Morgunblaðið - 16.01.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.01.2000, Blaðsíða 2
2 StJNNUDAGUR 16. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Samvinnuferðir-Landsýn bjóða í sumar 25 þúsund sæti til 10 borga í Evrópu Fargjald til Kaupmanna- hafnar 7.400 kr. aðra leið Morgunblaðið/Porkell Helgi Jóhannsson, forstjóri Samvinnuferða-Landsýnar, kynnti í gærmorgun nýtt fyrirkomulag á framboði ferðaskrifstofunnar á flugi milli íslands og 10 borga í Evrópu. FLUGFRELSI er nafn á nýju fyr- irkomulagi á flugþjónustu frá Isl- andi til 10 borga í Evrópu sem Sam- vinnuferðir-Landsýn hafa samið um við Atlanta, íslandsflug og nokkur erlend flugfélög. Hægt er að kaupa miða aðra leiðina, fara til einnar borgar og heim frá annarri og er al- gengt verð um 10 þúsund krónur auk skatta aðra leiðina. „Þetta er nýjung í flugmálum sem ég vil kalla byltingu," sagði Helgi Jóhannsson, forstjóri ferðaskrif- stofunnar, er hann kynnti þessa nýju þjónustu. Hann segir þetta til- boð að nokkru leyti svar Samvinnu- ferða-Landsýnar við óskum stéttar- félaga um hagstæð fargjöld. Óskir þeirra hafi verið skoðaðar og menn komist að þeirri niðurstöðu að gera tilraun með þetta nýja fyrirkomulag sem hentað gæti fjölskyldum í or- lofsferðum, sem og þeim sem vildu eða þyrftu að bregða sér í stutta ferð nánast fyrirvaralaust. Afangastaðir eru Kaupmanna- höfn, London, Rímini, Benidorm, Mallorca, Berlín, Frankfurt, Múnchen, Zúrich og Basel. Ferðir hefjast 22. maí og verður tekið við farpöntunum frá 19. janúar. Sem dæmi um verð má nefna að lægsta verð til Kaupmannahafnar er 7.400 krónur og 17.900 til Benidorm og er þar átt við aðra leið án flugvallar- skatta. I langflestum tilvikum er flogið út að morgni og heim síðdegis en ferðir með erlendu flugfélögun- um verða síðdegis frá íslandi. í boði verða 25 þúsund sæti og segir Helgi það talsverða aukningu frá stéttar- félagsferðunum í fyrra og verði þessu boði vel tekið sé jafnvel mögu- legt að auka framboðið enn í sumar. )rAllt skipulag Flugfrelsis byggist á tveimur lykilorðum: einfaldleika og vali. Þannig verða flugverð og skilmálar kynntir á skýran og skipulagðan hátt og salan gerð eins einföld og mögulegt er,“ segir m.a. í upplýsingum ferðaskrifstofunnar. Helgi segir að breiðþota Atlanta verði að stærstum hluta notuð í fluginu og þar sé kostur á lúxusfar- rými á efri hæð þotunnar sem tekur 16 farþega. Er slíkt fargjald selt á 17.100 krónur milli London og Keflavíkur aðra leið. Flogið er tvisv- ar í viku til Kaupmannahafnar, London og Þýskalands og sagði Helgi mögulegt að komast út eða heim milli einhvers áfangastaðanna nánast alla daga vikunnar. Með vélsög á fargjaldafrumskóginn Helgi gerði reglur flugfélaga um fargjöld að umtalsefni og sagði að hér væru menn lausir við skilyrði um að fara út á laugardegi, fljúga að næturlagi og hafa langan fyrirvara á pöntun til að fá hagstætt fargjald. „Þessar reglur hafa flugfélögin búið til og öllu er stýrt af þeim. Þess vegna kalla ég flugfrelsið okkar byltingu því þetta þýðir nýja stefnu,“ sagði forstjórinn og dró upp þá myndrænu lýsingu að hér væri ferðaskrifstofan að fara með vélsög á fargjaldafrumskóginn. Hann sagði líka að farmiði væri ekki ónýtur þótt upp kæmi sú staða að farþegi gæti ekki ferðast á ákveðnum degi, þá yrði honum einfaldlega breytt og aðeins þyrfti að greiða fyrir vinnu við breytinguna. Helgi sagði jafnframt að á næsta ári myndi ferðaskrifstofan færa enn út kvíarnar í þessum efnum. Væri í undirbúningi samningur um notkun á B767 breiðþotu, sem Atlanta tekur í notkun á næstu misserum, til flugs frá Islandi alla daga vikunnar. Már Guðmundsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka fslands Kaupmáttur getur í besta falli aukist um 1-2% MÁR Guðmundsson, aðalhagfræð- ingur Seðlabanka íslands, segir að kaupmáttur ráðstöfunartekna að meðaltali geti í besta falli aukist um 1-2% í ár, en það sé viss hætta á að þróunin verði með þeim hætti að kaupmátturinn hreinlega lækki og í þeim efnum gegni niðurstaða við- ræðna um nýja kjarasamninga hlut- verki. Ef kaupmátturinn aukist tíma- bundið meira en þetta sé hætta á að það ójafnvægi sem sé í efnahagskerf- inu nú og endurspeglist í miklum við- skiptahalla og vaxandi verðbólgu Með Morgunblaðinu í dag er dreift blaði frá Freemans, „Sumar 2000”. aukist enn frekar og það geti ekki staðist til lengdar. Þetta kom meðal annars fram í er- indi sem Már flutti á kjaramálaráð- stefnu Verslunarmannafélags Reykjavíkur í gær um stöðu og horf- ur í efnahagsmálum. Már sagði í samtali við Morgun- blaðið að efnahagsástandið ein- kerjndist af mikilli ofþenslu sem graflð hefði undan stöðugleika. Nauðsynlegt væri að vinda ofan af þeirri þróun til að endurheimta stöð- ugleikann og ná verðbólgunni niður á viðunandi stig. Þær hættur sem við væri að glíma væru meðal ánnars þær að 5% verðbólgustig festist í sessi. í öðru lagi að raungengið hækkaði of mikið og viðskiptahallinn héldi áfram að vaxa, þ.e.a.s. að raungengið klemmdist í rauninni á milli verðbólguþrýstings og launa- hækkana annars vegar og aðhalds peningayfírvalda hins vegar, en það gæti leitt til þess að brestir kæmu í traust á efnahagsumgerðinni og þrýstingur skapaðist á gengið á mai'kaði. Það gæti síðan auðvitað gengið svo langt að það þróaðist í gjaldeyriskreppu og skapaði hugs- anlega bankakreppu síðai' vegna þess hve skuldsetningin væri mikil. Már tók fram að hann teldi þetta ekki líklegt nú en þetta væri mögu- leiki ef allt færi á versta veg og ekki tækist að lenda kjarasamningum í samræmi við markmið um stöðug- leika. Hann hefði reiknað nokkur dæmi um mögulegar launabreyting- ar í þeim efnum. Eitt dæmið sem miðaði að því að lækka verðbólguna gengi út frá þeirri forsendu að að- haldssöm peningamálastefna skilaði sér í hærra gengi á næstunni í að- draganda kjarasamninganna og að launahækkun yrði samsvarandi lægri. Miðað við 2% hækkun gengis og 3% hækkun launa, auk 1,5% launaskriðs á árinu væri niðurstaðan sú að verðbólgan yrði 4% milli ár- anna 1999 og 2000 og tæplega 2,5% yfir árið. Samkvæmt þessu myndi kaupmáttur aukast um tæp 2% á ár- inu. Ef miðað væri við meiri launa- hækkanir yrði verðbólgan meiri, en sá kaupmáttur sem út úr því kæmi myndi ekki standast til lengdar. „Það er viss hætta á harkalegri að- lögun, sem þarf að reyna að afstýra og ef slík aðlögun yrði myndi hún í rauninni bitna verst á launafólki og birtast í því að kaupmátturinn myndi lækka. Það er sú staða sem við blas- ir, jafnvel þótt aðrir aðilar en launa- fólk beri að töluverðu leyti ábyrgð á því hvernig komið er,“ sagði Már ennfremur. Hann segir að ekki sé fullvíst að hófsamir kjarasamningar dugi til þess að slá á þensluna. Til viðbótar sé meira aðhald í ríkisfjármálum æskilegt, annað hvort með hærri sköttum eða niðurskurði útgjalda. Peningamálastefnan yrði áfram að vera aðhaldssöm, auk þess sem vinda þyrfti ofan af þeirri miklu út- lánaaukningu sem hefði orðið í lána- kerfinu. Ferðaskrifstofan Terra Nova Vikulegt leiguflug til Rómar og Barcelona í SUMAR býður ferðaskrifstofan Terra Nova, áður Ferðamiðstöð Austurlands, í fyrsta skipti upp á vikulegt leiguflug til Rómar og Barcelona í samstarfí við Nouvelles Frontiéres sem er stærsta ferða- skrifstofa Frakklands. Flogið verður með flugfélaginu Corsair og áfram verður einnig boðið upp á flug til Parísar en þangað hóf ferðaskrif- stofan að bjóða reglulegt leiguflug með Corsair árið 1998. Þá verður Terra Nova í fyrsta sinn með áætlunarflug með flugfélaginu LTU til Hamborgar en LTU heíúr um árabil verið með flug hingað til lands til Múnchen og Dússeldorf. Samningar gerðir við bflaleigur Að sögn Antons Antonssonar, framkvæmdastjóra Terra Nova, verður lögð aukin áhersla á að þjón- usta þá Islendinga sem ferðast á vegum Terra Nova til umræddra Evrópuborga í sumar. Verið er að ganga frá samningum við bílaleigu- fyrirtæki og ýmsa sem bjóða gist- ingu víðsvegar um Evrópu. Þá verð- ur í sumar boðið upp á nokkrar skipulagðar hópferðir á vegum Terra Nova, m.a. til Ítalíu og Frakk- lands. ■ Bjóða vikulegt/C2 A ► l-64 Vandaður undirbúningur um- hverfislöggjafar lykiiat- riði ► Rætt við Aðalheiði Jóhannsdótt- ur sem stundar doktorsnám í um- hverfisrétti við háskólann í Upp- sölum./10-11 Giímt við gátuna um íslenskrar fornbók- menntir ►Peter Foote, fyrrverandi pró- fessor í norrænum fræðum við University College, hefur ekki að- eins augun á íslensku fombók- menntunum. /22 Greiðslukort reynst nytsöm verkfæri ► Rætt við Ragnar Önundarson, framkvæmdastjóra Europay, elsta greiðslukortafyrirtækis á Islandi, sem nú er 20 ára. /24 Gardínur fyrir gáttirnar ►í Viðskiptum/Atvinnulífi á sunnudegi er rætt við eigendur Álnabæjar. /30 B_______________________ ►l-28 Parket úr eigin lerki- skógi ►Þórarinn J. Rögnvaldsson bóndi á Víðivöllum II í Fljótsdal lagði fyrir jólin parket úr eigin ræktuð- um lerkiskógi og heimaunnum viði á öll gólf í húsinu hjá sér. /1&14-15 Eigandi bankabókar númer eitt ► Samtal við Þorbjörgu Péturs- dóttur; ráðherradóttur sem giftist lögfræðingi og varð sveitakona en flutti svo suður og fór að vinna hjá gullsmið. /6-8 Draumur rættist en hvað næst? ►Ágúst Kvaran fjallar um þátt- töku sína og Sigurðar Gunnsteins- sonar í Del Passatore, 100 kíló- metra ofurmaraþoni á ítah'u. /10- 12 ^&FERDALÖG ► l-4 Norður-Noregur ►Gengið á fjallið bláa - eða hvíta? /2 Mikilleiki sögunnar í nútímabúningi ►Uppáhaldsbygging Sigríðar Daggar Auðunsdóttur í París. /4 Db/LAR ►1-4 Bíllinn skilgreindur al- veg upp á nýtt ►Alþjóðlegu bílasýningamar í Los Angeles og Detroit. /2 ATVINNA/ RAÐ/SMÁ ► l-28 Atvinnuauglýsingar ►Einnig rað- og smáauglýsingar FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Brids 50 Leiðari 32 Stjömuspá 50 Helgispjall 32 Skák 50 Reykjavíkurbréf 32 Fólk í fréttum 54 Viðhorf 36 Útv/sjónv. 52,62 Minningar 36 Dagbók/veður 63 Myndasögur 48 Mannl.str. 16b Bréf til blaðsins 48 Dægurtónlist 26b f dag 50 INNLENDAR FRÉTTIR: 24-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.