Morgunblaðið - 13.01.2000, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000 39
Morgunblaðið/Kristinn
Gísli Sigurðsson, formaður Hagþenkis, afhenti Sigurði Steinþórssyni
viðurkenningu Hagþenkis.
[ L-ULLUÍv.'l U/UsLölLÍ
hbhí burberry Bðrbour
Sendum samdægurs í póstkröfu
Laugavegi 54 S. 552 2535
Jón Baldur Hlíðberg
hlaut viðurkenningu
Hagþenkis 1999
VIÐURKENNINGU Hagþenkis
1999 hlaut Jón Baldur Hliðberg.
Viðurkenninguna hlaut hann „fyrir
að miðla fræðum á trúverðugan og
heillandi hátt í myndum,“ eins og
skráð er á viðurkenningarskjalið
að þessu sinni.
Jón Baldur hefur átt samstarf
við fjölda höfunda fræðirita og
kennslugagna og gert hundruð
teikninga og málaðra mynda, fyrir
fræðirit, handbækur og námsbæk-
ur. Kunnustu fræðiritin, sem byggð
eru upp með myndum hans, komu
út á árunum 1996-1998: ísfygla, fs-
lenskir fuglar og Sjávarnytjar við
Island, segir í fréttatilkynningu.
Einnig segir: „Þetta er í þrett-
ánda sinn sem Hagþenkir - félag
höfunda fræðirita og kennslugagna
veitir viðurkenningu sína. Sérstakt
viðurkenningarráð, skipað fulltrú-
um ólíkra fræðigreina, er kosið til
tveggja ára í senn og ákveður, hver
viðurkenninguna hlýtur. Viðtak-
andi fær viðurkenningarskjal og
fjárhæð sem nú er 500.000.- kr.“
I Skipulagsskrá fyrir Viðurkenn-
ingu Hagþenkis segir, að hana
skuli „veita fyrir samningu fræði-
rita, kennslugagna, aðra miðlun
fræðilegs efnis eða rannsóknir."
Heimilt er, segir þar ennfremur
„að veita viðurkenningu fyrir eitt
afmarkað verk frá því ári, sem við-
urkenningin er miðuð við, eða
eldra verk. Einnig er heimilt að
veita viðurkenningu fyrir mikils-
vert framlag á lengra tímabili. Við
veitingu viðurkenningar skal í senn
tekið tillit til frumleika og fræði-
legs eða menningarlegs gildis
verkanna."
Viðurkenningarráðið skipa
Gunnar Karlsson sagnfræðingur,
Ingunn Ásdísardóttir bókmennta-
fræðingur, Kristín Indriðadóttir
bókasafnsfræðingur, Sigurður
Steinþórsson jarðfræðingur og
Torfi Hjartarson námsefnisfræð-
ingur.
Gísli Sigurðsson, formaður Hag-
þenkis, afhenti viðurkenninguna,
en Sigurður Stcinþórsson flutti
greinargerð viðurkenningarráðs-
ins.
Nágrannar
gerast nánir
KVIKMYNDIR
R « g ii b o g i n n
Drive Me Crazy
★ ★
Leikstjóri: John Schultz. Ilandrit:
Todd Strasser og Rob Thomas. Að-
alhlutverk: Melissa Joan Hart og
Adrian Grenier. 20th Century Fox.
í UPPHAFI myndarinnar fáum
við þær upplýsingar að aðalsögu-
hetjurnar, Nicole og Chase, sem eru
nágrannar á unglingsaldri, voru
bestu vinir þegar þau voru lítil og
léku sér öllum stundum saman í trjá-
húsinu úti í garði. Nú virðist hins
vegar svo komið að þeim þyki minna
en lítið til hvort annars koma. Enda
er Nicole kraftmikill og jákvæður
dugnaðarforkur sem tekur mikinn
þátt í félagslífi skólans. Og Chase
þungbúinn uppreisnarseggur sem
hangir í kompum ásamt pönkuðum
félögum sínum.
Myndin endar síðan á stóra loka-
ballinu í menntó, og hverjir haldið
þið að kyssist þá? Rétt!
Það verður seint sagt að þessi
unglingamynd sé sérlega frumleg,
en hún er nokkuð fyndin á köflum.
Melissa Joan Hart sem leikur Nico-
le, og margir þekkja sem unglingan-
ornina Sabrinu, er mjög kímin og
skemmtileg, hún setur sinn svip á
myndina og hífur hana upp með góð-
um tilþrifum. Adrian Grenier er líka
voða sætur og sannfærandi í sínu
hlutverki.
Handritið er hins vegar einungis
frumlegt að því leyti að þar er ekki
verið að vorkenna þessum eða hinum
sem passa ekki inn í hópinn eða vilja
vera eitthvað annað en þeir eru,
heldur gert góðlátlegt grín að þessu
öllu og öllum og það er fínt.
Ég gat alla vega hlegið þó nokkuð
að þessari mynd, og efast ekki um að
unglingar sem ná að setja sig í spor
söguhetjanna muni hafa mjög gam-
an af.
Hildur Loftsdóttir
AUGLÝSINGADEILO
yÁÚmbl.is
Simi: 569 1111. Bréfsími: 569 1110
Netfang. augl@möl.is
STQ AUGLÝSINGAÞJÓNUSTA BB-02 01.2000