Morgunblaðið - 12.02.2000, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kattareigandi afar óánægöur meö veiöar borgarinnar:
SEGÐU ÞAfl MEÐ BLÓMUM
I
kr.490
10 Túlipanar
Blóm ó netinu * Pönfunarþjónusta
IOSJS 580 0500
Menntaskólinn vid Sund styrkir Barnaheill
Vinnufúsar
hendur tiltækar
Kristinn Már Ársælsson
Nemendur
Menntaskólans
við Sund hafa
sent 200 bréf tál stórfyrir-
tækja á höfuðborgar-
svæðinu og falast eftir
vinnu í einn dag. Vinnu-
laun sín hyggjast nem-
endumir láta renna ósk-
ert til Barnaheilla. Krist-
inn Már Ársælsson er
ármaður Skólafélags
Menntaskólans við Sund.
Hvers vegna skyldi félag-
ið hafa ráðist í þessar
bréfaskriftir?
„Verið er að endur-
vekja árshátíðarviku
nemenda í Menntaskólan-
um við Sund sem áður
var árlegur viðburður en
var felld niður fyrir fáein-
um árum. í tilefni af
þessari endurvöktu árs-
hátíðarviku viljum við
láta gott af okkur leiða og datt í
hug að safna fé fyrir Bamaheill,
en þema árshátíðarvikunnar er
þriðji heimurinn og hið alþjóð-
lega samfélag."
-í hvers konar fyrirtækjum
hafíð þið leitað hófanna um
vinnu?
„Við leituðum til nánast
flestra stórfyrirtækja og stofn-
ana á höfuðborgarsvæðinu og
tökum hvers konar vinnu sem
býðst.“
- Hafíð þið fengið viðbrögð við
bréfunum?
„Já, ýmis fyrirtæki hafa haft
samband við okkur, ASI ætlar
að fara að endurskoða gamalt
skjalasafn og vill fá menn í
dagsvinnu við það, Teymi er
hugbúnaðarfyrirtæki sem hefur
haft samband við okkur með já-
kvæðar undirtektir, Reykjavík-
urborg á í viðræðum við okkur
um hvaða vinna þar væri fáan-
leg, RÚV hefur haft samband
auk ýmissa annarra fyrirtækja
sem em að skoða málið.“
-Hvað eru margir í skólafé-
laginu?
„í skólanum em um 730 nem-
endur en þeir em ekki alveg all-
ir í skólafélaginu. Pað er ekki
bara skólafélagið sem býður
fram vinnugetu sína heldur allir
nemendur skólans.“
- Hvernig er félagslífíð í skól-
anum að öðru leyti?
„Það er vægast sagt bæði
mikið og fjölbreytt. Nú er nýaf-
staðin söngvarakeppni hjá okkur
sem heppnaðist mjög vel og var
glæsileg. Þar var valinn fulltrúi
okkar í Söngvakeppni fram-
haldsskólanna. sigurvegarinn
var Hannes Oli Ágústsson sem
söng lagið; Into my own arms
eftir Nick Cave. Á döfinni hjá
okkur er frumsýning á Ffla-
manninum í uppsetningu Thaliu,
leiklistarfélags skólafélagsins.
Það verður frumsýnt 18. febrúar
í Tjarnarbíói. Þá má ekki
gleyma árshátiðarvikunni sem
er dagana 21. til 23. febrúar nk.“
- Hvenær er vinnudagurinn
mikli?
„22. febrúar. Þá
verður búið að skipa
öllu niður og fólk mun
mæta á sína vinnu-
staði og vinna allan
daginn eða í 6 til 8 tíma. Daginn
eftir verður svo sjálf árshátíðin.
Haldin verður stórdansleikur á
Broadway að kvöldi 23. febr-
úar.“
-Er fjallað mikið um þróun-
arlönd í skólanum og aðstoð við
sveltandi börn?
„Þetta viðfangsefni tengist
beint kennsluefni félagsfræði-
deildar í fjórða bekk. Við emm
► Kristinn Már Ársælsson fædd-
ist 28. mars 1979 í Reykjavík og
hefur alist upp í Seláshverfi.
Hann stundar nám við Mennta-
skólann við Sund og hyggst Ijúka
stúdentsprófi í vor frá félags-
fræðideild. Hann er ármaður
Skólafélags Menntaskólans við
Sund, en það félag var stofnað
1969 sama ár og Menntaskólinn
við Tjömina tók til starfa, en sá
skóli er forveri Menntaskólans
við Sund.
nýlega búin að skila ritgerð um
þetta efni. í árshátíðarvikunni
verður mánudagurinn 21. febr-
úar ætlaður til fyrirlestra um
þema; þriðja heiminn og hið al-
þjóðlega samfélag. Björn
Bjamason menntamálaráðhera
mun heimsækja skólann og fá
nemendur þá tækifæri til að
ræða við hann um menntamál.
Síðan verða nokkrir fyrirlestrar.
Fyrirlesarar em m.a. Úlfur
Björnsson, sem starfað hefur
mikið við þróunaraðstoð í
Afríku, Guðrún Pétursdóttir, hjá
Samtökum nýbúa, sem talar um
fordóma í garð nýbúa á Islandi,
með henni í för verður flótta-
maður sem segir frá reynslu
sinni. Þá mun Ingvar Birgir
Friðleifsson, hjá Jarðhitaskóla
Háskóla Sameinuðu þjóðanna,
fjalla um jarðhitamál í heiminum
og hvernig íslendingar aðstoða
þróunarlönd í þeim rnálurn."
- Hafíð þið kynnt ykkur starf-
semi Barnaheilla?
„Já, það höfum við gert og
heilluðumst af því verkefni sem
þau era að fara af stað með.
Fyrir peningana sem við ætlum
að vinna fyrir og safna er fyrir-
hugað að byggja skóla í Kambó-
díu. Þar er menntakerfið í lama-
sessi og mikil þörf fyrir aðstoð í
þessum efnum. Þess má geta að
þeir peningar sem við vinnum
fyrir renna óskertir til þessa
verkefnis."
-Er þetta í fyrsta skipti sem
svona vinnuverkefni
er sett af stað til
styrktar mannúðar-
málefnum í Mennta-
skólanum við Sund?
„Já, þetta er í
fyrsta skipti hér, en þetta hefur
verið gert á vegum Félags fram-
haldsskólanema, en þá gat
Menntaskólinn við Sund því
miður ekki tekið þátt í verkefn-
inu. Hvað vinnudaginn 22. febr-
úar snertir em margar vinnu-
fúsar hendur tiltækar ef
fyrirtæki vantar liðsafla í einn
dag og hafa áhuga á að styrkja
gott málefni.“
Viljum láta
gott af okkur
leiða