Morgunblaðið - 16.01.2000, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. JANÍJÁR 2000 ' l’l
Aðalheiður ásamt syninum Ágiísti Inga Aðalheiðarsyni.
Það hljómar kannski
kaldranalega o g
fjarlægt en í framtíð-
inni þá tel ég að
umhverfismálin í
heiminum muni fyrst
og fremst snúast um
matvæli og vatn en
manníjöldaspár eru
nánast ógnvekjandi.
in skili sér á hagnýtan hátt. Ef við skoðum ís-
lenskan rétt sjáum við nú þegar nokkra nýja
lagabálka á sviði umhverfisréttar sem vísa til
sjálfbærrar þróunar. Til dæmis nýju náttúru-
verndarlögin.
Islendingar ekki
eftirbátar annarra
Þegar verið er að semja ný lög þarf undir-
búningur löggjafar að vera ákaflega vandað-
ur, ekki aðeins tillagan að lagatextanum held-
ur einnig greinargerðir sem fylgja honum. Að
mínu mati þarf að leggja enn meiri vinnu í
smáatriði til dæmis ákveðin viðmið í lagatexta
til þess að auðvelda framkværpd laga og
reglugerðasmíð. Jafnframt þarf gð skýra og
útfæra meginreglur umhverfisréttar; :Það er
ekki nóg að setja fram meginreglur án þess
að útfæra þær í viðeigandi lögum.Og hafa
verður í huga að framl»æmdin getur ekki
orðið fyllri en lögin gefa tííefni tiL
Samt sem áður tel ég að við íslendingar
séum engir eftirbátar nágrannalanda okkar í
þessum efnum nema ef vera kynni Finna, en
þeir hafa á síðustu tíu árum lagt mikla
áherslu á umhverfísrétt og hefur tekist vel til
hjá þeim.
Ein af meginreglunum sem er í umræðunni
um umhverfisrétt er varúðarreglan það er því
nauðsynlegt að hún sé vel skilgreind í lögum.
Síðan er afar mikilvægt að menn geri sér
grein fyrir muninum á varúðarreglu (precaut-
ionary principle) og klassískri verndarreglu í
umhverfisrétti (preventive principle).
Innihald varúðarreglanna er að mörgu
leyti óljóst en það eru til margar varúðarregl-
ur í alþjóðlegum umhverfisrétti. í frumvarpi
til laga sem lagt var fyrir Alþingi 1997-98
kveður varúðarreglan á um að; „Ef hætta er
talin á alvarlegu óbætanlegu umhverfistjóni
má ekki beita fyrir sig skorti á vísindalegri
fullvissu sem rökum fyrir því að fresta að-
gerðum er koma í veg fyrir hugsanlegt tjón.“
Varúðarreglan mikilvæg
Það eru fáir fræðimenn í þjóðarétti sem
viðurkenna að varúðarreglan, hvort sem hún
er ein eða fleiri, hafi öðlast þann sess að hægt
sé að vísa til hennar sem þjóðréttarvenju.
Hins vegar fallast flestir á ákveðinn kjarna
sem felst í því að taka tillit til óvissra orsaka-
tengsla á milli tiltekinna athafna og afleiðinga
þeirra. Sú óvissa á að vera grundvöllur
ákvörðunartöku, þá væntanlega í þá átt að að-
hafast ekki.
Til að skýra þetta betur má taka dæmi um
ýmis eiturefni sem voru á markaði fyrr á
þessari öld og voru leyfð þótt ýmislegt benti
til þess að þau væru hættuleg. Ef varðúrregl-
an hefði verið til og henni beitt þá hefðu efnin
ekki verið leyfð þótt neikvæð áhrif þeirra
væru ekki full sönnuð.“
Grunnhugsunin í varúðarreglunni í íslensk-
um rétti hefur eins og áður segir ekki verið
lögfest hins vegar eru ýmsar lagalegar leiðir
eins og til dæmis mat á umhverfisáhrifum
sem gera það auðveldara að meta afleiðingar
athafna sem hafa áhrif á umhverfið.
Það er nauðsynlegt að útfæra varúðarregl-
una í allri íslenskri umhverfislöggjöf og
tengja hana sjálfbærri þróun svo hægt sé að
gera hugsunina urh sjálfbæra þróun lagalega
framkvæmanlega.
Nauðsynlegt að semja heildarlöggjöf
um umhverfisvernd
Ég tel mig að minnsta kosti hafa séð eina
tilraun til að nota hugsunina í varúðarregl-
unni í framkvæmd. En veruleikinn er sá að
lagaramminn sem útfærslan byggir á nægir
að mínu mati ekki ef á reyndi í dómsmáli.“
„Ég er hér að ræða um lögin um mat á um-
hverfisáhrifum sérstaklega 10. grein laganna
og úrskurð um kísilgúrvinnslu úr Mývatni. í
úrskurðinum segir m.a.: „ ...að ekki hafi verið
sýnt fram á að fyrirhugað kísilgúrnám í Mý-
vatni kunni ekki að hafa í för með sér um-
talsverð umhverfisáhrif." Ég fæ ekki betur
séð en að þarna sé verið að snúa sönnunar-
byrðinni við án þess að lögin gefi tilefni til
þess. Ég vil því ítreka að það er afar áríðandi
að útfæra kjarnann í varúðarreglunni. Ekki
einungis hvað varðar löggjöf
sem tilheyrir umhverfisráðherra
heldur einnig í umhverfislöggjöf
sem aðrir ráðherrar bera ábyrgð
á.“
Aðalheiður er spurð að því
hvað þyrfti að hennar mati að
gera hér á landi til að gera ís-
lenska umhverfislöggjöf betri?
„Það yrði til bóta að semja
heildarlöggjöf um umhverfis-
vernd. Það sem vinnst með því
er að auðveldara væri að sam-
ræma markmið og meginregl-
urnar. Þá yrði stærsti hluti
löggjafarinnar í einum bálki.
Framkvæmdalega getur það
verið hentugt.
Loks verða menn að gera sér
grein fyrir því að framkvæmd
góðrar umhverfislöggjafar hefur
í för með sér kostnað sem á end-
anum lendir á skattgreiðendum
eða neytendum. Það er áríðandi
að aukinn kostnaður vegna um-
hverfisverndar hafi ekki haml-
andi áhrif á atvinnulífið og kröf-
ur sem lagðar á það séu
sanngjamar og eðlilegar.
Gott að ala upp börn
í Svíþjöð
Ég tel íslenska umhverfislög-
gjöf vera á réttri leið en það þarf
að leggja meiri áherslu á að gera
sér grein fyrir afleiðingum fram-
kvæmda.“
Aðalheiður er hér í stuttri
heimsókn ásamt þriggja ára syni
sínum, Ágústi Inga Aðalheiðarsjmi. Að heim-
sókninni lokinni heldur hún aftur til Svíþjóð-
ar þar sem þau búa ásamt íslenskri heimilis-
hjálp sem aðstoðar við heimilishaldið.
Aðalheiður segir gott að búa í Svíþjóð, þar sé
vel hlúð að námsmönnum og ágætis umhverfi
til að ala upp börn. Segist hún hafa kynnst
nokkmm íslenskum fjölskyldum í Uppsölum
en þar sé ekki eins mikið af íslendingum eins
og hér á árum áður. Þeir sem þarna stundi
nám nú séu einkum í líffræði læknisfræði og í
málvísindum.
Aðalheiður er fædd og uppalin í Reykjavík,
dóttir hjónanna Ingibjargar Sigurðardóttur,
handmenntakennara og Jóhanns Ágústar
Gunnarssonar, rafvirkja, en hann starfaði
lengi sem verktaki í Reykjavík en þau em lát-
in. Aðalheiður er því Reykvíkingur í húð og
hár.
En hvemig er það fyrir hana að vera í
ströngu námi og ala ein önn fyrir þriggja ára
barni? „Námið er eins og hver önnur vinna og
það þykir ekki tíðindum sæta þótt einstætt
foreldri vinni fullan vinnudag. Ég lít á það
sem hrein forréttindi að mega ala upp son
minn og stunda þessa vinnu mína.“
UTSALAN HEFST 4 MORGUN
ÚTSALAN HEFST Á MORGUN
ÚTSALAN HEFST Á MORGUN
Jakkafót
Stakir jakkar
Buxur
Skyrtur
2 fyrir |
30-50% afsláttur af öllum vörum
m
H ERRAFATAVERSLUN
BIRGIS
FAKAFENI 11 • 108 REYKJAVIK • SIMI 553 1170