Morgunblaðið - 16.01.2000, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2000
VIKAN 9/1 -15/1
►ATLANTA hefur nú ein-
göngu breiðþotur í rekstri
sínum. Félagið rekur nú
B747 og Lockheed Tristar
þotur og munu B767 breið-
þotur koma á næstu misser-
um í stað Tristar. Gera for-
ráðamenn félagsins ráð fyrir
því að fyrstu 767 þoturnar
verði komnar í rekstur seint
á árinu.
►LIFTÆKNIFYRIRTÆKIÐ
Urður, Verðandi, Skuld og
Krabbameinsfélag íslands
hafa samið um víðtækt sam-
starf á sviði krabbameins-
rannsókna. Mun UVS m.a.
greiða laun nokkurra vís-
indamanna á rannsóknastofu
Krabbameinsfélagsins vegna
tiltekinna rannsóknarverk-
efna.
►FLUGMENN hjá Flugleið-
um fá 12% launahækkun ef
þeir samþykkja að aðskilja
starfsaldurslista félags-
manna sem starfa hjá Flug-
leiðum og Flugfélagi íslands.
Verða flugmenn því annað
hvort ráðnir til FÍ eða Flug-
leiða og flutningur þeirra
milli véla hjá þessum félög-
um því ekki sjálfsagður leng-
ur.
►STOFNAÐ hefur verið fé-
lag til að undirbúa rekstur
álvers á Reyðarfírði. Eigend-
ur eru Hæfí hf., sem er í
eigu fímm íslenskra fyrir-
tækja og Hydro Aluminium
og heitir nýja félagið Reyð-
arál. Stjórnarformaður er
Geir A. Gunnlaugsson.
►NAFNI Viðskiptaháskól-
ans í Reykjavík var breytt í
Háskólinn í Reykjavík á
föstudag. Rektor skólans
segir það einkum tengjast
framtíðarmöguleikum skól-
ans en til standi að stækka
hann og auka námsúrval.
Víða Ijón og röskun
á samgöngum
SAMGÖNGUR röskuðust víða um
landið og nokkurt tjón varð á mánudag
þegar kröpp lægð gekk yfir. Stór-
streymt var og flæddi sjór á land á
sunnanverðu landinu. Varnargarðar
stóðust ágang nokkuð vel á Eyrarbakka
og Stokkseyri en þeir rofnuðu þó á
kafla og sjór fór yfír veginn austan
Stokkseyrar. I Grindavík skemmdist
löndunarbryggia talsvert og tjón varð á
bílum sem stóðu á bryggjunni.
Atlantsskip fengu
V arnarliðsflutninga
FLUTNINGAR fyrir Varnarliðið verða
áfram í höndum skipafélagsins Atlants-
skipa og Transatlantic. Bandarískur
áfrýjunardómstóll hnekkti úrskurði
undirréttar sem hafði ákveðið að útboð
á flutningunum skyldi fara fram á ný.
Meginrök áfrýjunardómstólsins eru þau
að Atlantsskip og Transatlantic séu að-
skilin fyrirtæki en reglur um flutninga
fyrir Varnarliðið kveða á um að flutn-
ingum sé skipt milli skipafélaga í lönd-
unum.
FBA kaupir enskan
einkabanka
KAUP Fjárfestingarbanka atvinnulífs-
ins á enska einkabankanum Raphael &
Sons eru liður í því að auka þjónustu
FBA við einstaklinga. Bjarni Armanns-
son, forstjóri FBA, segir þjónustu
bankans ekki einskorðaða við íslenskt
atvinnulíf og að þetta sé fyrsta skrefið
að því að færa út kvíarnar á alþjóða-
vettvangi.
Þrjátíu kvótalausir
bátar á sjó
NÆRRI 30 kvótalausir bátar víða af
landinu voru á sjó á miðvikudag og
kváðust útgerðarmenn þeirra þannig
fylgja eftir dómi Héraðsdóms Vest-
fjarða um svokallað Vatneyrarmál sem
snýst um veiðiheimildir skipa án þess
að þau hafi kvóta.
Hyggjast leysa
Pinochet úr haldi
JACK Straw, innanríkisráðherra Bret-
lands, hyggst leysa Augusto Pinochet,
fyrrverandi einræðisherra í Chile, úr
haldi á þeim forsendum að hann sé of
lasburða til að hægt sé að rétta í máli
hans. Straw segir að læknar, sem könn-
uðu heilsufar Pinochets, álíti að hann sé
orðinn of hrumur til að geta varið sig
fyrir rétti. Talsmenn mannréttindasam-
taka og margir samflokksmenn Straws í
Verkamannaflokknum hafa á hinn bóg-
inn krafíst þess að skýrsla læknanna
verði birt en því hafnar ráðherrann.
Einræðisherrann fyrrverandi, sem er
84 ára gamall, hefur verið í stofufang-
elsi í Bretlandi undanfarna 15 mánuði
en hann kom þangað til að leita sér
lækninga. Spænskur dómari fór fram á
að Pinochet yrði framseldur vegna
mannréttindabrota sem framin hefðu
verið gegn spænskum borgurum í Chile
er Pinochet var þar við völd.
Schauble hyggst
ekki segja af sér
WOLFGANG Scháuble, leiðtogi flokks
kristilegra demókrata, CDU, í Þýska-
landi, útilokaði í vikunni að hann myndi
segja af sér. Hann tók árið 1994 við
100.000 marka framlagi í flokksjóð er
síðan var skráð með ólöglegum hætti í
bókhald CDU. Leiðtoginn sagðist ekk-
ert vafasamt hafa gert og kenndi því um
sem hann kallaði „ættföðurlega“ stjórn
Helmuts Kohs, fyrrverandi kanslara, á
flokknum um langt skeið, að féð hafí
verið ólöglega skráð. Kohl hefur viður-
kennt að CDU hafí fengið leynilegar
greiðslur um árabil en vill ekki gefa upp
nöfn gefendanna. Er mál hans nú til
umíjöllunar hjá saksóknara en þeir
sögðust í vikunni ekki telja ástæðu til að
kanna einnig hlut Scháuble.
Kristilegir demókratar skipuðu í vik-
unni nefnd sem á að leggja fram tillögur
um umbætur á fjármálum flokksins.
Verður nefndinni stýrt af Roman
Herzog, fyrrverandi Þýskalandsforseta.
►RÚSSNESKI herinn í
Tsjetsjníu sagðist á miðviku-
dag hafa snúið vörn í sókn og
samkvæmt frásögnum rúss-
neskra fjölmiðla varð mikið
mannfall í röðum skæruliða.
Igor Sergejev vamarmála-
ráðherra skýrði frá því að
stofnaðar hefðu verið sér-
stakar stormsveitir er hefðu
það hlutverk að ná héraðs-
höfuðstaðnum Grosní á sitt
vald. En eitt af dagblöðum
landsins sagði að rás við-
burða í stríðinu væri farin að
minna óþægilega á gang
átakanna 1994-1996 er lauk
með því að herlið Rússa hafði
sig á brott.
►STJÓRN Tyrklands
frestaði á miðvikudag aftöku
kúrdíska skæmliðaleiðtogans
Abdullah Öcalans þar til
MannréttindadómstóII Evr-
ópu hefði kveðið upp úrskurð
í áfrýjunarmáli leiðtogans.
Sumir ráðherrar í sam-
steypusljórn Bulents Ecevits
eru þó ósammála frestuninni
og er jafnvel talið að málið
geti valdið því að stjórnin
falli.
►FJÖLMIÐLASAMSTEYPA
N Time Waraer og netþjón-
ustufyrirtækið AOL hafa
samið um að fyrirtækin renni
saman í eitt og var skýrt frá
samningum þessa efnis á
mánudag. Mun AOL kaupa
hið fyrraefnda á 160 miUj-
arða dollara og greiðist and-
virðið í hlutabréfum. Ef af
verður er um að ræða
stærsta fyrirtælqasamruna
sögunnar. Hjá nýja fyrirtæk-
inu munu starfa um 80.000
manns. Meðal ráðamanna
Time Warner er Ólafur Jó-
hann Ólafsson.
MORGÚNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
Slökkviiiðsmenn sjúga upp vatn af gólfum rannsóknastofu í lyQafræði í Haga við Hofsvallagötu.
Vatnsleki í rannsóknastofu
VATNSSLANGA fór í sundur með
þeim afleiðingum að vatn flaut um
öll gólf í rannsóknastofu Háskói-
ans í lyfjafræði í Haga við Hofs-
vallagötu í gærmorgun. Slökkvi-
liðið var kallað út skömmu eftir
klukkan sjö og þegar komið var á
staðinn var um tommudjúpt vatn
á öllum gólfum rannsóknastofunn-
ar, sem er um 350 fermetrar.
Samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliðinu gekk vel að þurrka
upp gólfin og var því lokið á el-
lefta tímanum. Þarna er dúkur á
gólfum sem hélt vatninu vel og
kom í veg fyrir að það ylli veru-
legu tjóni. Eitthvert vatn hafði
lekið niður á neðri hæðina, en
tjón af völdum vatnsins var lítið
að sögn varðstjóra hjá slökkvilið-
inu.
Stj órnsýslukæra
vegna akstursíþrótta
LANDSSAMBAND íslenskra akst-
ursfélaga, LÍA, hefur verið kært til
dómsmálaráðuneytisins vegna
framkvæmdar á sviði aksturs-
íþrótta. Kærendur eru Jeppa-
klúbbur Reykjavíkur og Bíla-
klúbbur Akureyrar og eru
kæruatriði þrjú.
Kærð er sú ákvörðun LÍA að úti-
loka Jeppaklúbb Reykjavíkur, JR,
og Bílaklúbb Akureyrar, BA, frá
keppnishaldi á þessu ári; sú ákvörð-
un LÍA að fela Keppnishaldsfélagi
LÍA keppnishald og eða yfirstjórn á
keppnishaldi á akstursíþróttum og
framsal LIA á ákvörðunum um
keppnishald til KLÍA.
Þess er einnig krafist að ráðu-
neytið ógildi samþykkt stjórnar
LIA frá 15. desember sl. um út-
hlutun keppna, að ráðuneytið taki
ákvörðun um aukaaðalfund LÍA og
stýri honum, að það afli og miðli til
félaganna tveggja upplýsingum um
fjármál og rekstur kepgna á vegum
Mótorrits ehf. eða KLÍA á síðasta
ári og til vara að JR og BA verði
gefið leyfi til að halda þær keppnir í
akstursíþróttum sem hafa verið á
vegum þeirra undanfarin ár.
Ragnar Kristinsson, formaður
Jeppaklúbbs Reykjavíkur, og
Gunnar Guðmundsson varaformað-
ur tjáðu Morgunblaðinu að nauð-
synlegt væri að kæra þá ákvörðun
stjórnar LÍA að útiloka félagið og
Bílaklúbb Akureyrar frá því að
halda keppnir í akstursíþróttum,
sem þau hefðu gert um árabil, Ak-
ureyrarfélagið mun lengur.
I röksemdum lögmanns kærenda
segir að ákvörðun stjórnar LIA feli
í sér brot á stjórnarskrárvernduð-
um eignarrétti félaganna tveggja
svo og ákvæðum stjórnsýslulaga
um réttláta og sanngjama máls-
meðferð. LIA sé falið með ákvæð-
um reglugerðar 385/1999 að hafa yf-
irumsjón með akstursíþróttum og
að reglugerðin byggist á þeirri for-
sendu að LÍA sé samband aksturs-
íþróttafélaga sem annist sjálf
keppnishaldið. „Sú ákvörðun
stjórnar LÍA að útiloka umbjóðend-
ur mína frá keppnishaldi stríðir því
gegn þeirri forsendu sem reglu-
gerðin byggist á, auk þess sem
ákvörðunartaka stjórnarinnar var
ekki í samræmi við eðlilega og lög-
mæta stjórnsýsluhætti, þ.e. um-
bjóðendur mínir voru sviptir and-
mælarétti, þeim var ekki tilkynnt
formlega um ákvörðun stjórnar,
upplýsinga- og rannsóknaskyldu
var ekki gætt né jafnræðisreglu,
auk þess sem vafí leikur á hæfi allra
þeirra stjórnarmanna sem stóðu að
ákvörðuninni," segir m.a. í greinar-
gerð lögmanns kærenda, Þorbjarg-
ar I. Jónsdóttur.
í greinargerð vegna kæru á
þeirri ákvörðun stjórnar LÍA að
fela Keppnishaldsfélagi LÍA keppn-
ishald og/eða yfirstjórn á keppnis-
haldi í akstursíþróttum segir að í
apríl 1999 hafi verið haldinn stofn-
fundur KLÍA þar sem til hafi staðið
að akstursíþróttafélög mynduðu
með sér félagsskap sem hefði um-
sjón með keppnishaldi í aksturs-
íþróttum, til að aðstoða félög sem
þegar hefðu keppnishald með hönd-
um og til að auka fagmennsku í
greininni. Skiptar skoðanir hafi ver-
ið á stofnfundinum en þar hafi m.a.
komið fram sú hugmynd að stofna
einkahlutafélag af KLÍA, LÍA og/
eða aðildarfélögum eða að Móttorit
ehf., sem stofnað var 1995 af
ótengdum aðilum, yrði yfirtekið í
þessu skyni. Ekki hafi náðst niður-
staða á fundinum og hafi verið rætt
að halda framhaldsfund, sem ekki
hafi orðið enn.
Athugasemdir
við skuldastöðu
Þá kemur fram í greinargerðinni
að fulltrúar JR og BA hafi gert al-
varlegar athugasemdir við rekstur
keppnishalds akstursíþrótta á síð-
asta ári með tilliti til skuldastöðu
Mótorrits ehf., sem skuldi að
minnsta kosti 7 milljónir króna, og
eignir séu litlar á móti þeim. KLIA
og Móttorit ehf. hafi ekki hæfi til að
fara með keppnishald í aksturs-
íþróttum. „Þá hafa þessir aðilar
ekki umboð til að taka keppnirnar
yfir frá þeim akstursíþróttafélögum
sem hafa annast þetta keppnishald í
áratugi og þannig skapað sér rétt til
þeirra, sem verður ekki af þeim tek-
inn án samþykkis eða rökstuddrar
ákvörðunar sem byggist á málefna-
legum forsendum," segir einnig í
greinargerð lögmanns kærenda.
Nokkur hundruð manns
nota nýtt offítulyf
NOKKUR hundruð sjúklingar hafa
notað offitulyfið xenical síðan notkun
þess hófst hér á landi um mitt síðasta
ár, að sögn Stefáns Gissurasonar,
lyfjafræðings hjá Thorarensen Lyf
ehf., sem flytur lyfið inn. Lyfið er
fyrsta lyfið sem skráð er til notkunar
við offitu hér á landi.
Borist hafa fréttir af því að velta
svissneska lyfjafyrirtækisins Hoff-
mann-LaRoche hafi aukist um 12% á
síðasta ári frá árinu á undan og num-
ið 27,6 milljörðum svissneskra
franka, eða nærri 1.300 milljörðum
króna. Söluaukning fyrirtækisins er
einkum offítulyfinu xenical að þakka
en það lyf seldist fyrir næiri 1 millj-
arð franka, eða 46 milljarða króna.
Xenical er lyf sem hemur virkni
emsímsins lípasa í meltingarvegi og
kemur þannig í veg fyrir að hluti af
fitu í fæðunni brotni niður. Þessi
hluti fítunnar skilst óbreyttur í
gegnum meltingarveginn. Stefán
sagði að lyfið leiddi til þess að fitu-
upptaka £ líkamanum væri 30%
minni en ef lyfsins er ekki neytt.
Stefán sagði að reynslan af þessu
lyfi væri nokkuð góð. Fólk væri að ná
heldur betri árangri en af megrun án
sérstakra hjálparmeðala. Inntaka
lyfsins hefði einnig jákvæð áhrif á
blóðfitu og fleira. Hann sagði að
samhliða því að taka lyfið væri nauð-
synlegt fyrir sjúklinginn að halda í
við sig í mat. Lyfið gæti því hjálpað
fólki að ná tökum á mataræði, en það
væri með þetta eins og annað að ef
fólk tæki upp fyrra líferni eftir að
töku lyfsins væri hætt félli allt í sama
far. Lyfið væri því engin töfralausn
fyrir þá sem ættu við offituvandamál
að stríða.
Lyfið er lyfseðilsskylt. Mánaðar-
skammturinn kostar frá 7.500-9.000
krónur. Innflytjandinn mælir með
notkun lyfsins í a.m.k. 12 vikur og
ekki lengur en £ tvö ár samfleytt.