Morgunblaðið - 13.01.2000, Page 74
74 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Einieikurinn Laufey sýndur» Kaffileikhusinu »kvöid
í leiklistar-
námi í Prag
Morgunblaðið/Þorkell
Stefanía Thors leikur Laufeyju í Kaffíleikhúsinu í kvöld.
Stefanía Thors sýnir í kvöld í
Kaffileikhúsinu einleik sinn, Lauf-
eyju, sem er byggð á skáldverki
Elísabetar Jökulsdóttir.
Stefanía er búsett 1 Prag, höfuð-
borg Tékklands, og er þar í mast-
ersnámi í leiklist í Listaháskólan-
um. Hún flutti þangað fyrir tæpum
fjórum árum. Aðspurð hvers vegna
hún hafi ákveðið að fara til Prag í
nám segir hún að vinkona hennar
hafi mælt með borginni.
Seldi allt og fór út
„Eg er mikill áhugamaður um
ljósmyndun og vinkona mín sagði
mér að þetta væri svo falleg borg
að ég ákvað að skella mér þangað.
Þegar til borgarinnar var komið
ákvað ég af rælni að sækja um í
leiklistardeildinni við Listaháskól-
ann. Ég stóðst inntökuprófið, kom
aftur heim, seldi allt mitt hafur-
task og flutti aftur út.“
I skólanum sem Stefanía er í er
mikil áhersla lögð á hið svokallaða
„Physical Theater" en í því er lát-
bragð og hreyfingar látnar styðja
textann. Svífa andar þeirrar stefnu
yfir leikverkinu um Laufeyju.
Stefanía segir að það hafi verið
erfitt að ná tungumálinu. „Það tók
mig heilt ár að komast inn í málið.
Ég fékk hjálp frá krökkunum í
bekknum. Én þetta bjargaðist því
fyrsta árið í skólanum var aðallega
kenndur spuni.“ Sonur Stefaníu
sem er 10 ára býr með henni í
Prag. Hann er farinn að tala reip-
rennandi tékknesku. „Hann er í
skóla fyrir gyðinga. Vinkona mín
sem er gyðingur kom honum inn í
þann skóla. Honum líkar afskap-
lega vel. Hann talar ásamt tékkn-
esku og móðurmálinu þýsku, ensku
og svo er hann að læra hebresku.
Hann er nefnilega orðinn gyðing-
ur.“
Ætla að sýna í kirkjum
Stefanía heldur eftir nokkra
daga aftur til Prag. Hún segir að
það standi þó til að sýna Laufeyju
oftar en þetta eina skipti í kvöld.
„Upphaflega ætluðum við að sýna
verkið í Dómkirkjunni. Ég er
nefnilega í tímum úti sem fjalla um
það hvernig eigi að taka leiklistina
úr leikhúsinu. Eg var búin að sýna
prestinum verkið og hann sló til.
En sökum anna í kirkjustarfinu nú
um jólin þurfti að færa sýninguna í
Kaffileikhúsið. Markmiðið er því
að sýna Laufeyju aftur næsta sum-
ar í kirkjum þessa lands.“
jJíijjjj jjijjj;
LAUGARÁS- -
BIÖ
ál J Jl^JJJJ D'J
PfiAsnsýnú íi jjjdj'jjujj
isotooNNiii rené
■ I > i -jS
J-jj J *
-
.
ill
Stutt
Nærfatafyr-
irsæta verð-
ur ekki for-
setafrú
►Fyrirsætan Melanie Krauss, sem
gert hefur garðinn frægan fyrir að
sýna nærföt á ekki lengur von á
því að verða
næsta forsetafrú
Bandaríkjana.
Fregnir herma
að kærasti henn-
ar, auð-
kýfingurinn
Donald Trump,
sem hyggst
bjóða sig fram í
næstu for-
setakosningum í
Bandaríkjunum á vegum Fram-
faraflokksins, hafi látið hana róa.
Tyson meinað
að koma til
Bretlands
►Boxarinn bitglaði, Mike Tyson,
má eiga von á því að fá ekki vega-
bréfsáritun til Bretlands vegna af-
brota hans í
gegnum tíðin
samkvæmt yfir-
lýsingum frá inn-
anríkisráðuneyti
Bretlands.
Tyson ætlar að
koma til Bret-
lands einhvern
tímann á næstu
vikum til þess að
undirbúa sig fyr-
ir bardagann gegn Julius Francis
Samkvæmt lögum í Bretlandi er
erfitt fyrir menn sem hafa nýverið
setið í fangelsi að fá að koma til
landsins. Tyson var sleppt úr fanga-
klefa fyrir átta mánðum, en hann
sat inni vegna árásar á tvo miðaldra
menn. Áður hafði Tyson setið inni í
sex ár fyrir nauðgun.
/
Atvögl í ævin-
týraleit
► Samkvæmt niðurstöðum jap-
anskra vísindamanna eru konur
sem þjást af átröskun líklegari til
þess að verða spennufíklar og þjást
frekar af streitu en aðrar konur.
Japönsku vísindamennimir segja
að það séu tvær ástæður fyrir
átröskun hjá konun. Önnur er sú
að þær séu miklir spcnnufíklar og
taki upp á alls kyns uppátækjum til
þess að svala þörfinni fyrir spennu.
Hin ástæðan er að sú að þær kunna
ekki haldbærar aðferðir til þess að
losa sig við streitu.
Ástralskir vís-
indamenn leysa
eina af lífsgát-
um drykkju-
manna
►Allir bjórdrykkjumenn hafa brot-
ið heilann um hvers vegna froðu-
blöðrurnar í írska bjórnum, sem
kenndur er við Guinness, sýnast
falla niður í glasinu í stað þess að
fara upp eins og eðlilegt þykir.
Ástralskir vísindamenn lögðu í það
metnaðarfulla verkefni að komast
að kjarna málsins, en í stað þess að
eyða dýrmætum vökva í verkefnið
bjuggu þeir til háþróað tölvulíkan
til þessarar rannsóknar; einhvers
konar bjórhermi. Niðurstaðan var
sú að froðublöðrurnar fara fyrst
upp í efsta lag bjórsins en falla síð-
an niður á botninn. Að vísu halda
blöðrur sem eru stærri en 0,05 mm
sér í efsta laginu.
Þungu fargi er nú létt af írsku þjóð-
inni.