Morgunblaðið - 16.01.2000, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 16.01.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ I DAG SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2000 51 BRIDS Hmsjón Ouðniunilur l’áll Arnarson Það skal fúslega viðurkennt að öldin er ung, en eigi að síður er hér spil sem gæti með tímanum orðið að “svíningu aldarinnar”. Þetta var í fyrstu umferð Reykja- víkurmótsins á þriðjudag- inn og í sæti sagnhafa var Erlendui' Jónsson: Norður gefur; AV á hættu (áttum snúið). Norður A 832 V K98 ♦ D106 *KD32 Austur A D1094 V 10632 ♦ G84 * 65 Suður AKG65 VG ♦ ÁK952 *Á107 Vestur Norður Austur Suður - Pass Pass 1 tígull lhjarta Dobl* Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Vestur AÁ7 VÁD764 ♦ 73 *G984 Neikvætt dobl og “lofar” fjórlit í spaða”. Þrjú grönd eru borð- leggjandi svo Erlendur var ekki mjög ánægður þegar blindur birtist með áttuna þriðju í spaða. En það varð að spila spilið. Vestur kom út með smátt lauf og eftir djúga stund drap Erlendur í blindum á kóng og spilaði út spaðaáttu! Austur var í stöðunni “hik er sama og tap” og setti fjarkann. Er- lendur lét lítið heima og það kostaði ásinn. Þar með þurfti ekki að hafa frekari áhyggjur af spiiinu: Vestur hélt áfram með laufíð, en Erlendur drap í borði og svínaði spaðagosa. Spilaði svo tígli fram á nótt. Vömin fékk aðeins tvo slagi á tromp og einn á hjartaás. Austur gaf spilið auðvit- að með því að leggja ekki á trompáttuna, svo það er ekki alltaf rétt að hik sé sama og tap. En austur á alla samúð dálkahöfundar, því þetta er ekki beinlínis “þekkt staða”. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesend- um sínum að kostnað- arlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/ eða nafn ábyrgðar- manns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einning er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1,103 Reykjavík Arnað heilla O A ÁRA afmæli. í dag, O vl sunnudaginn 16. janúar, verður áttræð Þor- björg Guðmundsdóttir, Drápuhlíð 21, Reykjavík. Eiginmaður Þorbjargar var Ingvar Axelsson en hann léstl994. n pT ÁRA afmæli. Á I Omorgun, mánudag- inn 17. janúar, verður sjö- tíu og fimm ára Theódór Halldórsson, Langagerði 3, Reylqavík. Theódór er að heiman. SKAK I msjón llelgi Áss Grctarson Svartur á leik. ÞRÁTT fyrir að Ítalía hafi aldrei haft á að skipa sterku skáklandsliði er gríðarlegur fjöldi alþjóðlegra móta hald- inn þar. Þessi staða kom upp um áramótin í þekktasta mótinu þar, Reggio Emilia, á milli Rússans Solozhenkin og heimamannsins Vezzosi, sem tókst með næsta leik að þvinga andstæðinginn til uppgjafar. 33...Rf4! 0-1 Óli! Geturðu ekki lánað mér frímerkjasafnið þitt í smástund? Hefur einhver séð Pétur eftir að við samþykktum að hafa sveigjanlegan vinnutíma? Við ætlum inn til mín að leika með óbrjótanlegu dúkkuna. UOÐABROT ÁLFAR Þeir ganga um haustskóg í heiðrökkri bláu á hvítri mjöll, handan við daginn og dulheima nætui' að Dísahöll, burtu úr mannheim og myrkviði dalsins á Mánafjöll. En fylgdu þeim varlega. Úr álfheimum enginn aftur fer. Ef gistirðu Mánafjöll, dýrkarðu drauminn, sem drottnar hér. Og yrkir um líf, sem var öðrum gefið en ekki þér. GunnarDal. STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake STEINGEITIN Afmælisbam dagsins: Þau ert traustur og tryggur og kemst þitt, þótt einhverj- um fínnist ekki mikið til um tilþrifín Hrútur (21. mars -19. apríl) Það sparar tíma að tala hreint út um hlutina og þá þarftu að temja þér að vera gagnorður. Að öðrum kosti áttu á hættu að hlutirnirdrukkni í málæði. Naut (20. apríl - 20. maí) Það fer þér ekki að láta dæl- una ganga í tíma og ótíma. Þú þarft ekld að sýnast fyrir neinum. Haltu þig við það að fæst orð bera minnsta ábyrgð. Tvíburar (21.maí-20.júní) Nú reynir meira á hug- kvæmni þína heldur en ein- föld afköst. Þeir eru margir, sem geta unnið störfin, en að- eins þú getur lagt fram hug- myndir, sem duga. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þú ert uppfullur af hugmynd- um og fleiri streyma að þér úr öllum áttum. Aðalatriðið er að þú komir skikki á hlutina og leysir þá svo einn af öðrum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) m Leitaðu eftir aðstoð til a leysa verkefni þitt. Betur sjá augu en auga og margar hendur inna létt verk. Mundu að vera tíl, þegar til þin er leitað. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) (SlL Hver er sinnar gæfu smiður svo þú skalt ekki reyna að af- saka þig með vísan til ann- arra. Þú átt alltaf valið, hvað svo sem aðrir leggja til mál- anna. (23. sept. - 22. október) >W> Það er eitt og annað sem er að vefjast fyrir þér þessa dag- ana. Reyndu ekki að byrgja hlutina inni, heldur ræddu málin við þann/þá sem þú treystir. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Það er engin ástæða til þess að leiða það hjá sér að þú hef- ur uppgötvað misferli hjá samstarfsmanni þínum. Segðu hug þinn undanbragða- laust. Bogmaður m/^ (22. nóv. - 21. des.) mUÍ Láttu það ekki á þig fá, þótt þér finnist undirtektir ann- arra við hugmyndir þínar í daufara lagi. Haltu þínu striki ótrauður. Hinir sjá að sér! Steingeit (22. des. -19. janúar) Nú verður ekki undan því vik- izt að taka forystuna og koma ákveðnu verkefni í höfn. Haltu ótrauður áfram og þú munt uppskera laun erfiðis þíns. Vatnsberi (20. jan.r-18. febr.) ZSk Raunveruleikinn er hér og nú, en hvorki í draumheimi né handan hornsins. Þótt gott sé að láta sig dreyma skaltu hafa báðar fætur á jörðinni. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Það er í mörg horn að líta og þér finnst stundum þú ekki komast yfir allt saman. En það eina sem þú þarft að gera er að skipuleggjahlutina. Stjörnuspána á að Iesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Barnaskóútsala Opið frá kl. 12 til 18 smáskór v/Fákafen Sérstæðar gjafavörur í úrvali Opið virka daga 11-18 Lau. kl. 11—16 I I Bæjarlind 3, Kóp. » W Sími 564 6880 Blanco y] Negro ^ Skólavörðustíg 21a, 101 Reykjavík Sími/fax 552 1220 Netfang: blanco@itn.is Veffang: www.blanco.ehf.is UTSALAN hefst á morgun. 10-70% afsláttur Póstsendum um allt land. BRIDSSKÓLINN Námskeið á vorönn Byrjendur: Hefst 24. janúar og stendur yfir í 10 mánudagskvöld frá kl. 20-23. Framhald: Hefst 26. janúar og stendur yfir í 10 miðvikudagskvöld frá kl. 20-23. Á byrjendanámskeiðinu eru sagnir helsta viðfangsefnið, enda spila- mennskan mest þjálfuð fyrst í stað. Þegar upp er staðið kunna nemendur grundvallareglurnar í Standard-sagnkerfinu og eru orðnir vel spilahæfir. Á framhaldsnámskeiðinu er jafnframt lögð mikil áhersla á varnarsam- starfið og spilamennsku sagnhafa. Það hentar fólki, sem hefur nokkra spilareynslu, en vill taka stórstígum framförum. Kennslugögn fylgja báðum námskeiðum og ekki er nauðsynlegt að hafa með sér spilafélaga. Nánari uppl. og innritun í síma 564 4247 milli kl. 13 og 18 daglega. Bæði námskeiðin eru haldin í húsnæði Bridssambands íslands, Þönglabakka 1 í Mjódd, þriðju hæð. ÚTSALA 50% afsl. af skóm og hlaupafatnaði. Góð merki: NIKE • Adidas • Reebok • Asics Brooks • Puma • Saucony • New Balance • Fila • Mizuno • LA. Gear Finn Comfort • Fet sandalar STOÐTÆKM Sérverslun hlauparans ^STOÐ^EKM Kringlunni 8-12, - Uppsalir 3. h. - S. 581 4711
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.