Morgunblaðið - 16.01.2000, Side 20
20 SUNNUDAGUR 16. JANUAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Rauðvik
MYNDLIST
KjarvalsstaAir
MÁLVERK-CLAUS EG-
EMOSE, NINA ROOS,
TUMIMAGNÚSSON og
JOHAN VAN OORD
Til 12. mars. Opið daglega frá kl.
10-18. Aðgangur kr. 300. Ókeypis
mánudaga.
RAUÐVIK kallast fyrirbærið
þegar litróf fjarlægrar stjörnu, eða
stjörnuþoku sveigist til rauðs litar.
Yfirleitt er fyrirbærið skýrt með
svokölluðum Doppler-hrifum, en
austurríski eðlisfræðingurinn
Christian Johann Doppler, gerði sér
fyrstur manna grein íyrir fyrirbær-
inu árið 1842. Doppler-hrifin leiða í
ljós breytingar sem verða á bylgju-
tíðni þegar sá hinn sami hreyfist í
takt við bylgjuna sem nemur hana.
Þannig eykst tíðnin þegar hann nálg-
ast uppruna bylgjunnar, en þverr ef
hann fjarlægist staðinn. Hvað varðar
hljóðbylgjur þá orsaka Doppler-hrif-
in fall á tónhæð eimpípu þegar járn-
brautarlest æðir framhjá, og hljóð-
hvell þegar stuðbylgjur frá
hljóðfrárri þotu skella á hlustum
áheyrenda á jörðu niðri. Hvellirnir
geta verið tveir; þegar nef þotunnar
rífur keilulaga bylgjusveiminn með
því að halda framúr honum og aftur;
þegar stél hennar klýfur hann. Þá
getur þotan verið horfin sjónum okk-
ar þegar hvellunum þóknast að
skella til jarðar.
Rauðvikin sýna að stjömur og
stjörnuþokur fjarlægjast okkur.
Þannig era þau helstu rök okkar fyr-
ir útþenslu alheimsins og bjúglögun
hans. Blávik skynjum við hins vegar
þegar hlutir nálgast okkur utan úr
geimnum.
Undirtitillinn á sýningu fjórmenn-
inganna, Egemose, Roos, van Oord
og Tuma Magnússonar - „Málverk í
og út úr fókus“ - verður því ekki skil-
inn öðruvísi en svo að þar fari verk
sem búi yfir áhrifamætti sjálfra him-
intunglanna. Það er allsérstakt því
yfirleitt kjósa listamenn að vitna til
hugans og ímyndunaraflsins innra
með okkur fremur en óravíddanna
utan og ofan okkar. En þegar texti
Tom Juul Andersen, dósents í stjam-
eðlisfræði, er lesinn í ágætri íslenskri
þýðingu - og sannar að sýningar-
skráin er góðra gjalda verð - verður
manni hugsað til orða Johns heitins
Constable, hins mikla rómantíska,
19. aldar málara: „Imyndunaraflið
má sín lítils frammi fyrir óendanlegu
ríkidæmi raunveruleikans."
Sýning Claus, Nínu, Jóhanns og
Tuma sýnir svo ekki verður um villst
að abstraktmálverkið lifir góðu lífi í
trássi við allar hrakspár og barlóm
listunnenda, sem eru býsna ötulir við
að klifa á bágri stöðu málverksins
þessum „síðustu ogverstu...“
En málverkið lifir góðu lífi, og síst
væsir um það á sýningunni í vestur-
sal Kjarvalsstaða. Norrænu málar-
amir þrír og hollenskur gestur
þeirra era að vísu af þeim gæðastaðli
sem er alltof sjaldgæfur í hinu dag-
lega haframélssulli sem líka vill láta
kalla sig málaralist, þótt þar sé að-
eins tjaldað til einnar nætur, eða
nægilega lengi til að blekið á ávísun-
inni þorni sem ríkir menn era stöð-
ugt að fleygja í verðlausa vitleysu,
KVDLDl
KOMVOGS^
NÁMSKEIÐ Á VORÖNN 2000
TUNGUMÁL
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
Kennt er í byrjenda-, framhalds-
og talæfingaflokkum
ENSKA
Enska I
Enska I frh
Enska II
Enska II frh
Enska III—IV
Tal og leshópur
DANSKA
Upprifjun á
grunnskóladönsku
Tal og leshópur
NORSKA
Norska I—II
Norska III
SÆNSKA
Sænska fyrir tvítyngd börn
9-12 ára
Sænska I—II
Sænska III
FRANSKA
Franska I
Franska I frh
Tal og leshópur
ÍTALSKA
ítalska I
ítalska I frh.
SPÆNSKA
Spænska I
Spænska I frh
Spænska II
ÍSLENSKA
fyrir údendinga
Byrjendur
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
BÓKBAND
10 vikna námskeið
40 kennslustundir
GLERLIST
10 vikna námskeið
40 kennslustundir
KÁNTRÝ FÖNDUR
Gluggahlerar 8 kennslust.
Dagatal 8 kennslust.
Klukka 8 kennslust.
KÖRFUGERÐ
Laukkarfa 5 kennslust.
Eplakarfa 10 kennslust.
Melónukarfa og brauðbakki
LEIRMÓTUN
6 vikna námskeið
25 kennslustundir
SKRAUTRITUN
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
LJ ÓSM YNDATAKA
3 vikna námskeið
9 kennslustundir
TRÉSMÍÐI
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
TRÖLLADEIG
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
ÚTSKURÐUR
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
FRÍSTUN DAMÁLUN
8 vikna námskeiðO
32 kcnnslustundir
VIDEOTAKA
1 viku námskeið
14 kennslustundir
BÚTASAUMUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
BÚTASAUMSTEPPI
4 vikna námskeið
16 kennslustundir
FATASAUMUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
BÓKHALD smærri fyrirtækja
4 vikna námskeið
24 kennslustundir
VÉLRITUN
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
RÉTTRITUN OG
MÁLFRÆÐI
8 vikna námskeið
16 kennslustundir
Tölvunámskeið:
WORD og WINDOWS
fyrir byrjendur
4 vikna námskeið
20 kennslustundir
WORD II
4 vikna námskeið
20 kennslustundir
EXCEL fyrir byrjendur
3 vikna námskeið
20 kennslustundir
INTERNETIÐ OG
TÖLVUPÓSTUR
1 viku námskeið
8 kcnnslustundir
FITUSNAUTT
GRÆNMETISFÆÐI
3 vikna námskeið
12 kennslustundir
GÓMSÆTIR
bauna-, pasta- og
grænmetisréttir
Byrjenda- og
framhalds námskeið
3 vikna námskeið
12 kennslustundir
BRAUÐBAKSTUR
1 viku námskeið
5 kennslustundir
FRÖNSK MATARGERÐ
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
HEIMILISGARÐURINN
2 viku námskeið
8 kennslustundir
TRJÁKLIPPINGAR
1 viku námskeið
5 kennslustundir
EIGIN ATVINNUREKSTUR
2 vikna námskeið
20 kennslustundir
REKSTUR OG STJÓRNUN
FYRIRÆKJA
Námskeið í samvinnu við
Atvinnumálanefnd Kóp. og
útibú Búnaðarbankans í Kóp.
• Fjármögnun atvinnufyrirtækja
• Markaðssetning og sala
• Viðskipti á Internetinu
Starfsmenntunarsjóðir ýmissa stéttarfélaga styrkja félagsmenn sína til náms í Kvöidskóla Kópavogs,
t.d. BSRB, BHMR, Sókn, Dagsbrtin, Framsókn - stéttarfélag, VR og Starfsmannafélag Kópavogs.
Fyrstu námskeiðin hefjast 24. janúar
Innritun og upplýsingar um ndntskeiðin 10.-20. janúar Id. 17—21
í si'mum 564 1507, 564 1527 og 554 4391 og á skrifstofu Kvöldskólans í Snælandsskóla.
Ónefnt málverk eftir Ninu Roos, 1998. Olía á akrýlgler, 30 x 35 cm.
sennilega af því þeim finnst þenslan
ekki næg og draslið ekki njóta sann-
mælis.
Claus Egemose spilar í verkum
sínum á mismunandi glans og áferð.
Eitt af verkum hans líkist meir að
segja húddi af bíl, enda fagurlega
málað með bílalakki. Frá nætur-
dökkum og möttum litum til áferðar-
ríkra, hálfglansandi og þykkra
smumingsverka liggur leið Egemose
áfram gegnum framskóg aðferðar-
fræðinnar þar sem hann varðveitir
frelsi sitt og gefur sjálfum sér leyfi til
að gera eitt í dag og annað á morgun.
Nina Roos er einnig smituð af
þessum leikandi frelsisanda sem
fólginn er í ómælisvíddum alheims-
ins. Hún hefur ekki áður leyft sér
jafnhikiaus vinnubrögð á plexiglerið,
sem ljær verkum hennar sérkenni-
lega mjólkurlitan og þokukenndan
svip. Frammi fyrir verkum hennar
finnst áhorfandanum sem hann sé í
þann mund að höndla hlutveraleik-
ann, en verður þess jafnskjótt ás-
kynja að allt hrekkur undan sjónum
hans af því að veröldin er ekki kyrr-
stæð.
Heillandi og næsta barnaleg kerfi
Johans van Oord búa hins vegar yfir
litrænum blæbrigðum sem kallast á
við verk Ninu um leið og þau gefa til
kynna að ef til vill njóti málaralistin
sín best þegar hún er laus við drama-
tískar áætlanir og stórbrotin áform,
en leyfir sér að umfaðma látleysið og
hversdagsleikann, trú töfrum andar-
taks og augnabliks.
Og Tumi Magnússon ítrekar þann
skilning með myndröð sinni sem
fjallar um lit kaffisins og vökvanna
sem undan okkur renna þegar kaffi-
drykkjan hefur náð hámarki. Móti
þessari myndröð leikur hann sér svo
með nýstárleg jaðarverk; aftnyndað-
ar litastúdíur af óæðri enda ýmissa
tækja sem við getum ekki án verið,
svo sem síma og vekjaraklukku.
Þessum litastúdíum, útfærðum með
blekspraututækni á renninga, finnur
hann svo dásamlega látlausan stað á
jöðrum skilveggjanna í salnum.
Rauðvik, eða „Málverk í og út úr
fókus“, er sýning sem sýnir okkur
hvemig málaralistin artar sig, og
hversu mjög ferli hennar svipar til
rauðvika og blávika, allt eftir því
hvernig við eram innstillt gagnvart
óendanlegum möguleikum hennar.
Halldór Björn Runólfsson
Barnabóka-
verðlaun Æsk-
unnar 2000
ÆSKAN, Búnaðarbankinn og Sjó-
vá-Almennar standa að verðlauna-
samkeppni um besta handrit að
myndskreyttri sögu handa ungum
lesendum á aldrinum 6-8 ára. Verð-
launaféð er að upphæð 300.000
krónur.
Utgáfa myndskreyttra barna-
bóka er gjarnan dýrari en útgáfa
sem ætluð er eldri lesendum en þol-
ir ekki svipaða verðlagningu og aðr-
ar bækur. Með þessari verðlauna-
samkeppni er reynt að örva
íslenska höfunda til að semja verk
handa yngri lesendum og eins til að
auka fjölbreytni í þeirri útgáfu.
Jafnframt er vonast til þess að sam-
keppnin hvetji til samvinnu teikn-
ara og textahöfunda. Skilafrestur í
samkeppninni er til 1. maí næst-
komandi og verða úrslit tilkynnt 30.
júní 2000.
Æskilegt er að handrit verði ekki
lengra en 5-10 tölvuprentaðar síður
Stjörnuspá á Netinu
mbl.is
_ALLTA/= eiTTHVAÐ NÝTT
(A4). Höfundar hafa frjálsar hend-
ur um efni sögunnar en það'skal
vera framsamið og ekki hafa heyrst
né verið birt áður. Ekki er nauðsyn-
legt að höfundar skili endanlega
unnum myndum með handritinu, en
æskilegt að skissur að myndum
fylgi og að minnsta kosti ein full-
unnin mynd sem og umbrotstillaga
að verkinu. Höfundar skulu merkja
verk sín dulnefni en láta rétt nafn
og heimilisfang fylgja með í lokuðu
umslagi. Handritum ásamt mynd-
um verði skilað ekki seinna en 1.
maí næstkomandi til Æskunnar
ehf. Stangarhyl 4 í Reykjavík -
merkt Samkeppni 2000.
Dómnefnd skipa þrír einstakling-
ar frá þeim aðilum sem standa að
verðlaunasamkeppninni; Búnaðar-
bankanum, Sjóvá-Almennum og
Æskunni. Það verk sem dómnefnd
telur skara fram úr hlýtur verð-
launin og verður samningur um út-
gáfu verksins undirritaður þegar
úrslit verða kynnt. Höfundarlaun
verða greidd sérstaklega. Vinni
textahöfundur og myndahöfundur
verkið í sameiningu er gengið út frá
því að þeir skipti jafnt með sér höf-
undarlaunum fyrir verkið. Um höf-
undarlaun fer að öðru leyti skv. 14.
grein útgáfusamnings Félags ís-
lenskra bókaútgefenda og Rithöf-
undasambands Islands. Verðlaunin
verða afhent við útkomu bókar í
september 2000.