Morgunblaðið - 13.01.2000, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa
Innlausnardagur 15. janúar 2000.
1. flokkur 1991: Nafnverð: Innlausnarverð:
1.000.000 kr. 2.179.991 kr.
100.000 kr. 217.999 kr.
10.000 kr. 21.800 kr.
3. flokkur 1991: Nafnverð: Innlausnarverð:
1.000.000 kr. 1.939.772 kr.
500.000 kr. 969.886 kr.
100.000 kr. 193.977 kr.
10.000 kr. 19.398 kr.
1. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarveró:
5.000.000 kr. 9.552.616 kr.
1.000.000 kr. 1.910.523 kr.
100.000 kr. 191.052 kr.
10.000 kr. 19.105 kr.
2. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 9.402.701 kr.
1.000.000 kr. 1.880.540 kr.
100.000 kr. 188.054 kr.
10.000 kr. 18.805 kr.
1. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 8.659.400 kr.
1.000.000 kr. 1.731.880 kr.
100.000 kr. 173.188 kr.
10.000 kr. 17.319 kr.
3. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 7.782.137 kr.
1.000.000 kr. 1.556.427 kr.
100.000 kr. 155.643 kr.
10.000 kr. 15.564 kr.
1. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 7.569.548 kr.
1.000.000 kr. 1.513.910 kr.
100.000 kr. 151.391 kr.
10.000 kr. 15.139 kr.
1. flokkur 1995: Nafnverð: Innlausnarveró:
5.000.000 kr. 7.136.638 kr.
1.000.000 kr. 1.427.328 kr.
100.000 kr. 142.733 kr.
10.000 kr. 14.273 kr.
1. 2. og 3. flokkur 1996: Nafnverð: Innlausnarverð:
1.000.000 kr. 1.340.818 kr.
100.000 kr. 134.082 kr.
10.000 kr. 13.408 kr.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóói, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upptýsingar um útdregin húsbréf
*
Ibúðalánasjóður
Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavík | Sími 569 6900 | Fax 569 6800
FRÉTTIR
Maður í bfl lenti í snjóflóði á Súðavíkurvegi
Eiríkur Ragnarsson, snjóflóðsflóttamaður úr Súðavík.
Bíllinn hvarf inn
í snj ómökk
„ÞAÐ var blint veður og slæmt og
ég fann að bfllinn hvarf allt í einu
inn í mökk og hann fór að skríða til.
Þá áttaði ég mig á að ég væri lent-
ur í snjóflóði," sagði Eiríkur Ragn-
arsson frá Súðavík í samtali við
Morgunblaðið en snjóflóð féll á bif-
reið hans undir Kirkjubólsfjalli er
hann var á leið til Súðavíkur seint á
þriðjudagskvöld.
„Snjórinn rann upp á miðjar hlið-
ar bflsins því ég lenti f jaðrinum.
Það fyrsta sem kom manni í hug
var að moka bflinn lausan en ég sá
fljótlega að það væri vonlaust, enda
bæði firra og vitleysa að ætla að
gera það. Eg sá að þá var ekkert
annað að gera en að koma sér til
Isafjarðar og má segja að hræðsla
hafi náð tökum á manni við þessar
aðstæður, bandvitlaust veður og
blindbylur, svo ég ákvað að hlaupa
þangað,“ sagði Eiríkur en leiðin til
Isaíjarðar var um 8 kflómetrar.
„Ég hljóp alla leið að Brautar-
holti á fsafirði en þar hitti ég mann
sem var að koma úr bænum. Hann
tók mig upp í bfl sinn og ók mér að
lögreglustöðinni. Meðan ég var á
hlaupum féllu tvö flóð sem ég sá
grilla í í hh'ðinni. Við það herti ég
enn á hlaupunum. Og afleiðing
hlaupsins er komin í ljós því ég er
að farast af strengjum og vöðva-
verkjum í kálfum í dag," sagði Ei-
ríkur.
Símtal bjargaði
Eiríkur sagði flóðið hafa verið
vel á annan metra að dýpt og lík-
lega 40-50 metra breitt. Lenti hann
í jaðri þess og sagðist hann telja
það hafa orðið sér til bjargar að
hafa stoppað í 15-20 sekúndur með-
an hann svaraði símtali, ella hefði
hann verið kominn innar og hugs-
anlega lent í meginflóðinu en hann
ók mjög hægt sakir blindviðris. „Ég
var rétt farinn af stað aftur er ég
lenti í jaðri flóðsins," sagði Eiríkur.
Álagningarseðlar fast-
eignagjalda í Reykjavík
væntanlegir
Fasteigna-
gjöld hækka
um 12-13%
FASTEIGNAGJÖLD í Reykjavík
hækka um 12-13% á milli ára en
álagningarseðlar og gíróseðlar
vegna ársins 2000 verða sendir út á
næstu dögum. Hækkun fasteigna-
mats ræður hér mestu en fasteigna-
matið hækkaði um 18% um nýliðin
áramót.
Svo dæmi séu tekin þá þýðir þessi
hækkun að fasteignagjöld vegna ein-
býlishúss í Grafarvogi hækka úr
127.572 krónum í 143.587 krónur frá
því í fyrra. Eigandi einstaklingsíbúð-
ar í miðbænum þarf í ár að greiða
30.645 krónur en greiddi í fyira
28.068 krónur og vegna meðalstórr-
ar fjölskylduíbúðar á Ægisíðu þarf
að greiða 52.430 kr. en í fyrra var
upphæðin 46.603 kr.
Fasteignamat hækkaði um 18%
um nýliðin áramót og ræður það
mestu um hækkun fasteignagjald-
anna, að sögn Steingríms Ólafssonar
hjá fjármáladeild Reykjavíkurborg-
ar. Fasteignagjöld skiptast í fast-
eignaskatt, lóðarleigu, sorphirðu-
gjald, vatnsgjald og holræsagjald og
hækkar fasteignaskatturinn, lóðar-
leiga og holræsagjald um 18% í sam-
ræmi við hækkun fasteignamats.
Vatnsgjald hækkar á hinn bóginn að-
eins lítillega og reiknast það út frá
stærð húsnæðis, en sorphirðugjald
er óbreytt. Samtals nemur því hækk-
un fasteignagjalda 12-13%.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyris-
þegar fá lækkun á fasteignaskatti og
holræsagjaldi að teknu tilliti til
tekju- og eignaviðmiðunar. Var ný-
lega samþykkt í borgarráði 8%
hækkun á tekjuviðmiðun til afslátt-
ar. Fyrsti gjalddagi fasteignagjalda
er 1. febrúar en gjalddagi gjalda
undir 10.000 kr. er 1. apríl.
Skóli Helgu Sigurjónsdóttur
- ráðgjöf og kennsla -
Meðalbraut 14, 200 Kópavogi
Um er að ræða:
1. Almenna náms- og foreldraráðgjöf.
2. Könnun á stöðu nemenda, m.a. með prófum í lestri, stafsetningu og samræmdum
prófum í íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku.
3. Lestrarkennslu fimm ára barna. (Hópkennsla)
4. Kennslu/þjálfun barna og fullorðinna í lestri, stafsetningu, ritun og málfræði.
Einkatímar.
5. Stærðfræðikennslu fyrir grunnskólanemendur. Einkatímar.
Sími og fax 554 2337
UTSALA
FIÖRÐUR
miöbœ Hafnarjjaröar
UTSALA
NÝTT KORTATÍMABIL • NÝTT KORTATÍMABIL • NÝTT KORTATÍMABIL • NÝTT KORTATÍMABIL
i L3
CrQ
ROBERT BANGSI
,/íM B ARNAFAT AVER5LUN
Tískuverslunin
KIICK
HUwal
H^r r A
HAFNARFJÖRÐUR
V £ 1
10-70% AFSLÁTTUR • 10-70% AFSLÁTTUR* 10-70% AFSLÁTTUR • 10-70% AFSLÁTTUR