Morgunblaðið - 16.01.2000, Page 16
16 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Arsenal óskar eftir að Nígeríumaðurinn Kanu leiki gegn Manchester United
Afríkukeppnin dregur tenn-
umar úr félagsliðum Evrópu
VONBRIGÐI og óánægja Ars-
ene Wengers, hins franska
knattspyrnustjóra Arsenal, yfir
því að missa nígeríska sóknar-
manninn Nwankwo Kanu
vegna þátttöku hans í landsiiði
Nígeríu í Afríkukeppninni, hef-
ur hlotið mikla athygli upp á
síðkastið. Eftir að hafa staðið í
stappi við forsvarsmenn níger-
íska knattspyrnusambandsins
í viðleitni sinni til að fá að tefla
Kanu fram í bikarleik gegn
Leicester fyrir viku, þar sem
Frakkinn fékk vilja sínum
framgengt, hefur hann farið
þess á leit við Nígeríumennina
að Kanu leiki með Arsenal
gegn Manchester United hinn
24. janúar nk., en Afríku-
keppnin hefst tveimur dögum
áður.
Við getum staðfest að við höfum
haft samband við knatt-
spyrnusamband Nígeríu, til að at-
huga hvort hægt sé
■■■■■■ að fá Kanu lausan á
Edwin meðan mótinu
Rögnvaldsson stendur," sagði
tóKsaman talsmaður Arsenal.
Astæða þess hve hart Wenger
sækist eftir Nígeríumanninum eru
meiðsli hollensku sóknarmann-
anna Dennis Bergkamps og Marc
Overmars. Króatinn Davor Suker
verður í leikbanni og því er Frakk-
inn Thierry Henry eini sóknar-
maðurinn, sem hefur átt fast sæti í
aðalliði félagsins, sem getur tekið
þátt í leiknum.
Hótanir Nígeríumanna
í garð eigin leikmanna
Hinsvegar virðist vandi Weng-
ers nánast hégómlegur í saman-
burði við ástandið í herbúðum Lut-
on í 2. deild í Englandi, þar sem
Lennie Lawrence er við stjórnvöl-
inn. Hann kýs að tefla nígeríska
varnarmanninum Efetobore Sodje
fram eins oft og kostur er.
Lawrence hefur þó ekki orðið að
ósk sinni að undanförnu, þar sem
Nígeríumennirnir hafa hótað Sod-
je að hann fái aldrei framar að
leika með landsliði Nígeríu ef hann
lýtur ekki að vilja þeirra.
„Hann hefur verið í burtu í æf-
ingabúðum í um tvær vikur, sem
við erum allt annað en ánægðir
með. En landsliðsþjálfarinn sagði
honum að hann yrði að slást í hóp-
Reuters
Nwankwo Kanu er einn margra leikmanna nígeríska landsliðsíns, sem yfirgefa vinnuveitendur sína
á miðju keppnistímabili til að leika í langri og strangri Afríkukeppni.
inn með liðinu, ellegar léki hann
aldrei með landsliðinu aftur. Þessi
kúgun virðist hafa borið árangur
og Sodje komst í liðið. Hann hlýtur
að hafa vakið hrifningu þjálfarans.
En við höfum verið án hans í tvær
vikur og verðum það áfram í rúm-
an mánuð til viðbótar. Þess vegna
spyr ég hvort það komi í okkar
hlut að borga manninum laun?
Hvað gerir nígeríska knattspyrnu-
sambandið fyrir okkur? En við
megum ekki vera nirfilslegir, er
það?“
Lawrence nefndi Kim Grant,
fyrrverandi sóknarmann Luton, til
sögunnar. Sá var eitt sinn boðaður
í herbúðir landsliðs Ghana og var
vart skugginn af sjálfum sér er
hann kom aftur til Englands.
„Þegar hann kom til baka eftir
leiki landsliðsins í undankeppni
var hann nær örmagna af þreytu
og náði sér aldrei á strik,“ sagði
stjórinn. Hann kvaðst þó ekki svo
svartsýnn á þátttöku Sodjes í
leikjum nígeríska landsliðsins.
„Vitaskuld vonast ég til þess að við
njótum góðs af þeim lærdómi, sem
hann dregur vonandi af því að
leika með landsliði Nígeríu," sagði
Lawrence.
Vangaveltur Lawrence endur-
spegla heilabrot margra sam-
starfsmanna hans og annarra, sem
hagsmuna eiga að gæta í evrópskri
knattspyrnu. Hafa þeir átt erfitt
með að sætta sig við að FIFA
standi fyrir mótum á borð við Af-
ríkukeppnina og heimsmeistara-
keppni félagsliða á miðju keppn-
istímabili. FIFA setur reglur, sem
setja félagsliðum stólinn fyrir
dyrnar. Félög af smærri gerðinni
verða jafnan fyrir mikilli blóðtöku,
líkt og Luton í þessu tilviki. Ars-
ene Wenger hefur einnig bent á að
umræddur Kanu hefði aldrei verið
tekinn til greina í landslið Nígeríu
nema Arsenal hefði tekið hann upp
á sína arma, þar sem Kanu sat á
varamannabekk Internazionale á
Italíu eftir að hafa gengist undir
hjartaaðgerð. Því standi Nígeríu-
menn í þakkarskuld við Arsenal.
Starfsbróðir Wengers hjá Luton
vakti einnig athygli á því hvort fé-
lagsliðum beri að greiða leikmönn-
um sínum laun á meðan þeir taka
þátt í móti á borð við Afríkukeppn-
ina, en úrslitakeppni hennar tekur
heilan mánuð og fer fram á miðju
keppnistímabili á meginlandi
Evrópu.
Baumann
heitir mil-
Ijóna verð-
launum
ÞÝSKI langhlauparinn, Dieter
Baumann, hefur allar klær úti
til þess að koma sér undan
tveggja ára keppnisbanni, sem
hann á yfir höfði sér eftir að
hafa fallið á lyfjaprófi í lok síð-
asta árs. Nú hefur hann heitið
rúmlega 3,5 milljónum þeim
sem getur upplýst hver kom
hormónalyijum fyrir í tann-
kremstúbu á heimili hans. Hor-
'mónalyfið nandrolone mun hafa
fundist í tannkremi á heimili
hans við rannsókn nokkru fyrir
jól.
Baumann heldur statt og
stöðugt fram sakleysi sínu og
hefur hvatt hvern þann sem
getur upplýst „tannkremsmál-
ið“ að gefa sig fram. Ekki er
talið sennilegt að Ólympíu-
Reuters
Dieter Baumann
meistarinn fyrrverandi nái að
upplýsa málið með þessu til-
boði.
Baumann er í tímabundnu
keppnisbanni þar til dómstóll
þýska fijáisíþróttasambandsins
kemur saman í lok mánaðarins
til að taka málið fyrir og taka
ákvörðun um keppnisbann.
Lyjamisnotkun
veldur fötlun
Á ÁRUM Austur-þýska al-
þýðulýðveldisins var lyfjamis-
notkun skipulögð af öryggislög-
reglunni Stasi í þeim tilgangi að
bæta árangur iþróttamanna, eink-
um í sundi og frjálsíþróttum.
Þetta fékkst staðfest eftir fall
Berlínarmúrsins fyrir rúmum tíu
árum og siðan hafa læknar og
þjálfarar verið dregnir fyrir dóm
í Þýskalandi sakaðir um að hafa
staðið að lyfjamisnotkuninni og
hreinlega logið að íþróttamönn-
unum að þeir væru að taka víta-
mín og bætiefni en ekki hormóna-
lyf og önnur ólögleg lyf. Hefur
lyQanotkunin haft varanleg áhrif
á heilsu marga fþróttamanna A-
Þýskalands enda þeim oft og tíð-
um verið gefnir mjög stórir
skammtar af ýmsum efnum.
í vikunni hófust réttarhöld yfir
Lothar Kipke lækni sem starfaði
með sundmönnum A-Þýskalands á
sinni tíð. Er honum gefið að sök
að hafa með skipulagðri lyflagjöf
átt þátt í að skaða varanlega
heilsu a.m.k. 54 sundmanna. Ekki
er nóg með að heilsa sundmann-
anna hafi beðið varanlegan skaða
heldur hefur neyslan einnig kom-
ið niður á afkomendum þeirra
með þeim hætti að þeir hafa fæðst
með ýmiskonar fötlun. Skiptir þá
engu máli þótt foreldrarnir hafi
verið hættir íþróttaiðkun og lyfja-
notkun.
Margir íþróttamenn og þjálfar-
ar hafa á síðustu ánim afiijúpað
þann leyndardóm sem umlukti
neyslu ólöglegra lylja í A-
Þýskalandi á sinni tíð. M.a. viður-
kenndi Horst-Dieter Hille, þjálfari
fijálsíþróttaliðs SC Jena, að
íþróttamönnum liðsins hefðu á
skipulegan hátt verið gefin ólög-
leg lyf á árinum 1975 til 1988.
Hefði Stasi haft umsjón með fram-
kvæmdinni og haft njósnara á sín-
um snærum til að fylgjast með að
íþróttamenn tækju inn efnin.
Hille sagði að einn þeirra
íþróttamanna sem var í þessari
„neyslu“ hefði verið Marlies Göhr,
gullverðlaunahafi í 4x100 metra
boðhlaupi kvenna á Ólympíuleik-
unum 1976 og 1980 og silfur-
verðlaunahafi í 100 metra hlaupi
1980 auk þess að vera Evrópum-
eistari í 100 metra hlaupi íþrí-
gang, 1978,1982 og 1986. Hún var
á sinni tíð fremsti spretthlaupari
A-Þjóðverja og tímar hennar eru
enn í dag með þeim allra bestu
sem náðst hafa í 100 og 200 metra
spretthlaupum í kvennaflokki.