Morgunblaðið - 12.02.2000, Síða 12

Morgunblaðið - 12.02.2000, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR L Hríseyingar hittu þingmenn kjördæmisins á fundi í Reykjavík Morgunblaðið/Arni Sæberg Hríseyingar ræða við þingmenn kjördæmisins í fyrrakvöld. „Arangurs- ríkur fundur“ HRÍSEYINGAR hittu þing- menn sína á fundi í Reykjavík á miðvikudag, til að ræða atvinnu- ástand í eynni. Snæfell hf. lokaði nýlega pökkunarverksmiðju sinni í bænum og að sögn Péturs Bolla Jóhannssonar sveitarstjóra misstu allt að 35 manns vinnuna. Að sögn Péturs Bolla var fundurinn árangursríkur en á honum voru ræddar ýmsar hug- myndir til að styrkja atvinnulíf í Hrísey. „Meðal annars var rædd stofnun dótturfélags íslenskrar miðlunar og starfsemi þess í eynni og hugsanleg nýting hús- næðis fyrir aldraða, sem er fremur illa nýtt eins og er,“ seg- ir Pétur Bolli. Beinar stjórnvaldsað- gerðir nauðsynlegar Hann segir að þingmönnunum hafi verið gerð grein fyrir því að beinar stjórnvaldsaðgerðir yrðu að koma til fljótt, ellegar brysti senn á flótti fólks úr eynni. „Við gerðum þeim ljóst að byggða- kvóti væri forsenda farsællar lausnar á þessu vandamáli," seg- ir Pétur Bolli. Halldór Blöndal þingmaður segir að margir möguleikar hafi verið ræddir og sumir séu auð- vitað vænlegri en aðrir. „Nú þurfum við þingmenn að gera okkur grein fyrir því sem að okkur snýr. Það lýtur annars vegar að því að tryggja sam- göngur við eyjuna, viðunandi að- stöðu fyrir ferjuna. Eg mun ræða það mál við samgönguráð- herra. Hins vegar eru margir möguleikar sem hið opinbera hlýtur að hugleiða, svo sem hvort hægt sé að nýta húsnæði sem áður var ætlað öldruðum, til dæmis fyrir fatlaða." Halldór segir að fundurinn hafi tvímæla- laust verið gagnlegur og tíma- bær. Ásamt Pétri Bolla sveitar- stjóra mættu til fundarins fyrir hönd Hríseyinga sveitarstjórn- armenn og fulltrúi verkalýðsfél- agsins Einingar/Iðju, Elísabet Jóhannsdóttir, auk Haraldar Líndal Haraldssonar, sérstaks ráðgjafa í atvinnumálum eyjar- innar. Allir þingmenn kjördæm- isins, Halldór Blöndal, Tómas Ingi Olrich, Valgerður Sverris- dóttir, Árni Steinar Jóhannsson, Svanfríður Jónasdóttir og Steingrímur J. Sigfússon, sátu fundinn. Kjörin heiðursfélagi Bernskunnar BERNSKAN, ís- landsdeild OMEP, al- þjóðasamtaka um uppeldi barna, fagn- aði 10 ára afmæli sínu með hátíðarsamkomu í Norræna húsinu fyr- ir nokkru. Valborg Sigurðar- dóttir, formaður fél- agsins, ávarpaði gesti og rakti í stuttu máli sögu félagsins. Al- þjóðaforseti OMEP, Audrey Curtis, flutti ávarp en aðalerindi samkomunnar flutti umboðsmaður barna, Þórhildur Líndal. Leikskólabörn frá Laufás- borg sungu upp- áhaldslögin sín undir stjórn Jóhönnu Thor- steinsson, leikskóla- stjóra. Fundarstjóri var dr. Þuríður Kristj- ánsdóttir. Frú Vigdís Finn- bogadóttir, fyrrver- andi forseti Islands, var kjörin heiðursfél- agi Bernskunnar fyrir hollustu við félagið og sívakandi áhuga á vel- ferð barna. OMEP-samtökin leggja mikla áherslu á að skapa alþjóðlegan vettvang fyr- ir þverfaglegar umræður um vel- Vigdís Finnbogadóttir ferð barna og vinna að rannsókn- um á því sviði. Undanfarin 50 ár hafa samtökin haldið allsherjar- þing þriðja hvert ár í öllum helstu höfuðborgum heims. Árið 2001 verður allsherjarþing haldið í höf- uðborg Chile, Santiago. Fimmtíu ára afmæli OMEP- samtakanna var fagnað á allsherj- arþinginu í Kaupmannahöfn árið 1998. Yfirskrift þingsins var „Rétt- ur barnsins til umönnunar, leiks og menntunar“. Norðurlöndin sáu um undirbúning og framkvæmd þings- ins og tók Bernskan þátt í því starfi með ýmsum hætti. 1200 manns frá 52 þjóðlöndum sátu þingið. Morgunblaðið/Golli Beyene Kelasse skýrir fermingarbörnum í Hallgrímskirkju frá æsku sinni í Eþíópíu. Við hlið hans situr Anna Ólafsdóttir, fræðslufulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar. Fermingar- börn safna fyrir fátæk börn í Afríku HJÁLPARSTARF kirkjunnar gengst fyrir söfnun næstkomandi mánudag til styrktar fátækum börnum í Afríku. Fermingarbörn úr 24 sóknum hvaðanæva af land- inu munu ganga í hús milli kl. 18 og 21 með söfnunarbauka þar sem fólki gefst kostur á að láta fé af hendi rakna til þessa málefnis. Anna Ólafsdóttir, fræðslufulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar, hefur heimsótt flest þau fermingarbörn sem taka munu þátt í söfnuninni undanfarna daga og með í för hefur verið Beyene Kelasse, úr þorpinu Nagule í Konso-héraði í Eþfópíu. Beyene ólst í upp við fátæklegar aðstæður í litlu þorpi, en komst til náms í kristniboðsskóla ásamt erfiðri vinnu og sótti nám eftir það, í skóla Hjálparstarfsins og síðar við bifvélavirkjun. Hvert ár í námi kostaði Beyene um 200 kr., en slíkir Qármunir lágu þó ekki á lausu í hans heimabyggð og þurfti hann að vinna frá morgni til kvölds frá sex ára aldri. n Eftir því sem Beyene skýrir frá var ekki óalgengt að hann vaknaði kl. 2 að nóttu til að skera gras handa kúnum, síðan tóku mjaltir við og eftir þær útbjó Beyene morgunmat fyrir húsbónda sinn. Eftir það tók skólinn við, en siðdegis var eftir að þrífa híbýlin, sækja vatn, eldivið, vinna á akrin- um og laga kvöldverð. Áður en næsti vinnudagur hófst gafst kost- ur á þriggja til fjögurra stunda svefni. Anna segir að megininntak þess sem Beyene segi við íslensk ferm- ingarbörn hér á landi sé að láta sig náungann varða, hvar sem hann sé staddur á jörðinni. Fátækt sé gífur- leg í heiminum og ekki sé hægt að ætlast til að hjálpa megi öllum. Hins vegar sé söfnun eins og nú stendur fyrir dyrum kjörin til að hver og einn leggi sitt af mörkum. Dæmi Beyene sýni að ekki kosti mikið að mennta einstakling í Eþíópíu í eitt ár. Hvert framlag geti þó skipt sköpum fyrir börn sem ekkert eiga og bijótast vilja út úr vítahring fá- tæktarinnar, menntast og fá þannig tækifæri til að bjarga sér sjálf upp á eigin spýtur. Safnað verður í átta sóknum á höfuðborgarsvæðinu, ljórum á Vestijörðum, fimm á Norðurlandi vestra, tveimur á Akureyri, fjórum á Austurlandi og í Vestmannaeyj- um. Þar fer söfnunin þó ekki fram fyrr en 17. febrúar nk. Bæjarstjóri Ölfuss telur að skynsamlegt hafí verið að selja Hitaveitu Þorlákshafnar Salan mun styrkja sveitarfélagið Lífæðin seld fyrir hlægilegt verð, segir bóndinn á Hrauni SESSELJA Jónsdóttir, bæjarstjóri Ölfuss, segir að það sé einróma mat bæjarstjórnar Ölfuss að sala á Hita- veitu Þorlákshafnar til Orkuveitu Reykjavíkur styrki sveitarfélagið. Þess sé að vænta að atvinnulífið i Þorlákshöfn eflist í kjölfar sölunnar og bæjarsjóður hafi nú bolmagn til að ráðast í tímabær og þörf verkefni sem efli þjónustu við bæjarbúa. Hrafnkell Karlsson, bóndi á Hrauni, gagnrýnir hins vegar söluna harð- lega. Sem kunnugt er var Hitaveita Þorlákshafnar seld fyrir 350 milljón- ir. Á síðasta ári keypti Orkuveita Reykjavíkur landsvæði sunnan við Hengilinn af landeigendum í Ölfusi, en þar er mikill jarðvarmi. Kaupin á Hitaveitu Þorlákshafnar koma til í framhaldi af viljayfirlýsingu sem Reykjavíkurborg og Ölfus gerðu fyrir ári um samstarf á sviði orku- mála, hafnarmála og umhverfismála. Sesselja sagði að Hitaveita Þor- lákshafnar stæði vel fjárhagslega. Það mætti hins vegar segja að bol- magn veitunnar til að fara út í stór verkefni væri ekki mikið og hún væri illa í stakk búin til að takast á við stóráföll sem gætu orðið. Með því að selja veituna sterkum aðila, eins og Reykjavíkurborg, væri þess að vænta að honum fylgdu önnur og meiri úmsvif. Það væri því ótvírætt mat bæjaryfirvalda að tilkoma Reykjavíkurborgar styrkti sveitar- félagið og uppbyggingu þess. Hún sagði jafnframt að þetta gerði sveit- arfélaginu kleift að ráðast í nauðsyn- leg verkefni sem tengdust þjónustu við íbúa sem annars hefði ekki verið hægt að ráðast í. Sveitarfélagið hefði haft 40-50 milljónir til framkvæmda á ári undanfarin ár. 350 milljónir breyttu stöðu sveitarfélagsins alger- lega hvað þetta varðar. Hún tók fram að fjárhagsstaða sveitarfélags- ins hefði verið góð fyrir. Skuldir á íbúa væru um 40 þúsund krónur, en nú sköpuðust forsendur til að spara verulega í vaxtakostnaði og í sjálfu sér mætti hugsa sér að vextir af söluandvirði veitunnar skiluðu tekjum í bæjarsjóð. Samstarf við Reykjavík eflir sveitarfélagið Náið samstarf Ölfus og Reykja- víkur hefur vakið upp spurningar hvort til tals hafi komið að sameina sveitarfélögin. Sesselja sagðist kannast við að þessar sögusagnir. Engar viðræður hefðu hins vegar átt sér stað um slíkt. Það væri hins veg- ar rétt að stjórnendur Ölfus hefðu talið að það styrkti svæðið að leita eftir samstarfi við Reykjavík ásamt því að styrkja bæjarsjóð. Ölfus á 5% hlut í Sunnlenskri orku, sem er í eigu RARIK og sveit- arfélaga á Suðurlandi. Sunnlensk orka áformar að byggja allt að 90 MW gufuaflsvirkjun í Grensdal í ná- grenni við Hveragerði. Sesselja sagði að samningurinn við Orku- veitu Reykjavíkur myndi ekki hafa nein áhrif á samstarf Ölfuss við Sunnlenska orku. Sesselja sagði að salan á Hitaveitu Þorlákshafnar leiddi ekki til hækk- unar á orkuverði. Veitan hefur inn- heimt eftir svokölluðu hemlakerfi vegna notkunar á heitu vatni til íbúarhúsnæðis. Innheimta hjá fyrir- tækja hefur verið samkvæmt mæla- kerfi. í yfirlýsingu sem fylgir sölu- samningnum segir að orkuverð verði óbreytt, en stefnt sé að því að skipta úr hemlakerfi yfir í mæla. Þá mun verðskrá Orkuveitunnar gilda, en það leiði ekki til hækkunar. Frek- ar er búist við að verð á heitu vatni til notenda lækki, að sögn Sesselju. Gagnrýni á verðið Hrafnkell Karlsson, bóndi á Hrauni í Ölfusi, er mjög óánægður með sölu hitaveitunnar og hann sagði að það ætti við um fleiri. Hann sagðist ekki skilja hvers vegna sveit- arstjórnin hefði ákveðið að selja. Ekkert knúði á um sölu því bæði stæði veitan og bæjarsjóður vel fjár- hagslega. Verið væri að selja lífæð sveitarfélagsins fyrir hlægilega lágt verð. Inni í samningnum fylgdu hita- réttindi á 12 jörðum í Ölfusi og menn þyrftu ekki annað en að skoða það verð sem Reykjavíkurborg hefði verið að greiða fyrir hitaréttindi á liðnum árum til að sannfærast um að 350 milljónir væri allt of lágt verð. 600-800 milljónir væru nærri lægi. Hrafnkell gagnrýndi einnig hvernig staðið hefði verið að sölunni af hálfu bæjarstjórnarinnar. Þarna væri um það stórt mál að ræða að nauðsynlegt væri að gefa íbúum í sveitarfélaginu færi á að hafa áhrif á málið. Bæjarstjórnin hefði hins veg- ar kosið að ganga frá sölunni í skjóli myrkurs án þess að nokkur íbúi vissi af henni. Hrafnkell sagði að á sínum tíma hefði Hitaveita Þorlákshafnar gert misheppnaða tilraun til að bora eftir heitu vatni. Jarðeigendur í nágrenni við Þorlákshöfn hefðu þá sameinast um að gefa eftir hitaréttindi gegn því að fá heitt vatn frá veitunni ef það mætti verða til þess að hún kæmist á fót. Aldrei hefði komið til umræðu að þessi réttindi yrðu fram- seld til þriðja aðila eins og nú hefði verið gert. í samninginum við Orkuveita er að finna vilyrði um að Orkuveitan lýsi upp Þrengslaveg. Hrafnkell sagðist ekkert gefa fyrir þetta. Það væru ekki nema tvö ár eftir af nú- verandi kjörtímabili stjórnenda í Reykjavík og enginn vissi hvort þeim auðnaðist færi á að standa við þetta vilyrði. s.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.