræðingur hafði þessa útreikninga til hUðsjónar þeg- ar ákveðið var að miða við greiðslumat upp á 20 milljónir kr. Byggingarkostnaður yrði hærri en þetta, sé miðað við þennan byggingarkostnað, á 17 af lóðunum 22 en lægri á fimm lóðum. EinstakUngur sem telur sig geta byggt hús í hverfinu með hagkvæmum hætti þannig að byggingar- kostnaður verði undir 20 millj- ónum króna, en getur ekki lagt fram tilskilið greiðslumat á því ekki kost á lóð í þessari úthlutun. Ágúst segir að landið sé erf- itt vegna halla og það kosti sitt að byggja þar. Tilgangurinn með úthlutunarreglunum sé sá að koma í veg fyrir að menn reisi sér hurðarás um öxl og haldi jafnvel lóðum ámm sam- an, eins mörg dæmi séu um. Hann kveðst búast við því að þegar úthlutun á einbýlishúsa- lóðum fer fram næst, snemma næsta vetur, verði sama fyrir- komulag á úthlutuninni. Morgunblaðið/Þorkell Byrjað var að rífa niður húsið við Skipholt 66 í gær, en á ldðinni á að rísa 3 hæða íbúðarhús. Sjötíu ára timburhús rifið Holt og Hlíðar HAFIST var handa við að rífa um sjötiu ára gamalt timburhús við Skipholt 66 f gærdag og voru stórvirkar vinnuvélar notaðar í verkið. Ráðgert er að reisa þriggja hæða íbúðarhús á lóðinni, en framkvæmdir við samskonar hús á lóðinni við Skipasund 68 hófust í haust. Að sögn Margrétar Þor- mars, hjá Borgarskipulagi, óskaði eigandi lóðarinnar eftir að húsið yrði rifið. Það var í eigu borgarinnar. Sigurður Pálmi Ásbergs- son er arkitekt húsanna og segir hann að þrjár stórar íbúðir verði í hvoru húsi, tvær 150 fermetra hæðir og 100 fermetra íbúð á jarðhæð. Sigurður Pálmi sagði að þar sem verið væri að byggja á gróinni lóð hefði verið reynt að taka tillit til nærliggjandi húsa og verða húsin svipuð útlits og þau sem í kring eru. Stór hlynur er við lóðirnar og er var tekið sérstakt tillit til hans við hönnunina. Morgunblaðið/Kristinn Sett hafa verið upp um 20 auglýsingaskilti samkvæmt und- anþáguákvæði í skiltareglugerð á vegum Reykjavíkur- borgar. Skiltin eru í eigu danska fyrirtækisins AFA- JCDequa. Vildu auglýs- ingaskilti við Stjórnarráðið Miðborg ERINDI Landssímans, vegna auglýsingaskiltis á veg- um Reykjavíkurborgar við höfuðstöðvar fyrirtækisins, kom fyrir borgarráð í fyrra- dag. Oskað var eftir umsögn byggingarfulltrúa um málið sem kemur væntanlega fyrir næsta fund borgarráðs með umsögn hans. Upphaflega fór eigandi skiltisins, danska fyr- irtækið AFAJCDeqau, fram á það að skiltið yrði sett niður á Austurvelli. Júlíus Vífill Ing- varsson borgarfulltrúi gagn- rýnir harðlega þátt meiri- hluta borgarstjómar í málinu. Ekki samið um staðsetningu á auglýs- ingaskiltunum Reykjavíkurborg samdi við danska fyrirtækið AFA- JCDeqau um að það setti upp 130 strætisvagnabiðskýli 1 Reykjavík og annaðist við- hald á þeim. AFAJCDeqau fékk fyrir það rétt til að selja auglýsingar í skýlin og að auki að setja upp 43 sjálfstætt standandi auglýsingaskilti. Júlíus Vífill segir að hvergi sé um það getið í samningnum hvar þau skyldu vera niður- komin. AFAJCDeqau hefði farið fram á það að setja skilt- in niður á alla mest áberandi og, að sínu mati, viðkvæm- ustu staðina í Reykjavík, þar sem umferðin væri mest. Hann segir að kostnaður Reykjavíkurborgar vegna samningsins sé vegna lagn- ingu heimtauga að biðskýlun- um og skiltunum og jafnframt allan rafmagnskostnað við lýsingu á biðskýlum og skilt- um. Reykjavíkurborg hafi þess vegna talsverðan kostn- að af þessu. íslenskum fyrirtækjum synjað „Það sem er sárast í málinu er það að meirihluti borgar- stjórnar semur klaufalega af sér. Aður en samningurinn er gerður var ekki frá því gengið hvar skiltin skyldu niðurkom- in. Þau em þegar farin að stinga í augu á viðkvæmustu stöðunum í Reykjavík. ís- lensk fyrirtæki, sem hefðu hugsanlega áhuga á því að setja upp skilti á þessum stöð- um, fengju í öllum tilvikum og hafa sum nú þegar fengið synjanir við þeirri málaleitan að setja niður skilti á þessum stöðurn," segir Júlíus Vífill. Hann bendir á að í gildi er svokölluð skiltareglugerð, sem R-listinn setti, í þeim til- gangi að borgaryfirvöld hefðu eitthvað um það að segja hvar mætti setja niður skilti. í reglunum em undanþágu- ákvæði og skilti danska fyrir- tækisins séu öll sett niður á grandvelli undanþáguákvæð- isins. „Þetta gengur engan veginn upp frá lagalegu sjón- armiði því þessi 43 skilti em mikill meirihluti þeirra skilta sem sett era upp í borginni. Undanþáguákvæði skilta- reglugerðar er því orðið að meginreglu. Þetta sýnir það að meirihluti borgarstjórnar kann ekki að semja þegar á hólminn er komið og því mið- ur hef ég fleiri dæmi af þessu tagi. Mér finnst því fyrir- spurn Landssímans mjög eðlileg og endurspegla það að menn geta ekki unað því, sem era í atvinnurekstri hér í Reykjavík, að fyrirtæki frá Danmörku geti tekið meiri- hluta borgarstjórnar haustaki með þessum hætti og snúið hann niður í samningum,“ segir Júlíus Vífill. Um helmingur skiltanna er þegar kominn upp. Hann seg- ir að í fyrstu tillögum AFA- JCDeqau var gert ráð fyrir að komið yrði fyrir skiltum fyrir framan Stjórnarráðið og skrifstofu forseta íslands í Sóleyjargötu. Fyrirtækið féllst á að færa fyrrnefnda skiltið hinum megin við Lækj- argötu og það síðarnefnda sunnar á Sóleyjargötu. KEFAS, kristilegft samfélag, fær lóð á Vatnsenda Hyggst reisa 500 fm safnaðarheimili Árvellir Landnotkun samþykkt Kjalarnes BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt tillögu skipulagsnefnd- ar Reykjavíkurborgar um breytta landnotkun á jörðinni Arvöllum á Kjalarnesi. Sam- þykkt breytingarinnar var forsenda þess að Götusmiðjan gæti hafið rekstur meðferðar- heimilis fyrir ungt fólk í vímu- efnavanda á staðnum. Kópavogur KEFAS, kristilegt samfélag í Kópavogi, hefur fengið úthlut- að lóð í landi Vatnsenda og hyggst reisa 500 m2 safnaðar- heimili á einni hæð síðar á þessu ári. Framkvæmdirnar era háðar því að breyting á að- alskipulagi bæjarins verði samþykkt, en að sögn Birgis H. Sigurðssonar, skipulags- stjóra Kópavogsbæjar, hefur breytingin verið auglýst. Samkvæmt aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem „opið svæði“ en breyta þarf land- notkuninni á svæði fyrir opin- bera stofnun áður en KEFAS fær að byggja á lóðinni. Birgii' sagði að ef allt gengi að óskum ættu framkvæmdir að geta hafist í sumar. Það var Magnús Hjaltested, fyrrverandi bóndi á Vatns- enda, sem færði KEFAS land- ið að gjöf, en lóðin, sem er rúmir 3.000 fermetrar, er staðsett vestan við Elliðavatn, sunnan Vatnsendavegar. Björg Ragnheiður Árna- dóttii', sem á sæti í safnaðar- ráði KEFAS, sagðist mjög án- ægð með að búið væri að finna lóð undir safnaðarheimili. Hún sagði að KEFAS hefði hafið starfsemi árið 1992 og hefði haft aðstöðu á Dalvegi 24 í Kópavogi, en að það hefði verið leiguhúsnæði og því væri gott að búið væri að finna framtíðarbústað. Björg Ragnheiður sagði að ekki væri enn komið á hreint hver kostnaðurinn við bygg- ingu safnaðarheimilisins yrði, en hún sagði að safnaðarmeð- limirnir, sem era um 50 til 60 talsins, kæmu til með að standa straum af honum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.