Morgunblaðið - 12.02.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.02.2000, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Rúmar tvær vikur eru til stúdenta- og háskólaráðskosninga í Háskóla Islands. Tvær fylkingar, Vaka og Röskva, takast á um sætin. Af því tilefni ræddi Morgunblaðið við fulltrúa fylkinganna. Morgunblaðið/Kristinn Fulltrúar Röskvu á framboðslista samtakanna til Stúdenta- og Háskólaráðs. Frá vinstri: Guðmundur Ómar Hafsteinsson, þriðja sæti, Dagný Jónsdóttir, fyrsta sæti til Háskólaráðs, Margrét Vilborg Bjarnadóttir, fimmta sæti og Þorvarður Tjörvi Ólafsson, fyrsta sæti. Breiður hópur fólks á lista Röskvu Morgunblaðið/Asdís Fjórar ungar konur skipa efstu sæti Vökulistans fyrir Stúdentaráðskosningarnar í HÍ í ár. Þær eru frá vinstri: Borghildur Sverrisdóttir, í fjórða sæti, Hulda Birna Baldursdóttir, í öðru sæti, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, í þriðja sæti, og Inga Lind Karlsdóttir, í fyrsta sæti. Fjórar konur skipa efstu sæti Vöku „ Jafnrétti til náms kristallast í mála- flokkum Röskvu44 „Takmarkið er fimm fulltruar í Stúdentaráð“ Á FRAMBOÐSLISTA Röskvu, samtaka fél- agshyggjufólks við Háskóla íslands, til Stúd- enta- og Háskólaráðs er breiður hópur fólks úr nær öllum deildum Háskólans. Helstu baráttumál þeirra fyrir komandi kosningar, hinn 23. febrúar nk., eru öflugri kennsla, betri lesaðstaða fyrir stúdenta og áframhald- andi barátta fyrir betri kjörum hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna - Lín. Og útgangs- punktur Rösvku er, eins og einn frambjóða- ndinn, Guðmundur Ómar Hafsteinsson, orð- ar það „að standa vörð um jafnrétti til náms“. Það er, segir hann, grunnurinn að öllu því sem Röskva stendur fyrir og kristall- ast í öllum hennar málaflokkum. Þorvarður Tjörvi Ólafsson, nemi í hag- fræði, er í forystu Röskvulistans í ár, en ann- að sæti skipar Sara Hlín Hálfdanardóttir, nemi í stjórnmálafræði. Guðmundur Ómar Hafsteinsson, nemi í lögfræði, sem áður var vitnað til, skipar þriðja sæti listans og í því fjórða er Haukur Agnarsson, nemi í mann- fræði. í kosningunum til Stúdentaráðs verður kosið um níu fulltrúa af átján. Röskva sigraði í kosningunum í fyrra 9. árið í röð og fékk fimm fulltrúa kjörna en Vaka, félag lýðræð- issinnaðra stúdenta, fjóra. Fimmta sætið hefur því verið talið baráttusætið en það sæti á Röskvulistanum vermir nú Margrét Vil- borg Bjarnadóttir, nemi í umhverfis- og byggingaverkfræði. Vilja að Hagstofan geri framfærslukönnun Þegar fulltrúar Röskvu á listanum eru spurðir um helstu baráttumál í komandi kosningum segir Tjörvi m.a. að eitt brýnasta verkefni stúdenta sé að berjast fyrir auknum framlögum til byggingaframkvæmda fyrir kennsluhúsnæði vegna þess hve aðstaða stúdenta til lestrar og aðgangur að tölvum sé bágborinn. Segir hann til að mynda að erfið- lega hafi gengið að koma fyrir tölvubúnaði sem safnaðist í átaki stúdenta á síðasta ári í því húsnæði sem Háskólinn hefur yfir að ráða og kveður hann það dæmi um aðstöðu- leysi í Háskólanum. „Þetta er einnig dæmi um það metnaðarleysi sem hefur viðgengist hjá stjórnvöldum um að standa vel að byggr ingum í Háskólanum," bætir hann við. Tjörvi nefnir fleiri baráttumál í þessu sam- bandi og segir Röskvu vilja berjast fyrir því að kennslustofur verði einnig notaðar undir lesaðstöðu fyrir stúdenta og ennfremur að þau borð sem fyrir eru í Þjóðarbókhlöðunni verði betur nýtt. Til dæmis með því að koma upp því sem hann kallar skilyrtu skráningar- kerfi. í því felst að verði viðkomandi stúdent ekki við borð sitt í ákveðinn tíma megi taka dótið hans af borðinu og úthluta borðinu til annars. Þá telur hann að bæta megi lesað- stöðu stúdenta enn frekar með því að nýta fyrstu hæð Þjóðarbókhlöðunnar undir les- borð. í samtali við fulltrúa Röskvu kemur fram að þeir ætla að leggja mikla áherslu á lána- mál stúdenta í kosningabaráttunni og nefnir Guðmundur Ómar sem dæmi að þeir vilji berjast fyrir enn frekari hækkun á bæði grunnframfærslu og frítekjumarki. „Og þá viljum við að gerð verði raunveruleg fram- færslukönnun sem sýni raunverulega fram- færsluþörf námsmanna," segir hann. Guð- mundur útskýrir nánar og segir að útreikn- ingur lána hjá Lín sé byggður á framfærslu- könnun sem gerð var árið 1974. Stjórn Lín hafi hins vegar ákveðið síðasta vor að koma á fót nefnd til að endurmeta framfærslugrunn- inn en sá galli sé á gjöf Njarðar að fulltrúar stjórnvalda í nefndinni vilji meta grunninn, að sögn Guðmundar, út frá eigin forsendum „en ekki taka mið að því hvað það raunveru- lega kostar fyrir námsmanninn að lifa,“ eins og hann orðar það. „Fulltrúi Stúdentaráðs í nefndinni stendur í stappi við það að fá í gegn þessa framfærslukönnun en það er í raun ekki vilji fyrir því hjá nefndinni." Guð- mundur skýrir jafnframt frá því að þegar hann tali um raunverulega framfærslukönn- un þá eigi hann við að óháðum aðila verði fal- ið að gera könnunina svo sem Hagstofunni eða öðrum álíka aðila. í máli Margrétar, sem skipar fimmta sæti Röskvulistans, kemur fram að Röskva muni í baráttunni um sæti í Stúdentaráð leggja áherslu á að ráðið verði „sterkt og opið“. Hún segir að Röskva hafi þegar staðið fyrir því að gera upplýsingar um ráðið aðgengi- legra á Netinu en bætir því við að áhugi sé á því að opna það enn frekar til dæmi með út- gáfu nýs upplýsingabæklings um Stúdenta- ráð og stofnanir þess sem til að mynda yrði dreift til allra nýnema Háskólans. Dagný Jónsdóttir, nemi í íslensku, skipar efsta sæti lista Röskvu til Háskólaráðs en í kosningunum verður kosið um tvo fulltrúa stúdenta í ráðið af fjórum. Dagný segir kennslumál mikilvægt baráttumál fyrir þess- ar kosningar og nefnir sem dæmi að Röskva vilji að þverfaglegt nám í Háskólanum verði aukið og einnig að hið svokallaða kennslu- mat, þ.e. mat stúdenta á kennurum sínum verði eflt. „Við viljum til dæmis fá eldri nem- endur til þess að meta hvernig grunnnám- skeið hafi nýst í framhaldsnámskeiðum,“ segir hún. Þá segir hún að Röskva vilji að Netið verði nýtt meira til kennslunnar og að prófnúmerakerfi verði tekið upp í öllum deildum Háskólans. ATHYGLI hefur vakið að fjórar ungar kon- ur skipa efstu sæti framboðslista Vöku, fél- ags lýðræðissinnaðra stúdenta við Háskóla íslands, fyrir Stúdentaráðskosningarnar hinn 23. febrúar nk. í samtali við Morgunblaðið segja þær að þessi skipan hafi vakið „ótrúlega jákvæð" viðbrögð innan háskólasamfélagsins en leggja þó áherslu á að það séu málefnin og það sem þær hafi fram að færa sem skipti máli en ekki sú staðreynd að það séu konur í efstu sætum listans. Þær segja það hafa verið fyrir tilviljun að konur hafi valist til forystu á Vökulistanum að þessu sinni og benda á að uppstillinga- nefnd Vöku hafi fyrst og fremst haft í huga að láta hæfustu einstaklingana leiða listann. „Reyndar er það dálítið merkilegt að það skuli vekja svona mikla athygli á árinu 2000 að fjórar stelpur skuli raða sér í efstu sæti listans. Af hverju ætti það ekki að geta gerst?“ segja þær í spurnartón. Vökustúlkurnar fjórar heita Inga Lind Karlsdóttir, nemi í íslensku, sem er í fyrsta sæti, Hulda Birna Baldursdóttir, nemi í við- skiptafræði, sem er í öðru sæti, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, nemi í lögfræði, sem er í þriðja sæti og Borghildur Sverrisdóttir, nemi í sálfræði og fjölmiðlafræði, sem er í því fjórða. í kosningunum til Stúdentaráðs Háskóla Islands, sem fram fara eftir rúmar tvær vik- ur, verður kosið um níu fulltrúa af átján en í síðustu kosningum fékk Röskva, samtök fél- agshyggjufólks við HÍ, fimm fulltrúa kjörna en Vaka fjóra. Þórarinn Óli Ólafsson, nemi í viðskiptafræði, skipar fimmta sæti Vökulist- ans í ár og segjast þær stöllur stefna að því að ná honum inn í Stúdentaráð og jafnvel sjötta manninum, Benedikt Inga Tómassyni, nema í umhverfis- og byggingarfræði, ef út í það er farið. „Takmarkið hjá Vöku er fimm fulltrúar í Stúdentaráð en allt umfram það er vel þeg- ið,“ segir Þorbjörg og Inga Lind bætir því við að Vaka ætli að vinna eins stóran sigur og hún mögulega geti. „Og við hvetjum að sjálfsögðu alla stúdenta til þess að mæta á kjörstað,” segir hún. Þegar þær eru spurður um helstu áherslumál fyrir komandi kosningar segjast þær fyrst og fremst leggja áherslu á bætta menntun og kennslu. „Við viljum gera Há- skólann að nútímalegasta háskóla í heimi m.a. með því að fá öll námsgögn á Netið," segja þær og leggja aukinheldur áherslu á að „skólinn verði fullkomlega tölvuvæddur". í þessu sambandi bendir Hulda Birna til að mynda á mikilvægi þess að allur aðbúnaður, svo sem tölvubúnaður, fyrir nemendur við- skipta- og hagfræðideildar Háskólans verði bættur svo deildin verði samkeppnisfær við það sem gengur og gerist í Háskólanum í Reykjavík. Þær stöllur segjast auk þess vilja sjá Há- skólann sjálfstæðari en hann er í dag og telja það m.a. gert með því að atvinnulífið komi í auknum mæli að fjármögnun skólans. Þær kveða að skólinn sé svo að segja fjár- sveltur og benda á að það komi m.a. niður á rannsóknum innan hans. „Aukið samstarf við atvinnulífið á hins vegar að gera skólan- um kleift að blómstra," útsksýrir Inga Lind og hinar taka undir. Vilja virkja samkenndina innan háskólasamfélagsins Stöllurnar nefna fleiri áhersluatriði sem Vaka ætlar að leggja áherslu á í komandi kosningum og telja þar m.a. upp nauðsyn þess að stúdentar taki frumkvæði að því gera háskólalífið kraftmeira, líflegra og skemmtilegra. „í dag er eiginlega ekkert til sem er háskólasamfélag. Maður finnur enga samkennd úti í háskólasamfélaginu og eigin- lega ekki heldur innan deildanna sjálfra. Fólk bara kemur í skólann og fer úr skólan- um,“ segir Þorbjörg og Borghildur segir að Vaka vilji virkja samkenndina innan há- skólasamfélagsins þannig að stúdentar verði stoltir af þvi að vera í Háskóla íslands. Inga Lind bætir því við að Vaka líti svo á að stúdentar séu ekki þurfalingar eða ein- hver vælandi hópur í þjóðfélaginu heldur bjartsýnt, framtakssamt og dugmikið fólk. „Og Vaka vill virkja þá orku sem býr í þessu fólki,“ segir hún ákveðin. Þær fjalla áfram um hin ýmsu hagsmuna- mál stúdenta en benda síðan á að kosningar til Stúdentaráðs séu í auknum mæli farnar að snúast um persónur en ekki málefni. Þær segja það reyndar sorglegt því þessi mál skipti svo miklu máli fyrir stúdenta. „Há- skólasamfélagið er alltaf að verða minna og minna pólitískt og það þýðir ekki að reyna að höfða til fólks með hörðum pólitískum málefnum. Fólk virðist ekki alltaf nenna að fylgjast með þeim. Það fylgist með Vöku og Röskvu tvisvar á ári í tvær vikur og þá snýst það kannski oft um að kjósa vini sína og kunningja,“ segir Þorbjörg. En af hverju eiga háskólastúdentar þá að kjósa Vöku núna? „Jú, vegna þess að við erum líklegri til árangurs,“ segja þær einum rómi. „Röskva hefur setið við stjórnvölinn í Stúdentaráði í níu ár og það hefur sýnt sig að hún er að staðna. Við höfum hins vegar ferskleikann með okkur og erum tilbúin þess að takast á við hlutina," segja þær að síðustu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.