Morgunblaðið - 13.01.2000, Page 80
.. . ~^QHjj
(ELGcfc Traustád ísíenskar
múruörurv
Síðan 1972 ■5 . . .1
a Leitið tilboða! ■■ SlBIIipryOI
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Hátt í 30 kvótalausir
- bátar eru á veiðum
Sölumet
hjá Breka
í Þýska-
landi
DRÖGUM Á MORGUN
Hringdu núna
552 2150
HÁTT í 30 kvótalítil eða kvótalaus
skip voru á sjó í gær og segjast út-
gerðarmenn þeirra þannig vera að
fylgja eftir dómi Héraðsdóms Vest-
fjarða í Vatneyrarmálinu svokall-
aða. Formaður Landssambands út-
gerða kvótalítilla skipa, LÚKS,
segir að lögð verði til hliðar 10% af
aflaverðmæti skipanna og þau
greidd í ríkissjóð.
Bátarnir sem reru í gær eru hvað-
anæva af landinu að sögn Sjgurðar
Marínóssonar, formanns LÚKS og
skipstjóra á Báru ÍS, en hann var
^iálfur í róðri í gær án þess að eiga
fyrir því nægar aflaheimildir. Meðal
annars væri þannig ástatt um báta
af Suðurnesjum, Vestfjörðum og frá
Þorlákshöfn. Bátar frá Hornafirði
væru einnig tilbúnir að róa en þar
hamlaði veður sjósókn í gær. Sig-
urður sagði að einnig væri verið að
gera kvótalausa báta á Norðurlandi
klára til veiða. Stór hluti þeirra
kvótalausu báta sem reru í gær var
að leggja net og því komu fæstir
þeirra með afla að landi. Fæstir bát-
anna eru auk þess alveg kvótalausir
en Sigurður segir flesta eiga aðeins
örfá tonn. Þeir muni hinsvegar
halda áfram að róa þegar kvótinn
klárist.
Eru að taka áhættu
Sigurður viðurkennir að verið sé
að taka ákveðna áhættu með því að
Samið um pflagrímaflug fyrir þrjú erlend flugfélög
Aðeins breiðþotur í
rekstri hjá Atlanta
BREIÐÞOTUR af gerðinni 767 frá
Boeing munu bætast í flugflota At-
lanta en forráðamenn félagsins hafa
ákveðið að félagið hafi aðeins breið-
þotur í þjónustu sinni. Fimm þotur
af gerðinni Tristar hverfa því úr
þjónustu félagsins á næstu misser-
um og koma bæði 767- og 747-þotur í
stað þeirra.
Magnús Gylfi Thorstenn, forstjóri
Atlanta, segir að sú stefna hafi verið
mörkuð að reka aðeins breiðþotur og
hefur félagið því hætt rekstri þriggja
Boeing 737-þotna, tveggja sem voru
í fraktflugi og einnar sem var í far-
þegaflugi. Segir hann að hægt sé að
afla félaginu meiri veltu og hagnaðar
með breiðþotum en minni þotum,
fastur kostnaður við umsjón á
rekstri sé ekki miklu meiri við breið-
þotur en hjá minni þotum. „Við
stefnumótun horfum við ekki aðeins
til eins eða tveggja ára heldur fimm,
tíu eða fimmtán ára og við höfum
metið það svo að hagstæðast verði að
reka eingöngu breiðþotur og finna
þeim verkefni," segir Magnús Gylfi.
Um 1.400 manns
í pílagrímaflugi
Umfangsmesta pílagrímaflug At-
lanta hefst 7. febrúar og segir Magn-
ús Gylfi Thorstenn að umfang þess
svari til um 45% af veltu félagsins á
síðasta ári. Munu um 1.400 manns
starfa við flugið þegar mest verður
um að vera. Ellefu þotur sinna flug-
inu og sér Atlanta meðal annars um
flug til Jeddah frá Indlandi, Vestur-
Afríku og Indónesíu.
Flogið er fyrir Saudi Arabian Air-
lines, Air Áfrique og Air India.
Magnús segir nú í fyi'sta skipti sam-
ið til tveggja ára við Saudia-flugfé-
lagið og sé þess vegna mögulegt að
taka á leigu þrjár nýlegar 747-300-
þotur og setja þær í önnur verkefni
þegar pílagrímafluginu í ár lýkur um
miðjan apríl.
■ Þrjár 747/40
Morgunblaðið/Kristinn
VEIÐITÚR Breka VE um jól og ára-
mót skilaði sér í sölumeti í Bremer-
haven í Þýskalandi í gær. 223 tonna
afli, einkum karfi, fór samtals á
1.283.000 þýsk mörk eða um 48,7 mil-
ljónir króna. Ögri átti fyrra metið en í
mars 1989 seldi skipið liðlega 266
tonn fyrir 1.142.400 mörk, um 43,4
millj.kr.
Á fiskmarkaðnum í Bremerhaven
voru seld tæplega 185 tonn úr Breka í
vikunni fyrir um 1.076.000 mörk og
var meðalkílóverðið um 220 krónur,
en í gær voru um 38 tonn aflans seld í
Hull í Englandi fyrir sem samsvarar
um 207.000 mörk, ríflega 200 kr. kíló-
ið. „Við sendum þorskinn á England
því þar fáum við venjulega hæsta
verðið fyrir þorsk, en karfinn fór út
um allt; töluvert til Belgíu, til Frakk-
lands og í raun út um allt,“ segir Sam-
úel Hreinsson, framkvæmdastjóri
fiskmarkaðarins í Bremerhaven.
Útgerðarfélag Vestmannaeyja var
stofnað 1998 og gerir það út Breka en
Magni Jóhannsson er skipstjóri.
Aflaverðmæti skipsins á 10 mánuðum
1999 var um 250 milljónir króna og
segir Sigurmundur G. Einarsson,
framkvæmdastjóri, að stefnan sé upp
ávið.
■ Seldi karfa/24
Fátt nýtt undir sólinni
ÞAÐ er stundum sagt að fátt sé
nýtt undir sólinni, en samt er allt í
tilverunni breytingum háð og hver
nýr dagur í raun ólíkur þeim fyrri.
Landsmenn hafa mátt klæða sig
kynstrin öll upp á síðkastið, en nú
ber svo við að Veðurstofan spáir
talsverðum hlýindum næstu daga á
landinu öllu og getur hiti farið í 6
stig vestan til. Hætt er við að skýj-
að verði og sólin þurfi því um
stundarsakir að draga saman segl-
in. Borgarbúar nutu hennar í gær
við Tjörnina og fuglarnir nutu ör-
lætis þeirra, en í höfuðborginni
skein sólin þá næstum klukkustund
lengur en þegar hún stóð styst við
á vetrarsólstöðum rétt fyrir jól.
róa til fiskjar án kvóta í ljósi niður-
stöðunnar í Vatneyrarmálinu. Kom-
ist Hæstiréttur að annarri niður-
stöðu en Héraðsdómur Vestfjarða
megi menn búast við sakfellingu og
sektum.
„Við viljum með þessu láta reyna
virkilega á þessi lög. Ég hef hins-
vegar enga trú á því að Hæstiréttur
komist að annarri niðurstöðu en
héraðsdómur. Það er almenn sam-
staða um að leggja 10% aflaverð-
mætis til hliðar til að greiða ríkinu á
meðan þetta ástand varir og þangað
til komið hefur verið á fót nýju fisk-
veiðistjórnunarkerfi. Við ætlumst
hinsvegar ekki til að þessi hátturinn
verði hafður á í framtíðinni, heldur
að við okkur verði rætt þegar nýju
kerfi verði komið á,“ segir Sigurður.
Samkvæmt lögum um umgengni
við nytjastofna sjávar er skylt að
vigta og skrá allan afla þegar hann
kemur að landi. Landi skip afla um-
fram kvóta sendir Fiskistofa við-
komandi útgerðum aðvörun þar sem
þeim er gefinn kostur á að lagfæra
aflamarksstöðu sína, ellegar verði
skipið svipt veiðileyfi og gefin út
ákæra á hendur útgerðinni. Án
veiðileyfis er skipunum ekki heimilt
að stunda veiðar innan íslensku fisk-
veiðilögsögunnar en haldi skip veið-
um áfram eftir að það hefur verið
svipt veiðileyfi er það fært til hafnar
af Landhelgisgæslunni eða lögreglu.
Kveikt í
jólatrjám
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík
var kallað út í gærkvöldi þar
sem tilkynnt hafði verið um eld í
ruslagámum við aðsetur gatna-
málastjóra á Njarðargötu.
Þegar að var komið kom í ljós
að kveikt hafði verið í jólatrjám
sem fylltu tvo gáma og logaði
glatt. Gekk greiðlega að
slökkva eldinn. Vinsæl iðja mun
vera meðal barna og unglinga
að bera eld að jólatrjám sem
víða liggja á götum úti um þess-
ar mundir, en slökkviliðsmenn
segja slík tiltæki hættuleg og að
lítið þurfti út af að bera til að
tjón geti hlotist af.