Morgunblaðið - 12.02.2000, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
Frá undirritun samningsins í gær. Jeffrey C. Clift, forstjóri bandaríska
hugbúnaðarfyrirtækisins Radixx (t.v.) og Jón Karl Olafsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags íslands.
FI boðar gjörbyltinjyu í farsölukerfí
Unnt að bóka og
greiða ferðir á Netinu
FLUGFÉLAG íslands mun hætta
með öllu að gefa út farmiða, þegar
tekið verður í notkun nýtt farsölu-
kerfi þjá fyrirtækinu 25. mars næst-
komandi. I framtíðinni fá farþegar
því ekki farmiða eins og tíðkast hef-
ur, heldur þurfa þeir ekki annað en
að hringja í flugfélagið til að fá bók-
unamúmer. Brottfararspjald er síð-
an afhent á flugvellinum áður en
gengið er um borð í vél.
Farþegar geta einnig bókað og
greitt ferðir sínar á Netinu og fengið
tafarlausa staðfestingu á því hvort
sæti séu laus. Farþeginn prentar síð-
an út kvittun fyrir greiðslu, mætir á
flugvöllinn, fær brottfararspjald og
gengur um borð í vél sína.
Farsölukerfið sem kallast MultiR-
es tengir saman bókunarkerfi, bók-
hald, farskrár og önnur undirkerfí,
sem Ieysir af hólmi hefðbundna
farmiðaútgáfu og segir Jón Karl
Ólafsson, framkvæmdastjóri Flug-
félags íslands, að nýja kerfið muni
gjörbylta farsölu félagsins enda sé
mikill tímasparnaður að þvf, bæði
fyrir farþega og ekki sfður starfs-
fólk.
Jón Karl og Jeffrey C. Clift, for-
stjóri bandaríska hugbúnaðarfyrir-
tækisins Radixx, sem hannar farsöl-
ukerfíð, undirrituðu samning um
sölu og uppsetningu kerfisins í gær.
Gert er ráð fyrir að Flugfélag Is-
lands lækki rekstrarkostnað sinn um
50 miHjónir á ári með tilkomu kerfis-
ins sem einfaldar til muna aðgengj
viðskiptavina að flugfélaginu að
sögn Jón Karls.
Nýtt skip Samherja
sjósett í Póllandi
NÝTT skip Samherja hf. á Akur-
eyri var sjósett í Gdansk í Póllandi
í gær en ráðgert er að skipið fari
til Noregs um miðjan mars þar
sem lokið verður við smíðina. Nafn
skipsins verður Vilhelm Þorsteins-
son EA 11 en því hefur þó enn
ekki verið gefið nafn með form-
legum hætti og verður það gert
síðar, að sögn Þorsteins Más
Baldvinssonar, forstjóra Sam-
herja. Þetta er annað nýsmíðaskip
félagsins en hitt er aflaskipið
Baldvin Þorsteinsson EA.
Þorsteinn Már sagði að skipið,
sem er tæplega 80 metrar að
lengd, yrði útbúið til botnfiskveiða,
flotvörpuveiða og nótaveiða og
mun það bera um 2.500 tonn af
loðnu, eða um 600 tonn af frystum
fiski.
Lokafrágangur
í Noregi
Skrokkur og yfirbygging skips-
ins var smíðuð í Northern Ship-
yard í Gdansk og var hafist handa
við verkið í fyrra. Að sögn Þor-
steins Más er það um tveimur og
hálfum mánuði á eftir áætlun af
ýmsum ástæðum. Hann sagði ráð-
gert að ljúka smíðinni í sumar og
að skipið komi heim til íslands í
ágúst nk.
Aðalvélin er komin um borð og
stýrishúsið verður híft á skipið í
dag laugardag. Skipið verður
dregið til Noregs, þar sem loka-
frágangur fer fram í Kleven Mek
værksted i Ulsteinvík. Eftir er
m.a. niðursetning á aðalvél, tækj-
um og vinnslubúnaði, innrétting
skipsins og fleira.
Nýtt og glæsilegt skip Samheija komið á flot við skipasmfðastöðina í
Gdansk í Póllandi.
Anna Kristjánsdóttir, ekkja Vilhelms Þorsteinssonar, með börnum sín-
um Kristjáni og Valgerði Vilhelmsbörnum við nýja skipið.
Flugfélagið Jökull kynnir áform um flugrekstur
Hugmynd um flug frá Reykjavík
og Egilsstöðum til Luxemborgar
Egilsstöðum - Morgunblaðið.
FLUGFÉLAGIÐ Jökull, sem er
áhugamannafélag á Egilsstöðum,
hefur hafið könnun á möguleikum
þess að taka á leigu 75 manna þotu og
hefja áætlunarflug frá Egilsstaða-
flugvelli til Reykjavíkur og annarra
landa. Stefnt er að því að starfsemin
hefjist vorið 2001.
Áhugamannahópurinn varð til í
kringum áhuga manna á að nýta flug-
völlinn á Egilsstöðum meira en gert
hefur verið og fjölga ferðafólki, að
sögn Hjálmars Kristinssonar, tals-
manns félagsins. Hugmyndin er að
taka á leigu Fokker 100-vél, 75
manna þotu sem er um 30 mínútur að
fljúga milli Egilsstaða og Reykjavík-
ur, eða helmingi fljótari en til dæmis
Fokker 50. Farið yrði á morgnana til
Reykjavikur og þaðan til flugvallar í
Evrópu með millilendingu á Egils-
stöðum. Að sögn Hjálmars er sér-
staklega litið til flugs til Lúxemborg-
ar enda telur hann aðstæður til þess
góðar. Að loknu millilandafluginu
yrði aftur farið til Reykjavíkur og
endað á Egilsstöðum. Hjálmar telur
unnt að nýta vélina einnig til tveggja
fluga til Evrópu á nóttunni. Er verið
að finna vélinni verkefni fyrir frakt.
BÓK1%
Verð áður: 2.990 kr.
Fitusnauðar
kræsingar
Ríkutega myndskreytt bók
sem geymir rúmlega 150
uppskriftir að Ijúffengum,
fitusnauðum réttum.
Upplýsingar um næringargildi
fylgja hverri uppskrift.
MAI O0 monnlng I
malogmonnlng.lt I
Þá yrði henni flogið utan að kvöldi á
flugvöll sem hentaði vel fyrir frakt til
og frá Austurlandi. Að sögn Hjálm-
ars er ekki síst litið til útflutnings á
ferskum flökum í því sambandi og
segir hann að það gæti orðið mikil
lyftistöng fyrir sjávarútvegsfyrir-
tæki í fjórðungnum.
Félagið hyggst ná samstarfl við er-
lendan aðila um rekstur flugvélarinn-
ar fyrst í stað og jafnframt þessum
þreifingum er verið að kanna kosti
þess að kaupa og reka 50-90 manna
þotu, til að sinna flugi á aðra flugvelli.
Félagið er að vinna með stórri ferða-
skrifstofu um að koma á fimm ferðum
héðan í sumar í samvinnu við flugfél-
ög. Draumurinn er að unnt verði að
tengja flugið einnig vestur um haf.
Hjálmar leggur áherslu á að það vaki
fyrst og fremst fyrir aðstandendum
Jökuls að opna fjórðunginn með því
að nýta betur þá góðu aðstöðu sem
fyrir hendi er á flugvellinum á Egils-
stöðum og efla ferðaþjónustuna með
beinum innflutningi ferðafólks. Segir
hann gífurleg tækifæri felast í þessu
og það komi meðal annars fram í
þeim góðu viðbrögðum sem fengist
hefðu við hugmyndum félagsins.
Bflar yfír-
gefnir á
Suður-
landsvegi
LÖGREGLA og björgunar-
sveitir í Rangárvallasýslu
voru kallaðar út til aðstoðar
vegfarendum í blindhríð síð-
degis í gær.
Að sögn lögreglu voru
þrjár björgunarsveitir kallað-
ar út, auk lögreglu, til aðstoð-
ar fólki sem sat fast í bílum á
Suðurlandsvegi á kaflanum
frá Þjórsárbrú að Landvega-
mótum. Fólki var ekið á brott
en bílar skildir eftir utan veg-
ar.
Margrét Frfmannsdóttir fráhverf formennsku í Samfylkingunni
Gefur kost á sér sem
varaformaður flokksins
Laugavegl 18 • Sfml 515 2500 • Sföumúla 7 • Sfmi 510 2500
MARGRÉT Frímannsdóttir hefur
ákveðið að gefa ekki kost á sér
sem formaður Samfylkingarinnar á
stofnfundi hennar sem ráðgerður
er í maí. Þess í stað hyggst Mar-
grét, sem hefur verið talsmaður
Samfylkingarinnar og er formaður
Alþýðubandalagsins, gefa kost á
sér i varaformannsembættið.
Margrét segir þá ákvörðun sína,
að bjóða sig ekki fram sem for-
maður, í samræmi við það sem hún
hafí alltaf sagt, að eðlilegt sé að
nýr maður eða kona taki að sér
formennskuna nú þegar Samfylk-
ingin sé í þann mund að verða að
formlegum stjórnmálaflokki.
Margrét sagðist ekki vera að
horfa til neinna sérstakra í þessu
sambandi og auk þess hefði enn
enginn gefið kost á sér í formanns-
embættið. Þær manneskjur, sem
væru að skoða málið, Össur Skarp-
héðinsson, Guðmundur Árni Stef-
ánsson, Jóhanna Sigurðardóttir og
Lúðvík Bergvinsson, væru hins
vegar öll mjög frambærilegt fólk.
Ekkert þeirra væri jafn merkt af
afdraganda stofnunar Samfylking-
ar og hún og Sighvatur Björgvins-
son, formaður Alþýðuflokksins, og
kæmu þar af leiðandi með nýjar
áherslur og öðruvísi ásjónu á
flokkinn en þau Sighvatur hefðu
gert.
„Ég ætla hins vegar að gefa kost
á mér í varaformannsembættið,"
sagði Margrét, „vegna þess að á
sama hátt og ég er sannfærð um
að inn í formennskuna þurfi að
koma nýtt blóð þá tel ég mig hafa
úr mikilli reynslu að spila, eftir að
hafa tekið þátt í því sameiningar-
ferli sem á undan er gengið,
reynslu sem muni nýtast vel ■
þeirri vinnu sem framundan er.“
Vísaði Margrét þar til þess að
nýrrar forystu biði mikil vinna við
að byggja upp Samfylkingarfélög
um allt land. Hún kvaðst á hinn
bóginn engu vilja spá um það hvort
átök yrðu um varaformannsem-
bættið en sagðist hljóta að telja sig
eiga sæmilega góða möguleika.