Morgunblaðið - 13.01.2000, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
■
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Karitas Ingimarsdóttir, Arna Þorleifsdóttir og Kristín Grímsdóttir léku á harmonikkur.
Tónlistarskóli Bolungar-
víkur fær aukið rými
Bolungarvík - Tónlistarskóli Bol-
ungarvíkur hefur nú fengið aukið
húsrými í gamla skólahúsinu þar
sem hann hefúr verið starfræktur
undanfarin ár.
í vetur hafa staðið yfir fram-
kvæmdir við að innrétta kjallara í
húsinu, sem hefur staðið ónotað um
nokkurra ára skeið, og þannig jókst
það húsnæði sem tónlistarskólinn
hefur til umráða um helming. Verk-
taki við þessar framkvæmdir var
Jón Fr. Einarsson.
Þetta nýja viðbótarhúsnæði var
formlega tekið í notkun um sl. helgi
og var af því tilefni opið hús í tónl-
istarskólanum þar sem gestum var
boðið að skoða hina nýju aðstöðu
skólans auk þess sem boðið var upp
á veitingar og tónlistaratriði sem
nemendur skólans fluttu.
Ijöldi manns heimsótti skólann af
þessu tilefni, sem sýnir að mikill
áhugi er fyrir þessari starfsemi í
Bolungarvík.
Um áttatíu nemendur stunda nám
við skólann í vetur og er meirihluti
þeirra í píanónámi en einnig er
kennt á tré- og málmblásturs-
hljóðfæri, og kennsla á strengja-
hljóðfæri er í samvinnu við tónlist-
arskólann á ísafirði.
Þá er starfandi unglingakór við
skólann, auk þess sem boðið hefur
verið upp á ýmis námskeið, t.d. stóð
skólinn fyrir dansnámskeiði og
námskeiði í leikrænni tjáningu fyrir
unglinga á síðasta vetri.
„Við höfum mikinn metnað íþess-
um skóla,“ sagði Soffía Vagnsdóttir
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
F.v. Jón Fr. Einarsson verktaki, Guðrún Bjarnveig Magnúsdóttir kennari,
Málfríður Sigurðardóttir kennari, Soffía Vagnsdóttir skólastjóri, Gísli
Magnússon kennari og Benedikt Kristjánsson formaður fræðsluráðs Bol-
ungarvíkur. Á myndina vantar einn kennara skólans, Jan Klasa.
skólastjóri í viðtali við blaðið. „Við
stefnum að því að geta staðið íyrir
fjölbreyttri listsköpun á landsvisu
og það er draumur okkar að við fá-
um á hverjum vetri að minnsta kosti
tíu prósent bæjarbúa í tónlistarnám
við skólann.
Það er t.d. gleðilegt að sjá að eldri
nemendur, allt upp 1 fullorðið fólk,
sem lagt höfðu tónlistarnámið á hill-
una um einhvem tíma, era nú að
koma aftur í skólann. Þá er stefnt að
því að auka samvinnu milli leikskól-
ans, grunnskólans og tónlistarskól-
ans, nemendur tónlistarskólans eru
t.d. nú á næstu vikum að fara í heim-
sóknir á leikskólann til að spila og
kynna hljóðfærin sín.
Um miðjan janúar er að hefjast
námskeið sem við köllum Trommur
og töfrateppi og er ætlað börnum á
aldrinum 4 til 5 ára þar sem unnið
verður með fjáningarþörf baras-
ins.“ Soffía sagði einnig að bæjaryf-
irvöld hefðu staðið mjög myndar-
lega að skólanum og sýnt þörfum
hans mikinn skilning. „Auðvitað
vantar okkur eitt og annað en það
er mikill og góður vilji til að takast á
við að leysa það og allt hefur sinn
tíma.“
Á þessu ári eru 35 ár frá því Tónl-
istarskóli Bolungarvíkur var stofn-
aður og af því tilefni hefur Hlynur
Þór Magnússon verið fenginn til að
skrifa sögu skólans. Fyrsti skóla-
stjóri hans var Ólafur Krisf jánsson,
núverandi bæjarstjóri, og rak hann
skólann lengi vel í herbergi heima
hjá sér.
Minna tjón af völdum
ofsaveðurs en talið var
TJÓN varð minna en í íyrstu var tal-
ið eftir að kröpp lægð gekk yfu- land-
ið á stórstraumi og olli nokkrum usla
í Grindavík og Stokkseyri á mánu-
dag.
Jón Leví Hilmarsson, forstöðu-
maður hafnasviðs Siglingamála-
stofnunar, segir að Kvíabryggja í
höfninni í Grindavík hafi losnað upp
úr botninum og nú þurfi að skoða
hvernig best sé að taka á því máli.
Hann segir að slíkt hafi komið fyrii’
áður og þá hafi bryggjan verið rekin
aftur niður á sama stað. Nú er verið
að kanna hvort staurar og annað sé í
lagi neðansjávar og verði það raunin
er mögulegt að festa bryggjuna nið-
ur aftur. Slíkar aðgerðir munu kosta
á bilinu 2-3 milljónir, en verða aldrei
nema til bráðabirgða að sögn Jóns
Leví. Hann segir að huga þurfi að því
að finna framtíðarstað fyrir löndun
smábátanna. Umferð stærri skipa
hafi aukist þarna við bakkann og að
ekki fari vel að vera með smábáta og
stærri skip á sama stað í höfninni.
Einnig má búast við því að að Kvía-
bryggja gefi sig á nýjan leik verði að-
stæður aftur eins og þær voru í
fyrradag.
Þá segir Jón Leví að sjóvarnar-
garður, sem í fyrstu var óttast að
hafi skemmst, hafi í raun verið sjáv-
arkambur úti á nesinu sem skolaðist
til og það geti ekki talist alvarlegt
tjón. Þar hafa ekki verið gerð nein
mannvirki eða byggðar upp gi’jót-
varnir og það hafi gerst áður í svip-
uðum veðrum að kamburinn hafi
færst aðeins út og dregist inn á nes-
ið. í þeim tilvikum hefur honum ver-
ið ýtt upp aftur í nokkurn veginn
sama farið. Það er verkefni sem
kostar einhver hundruð þúsunda.
Há sjávarstaða
í Grindavík var óvenju há sjávar-
staða. Að sögn Jóns hefur það senni-
lega bjargað miklu að mesta öldu-
hæðin mældist ekki fyrr en u.þ.b.
tveimur tímum eftir flóð. Ef háflóð
og mesta ölduhæð hefðu farið sam-
an, hefði sjávarstaða orðið rúmum
hálfum metra hærri og aldrei að vita
hvað þá hefði gerst.
Jón Leví sagði að eftir viðræður
við bæjartæknifræðing á Stokkseyri
hefði niðurstaðan orðið sú að þar
hefði ekki orðið um neitt verulegt
tjón að ræða. Þar rjátlaðist úr göml-
um handhlöðnum görðum sem
standa utan við bæinn og búið er að
vera að lagfæra undanfarin ár. Einn-
ig kom í ljós að sjóvarnargarðarnir
sem byggðir voru upp á Stokkseyri
og Eyrarbakka fyrir tíu árum hefðu
staðið af sér áhlaupið með ágætum.
„Þannig að ég held að þetta hafi nú
allt farið betur en kannski leit fyrir
út um tíma,“ sagði Jón Leví.
Nýr héraðsdýralæknir
á Austurlandi nyrðra
Egilsstaðir - Bjöm Steinbjörnsson
hefur verið ráðinn héraðsdýralæknir
í Austurlandsumdæmi nyrðra. Björn
er 43 ára og starfaði í 12 ár á Dýra-
spítalanum í Víðidal en sl. 2 ár hefur
hann verið í Hannover í Þýskalandi í
doktors- og sérfræðinámi í frjósemi,
sæðingum og æxlunarfærasjúkdóm-
um hrossa. Hann er giftur Þor-
björgu Friðriksdóttur og eiga þau
fjögur börn.
Bjöm kemur inn í þetta umdæmi
sem annar tveggja dýralækna en
veiting þessarar nýju stöðu var sam-
þykkt í nýjum dýralæknalögum frá
1. desember 1999. Jón Pétursson
hefur gegnt embætti héraðsdýra-
læknis í þessu umdæmi síðan 1958
en hann lætur af störfum 1. júlí nk.
Kona Jóns, Hulda Matthíasdóttir,
hefur starfað með honum alla hans
starfsævi.
Með ráðningu Björns mun um-
dæmið stækka, en embættið mun
einnig þjóna Vopnafirði og Bakka-
firði. Fyrir þjónar það N-Múlasýslu
og S-Múlasýslu að Reyðarfjarðar-
botni og Breiðdalsheiði.
Embættið verður til húsa á Egils-
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Björn Steinbjörnsson, nýráðinn
héraðsdýralæknir á Austurlandi
ásamt Jóni Péturssyni sem
gegnt hefur stöðu héraðs-
dýralæknis í 42 ár.
stöðum og mun landbúnaðarráðu-
neytið útvega dýralæknunum sam-
eiginlega skrifstofuaðstöðu
miðsvæðis í Egilsstaðabæ.