Morgunblaðið - 16.01.2000, Side 38

Morgunblaðið - 16.01.2000, Side 38
'<& SUNNÚDÁGUR Í6. JANÚAR 2000 MINNINGAR MÖRGÚNBLAÐÍÐ t Elsku faðir okkar, sonur, vinur, bróðir og afi, EINAR ÞORSTEINSSON, Blikastöðum 1, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju þriðju- daginn 18. janúar kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á SÁÁ. Helga Hrund Einarsdóttir, Arnheiður Dögg Einarsdóttir, Hjalti Knútur Einarsson, Þuríður Annabell Tix, Yvonne Dorothea Tix, Arnheiður Einarsdóttir, Þorsteinn Hörður Björnsson, Ása Kristín Knútsdóttir, systkini og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, MAGNÚS FRIÐRIKSSON, Fálkagötu 4, Reykjavík, er lést miðvikudaginn 5. janúar, verður jarð- sunginn frá Neskirkju mánudaginn 17. janúar kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Parkinson-samtökin Inga Skarphéðinsdóttir, Margrét Magnúsdóttir, Daníel Viðarsson, Friðrik Magnússon, , Margrét Guðmundsdóttir, Leifur Magnússon, Stella Norðfjörð, Sólveig Magnúsdóttir, Anna B. Viðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Útför sambýlismanns míns, föður, tengda- föður, afa og langafa, EIRÍKS KR. EYVINDSSONAR frá Laugarvatni, sem lést á Landspítalanum þriðjudaginn 11. janúar, fer fram frá Árbæjarkirkju þriðju- daginn 18. janúar kl. 10.30. Jarðsett verður á Laugarvatni. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Svala Konráðsdóttir, Eyvindur Eiríksson, Hlöðver Örn Ólason, Janne Eiriksson Larsen, barnabörn og barnabarnabarn. t Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRIR SÍMON MATTHÍASSON, Fljótaseli 5, Reykjavík, sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans 6. janúar sl., verður jarðsunginn frá Seljakirkju þriðjudaginn 18. janúarkl. 13.30. Fyrir hönd annarra vandamanna, Olga Viktoría M. Sigurðardóttir, Cecilia Heinesen, Cecilia Ingibjörg Þórisdóttir, Helgi Már Hannesson, Kristjana Margrét Þórisdóttir, Daouda Mbaye, Matthías Karl Þórisson, Alda María Helgadóttir. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ADDBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR frá Litlu-Brekku, Grímsstaðaholti, til heimilis í Seljahlíð, Hjallaseli 55, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 18. janúar kl. 15.00. Hafsteinn Guðjónsson, Rúna Trakulma, Reynir Guðjónsson, Hafdís Ólafsdóttir, Sigrún Guðjónsdóttir, Helga María Guðjónsdóttir, Pétur B. Snæland og barnabörn. SIGURÐUR O. PÉTURSSON + Sigurður O. Pét- ursson fæddist í Reykjavik 2. júlí 1949. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 9. janúar síð- astliðinn. Sigurður var sonur Péturs Ottesen Júsafatsson- ar, f. 22.7. 1919, fyrrv. skrifstofu- nianns í Reykjavík, og Ágústu Ágústs- dóttur, f. 12.8. 1920, d. 23.8. 1997, skrif- stofumanns í Reykja- vík. Bræður Sigurðar eru Þór Ottesen, f. 26.7.1950, raf- virki, búsettur í Reykjavík, kvænt- ur Brynhildi Ólafsdóttur kennara og á hann sex börn; Björn O. Pét- ursson, f. 19.2. 1953, aðstoðar- skólastjóri við Melaskólann, bú- settur á Seltjarnamesi, kvæntur Katrínu E. Magnúsdóttur ljósmóð- ur og eiga þau þrjár dætur. Sigurður kvæntist 18.4. 1971 Onnu Kjartansdóttur, f. 4.11. 1949, fulltrúa í Þjónustuveri Landsbankans. Hún er dóttir Kjartans Magnússonar, f. 15.7. 1917, d. 3.12. 1998, kaupmanns í Reykjavík, og k.h., Guðrúnar H. Viihjálmsdóttur, f. 3.11.1922, hús- móður og kennara. Synir Sigurð- ar og Önnu eru: 1) Kjartan Hauks- son, f. 25.2. 1970, rekstrar- hagfræðingur á Viðskiptastofu Landsbankans, búsettur í Reykja- vík og er kona hans Karina Peder- sen, nemi í iðjuþjálfun, en dóttir hans og Huldu Karenar Auðuns- dóttur er Sara Rut, f. 18.12. 1996. 2) Pétur Sigurðsson, f. 23.9.1971, íþróttafræðingur, búsettur í Ég trúi ekki að ég skuli sitja hér og skrifa minningarorð um tengdaföður minn. Hann var tekinn frá okkur öll- umsvo skyndilega. Ég kynntist Sigga fyrst fyrir 11 ár- um þegar ég kom inn í fjölskylduna. Ég var lengi að kynnast honum vel, en ég var fljót að sjá hversu góðhjart- aður hann var. Alltaf tilbúinn að gera allt fyrir alla og hugsaði oft seinast um sjálfan sig. Það koma margar góðar minning- ar upp í hugann þegar ég hugsa til baka. Sérstaklega koma upp minn- ingar um þau skipti sem hann og Anna komu að heimsækja mig og Pétur til Bandaríkjanna. Þar áttum við öll yndislegar stundir saman og munu þær seint gleymast. í þeim heimsóknum kynntist ég honum sér- staklega vel. Siggi var snillingur í búa til spaugi- leg orð yfir fólk, hversdagslega hluti og athafnir. Þessi orð og orðasam- bönd munu vera með okkur áfram. Siggi tjáði tilfinningar sínar ekki mikið með orðum. En hann sýndi þær með því hvernig hann kom fram við fólk og í rauninni gerði hann það best með því að vera hann sjálfur. Honum þótti mjög vænt um böm og sást það greinilega þegar hann var með afabörnin sín. Þegar við komum með litla prinsinn í heimsókn var ekkert annað sem komst að enn að fá að koma við og hafa hann hjá sér. Ánægjan og stoltið skein úr andliti hans þegar hann hélt á afabaminu sínu. Það er sárt að hugsa til þess að þeir fái ekki tækifæri að kynnast hvor öðram. Hann mun skila eftir skarð í hjarta mínu, en ég veit að hann mun fylgjast með okkur í fram- tíðinni. Elsku Siggi ég mun sakna þín mik- ið og minningin um þig mun ávallt lifa í hjarta mér. Harpa. Þeir vora ófáir vinimir, samferða- mennimir og kunningjarnir þínir, og okkar bræðra, á lífsleið þinni. Þeim lá öllum gott orð til þín og töluðu ávallt um hve góðan dreng þú hefðir að geyma. Elsku Siggi. Víst varstu drengur góður. í orðsins dýpstu og bestu merkingu. Góður okkur bræðram, pabba og mömmu Reykjavík en kona hans er V. Harpa Sigurðardóttir, BS í listmeðferðarfræði og eiga þau óskírðan son, f. 20.11. 1999. 3) Gunnar Þór Sigurðs- son, f. 8.6. 1980, nemi við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti. Sigurður lauk gagnfræðaprófi frá Hagaskólanum í Reykjavík 1966 og verslunarnámskeiði frá VI 1967. Á náms- árunum var Sigurð- ur í sumarvinnu við gatnagerð hjá Reykjavíkurborg. Hann starfaði við Landsbankann 1968-73 og við Seðlabankann 1973-78. Þá flutti Sigurður og fjölskylda hans til Svíþjóðar þar sem hann starfaði við Höganás-verksmiðjurnar og síðan við Gullfiber-verksmiðjum- ar. Sigurður og fjölskylda hans fluttu aftur heim til Islands 1981. Þá hóf hann aftur störf við Landsbankann þar sem hann starfaði til dauðadags, síðast við útlánaeftirlit bankans frá 1988. Sigurður æfði og keppti með meistaraflokki Þróttar í knatt- spymu og handbolta í mörg ár, vann að ýmsum félagsmálum fyrir Þrótt og sat m.a. í Knattspyrnur- áði Reykjavíkur fyrir hönd félags- ins um árabil. Þá lék hann síðar með meistaraflokki Gróttu í hand- bolta og knattspyrnu um skeið. Utför Sigurðar verður gerð frá Seljakirkju mánudaginn 17. jan- úar og hefst athöfnin klukkan 13.30. og ekki síst Önnu og strákunum sem þú reyndist svo óendanlega vel. Dejrfé, deyjafrændur, deyrsjálfuriðsama. Enorðstír deyraldregi hveim er sér góðan getur. (Út Hávamálum.) Þessi ódauðlegu orð viljum við bræðurnir gera að okkar þegar við kveðjum þig, elsku bróðir, því engin önnur megna að tjá hug okkar betur nú. Elsku Anna. Guð styrki ykkur öll og varðveiti í hinni djúpu sorg. Þór og Bjöm. Mágur minn, Sigurður O. Péturs- son, er látinn, langt fyrir aldur fram, eftir stutt en erfið veikindi. Skyndi- legt fráfall hans er ólýsanlegt reiðar- slag, enda á eftir að líða langur tími áður en ég átta mig á því að ég á ekki eftir að sjá hann framar. Ég kynntist Sigga þegar hann og Anna, systir mín, fóra að draga sig saman hér um árið. Anna er nú einu sinni stóra systir mín sem hélt yfir mér verndarhendi og umbar stríðni mína í æsku. Mér stóð því ekki á sama hvaða mann hann hefði að geyma, þessi hægláti Vesturbæingur sem farinn var að vepja komur sínar á Lindargötuna veturinn 1970-71. Við fyrstu kynni fannst mér Siggi ekkert yfirmáta hress. Ég hélt hann væri feiminn og gerði ráð fyrir að losna myndi um málbeinið við nánari kynni. Við urðum fljótt mátar og ég komst að því að ég hafði haft rangt fyrir mér í hvora tveggja: Það sem ég hélt að væri feimni var í rauninni andúð Sigga á öllu gaspri, grobbi og baktali, enda heyrði ég hann aldrei hreykja sér né tala illa um aðra. En ég hafði líka rangt fyrir mér í því að Siggi væri ekki hress. Hæglæti hans var ekki sprottið af áhugaleysi eða afskiptaleysi. Undir prúðu fasi fór greind og viðkvæm sál sem leiftraði af leikgleði, hárfínum húmor og pólitískum áhuga. Siggi var alla tíð mikill íþróttamað- ur, eins og synir hans, og báðir bræð- ur hans. Hann æfði og keppti í knatt- spyrnu og handbolta frá barnsaldri, fyrst með KR, en lengst af með Þrótti. Hann keppti með Þrótti í meistaraflokki í knattspymu og handbolta og sinnti félags- og trúnað- arstörfum fyrir Þrótt um árabil. Hann fylgdist mjög vel með gangi mála í þessum tveimur íþróttagrein- um og var óumdeildur boltasérfræð- ingur stórfjölskyldunnar. Þegar við systkinin og fjölskyldur okkar komu saman í sumarbústað foreldra minna var hann yfirleitt fyrstur út með bolt- ann, albúinn að skipta í lið og hefja leikinn. Hann var sannur íþrótta- maður og hafði mjög smitandi keppn- isskap, hvort heldur sem við spörk- uðum bolta eða sátum yfir skák. En Sigga gat einnig orðið heitt í hamsi þegar stjómmál bar á góma. Hann var pólitískur í orðsins bestu merkingu. Hann hafði enga þörf fyrir að kenna sig við -isma eða -hyggjur, né sækjast eftir vegtyllum stjóm- málaflokka. En hann hafði vissulega einlægan áhuga á samfélaginu, skil- virkni þess og réttlæti. Hann hafði því yfirleitt alltaf skoðanir á mikil- vægustu málefnum samfélagsins, - oft róttækar og framlegar, - en alltaf sjálfstæðar, yfirvegaðar og rökfast- ar. Augljósustu mannkostir Sigga fól- ust í hógværð hans og prúðmennsku. Að vísu veit ég ekki hvort hinir hóg- væra munu á endanum erfa landið. En ég veit að hógværð er dyggð. Sú dyggð er mikilsverð, en því miður fá- gæt nú í seinni tíð, á dögum sjálíúm- gleði og framhleypni. Enn er svo ótalið það mikilvægasta við lífshlaup Sigga, mágs míns: Hann gerði það sem mest er um vert, hvað sem líður vegtyllum, völdum og auði. Hann fór að ráðum Voltaires: „Þetta er vel mælt, svaraði Birtingur, en maður verður að rækta garðinn sinn.“ Siggi ræktaði garðinn sinn og gerði það afbragðsvel. Hann hafði til að bera alla þá mannkosti sem slík iðja krefst: Hann var sannur vinur, umhyggjusamur sonur og tengda- sonur, trúr og nærgætinn eiginmað- ur og ástríkur og traustur faðir. Þegar slíkir menn kveðja þennan heim verður auður bekkur þeirra að nístandi tómi. En elsku Anna mín, Gunnar Þór minn, Pétur og Kjartan! Ég er þess einnig fullviss að ást hans og umhyggja eigi eftir að hughreysta og styrkja ykkur í sorginni. Við Marta vottum Pétri, foður Sigga, bræðram hans, Þór og Birni, og fjölskyldum þeirra, okkar innileg- ustu samúð. Kjartan Gunnar Kjartansson. Kær mágur minn er látinn langt fyrir aldur fram eftir snörp veikindi. Það þarf ekki að hafa mörg orð um hvers virði Sigurður var okkur, ég gat einfaldlega ekki hugsað mér betri mann systur minni til handa. Enda var sambúðin eftir því og söknuður okkar allra er sár. Sigurður barði ekki bumbur til að vekja athygli á mannkostum sínum og hæfileikum, en hvort tveggja var ótvírætt við nánari kynni. Réttlætis- kennd og víðsýni einkenndu öll sam- skipti hans við fólk. Hann var skarp- ur í hugsun, fróður, og svo minnugur á menn og málefni að mig rak oft í rogastans. Fjölskylda okkar er stór og mikið spjallað þegar hún kemur saman. Ef við létum vaða á súðum var það hátt- ur Sigurðar hafa sig lítt í frammi nema eftir væri leitað. Þá átti hann það til að leggja staðreyndir málsins svo látlaust og snyrtilega á borðið, að okkur gasprarana þraut skyndilega erindi. Það er erfitt að ímynda sér fram- tíðina án Sigurðar, en blákaldur veraleikinn verður ekki umflúinn. Þá er huggun að geta ornað sér við minninguna um sérdeilis góðan dreng. Vilhjálmur Þór Kjartansson. Það er með sárum trega sem við kveðjum Sigurð 0. Pétursson. Ótímabært fráfall hans kom sem reiðarslag. Það er skarð fyrir skildi hjá okkur sem sjáum nú á þak ljúfum og traustum fjölskyldumanni. Ég hitti Sigga á Kastrap-flugvelli fyrir nítján árum. Þá voram við Ingi- björg mín að draga okkur saman og dvöldum í Helsingborg, um jól og áramót, hjá þeim heiðurshjónum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.