Morgunblaðið - 13.01.2000, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
■
Reuters
-----------~
Tilboð
Ódýrt til Lomdoin Flug alla þriðjudaga, lágmarksdvöl 7 dagar og hámark 1 mánuður. 19.270k, m. flugvallarskatti
Ódýrt til Mílamó 32 210. m. flugvallarskatti
Ódýrttil MCimclnem 32.51 OkJ m. flugvallarskatti
Ódýrt til Ziiricln 32.330kr m. flugvallarskatti
Ódýrt til Bologma 32.210., m. flugvallarskatti
/
Osnortnu
landi í
Arizona
bjargað
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
undirritaði í gær yfírlýsingu um
verndun óbyggðs svæðis í
Tupweep-dal í Arizona. Með hon-
um á myndinni eru meðal annars
Bruce Babbitt innanríkisráðherra
og ýmsir ráðamenn náttúruminja
og ferðamannastaða á svæðinu og
í grennd.
Svæðið er við Miklagljúfur og
er alls rúmlega milljón ekrur, um
4.000 ferkílómetrar að stærð eða
álíka og hálfur Vatnajökull.
Friðrik Danaprins tekur þátt í
svaðilför um Norður-Grænland
Leggja í 3500 km
hundasleðaferð
Kaupmannahöfn. AP.
FRIÐRIK krónprins
af Danmörku lagði á
þriðjudag ásamt fé-
lögum sínum í sér-
sveit danska flotans,
„froskmönnunum“,
upp frá Kaupmanna-
höfn í fjögurra mán-
aða leiðangur til
Grænlands.
Er ætlunin að
krónprinsinn og
fimm aðrir haldi í
3.500 km langa
hundasleðaferð um auðnir í níst-
andi kulda Norður-Grænlands.
Tilefni leiðangursins er 50 ára
afmæli Grænlandsflotadeildar
danska flotans.
Stefnt er að því að sexmenning-
amir leggi í hann frá Qannaq,
norður af bandarísku herstöðinni í
Thule. Þaðan liggur leið þeirra eft-
ir vesturströndinni norður á bóg-
inn, allt til nyrsta odda Grænlands,
og þaðan áfram suður eftir aust-
urströndinni til Ittoqqortoormiit
og gert er ráð fyrir að þeir komi
þangað í júnímánuði. 1400 km eru
frá Ittoqqortoormiit til Nuuk.
Fyrsta mánuð ferðalagsins sjá
félagamir ekkert dagsljós unz sól-
in tekur að ijúfa myrkur heimska-
utavetramæturinnar í nokkra tíma
á sólarhring. Þá mega þeir eiga von
á lenda í allt að 50 gráða frosti og
að rekast á ísbimi.
„Við verðum alltaf
þeir smæstu andspænis
veðurguðunum,“ hefur
AP eftir Steen Broen
Jensen, einum
sexmenninganna, en
hann hefur áralanga
reynslu af að þjóna í svo-
nefndri Súíus-sveit
danska flotans, sem hef-
ur sinnt eftirliti á norð-
anverðu Grænlandi frá
árinu 1950.
Fjórir leiðangurs-
menn hafa þjónað í Síríus-sveit-
inni. Sjötti maðurinn, Torben
Forsberg, er kvikmyndatökumað-
ur, sem mun taka upp efni sem
gerður verður sjónvarpsþáttur úr
sem sýna á seinna á árinu.
Jonathan Motzfeldt, formaður
grænlenzku landstjómarinnar,
óskaði hópnum velfamaðar við
brottfórina frá Kaupmannahöfn og
færði Friðrik prinsi hálsmen með
ísbjamarkló, með þeim orðum að
hún myndi hjálpa til að tryggja að
gæfan yrði með þeim.
„Gætið vel að hundunum ykkar.
Afkoma ykkar veltur á þeim,“
sagði Motzfeldt. Alls munu 43
hundar verða spenntir fyrir sleða
,Jroskmannanna“, en hver þeirra
er450kíló.
Þyrlur verða sendai- eftir full-
hugunum ef meiriháttar vandamál
koma upp.
Friðrik
Danaprins
Odýrt fargjald með Flugleiðum og SAS á skíðasvæðin.
Lágmarksdvöl 7 dagar og hámark 14 dagar, bókunarfyrirvari 7 dagar.
Innifalið: Kvöldflug, gisting í 2 nætur á Forte
Posthouse, morgunverður og flugvallarskattar*.
*Morgunflug kostar 1.000 kr. aukalega á mann.
Arn^crdam
frá
kr.
í tvíbýli
Hverjir hreppa jeppa?
Pa
Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Radisson SAS
Hotel, morgunverður og flugvallarskattar.
frá
29.990
kr.
á mann
í tvíbýli
Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Home Plazza
Bastille, morgunverður og flugvallarskattar.
á mann
í tvíbýli
Innifalið: Flug, gisting í 2 nætur á Forte Posthouse
Glasgow, morgunverður og flugvallarskattar.
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 535 2100 • Fax 535 2110
Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is
Á morgun, föstudag, kl. 15
drögum við í Jeppaleik
Sparisjóðsins í SPRON við
Skólavörðustíg.
10 flottir „alvöru" jeppar
skipta þá um eigendur.
Allir velkomnir!
í dag eru síðustu
forvöð að skila inn
þátttökuseðlum.