Morgunblaðið - 12.02.2000, Page 10

Morgunblaðið - 12.02.2000, Page 10
10 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Guðjón A. Kristjánsson um grundvöll nýrrar fískveiðistjórnunar Uppboð og út- gerðarflokkar Frjálslyndi flokkurinn og Vinstrihreyfínffln -grænt framboð standa saman að þings- ályktunartillögu um grundvöll að breytingu á lögum um stjórn fískveiða. Guðjón A. Kristjánsson, þingflokksformaður Frjáls- lynda flokksins, mælir fyrir frumvarpinu jegar þar að kemur en hann viðraði hug- myndir flokks síns á Alþingi í vikunni og sagði Steinþóri Guðbjartssyni frá þeim. Morgunblaðið/Golli Guðjón A. Kristjánsson, þingflokksformaður Fijálslynda flokksins, mælir fyrir tillögu um grundvöll nýrrar fiskveiðistjórnunar. EFTIR helgi verður dreift á Alþingi tillögu til þings- ályktunar um grundvöll nýrrar fiskveiðistjómunar og er Guðjón A. Kristjánsson fyrsti flutningsmaður en Frjálslyndi flokk- urinn og Vinstrihreyfingin - grænt framboð standa að tillögunni. Alykt- unin gengur út á það að sjávarút- vegsráðherra í samráði við sjávar- útvegsnefnd afli gagna og undirbúi tillögur um skiptingu fiskiskipaflot- ans í útgerðarflokka þar sem dag- róðra- og strandveiðiflotinn verði sérstakur útgerðarflokkur með til- tekna hlutdeild í veiðum helstu nytjastofna. I öðru lagi að hann afli gagna og undirbúi tillögur um mögulega byggða- eða svæðatengingu veiði- réttinda með sérstakri hliðsjón af hlutdeild smábáta og strandveiðiflot- ans. í þriðja lagi að hann afli gagna og móti reglur um skilyrði sem leggja eigi til grundvallar því að einstakar tegundir séu kvótasettar. Einnig reglur um hvemig tegundir skulu teknar út úr kvóta þegar forsendur kvótasetningar em brostnar. í fjórða lagi skuli hann skipa starfshóp um umhverfismál og sjáv- arútveg sem móti stefnu um hvemig stuðla megi að þróun íslensks sjávar- útvegs í átt til vistvænna veiða og sjálfbærrar þróunar með sérstakri hliðsjón m.a. af skuldbindingum ís- lands skv. Ríó-sáttmálanum. í fimmta lagi skipi hann 15 manna ráðgjafamefnd skv. tilnefningum með fulltrúum allra þingflokka, full- trúum heildarsamtaka sjómanna, Sjómannasambands Islands, Far- manna- og fiskimanna- sambandi og Vélstjóra- félags íslands, fulltrúa frá Verkamannasam- bandi íslands fyrir hönd fiskverkafólks, fulltrúa frá Landssambandi ís- lenskra útgerðarmanna, fulltrúa frá Landssambandi smábátaeigenda, fulltrúa frá Samtökum fiskvinnslu- stöðva, 2 fulltrúum frá Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga auk formanns sem sjávarútvegsráðherra skipar án tilnefningar. Hlutverk ráðgjafar- nefndarinnar verði að vera samráðs- vettvangur allra helstu hagsmunaað- ila og vera Alþingi og ríkisstjóm til aðstoðar og ráðgjafar um vinnu og stefnumótun á þessu sviði. Ráðgjaf- amefndin skal vera sjávarútvegs- nefnd Alþingis og stjórnskipuðum nefndum, auðlindanefnd og nefnd um endurskoðun laga um stjóm fisk- veiða til aðstoðar og samráðs, með reglubundnum hætti. Sátt nauðsynleg Guðjón segir að forsaga málsins, eins og hún snúi að Frjálslynda flokknum, sé sú að í janúar hafi flokkurinn ákveðið að skoða sjávar- útvegsmálin upp á nýtt með það að leiðarljósi að setja fram leiðarlýs- ingu um farveg þar sem komast mætti út úr kvótakerfinu með skynsamlegum hætti, ef það mætti verða sáttarflötur. „Um sama leyti féll dómurinn í Vatneyrarmálinu og þá fannst okkur enn frekari ástæða til að Alþingi kæmi að þessu.“ Hann segir að niðurstaða viðræðna full- trúa flokkanna tveggja hafi leitt til fyrrnefndrar sameiginlegrar þings- ályktunartillögu en hvor flokkur sé með sína greinargerð. „Eigi að stefna að sátt um sjávarútvegsmálin, sem getur heitið því nafni, teljum við að þennan grunn þurfi að vinna.“ Þrír útgerðarflokkar Fram kemur i viðamikilli greinar- gerð Frjálslynda flokksins að nauð- synlegt sé að skipta fiskveiðiflotan- um upp í þrjá útgerðarflokka. „Nauðsyn ber til að skilgreina fiskiskipin upp í aðgreinda útgerðar- flokka fiskiskipa með sambærilega möguleika til fiskveiða og nálgast þannig jafnræði milli þeirra sem gera út álíka kraftmikil veiðiskip sem hafa mismunandi áhrif á nátt- úrulega viðkomu í lífríki sjávar," segir í greinargerðinni. „Þar ber fyrst að nefna flokk frystitogara og nóta- og togveiði- skipa sem veiða nú þegar innan og utan 200 mílna fiskveiðilögsögunnar, bæði botnfisktegundir og uppsjávar- fisk eins og loðnu, síld, kolmunna og makrfl. Þessir fiskiskipaflotar frysti- og nótaskipa verði sérgreindir frá öðrum hluta flotans og mörkuð afla- og veiðistýring sem hentar þeim í því alþjóðlega uppboðs- og samkeppnis- kerfi kvótaveiði, sóknar og alþjóða- eða milliríkjasamninga sem stórút- gerðin starfar í. Annar sérgreindur útgerðarflokkur væri stærri togveiðiskip sem landa ísvörðum fiski til landvinnslu. Þar þarf að taka tillit til eðlilegrar nýtingar á veiðislóð og fiskistofnum samfara takmörkuðum möguleikum til sóknar útíyrir lögsögu og eðlilegs aðgangs að öllum fisktegundum þar sem í togveiðarfæri kemur afli af mörgum fisktegundum. Tæknivædd línuveiðiskip með beitningarvélar veiða einnig fjölmargar fisktegundir, oftast innan 200 mflna fiskveiðilög- sögu og stórir netabátar geta einnig átt heima í þessum útgerðarflokki. Fyrirfram að lítt rannsökuðu máli er næsta víst að útfærslan hjá þessum þremur gerðum ísfisktogara, beitn- ingarvélbátum og stórum netabátum þarf ekki að vera eins þrátt fyrir það að 'vegna stærðar, afkasta, útiveru- tíma og veiðisvæða falli þessi fiski- skip saman í útgerðarflokk. Þriðji flokkurinn yrði síðan strandveiðiflotinn, skiptur upp í fyrstu í báta undir 6 tonnum (smá- báta) og önnur dagróðraskip undir t.d. 120-140 brúttótonnum. Minnstu bátum strandveiðiflotans yrði gefið eins mikið frelsi til fiskveiða og frek- ast er kostur. Eins og málum er nú komið víða í kvótalausum sjávar- byggðum verður að opna möguleika strandveiðanna til aukins frjálsræð- is. Afgjald af veiðifrelsi strandveiði- flotans renni til útgerðarstaðanna til eflingar landsbyggðar á nýjan leik.“ Fyrr í vikunni mælti Guðjón fyrir frumvarpi þess efnis að frystitogara- flotinn yrði skilinn frá öðrum hluta flotans þannig að hann mætti ekki taka til sín meiri aflaheimildir frá strandveiðiflotanum. Þá greindi hann m.a. frá hugmyndum um ofan- greinda skiptingu flotans í útgerðar- flokka. „Við erum ekki tilbúin að horfa á þetta þróast með þeim hætti sem það hefur gerst á undanförnum árum, að stórútgerðin, sérstaklega frystitogaraútgerðin, kaupi stöðugt til sín strandveiðiflotann og færu aflaheimildir hans yfir á togarana en strandveiðibátamir stæðu eftir kvótalitlir eða kvótalausir,“ segir hann. „Þetta er einn af þeim þáttum sem þarf að lagfæra að okkar viti og er fyrsti liðurinn í þessari sameigin- legu þingsályktunartillögu. Að okkar mati er það að æra óstöðugan að ætla sér að stýra strandveiðiflotan- um, trillunum, 50 tonna bátum og 100 tonna bátum með sams konar að- ferð og til dæmis frystitogaraflotan- um, sem er ekki aðeins að veiða á djúpmiðunum kringum landið held- ur er í alþjóðlegri samkeppni um veiðar innan og utan lögsögu. Þetta fer ekki saman enda hefur engin þjóð sem ég þekki til búið til stjóm- kerfi þar sem reynt er að stýra strandveiðiflotanum með sömu að- ferð og 2.000 tonna skuttogara.“ Leiðarlýsing Auk skiptingar flotans í flokka er bent á 15 leiðir sem hafa þarf til hlið- sjónar við gerð nýrra laga um stjórn fiskveiða. Bent er á að gera skuli um- hverfismat fyrir hvem flokk veiðar- færa, strandveiðiflotanum verði gert kleift að sækja sjóinn með lágmarks- hömlum, kvótasetning verði afnumin af þeim tegundum nytjafiska, sem ekki hefur tekist að veiða upp tvö fiskveiðiár í röð, en af slíkum afla verði greitt gjald, sem Alþingi ákveður með lögum, af hveiju kílói eftir landaðri vigt. Framsal og framleiga á veiðiheim- ildum verði þegar í stað bönnuð. Hinum smærri, sem tilheyra munu strandveiðiflotanum og hafa tekið þátt í því fjárhættuspili, sem framsalsheimildimar frá 1990 hafa búið til, verði forðað frá stóráföllum með skattalegri afskrift kvótaand- virðis og úthlutun kvóta eftir núgild- andi reglum á þeim fisktegundum, sem eftir væm undir kvótasetningu, verði ftyst að því er tekur til magns, en jafnframt afnumin í fimm jafn- stómm skrefum á næstu fimm ámm, þannig að fyrsti fimmtungurinn verði felldur niður við upphaf næsta fiskveiðaárs og síðan árlega koll af kolli. Verði Vatneyrardómurinn hins vegar staðfestur óbreyttur af Hæstarétti er síðastnefnda atriðið útilokað og er þá bent á að nauðsyn- legt sé að finna aðferð sem fullnægir jafnræðisreglu stjórnarskrár. „Veiðiheimildum, sem losna undan kvótaúthlutun, aukningu á leyfilegu veiðimagni skv. nýrri kvótasetningu og nýjum tegundum, sem teknar yrðu undir kvótasetningu, yrði ann- ars vegar úthlutað með því að bjóða veiðiheimildir upp á opnum til- boðsmarkaði á ríkisins vegum og hæstu boð látin ráða og hins vegar með greiðslu aflagjalds hjá strand- veiðiflotanum. Fyrstu tvö ár hins nýja kerfis skal leyfilegt heildar- magn þorsks aukið um 100.000 tonn hvort ár umfram það sem nú gildir. Öll framkvæmd umskiptanna frá gömlu kerfi yfir í hið nýja, væri í höndum sjálfstæðrar þriggja manna stjórnarnefndar óvilhallra manna, sem Hæstiréttur tilnefnir, en sækir umboð sitt beint til Alþingis. Stjórn- amefndin hefði bæði viðtækt úr- skurðarvald um ágreiningsefni og lagaskyldu til að ráðleggja sjávarút- vegsráðherra og eftir atvikum Al- þingi um vandamál, sem ráðherra eða Alþingi þyrfti að taka á í fram- kvæmd hinnar nýju stefnu. Stjómar- nefndin hefði enn fremur víðtækt ákvörðunarvald um ýmis atriði fram- kvæmdar hinnar nýju stefnu, sbr. það, sem hér fer á eftir. Þá skal nefndin gera tillögu um hvemig þeim útgerðum, sem mestu hafa var- ið hlutfallslega til kaupa veiðiheim- ilda á undanfömum árum, verði forð- að frá áföllum þegar kerfið er afnumið. Uppboð á veiðiheimildum fer ekki einungis fram undir stjóm stjómar- nefndar hinnar nýju fiskveiðistjóm- arstefnu, heldur hefði hún til þess heimildir, að koma í veg fyrir að hóf- lausum yfirboðum stórútgerða yrði tekið, sem og heimildir til þess, að einstakar sjávarbyggðir yrðu ekki útundan í slíkum útboðum, þótt raunvemlegt markaðsverð yrði að ráða í slíkum viðskiptum. Komi til þess í uppboðum á veiðiheimildum og í hinum frjálsu veiðum strand- veiðiflotans, að ójafnvægi myndist milli hinna þriggja hluta flotans, verði heimild til að skipta afla- magninu milli strand- veiðiflotans og hinna tveggja hluta flotans. Æskileg skipting af- lamagns verði í sam- ræmi við þá fiskteg- und sem mest er veidd hverju sinni af viðkomandi útgerðarflokki, eftir veiðarfærum, t.d. karfi og grálúða í troll.“ Ennfremur er lagt til að útgerðar- flokkum verði afmörkuð veiðislóð og að strandveiðiflotinn taki ekki þátt í uppboðum veiðiheimilda, heldur hafi frjálsa sókn á þeim svæðum, sem honum eru mörkuð, en greiði við löndun hverju sinni fjárhæð á hvert kíló kvótasetts fisks, að hámarki 15% af mánaðarlegu meðalverði á fisk- mörkuðum. Útboð fari fram á opnum til- boðsmarkaði allt árið og heimildir leigðar til eins árs í senn og gert er ráð fyrir skyldu til, að allur afli, sem á skip kemur, verði fluttur í land. Stýrð uppboðsleið „Við teljum að mjög vandlega þurfi að huga að svona uppboðsleið og hún getur ekki verið óstýrð,“ seg- ir Guðjón. „Huga þarf að því að svæðin og ákveðnar skipagerðir nái veiðiréttindum, huga að þvi að ekki einn hópur útgerðar nái öllum veiði- réttindum og tryggja að byggðasjón- armiðin nái fram að ganga.“ Guðjón segir að menn geri sér grein fyrir að skiptar skoðanir séu í þjóðfélaginu um hvernig lög um stjórn fiskveiða eigi að vera, en mikil vinna hafi verið lögð í umrædda leið- arlýsingu og ljóst sé að uppfylla verði skilyrði stjórnarskrárinnar um jafnræði og atvinnufrelsi. „Útgerð- armenn vilja verja þetta eignarhald sitt í bak og fyrir í algerri andstöðu við mikinn meiri hluta þjóðarinnar. Við teljum að það verði aldrei sátt um slíkt eignarhald og því verði að finna aðferð sem útdeilir þessum réttindum með þeim hætti að þegn- arnir séu jafnsettir við að reyna að nálgast þau miðað við þá sem í at- vinnurekstrinum eru og að þjóðin fái í slíkri útfærslu eitthvert afgjald fyr- ir auðlind sína.“ Frestunarákvæði í frumvarp- inu með sátt í huga Guðjón segir að í boðuðu frum- varpi sé frestunartillaga á ákvæðum í gildandi lögum; sum ákvæði í lögum um stjóm fiskveiða sem eigi að taka gildi 1. september nk. taki ekki gildi fyrr en ári síðar. „Við viljum gefa okkur tíma til að láta vinna málið með fyrrgreindum hætti. Við leggj- um til að kvótasetningu á smábátana verði frestað um eitt ár sem og ýms- um öðrum liðum, sem eru í bráða- birgðaákvæðunum. Ef þingið á að setja nýja löggjöf í haust eða á vor- þingi 2001 göngum við út frá því að í haust verði búið að vinna nauðsynlega forvinnu.“ Hann áréttar að um leiðarlýsingu er að ræða til að koma á sátt í landinu. „Greinar- gerð okkar er í raun og veru leiðar- lýsing að nýjum lögum. Eins og segir í lok greinargerðarinnar viljum við gjarnan að þessi framsetning okkar sé sáttarflötur. Við höfum ekki viljað fara út í það að skrifa lagabókstafinn frá orði til orðs heldur lýsum hvernig standa þurfi að málum, hvaða for- sendur þurfi að vera til staðar til að finna megi þessa fleti. Hins vegar lokum við engum leiðum og erum til- búin að vinna með öllum sem það vilja enda getur enginn einn skrifað sinn óskatexta sem aðrir svo sam- þykkja. Þessi mál eru flókin og erfið sem sést best á því að komin eru 28 bráðabirgðaákvæði við núgildandi lög fyrir utan breytingar á laga- greinum. En málið er að við teljum að engin sátt verði um núverandi kvótaskipt- ingu og því eigi að hverfa frá henni. Lausnin felst í uppboði og aðgreind- um útgerðarflokkum, þar sem tekið er tillit til byggðasjónarmiða og rétt- inda strandveiðiflotans." Mismunandi ad- ferðir við stýringu flotans Takaþarf tillíttil réttinda strand- veiðifiotans )

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.