Morgunblaðið - 13.01.2000, Síða 66
66 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
'jJ
Grettir
Ljóska
WANSTU EFTIR At) FARAISI6U
ULLARBRÆKURNAR, ELSKAN ?
Ferdinand
IHí ggHlE PYLg - TO REMEMÍ
ANOTHER C-RMlOH
HAS PEEN CONSUMEP
IN YOUR HONOR,
ERNlE..U)E'LL NEVfeR
F0R6ET YOU..
Þér til heiðurs er enn einn
smáskammturinn kominn
niður í maga, Ernie.
Við munum aldrei gleyma þér.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hótanir um ofbeldi
og líflát í skjóli laga
Frá stnrfsfólki Foreldra-
hússins, Vímulausri æsku og
Foreldrahópnum:
ALVARLEG mistök virðast hafa
verið gerð við setningu laga sem
bönnuðu hljóðritanir símtala. Hug-
myndir að baki banninu eru skiljan-
legar en í vissum tilvikum er óhjá-
kvæmilegt að leyfa slíkar upptökur.
Það á til að mynda við ef fólíd berast
hótanir símleiðis. Það er veruleiki
sem fjölskyldur vímuefnaneytenda
þekkja allt of vel. Varnarleysið er
nógu mikið þótt ekki sé lokað fyrir
eitt af fáum úrræðum sem fyrir hendi
eru, möguleikann á hljóðritunum og
rakningu símtala. Hljóðritanir hafa
líka án efa gegnt mikilvægu hlutverki
við rannsókn fíkniefnamála fyrr og
síðar og í þeim efnum er nauðsynlegt
að beita öllum tiltækum ráðum.
Við skorum á Alþingi að taka þetta
mál upp um leið og það kemur saman
að loknu jólaleyfi og setja skýrar
reglur um að leyfa beri hljóðritanir ef
svo alvarleg mál eru á ferðinni. Þar
er ekki eftir neinu að bíða. Annars
bitna lögin á þeim sem síst skyldi,
saklausu fólki sem býr við hótanir of-
beldismanna sem skáka í skjóli þess-
ara laga. Það hefur áreiðanlega ekki
verið ætlun löggjafans að stuðla að
auknum ofbeldisverkum.
Fyrir hönd starfsfólks Foreldra-
hússins, Vímulausrar æsku og For-
eldrahópsins
ÞÓRDÍS SIGURÐARDÓTTIR.
Munt þú missa af
aldamótunum?
Frá Geir Þórarinssyni:
HINN 11. jan. sl. birtist grein eftir
Inga Hans Jónsson þar sem hann
þykist sýna fram á að þeir sem telja
að aldamótin verði ekki fyrr en um
næstu áramót hafi rangt fyrir sér.
Hann gerir það með einhverjum rök-
um þótt ekki eigi þau öll við. Mig
langaði aðeins til að lita á nokkur
þehra.
Ingi Hans bendir réttilega á að ár-
in eitt og eitt fyrir Krist mætist.
Hann telur hins vegar að þess vegna
hljóti að vera núll á milli þeirra. Þann-
ig hefði tímatalið átt að vera, það er
mun heppilegra. En þannig var það
ekki. Það eru til fleiri leiðir við að
gera hlutina en við notumst við í dag.
Dionýsius Exiguus hét maðurinn
sem fyrstur miðaði tímatal við fæð-
ingu Krists. Hann skrifaði á latínu
eins og allir lærðir menn á hans tíma
(6. öld). Það vill svo til að í rómversk-
um tölum er ekki til neitt tákn fyrir
núll (né heldur var hugtakið til á
þessum tíma). Ef einhver hefm-
áhuga á rómverskum tölum bendi ég
á Latneska málfræði eftir Kristin Ár-
mannsson, sem hefur verið kennd við
skóla landsins frá því árið 1940. Þar
er á bls. 37-40 fjallað um töluorð.
Ekkert kemur á óvart í þeirri umfjöll-
un annað en það að hvergi er minnst á
núll.
Hvemig fara menn þá að því að út-
búa tímatal án þess að byrja á núlli?
Jú, þeir láta það einfaldlega hefjast á
einum. En fæddist Jesús þá eins árs?
Nei, ártalið er raðtala.
Ingi Hans vitnar í Almanak HÍ:
„Ef fylgt er eftir rithætti höfundar
tímatalsins heitir fyrsta árið (á latínu)
Anno Domini Nostri Jesu Christi 1,
sem mætti þýða, Jyrsta ár herra vors
Jesú Krists". ,Af því leiðir að fyrstu
öldinni lauk ekki fyrr en árið 100 var
á enda, og 20. öldinni lýkur ekki fyrr
en árið 2000 er á enda. Ný öld gengur
því ekki í garð fyrr en 1. janúar árið
2001.“ Svo segir Ingi: „Takið eftir
þýðingu Háskólans á frumtextanum
„Fyrsta ár herra vors Jesú Krists",
að framansögðu þarf ég ekki neina
háskólamenntun til að skilja þetta á
þveröfugan hátt... Mér er það gjör-
samlega fyrirmunað að snúa þannig
út úr þessari þýðingu að ég fái það út
að tímatalið byrji á árinu eitt.“ Ingi
Hans þarf enga háskólamenntun,
bara grunnskólamenntun, til að skilja
muninn á fmmtölu og raðtölu.
Þar sem tímatalið var upphaflega
byggt á raðtölum, og er það ennþá, þá
er núna tvöþúsundasta árið. Ný öld
og nýtt árþúsund hefjast ekki fyrr en
því er lokið.
Líkingin við aldur
Þá er það líkingin við aldur, sem
ávallt er vinsæl. Hún er hins vegar
rökvilla sem kallast óleyfileg samlík-
ing. Þetta er nefnilega ekki eins. Ald-
ur manna er yfirleitt ekki mældur í
raðtölum. Maður verður ekki 35 ára
fyir en full 35 ár eru liðin fi-á fæðingu
hans (takið eftir að þar er byrjað að
telja frá núlli og ekki um raðtölu að
ræða). Hann hefur hins vegar verið á
35ta ári frá því á 34ða afrnæli sínu.
Sama rölcvillan á við um allar sam-
líkingar þar sem bornir eru saman
hlutir sem taldir eru frá núlli (með
frumtölum) og hlutir sem taldir eru
frá einum (með raðtölum).
Stutt fyrirspum
Hvenær byrjar háskólanemi annað
árið sitt, að fyrsta eða öðru árinu
loknu?
GEIR ÞÓRARINSSON
Smáragötu 10, Reykjavík.
Artíð er
dánardægur
í TILEFNI af bréfi sem birtist
í þessum dálkum í gær er nauð-
synlegt að benda bréfritara á
að ártíð er miðuð við dánar-
dægur viðkomandi en ekki af-
mælisdag. Því er ekki hægt að
tala um fæðingardag Krists
sem ártíð, eða, eins og segir í
bréfinu, að Kristur hafi átt
„1999. ártíð sína hinn 25. des-
ember, og mun, ef guð lofar og
fyrirgefur manninum skynsem-
isskortinn, eiga sína 2000. ártíð
hinn 25. desember árið 2000“.
Hvað sem öðru líður er þetta
rangt.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.