Morgunblaðið - 16.01.2000, Side 28

Morgunblaðið - 16.01.2000, Side 28
28 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ GEÐVERNDARFÉLAG ÍSLANDS 50 ÁRA Þrátt fýrir framfarir og betri hag en fyrir 50 árum standa geðsjúkir og geðfatlaðir enn höllum fæti og þurfa aukna fyrirgreiðslu og búnað. inganna að nauðsynlegri sérfræðiað- stoð og bráðaþjónustu. A þessari hálfu öld hefur geðlækn- um sem starfa á sjúkrahúsunum og utan þeirra stórfjölgað svo og geð- hjúkrunarfræðingum, sálfræðing- um, iðjuþjálfum og sjúkraþjálfum. Félagsráðgjafar og bamageðlæknar hafa bæst við og stofnuð hefur verið sérstök bama- og unglingageðdeild. Nýjar og betri lækningaaðferðir hafa ratt sér til rúms og almenn um- ræða aukist í fjölmiðlum. Félags- málaþjónusta hefur stórbatnað og stuðlað að meiri meðferðarmögu- leikum utan sjúkrahúsa. Allt hefur þetta stuðlað að því að eyða fordóm- enn betri að- um, sem enn eimir þó eftir af. Eins og sjá má hafa margir lagt hönd á plóginn og eiga þeir miklar þakkir skildar. En betur má ef duga skal. Þrátt fyrir framfarir og betri hag en fyrir 50 áram standa geðsjúk- ir og geðfatlaðir enn höllum fæti og þurfa aukna fyrirgreiðslu og enn betri aðbúnað. Þó að þekkingin á geðröskunum hafi stóraukist vantar enn mikið á að hún sé nægjanleg til að koma í veg fyrir þær og lækna nógu fljótt, en ýmislegt er hægt að gera bæði í lækningum og forvörn- um. Iðulega áttar fólk sig ekki á eig- in geðröskun. Auglýsingar og fræðsluátak landlæknis um einkenni Tómas Helgason Höfundur er prófessor e.m. og fyrr- verandi forstöðulæknir geðdeildar Landspítalans. Geðverndarfélag íslands var stofnað 17. janúar 1950. Félagið var stofnað samkvæmt tillögu sem kom fram á 40 ára af- mæli Læknafélags Reykjavíkur í nóvember 1949. Geðverndarfélag var fyrst stofnað í Bandaríkjunum 1908 af Clifford Beers, sem hafði verið sjúklingur á geð- sjúkrahúsum í þrjú ár. Hann ritaði bók um reynslu sína sem kom út tveimur mánuðum áður en félagið var stofnað. Hún vakti mikla athygli og hefur oft verið endur- útgefin. í bókinni lýsir Beers aðbún- aðinum, meðferðinni og lífinu á geð- sjúkrahúsinu eins og sjúklingurinn sér það þegar hann er orðinn heil- brigður aftur. Þegar næsta ár var stofnað samband geðverndarfélaga í Bandaríkjunum og síðar var stofnað alheimssamband félaganna. Tilgan- gur þeirra var sá sami og Geðvemd- arfélags íslands, að vinna að bættri geðheilbrigði, forvörnum geðrask- ana, bættri meðferð og aðbúnaði geðsjúklinga, veita öragga fræðslu um geðraskanir og síðast en ekki síst að vekja almenning og stjórnvöld til aukins skilnings á grundvallarþýð- ingu geðheilbrigði. Á stofnfundi Geðverndarfélagsins flutti dr. Helgi Tómasson, fyrsti for- maður þess, erindi um geðvemd sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins 1950. Þar sagði hann m.a.: „Auðvitað getur menn greint á á þessum svið- um heilbrigðisfræði eins og öðrum sviðum hennar, en um vissa hluti geta flestir sameinast, vissa hluti, sem allflestum finnast æskilegir, þó þá greini á um leiðir og þær séu oft torsóttar. Það t.d. hefur ekki verið átakalaust að berjast við sóðaskap- inn, bæði utan húss og innan og mik- ið vantar enn á, að á honum hafi ver- ið sigrazt eða menn komið sér saman um, hvemig það verði bezt gert. Samt sem áður dettur engum í hug annað en að halda baráttunni sleitu- laust áfram og fórna til þess stórfé. En um andlegan sóðaskap hafa menn varla þorað að ræða ennþá, hvað þá heldur að láta sér detta í hug þann möguleika að hefja baráttu gegn honum. Það á því langt í land að „mental hygiene“ eða geðvemd taki sér slíkt viðfangsefni. Aftur á móti hefur mönnum smám saman verið að lærast hvað má bjóða fólki á ýmsum aldri, hvernig má best hagnýta andans krafta, hvers um sig. Mönnum hefur smám saman verið að lærast, að hugarástand manns mótar viðhorf hans til lífsins, ræður úrslitum um, hvort maðurinn sé hamingjusamur eða óhamingju- samur. I baráttunni gegn geðsjúk- dómum, stóram og smáum, er mönn- um orðið æ ljósara að aukinn skilningur almennings, aðstandenda og sjúklingsins sjálfs á eðli sjúkleik- ans er megin atriði til þess að fá bata og einnig oft til að fyrirbyggja að verða veikur ... Heilbrigði er nú á dögum skilgreind sem andleg, líkam- leg og félagsleg vellíðan. Langsam- lega meginhluti læknisstarfseminn- ar hefur miðazt við að styðja og efla svonefnda líkamlega vellíðan mann- anna. Upp á síðkastið hefur og fé- lagslegu hliðinni verið æ meiri gaumur gefinn. En til hvers væri að veita mönnum líkamlega og félags- lega vellíðan ef þeir ekki gætu not- fært sér hana vegna andlegra ágalla. Geðheilbrigði skiptir því megin- máli fyrir alla menn. Brýnustu verkefni geðvemdarfé- laga er að vinna að forvömum og auknum skilningi á geðröskunum Úr Englum alheimsins en kvikmyndin gerist að stórum hluta inni á Kleppi. Hér fá þrír sjúklingar bæjarleyfí til að fylgja félaga sínum til grafar, þó að sú bæjarferð hafi farið á nokkuð annan veg en til stóð. þunglyndisraskana era því mjög gagnlegar og tímabærar. Forvarnir Orsakir geðsjúkdóma eru yfirleitt margþættar, svo að beita þarf ýmiss konar aðgerðum til að koma í veg fyrir þá: 1) aðgerðum sem beinast að fólki almennt, 2) aðgerðum sem beinast að áhættuhópum og 3) að- gerðum sem beinast að einstakling- um með forstigseinkenni, sem hætta er á að þróist yfir í sjúkdóm. Tilraun- ir til að koma í veg fyrir sjúkdóma með margþættar orsakir með hópað- gerðum skortir oft sértækni. Þeim er ætlað að stuðla að almennu heil- brigði, þar með talið geðheilbrigði, og auka mótstöðu fólks gegn sjúk- dómum. Nægileg umhyggja fyrir líkams- og geðheilsu er mikilvæg fyrir heilbrigði og þroska og kemur í veg fyrir margs konar kvilla, jafnt líkamlega sem geðræna. Heilsuvernd í víðum skilningi fjallar um allt sem stuðlar að hreysti og vellíðan, að koma í veg fyrir sjúk- dóma, lækna, líkna og endurhæfa. Hin almenna geðvernd getur þannig verið mjög yfirgripsmikil og fjallað um allt sem gefur lífinu gildi og fyll- ingu. í þrengri skilningi fjallar geð- vernd eins og önnur heilsuvernd um það, hvernig skuli koma í veg fyrir sjúkdóma. Til þess þarf að finna sjúkdómsorsakirnar og eyða þeim. Verði það ekki gert þarf að auka mótstöðuafl fólks eða beita almenn- um aðgerðum eins og í baráttunni við sóðaskapinn. Enginn ágreining- ur er um markmið, en menn greinir oft á um leiðir, einkum ef miklir fjár- hagslegir hagsmunir tengjast sóða- skapnum eins og nýleg dæmi sýna. Eins og oft áður gengur betur að sætta menn þegar um er að ræða sóðaskap sem veldur sýkingum, heldur en þegar um er að ræða and- legan sóðaskap sem veldur geðrösk- unum eins og t.d. þann sem fylgir spilakössum, happdrættisvélum og nektardansstöðum. Faraldsfræðin hefur fyrir löngu sýnt tengslin milli afkomu fólks og öryggis og flestra sjúkdóma. Far- aldsfræðilegar rannsóknir era nauð- synlegar til að finna áhættuhópa og til að finna hve langt líður á milli for- stigseinkenna og sjúkleika. Sú þekk- ing sem þær veita er forsenda skynsamlegra heilsuverndarað- gerða. En það líður oft of langur tími frá því að þekkingin verður til þar til farið er að beita henni. Sú þekking sem þegar hefur verið aflað gefui' vísbendingar um hvernig haga megi geðvemdaraðgerðum næstu ára til að draga úr tíðni ýmissa geðsjúk- dóma, þar með er talin áfengissýki og önnur fíkn. Mikið hefur áunnist á undanförn- um 50 áram en þó bíða Geðverndar- félagsins og velunnara þess mikil verkefni þjóðinni til heilla. ásamt bættri með- ferð og aðbúð hinna geðsjúku, sem byggir á aukinni þekkingu sem aflað er með rannsóknum og að vinna gegn fordóm- um sem geðsjúkir verða oft fyrir. Hluti af þessum verkefnum er að rjúfa einangrun geðsjúkra og gæta þess að þeir njóti jafnréttis á við aðra borgara." Framfarir Geðvemdarfélag íslands hefúr lagt áherslu á fræðslu um geðraskanir, orsakir þeirra og eðli, með funda- höldum, erindaflutningi, blaðaskrif- um og útgáfu tímaritsins Geðvemd- ar. Jafnframt hefur félagið unnið beint að því að draga úr einangrun geðsjúklinga. í ársbyrjun 1967 hófst samvinna félagsins við Samband ís- lenskra berklasjúklinga um fram- kvæmdir að Reykjalundi, þar sem Geðverndarfélagið á nú 22 endur- hæfingarrými sem stjóm Reykja- lundar rekur. Síðar kom félagið upp eigin endurhæfingarstöð við Álfa- land og íbúðum annars staðar með aðstoð Kiwanishreyfingarinnar. Þá er félagið aðili að Oryrkjabandalagi Islands og hafa skjólstæðingar þess notið fyrirgreiðslu Hússjóðs Ör- yrkjabandalagsins til jafns við aðra. Það sem mestu hefur þó munað til að draga úr einangran geðsjúklinga og fordómum gagnvart þeim er opnun geðdeildar Borgarspítalans 1968 fyrir forgöngu þáverandi borgar- læknis, dr. Jóns Sigurðssonar og síð- ar opnun geðdeildar Landspítalans ásamt endurbyggingu Kleppsspítal- ans, sem nú er hluti af geðdeildinni. Þar með stórbatnaði aðgengi sjúkl- Hallgrimur Magnússon Forvarnir gegn geð- sjúkdómum aldraðra Betra er heilt en vel gróið segir gamalt, máltæki og minnir á að mönnum hefur lengi verið Ijdst mikilvægi forvarna. Or- sakir geðsjúkdóma aldraðra eru lítt þekkt- ar og því við forvamir ekki hægt að ráðast að rótum vandans. Þó er ýmislegt hægt að gera til að draga úr afleiðingum þessara sjúkdóma. Tveir algenguslu geðsjúkdóm- amir sem hrjá aldrað fólk eru heilabilun og þunglyndi. Rannsóknir síðari ára hafa ennfremur leitt í ljós að kvíðasjúkdómar eru nokkuð algengir í þessum aldurshópi. Forvarnir við heilabilun Forvamir gegn heilabilun eru helstar þær að greina sjúkdóminn á fyrstu stigum hans. Þá er stundum hægt að beita lyfja- Hallgrímur meðferð sem seinkar þróun sjúkdómsins Magnússon nokkuð. Heilabilun getur verið vegna blóðflæðistruflana og er því hugsanlegt að almennar æðaveradandi ráðstafanir geti að einhverju marki seinkað slíkri heilabilun. Með æðavemdandi ráðstöfun- um er hér t.d. átt við að halda blóðþrýstingi og blóðfitu í skefjum. Einnig er mikilvægt að tryggður sé aðgangur að viðeigandi hjúkrun og eftirliti með sjúklingum með heilabilun. Forvarnir við þunglyndi Mjög mikilvægt er að greina þunglyndi snemma. Þetta er vegna þess að tiltölulega auðvelt er að með- höndla þunglyndi hjá öldruðum. Þarna er ábyrgð heim- ilislækna mikil því þangað leita sjúklingar oftast fyrst. Hæfni til greiningar á þunglyndi aldr- aðra í heilsugæslunni hér á landi hefur ekki verið ranusökuð að neinu marki, en rannsóknir erlendis benda til að þar sé þessari hæfni ábótavant. Upplýsingar til almennings eru einnig mikilvægt for- varnarstarf því oft eru fyrstu einkenni um þunglyndi ranglega skýrð sem eðli- legur fylgifiskur ellinnar. Á allra síðustu árum hefur orðið Ijóst að þunglyndi get- ur orsakast af truflun á blóðflæði til heil- ans og er hugsanlegt, en ekki sannað, að æðaverndandi ráðstafanir geti komið í veg fyrir eða seinkað sjúkdómnum. Stuðningur við aðstandendur Gefa þarf gaum að líðan þess fólks sem annast aldraða ættingja sína. Rannsóknir hafa sýnt að þetta fólk er oft undir miklu álagi og fær oftar þunglyndi og kvíða en aðrir sambæriiegir hópar. Þetta er lítt rannsakað svið og sennilega flóknara en virðist í fyrstu. T.d. hefur komið í ljós að fræðsla um heilabilun hjá þeim sem annast ættingja sína með þann sjúkdóm Ieiðir til minna þunglyndis en meiri kvíða. Þetta er að sumu leyti skiljanlegt þar sem með aukinni þekkingu er betur hægt að sjá fyrh’ væntanlega erfíð- leika þegar heilabilunin versnar. Stuðningur við þenn- an hóp er mikilvægt forvarnarstarf. Höfundur ergeðlæknir hjá Heilsugæslustöð Grundarfjarðar. Tómas Helgason Geðvernd í 50 ár

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.