Morgunblaðið - 13.01.2000, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000 69
í DAG
skÆk
limsjón Italgi Áss
Grólarson
Hvítur mátar
í sjöunda leik.
STAÐAN kom upp á alþjóð-
legu móti í Krasnodar í
Rússlandi í fyrra. Mikhail
Brodsky hafði hvítt og átti
leik gegn Roman Zhenetl
37. Dxh6+! - Kxh6 38.
Hh3+ - Kg5 39. Hfl!? (39.
f4+! - Kxf4 40. Hfl + - Kg5
41. Hh7 og næst 42. h4 mát
var fljótvirkara) 39. - Kf4
40. g3+ - Kf5 og svartur
gafst upp án þess að bíða
eftir 41. f4 - g5 42. g4H—
Kg643. f5+ -exf544. gxf5+
- Kg7 45. Hh7 mát.
BRIPS
Gmsjðn Guömundur
Páll Arnarson
ALLIR spilarar hafa fengið
vond spil og margir þekkja
hugtakið “Yarborough” sem
notað er yfír hönd þar sem
ekkert spil er hærra en nía.
Færri vita hvaðan nafngift-
in er komin. í Alfræðiritinu
um brids segir að enskur
jari með þessu nafni hafi
haft það fyrir sið að bjóða
þúsund pund á móti einu
gegn því að spilari fengi upp
slíka hönd. Ekki segir frek-
ari sögur af þessum jarli, en
hann hefur greinilega kunn-
að sitthvað fyrir sér í lík-
indafræðinni, því h'kur á
slíkum spilum eru einn á
móti 1827.
Vestur gefur; AV á hættu.
Norður
A KD97 ¥ ÁKD107
♦ 108 * D2
Vcstur Austur
A ÁG5 * 103
¥43 ¥ 9652
♦543 ♦ 9762
+ ÁKG75 + 643
Suður
♦ 8642
¥G8
♦ ÁKDG
+ 1098
Veslur Norður AusUir Suður
1 lauf Dobl Pass 2 tígiar
Pass 2björui Pass 2spaðar
Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Austur hefði tapað veð-
málinu vegna spaðatíunnar,
sem gerir það að verkum að
spil hans eru ekki hreir-
ræktaður Yarborough. Og
raunar leikur spaðatían lyk-
ilhlutverk í spilinu, en henn-
ar vegna er hægt að
hnekkja fjórum spöðum.
Sér lesandinn hvernig?
Það gerist þannig: Vestur
tekur tvo efstu í laufi og
spilar gosanum í þriðja slag,
sem blindur trompar. Sagn-
hafi fer síðan heim á tígul
og spilar trompi. En nú rýk-
ur vestur upp með ásinn og
spilar enn laufí! Við því á
sagnhafi ekkert svar: ef
hann trompar hátt, fær
vörnin spaðaslag á kröftum,
og ef hann hyggst trompa
heima trompar austur með
spaðatíunni.
Ekki fyndið Jónas.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Kristinn
Þessir duglegu krakkar söfnuðu 3.026 kr. til styrktar
Hjálparstarfi kirkjunnar. Þau heita Eva Hrönn Árelíus-
dóttir, Brynjar Guðnason og Sigrún Ósk Jakobsdóttir.
Með morgunkaffinu
Þegar ég var lítill voru laufblöð á trénu.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréfs-
íma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einning er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
LJOÐABROT
Haustljóð á vori 1951
Ein flýgur sönglaust til suðurs,
þótt sumarið nálgist,
lóan frá litverpu túni
og lyngmóa fölum,
þytlausum vængjum fer vindur
um víðirunn gráan.
Hvað veldur sorg þeirri sáru,
svanur á báru?
Misst hefur fallglaður fossinn
fagnaðarróminn,
horfinn er leikur úr lækjum
og lindanna niður,
drúpir nú heiðin af harmi
og hörpuna fellir.
Hvað veldur sorg þeirri sáru,
svanur á báru?
Felmtruð og þögul sem þöllin
er þjóðin mín unga,
brugðið þér sjálfum hið sama:
þú syngur ei lengur,
þeyrinn ber handan um höfin
haustljóð á vori.
Hvað veldur sorg þeirri sáru,
svanur á báru?
EinarBvagi.
Ast er...
...að sjá til þess að
hann fari í skoðunina.
TMH«o U.S P«t. Oft. — rtflhtt f*»*fv*d
(c) 19W Lo* AngMM TknM Synchcato
STJÖRJVUSPA
cftir Frances Urake
STEINGEITIN
Afmælisbarn dagsins:
Pú ert umburðarlynd enda
veistu lengra þínu nefí og
fylgirhugsæi þínu í stóru
sem smáu.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Reyndu að halda þig sem mest
við jörðina. Það er ágætt að
sleppa sér lausum við og við,
en meginreglan er nú sú að
sinna sér og sínum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þorir helzt ekki að spyrja
af ótta við að spurningin þyki
heimskuleg. Hættu að gera lít-
ið úr sjálfum þér; þú ert ekki
verri en hver annar.
Tvíburar .
(21.maí-20. júní)
Fjöldinn gefur styrk. Þú skalt
því fá sem flesta til fylgis við
hugmyndir þinar og þá ætti
allt að fara á bezta veg. Mudu
bara að ofmetnast ekki.
Krabbi
(21.júní-22.júh")
Nú er ekki rétti tíminn til þess
að feta ótroðnar slóðir. Sittu á
strák þínum enn um sinn og
þú munt njóta þeirrar þolin-
mæði, þegar hjóhn fara að
snúast.
Ljón
(23.júh'-22. ágúst) m
Taktu þér tíma til þess að
skipuleggja hlutina. Þú munt
sjá, að honum er vel varið, en
að öðrum kosti áttu á hættu að
misa allt út úr höndunum á
þér.
Meyja „
(23. ágúst - 22. sept.) <S£k
Það er ekker athugavert við
það, þótt þú viljir taka þér
tíma til þess að sinna eigin
málum og láta aðra um sín á
meðan. Þannig ætti það alltaf
að vera.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú virðist hafa góða stjóra á
hlutunum, en ekki er allt sem
sýnist. Farðu þér hægt og
reyndu að tryggja þig sem
bezt fyrir óvæntum uppákom-
um.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Haltu þig frá allri keppni og
láttu þér nægja að tátla þitt
hrosshár um stund. Það kem-
ur svo að því fyrr en varir að
þú verður aftur til í slaginn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) ACr
Þér finnst þú hafa komið þér
vel fyrir og satt er það, að þú
mátt vel njóta árangurs erfiðis
þíns. En mundu að gæfan get-
urveriðfallvölt.
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar) JK
Haltu ró þinni, þótt þér finnst
allt fara úrskeiðis þessa dag-
ana. Öll él birtír upp um síðir
og þá kemur þinn tími með
sæta og langa sumardaga.
Vdtnsberi
(20.jan.r-18.febr.) Wtó
Þér standa ýmsir möguleikar
opnir. Gefðu þér góðan tima til
þess að velta þeim fyi-ir þér.
Ekkert liggur á, en mikið ligg-
ur við að þú veljir rétt.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Á erfiðum stundum sést hveij-
ir eru vinir og hveijir ekki.
Ekki gráta, þótt einhverjir
hverfi frá. Það eru hinir sem
skipta máli. Líttu til þeirra.
Stjömuspána á að iesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni
FRETTIR
Ný bflaþvottastöð
á Bfldshöfða
BÍLAÞVOTTASTÖÐIN Spikk &
span var opnuð fyrir skemmstu þar
sem Bón- og bílaþvottastöðin, Bílds-
höfða 8, var til húsa, en flestir þekkja
húsið á rauða bílnum sem trónir uppi
á þaki. I þessu húsi hefur verið rekin
bílaþvottastöð síðastliðin fimmtán ár.
I íréttatilkynningu segir: „Nýir
eigendur hafa nú endumýjað allt,
bæði innan húss sem utan. Settar
voru inn tvær nýjar bílaþvottavélar
af fullkomnustu gerð. Vélin er al-
sjálvirk, tölvustýrð þannig að þrýst-
ingur á lakk bflsins er sjö sinnum
minni en þegar þvegið er með hand-
kústi.Vélin tjöruþvær, háþrýstiþvær,
burstaþvær með sápu og mýkri
burstum en áður voru notaðir,
burstaþvær felgur og dekk með sápu,
þvær undirvagn, bónar og þurrkar.
Allt þetta ferli tekur aðeins um
þrjár og hálfa mínútu, og þvær vélin
þrjá bfla í einu.
Afkastageta vélarinnar er mun
rneiri en menn þekja hérlendis eða
allt að 50 bflar á klukkustund við
bestu aðstæður. Þetta þýðir að nýr
bfll fer inn í stöðina á um einnar mín-
útu fresti. Löng bið eftir bflþvotti er
því úr sögunni. Auk þessara afka-
stamiklu fólksbflavélar er önnur vél
Bflaþvottastöðin Spikk & span.
hjá Spikk & span þar sem stærri bfl-
ar eru þvegnir. Þessi vél getur tekið *-
jeppa á allt að 35 tomma dekkjum.
Þessi vél er ekki eins afkastamikil og
fólksbflavélin en biðin verður minni
því jeppaeigendur þurfa ekki að bíða
á meðan fólksbflar eru þvegnir.
Þjónusta er meiri en menn eiga að
venjast, loftnet eru fjarlægð og
þurrkað yfir bflinn og úr hurðaföls-
um að þvotti loknum.
Stöðin er umhverfisvæn og skilar
öllu vatni hreinu frá sér.“
Vetrarþvottur kostar 990 kr. fyrii-
fólksbfl en 1.190 kr. fyrir jeppa.
Opið er frá 8 til 19 á virkum dögum
og 10 til 18 um helgar.
Eigendur eru Viktor Urbancic og
Gunnhildur Úlfarsdóttir.
r~
Nýkomin vörusending
Sófasett, bókaskápar, stakir sófar 03 stólar.
Málverk og silfurborðbúnaður.
Raðgreiðslur allt að 36 mánuðir.
Opiö mán.-fös. frá kl. 12-18, lau. kl. 11-18 og sun. kl. 13-17.
Grensásvegi 14 ♦ sími 568 6076
LJ ] 1 tsalan hefst í dag
'en Laugavegi 4C na 1, sími 552 4{ r »00
ÚTSALAN
er hafin
& IANA
wy
Itölsk barnaföt
UfíoelindOuafital
Þýsk barnaföt
Dimmflumm
Skólavörðustíg 10, sími 551 1222.
Opið laugardag 10-16.