Morgunblaðið - 16.01.2000, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 16.01.2000, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ 40 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2000 MINNINGAR + Við þökkum af alhug auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa, bróður og mágs, ÓLAFS BALDURS ÓLAFSSONAR framkvæmdastjóra, Kirkjusandi 1, Reykjavík. Sérstakar þakkir til allra, sem sinntu honum hans. Hildur Guðmundsdóttir, Kristín Lára Ólafsdóttir, Magnús Eyjólfsson, Tómas Óli Magnússon, Jón Ægir Ólafsson, Guðbjörg Ólöf Bjarnadóttir, Gunnar Þór Ólafsson, Sigríður Haraldsdóttir, Ásgeir Bragi Óiafsson, Katla Helgadóttir, Guðlaug Nanna Ólafsdóttir, Eggert Árni Magnússon og aðrir ástvinir. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug, við andlát og útför maka míns, föður okkar, fósturföður, tengdaföður og afa, HERMANNS BJARNASONAR bónda, Leiðólfsstöðum, Laxárdal, Dalabyggð. Sérstakar þakkir til starfsfólks, lækna og systranna á St. Fransiskus- sjúkrahúsinu í Stykkishólmi. Sigrún Guðný Jóhannesdóttir, Bjarni Hermannsson, Bogdís Una Hermannsdóttir, Ólafur Þorvaldsson, Unnsteinn Kr. Hermannsson, Ásta Kr. Guðmundsdóttir, Valdís S. Óskarsdóttir, Ólafur Pálmason, Pétur J. Óskarsson, Ása María Hauksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Við þökkum af heilum hug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför SÍMONAR ÓLAFS MAGGA ÁGÚSTSSONAR vélstjóra, Bakkatúni 16, Akranesi. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks B-deildar Sjúkrahúss Akraness. Anney B. Þorfinnsdóttir, Ágúst Símonarson, Sigríður Sigurðardóttir, Svana M. Símonardóttir, Valdimar Sveinsson, Hjördís Símonardóttir Fruson, Dwight Fruson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, PÉTURS OTTESEN ÁMUNDASONAR vörubílstjóra, Skúlagötu 40a. Gunnar Már Pétursson, Enika Kristjánsdóttir, Fanney Edda Pétursdóttir, Þóra Pétursdóttir, Reynir Hlíðar Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns og föður okkar, EGGERTS PÁLSSONAR, Hraunteigi 22, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Sigríður Sveinsdóttir, Ingólfur Vignir Eggertsson, Sveinn Óli Eggertsson. + Lydia Pálsdóttir (Zeitner) fæddist í Miinchen 7. janúar 1911. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur - Landakoti 6. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Theresia Zeitn- er í Miinchen, ættuð m.a. frá Bayereuth, og dr. Paul Stern- berg efnafræðingur í Miinchen; ættaður frá Austurríki. Þau giftust ekki. Lydia nam leir- kerasmíði til fullnustu í Miinchen og fluttist með móður sinni og listamanninum Guðmundi Einars- syni frá Miðdal (f. 1895) til íslands 1929. Hún starfaði með honum við fyrsta Ieirmunaverkstæði lands- ins, Listvinahús, fram yfir 1950. Auk þess að hanna og móta leir- muni og taka þátt í rekstrinum, vann Lydia að allmörgum list- saumsverkum. Guðmundur og Lydia giftust 1950. Þau eignuðust fimm börn: 1) Einar Stein- ólf, f. 1936, maki: Jó- hanna Oddsdóttir (lát- in); þau eignuðust 3 börn, Guðmund, Reyni Má (látinn) og Guð- björgu, 2) Yngva Om, f. 1938, maki: Sigríður Jósefsdóttir Felzm- ann; þau eignuðust 3 börn, Ingibjörgu, Al- dísi og Yngva Jósef. 3) Auði Valdísi, f. 1943; maki Eyvindur Jónas- son frá Stardal og eru börn þeirra fjögur, Lydía Guðrún, Bryndís Theresía, Kristrún Yr og Katrín Björk. 4) Ara Trausta, f. 1948, maki: Mari'a G. Baldvinsdóttir, þau eignuðust 3 börn, Huldu Sóllilju, Hugin Þór og Helgu Sigrfði og 5) Egil Má, f. 1952, maki Vigdís Magnúsdóttir. Þeirra böm eru tvö, Magnús Guðmundur og Arnar Óskar. Guðmundur Einarsson frá Miðdal lést árið 1963. Lydia Pálsdóttir varð mjög ötull ferðamaður hér innanlands, eink- um á árabilinu 1930-1950, og fór mjög víða á hestbaki eða gangandi um öræfi landsins. Hún var mcðal stofnenda félagsins Fjallainanna 1939, sem stundaði jöklaferðir, skíðaferðir, námskeiðahald og fjallaklifur, og varð deild í Ferða- félagi íslands. Hún kleif mörg sjaldgengin fjöll og fór um flesta hinna stærri jökla landsins. Einnig kleif hún fjöll í Ölpunum. Árið 1934 var hún einn fjögurra leiðangursmanna sem gengu á skíðum til Grímsvatna til þess að kanna eldgos sem þá stóð yfir. I Heklugosinu 1947 eyddi hún mikl- um tima með Guðmundi við kvik- myndagerð; stundum sem töku- maður. Utivistaráhuginn leiddi Lydiu til laxveiða í öllum helstu veiðiám Iandsins. Hún dró þyngsta lax á stöng sem kona hefur veitt hér á landi, enn sem komið er (í Laxá í Aðaldal). Árið 1992 kom út ævisaga henn- ar. Lífsganga Lydiu (Helga Guð- rún Johnsen, Vaka-Helgafell). títför Lydiu fer fram frá Hall- grúnskirkju mánudaginn 17. jan- úar og hefst athöfnin klukkan 13.30. LYDIA PÁLSDÓTTIR Stærra en allir píramídar, en Himal^ja, stærraenskógarog höf erhjartamannsins,- þaðerdýrlegraen Sólin ogTungliðog stjömumar, geislar meir og blómstrar, það er óendanlegt í sinni ást (Heinrich Heine) Elsku mamma mín. Takk fyrir allt. Hið eilífa ljós lýsi í borðstofunni á Skólavörðustíg 43 stóð löngum afar öflugt eikarborð með tilheyrandi háreistum stólum. Borðið var raunar svo öflugt að þeg- ar feiknar jarðskjálfti reið yfir í des- ember 1968 og við sátum þar til borðs nokkrir félagar, gamla timburhúsið nötraði, hvinur þaut í lofti, gólfið gekk í bylgjum og veröldin virtist ætla að ganga af göflunum, þá grip- um við ósjálfrátt þétt um þykka borð- brúnina meðan ósköpin dundu yfir. Og borðið haggaðist ekki þótt allt annað léki á reiðiskjálfi. Við undum prýðisrólegir fram að næsta kaffi- sopa og enn einni tertusneið. Þetta var borðið hennar Lýdíu. Og félagsskapurinn var vinahópur Ara Trausta, sonar hennar, á árunum uppúr 1968, nokkrir hárprúðir, leit- andi háskólanemar. En það var ekki bara þetta borð. Yfir og allt um kring var menningin: Bækur, tónlist, en ekki síst myndlist, sérkennileg blanda af rammíslensk- um og mið-evrópskum áhrifum sem Lýdía og Guðmundur frá Miðdal höfðu skapað þarna uppundir há- punkti gömlu Reykjavíkur, Skóla- vörðuholtinu. Þar var allt þakið í myndum og listmunum; gömul túss- mynd eftir Guðmund af húsasundi í Munchen, Grímsvatnagosið 1934 í ol- íulitum og allt þar á milli. Og rjúpan hans Guðmundar var þama auðvitað líka. Lýdía átti vissulega sinn hlut í listasafninu sem leirkerasmiður, raunar handhafi fyrsta meistara- bréfs í þeirri grein hérlendis. + Hjartans þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför sam- býlismanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓSKARS INGA GUÐMUNDSSONAR bifreiðastjóra, Stekkjarflöt 2, Garðabæ. Sérstakar þakkir til Kjartans Örvars, læknis, starfsfólks St. Jóefsspítala og hjúkrunarþjónustu Karítas fyrir góða umönnun í veikindum hans og hlýhug. Guð blessi ykkur öll. Anna Þorláksdóttir, Axel Ström Óskarsson, Þóra Sigurðardóttir, Herdís Óskarsdóttir, Hjalti Hjaltason, Aldfs Óskarsdóttir, Finnbjörn A. Hermannsson, Guðný M. Óskarsdóttir, Hannes Jónsson, K. Linda Óskarsdóttir, Garðar S. Vestfjörð, Unnur E. Óskarsdóttir, Einar Á. Sigurjónsson, Elma Ósk Óskarsdóttir, V. Þröstur Hjálmarsson, Ester Inga Óskarsdóttir, Magnús Guðbjartsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við and- lát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURRÓSAR GUÐBJARTSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu Reykjavík. Dætur, tengdasynir, barnabörn og langömmubörn. Ekki dró úr þegar við reikuðum innan um listaverkin í vinnustofunni í viðbyggingunni austan við gamla húsið og nutum þar ævintýraheims sem var svo gjörsamlega á skjön við hversdagsleikann fyrir utan. Þessi undur voru okkur félögum Ara Trausta framandleg og örvandi og ekki að undra að við upphófumst þama einatt í djúpum samræðum um framtíðina, tilgang lífsins og gildi listarinnar á þann veg sem ungu fólki er tamt. Kringumstæður voru með afbrigðum ftjóar og lífsgátan ráðin a.m.k. vikulega, enda leitað stíft á þessum árum. Sú mynd sem hér er dregin upp af traustu eikarborði, mikilli menningu og frjóum umræðum er ekki einungis brot af liðnum tíma, þetta er minn- ingin um Lýdíu Pálsdóttur. Því hún var einlægt nálæg og á sinn hátt öfl- ugur þátttakandi í lífi þessa félaga- hóps, jafnt í gleði og sorgum sem leit- inni að tilgangi h'fsins. Eikarborðið og umgjörð þess er í minningunni kjölfestan í ótöldum heimsóknum á Skólavörðustíg 43, en vitaskuld var það húsfrúin sem skapaði þá traustu kjölfestu. Þar kom til margbrotin og söguleg lífsreynsla: Öryggi og stolt þeirrar konu sem staðið hafði af sér hvers kyns raunir, kímni frá lífsgleði liðinna ára með Guðmundi, sem hún saknaði sárt, og það glögga innsæi sem allt þetta hlaut að skilja eftir sig. Og við nutum þess alls. Gestabókin á Skólavörðustíg 43 vakti óskipta og sífellda athygh okk- ar félaganna. Það var líkt og að glugga í menningarsöguna. Þar höfðu skrifað og teiknað helstu hsta- menn þjóðarinnar, en þar voru ekki einungis okkar andans menn, heldur líka áhrifamenn sem heyrðu öðrum þjóðum til. Þar var Eisenhower, þar var Hillary og þar var Kekkonen sem kom reglulega til að renna fyrir lax með Guðmundi og njóta samvista við aðra vini sína í húsinu. Menningar- heimihð á Skólavörðustíg 43 var raunar um árabil sjálfsagður viðkomustaður tiginna gesta þjóðar- innar. Ekki efa ég að hlutverid sínu í þeim efnum gegndi heimskonan Lýdía með mikilh reisn. En eftir á að hyggja fengum við, félagamir, engu síðri móttökur en hinir tignu gestir, Lýdía kom ávallt fram við okkur sem eðalboma menn, það var henni ein- faldlega í blóð borið að umgangast fólk á þann veg. Og það lyfti ungum námsmönnum upp úr blankheitum og daglegu amstri að vera gerðir þannig að heimsborgumm þótt ekki væri nema kvöld og kvöld. Þess vegna eru heimsóknimar á Skóla- vörðustíginn ógleymanlegar og þakkarverðar. Blessuð sé minning Lýdíu Páls- dóttur. Ásgeir Sigurgestsson. Okkur er kennt að bera virðingu fyrir þeim sem eldri em. Og þannig á það að vera. En það gleymist oft að brýna það fyrir ungu fólki að njóta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.