Morgunblaðið - 12.02.2000, Síða 40
10 f LÁUGAEDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
MÖRGUNBLÁÐIÐ
MARGMIÐLUN
Skjala-
skanni
í vasann
Þeir sem eru á ferð og flugi þurfa að tækni-
væðast til að missa sem minnstan tíma úr
vinnu. Arni Matthíasson skoðaði skjala-
skanna í vasastærð.
EKKI FER milli mála að Hewlett-
Packard ætlar sér að ná árangri á
far- og fistölusviðinu og þá ekki
bara með tölvunum sjálfum. Gott
dæmi um það er „vasaskanni“ sem
fyrirtækið kynnti á siðasta ári og
kominn er á markað hér á landi.
Capshare skanninn vekur athygli
hvarvetna er hann er dreginn upp-
úr skjóðunni, enda er hann sér-
kennilegur ásýndar, nokkru minni
en meðal pappírskilja og heldur
þykkari. Hann er um 400 grömm
með rafhlöðum og traustbyggður.
Með fylgir mjúkur poki sem kemur
í veg fyrir að skjárinn á honum
rispist í meðförum.
Capshare tekur einskonar mynd
af viðkomandi síðu eða skjali og þó
leshausinn sé ekki nema 12 senti-
metrar getur hann lesið mun stærri
síður með því einfaldlega að lesa
fyrst 12 sentimetra ræmu, og eftir
að notandinn færir skannann tæpa
hausbreiddina til hliðar les hann
áfram og hugbúnaður í skannanum
sér um að skeyta myndunum sam-
an. Ef skanna á stærri síður en A4
er stillt á sérstakan lesham sem les
þá með minni upplausn frá hægri
til vinstri, en skannanum er hnikað
niður eftir því sem vindur fram.
Hægt er að skanna í meiri upp-
lausn ef mikið er um smáatriði en
þá kemst vitanlega minna fyrir í
skannanum.
Hægt er að geyma um 50 síður í
innra minni skannans í venjulegri
upplausn, upp undir 150 síður í
minni upplausninni og tíu til fimm-
tán síður í mestu upplausn. Hægt
er að skoða myndimar sem búið er
að skanna á litlum skjá á hlið
skannanas og stækka myndirnar til
að kanna smáatriði. Lítillega er
hægt að vinna með myndirnar,
snúa þeim til og skera utan af
þeim, sem borgar sig að gera til að
minnka þær eins og kostur er, ekki
síst ef senda á þær með tölvupósti
eða innrauða tenginu.
Hægt er að senda myndir úr
skannanum í prentara með inn-
rauðu tengi og einnig í fartölvur,
lófatölvur og vasatölvur. Þannig
gekk mjög vel að senda mynd í
Jornada-fartölvu, sem er reyndar
frá HP, og einnig að senda mynd í
Psion 5 tölvu, þó þar hefur þurft að
sækja á Netið hugbúnað til að lesa
TIFF-gagnasniðið en Capshare
vistar og sendir myndir á því sniði.
Það kemur þó ekki að sök, enda
hugbúnaður til að skoða TIFF-
skjöl auðfáanlegur og jafnvel
ókeypis.
Samkvæmt því sem fram kemur
á vefsetri skannans ættu hleðslur-
afhlöðumar tvær sem passa í
skannann að duga í um 100 síður,
en með fylgir hleðslutæki og auka-
rafhlöður og hægt að hlaða allar
fjórar í einu ef svo ber undir.
Hægt er að senda skjölin í prent-
ara eða fartölvu með innrauðu
tengi svo dæmi séu tekin, en einnig
er að sögn hægt að senda skjöl í
Nokia Communicator.
Skamman tíma tók að ná tökum
á skannanum og vel fyrir öllu hugs-
að. Eins og er með góðan búnað
þarf varla að lesa leiðbeingarnar til
að ná að nýta tólið, það útskýrir að
segja sjálft. Skanninn er líka þægi-
lega hraðvirkur þótt lítill sé og til
að mynda tók ekki ekki nema
nokkrar sekúndur að skanna A4-
síðu með nokkra af myndum.
Notagildi Capshare skannans er
mjög mikið og því meira sem menn
venja sig á að nota hann. Þannig er
hægt að skanna inn leiðbeiningar
og útskýringar og senda í tölvu-
pósti eða símbréfi, prenta út eða
einfaldlega eiga í tölvutæku formi.
Með fylgir einnig hugbúnaður til að
lesa texta sem skannaður er inn, en
ræður illa við séríslenska bókstafi,
en má líkastil bæta með frekari
stillingum.
Connectix
leggur Sony
Sound-
Blaster fyrir
Makka
FYRIR EKKI svo löngu lögðu
frammámenn hjá Apple
áherslu á að Macintosh tölvur
hentuðu til leikja ekki síður en
PC-samhæfðar tölvur. í kjölfar
sérstaks átaks Apple var mikið
um að vera á markaði fyrir
Makkaleiki um tíma og sumir
framleiðendur snera PC-leikj-
um í Makkaform. Helstu jaðar-
tækjaframleiðendur hafa þó
ekki tekið eins vel við sér, en
Makkavinir geta glaðst því
Creative, einn helsti framleið-
andi hijóð- og skjákorta, slóst í
hóp þeirra fyrir skemmstu.
Creative byrjar Makka-
stuðning sinn með SoundBlast-
er Live!-kortum sínum, Web-
Cam-tölvumyndavélinni og
Nomad MP3-spilaranum, en að
sögn frammámanna fyrírtæk-
isins fylgir annar vamingur í
kjölfarið innan skamms.
Margir muna eflaust eftir
PlayStation-herminum sem
bandaríska fyrirtækið Connectix
setti á markað fyrir nokkrum ár-
um. Sony, sem á höfundarétt á
PlayStation, tók herminum frek-
ar Ula, enda taldi það Connectix
hafa beitt ólöglegum aðferðum til
að komast yfir viðskiptaleyndar-
mál.
Svo fór að Sony stefndi Conn-
ectix og krafðist Iögbanns á
herminum og fékk því framgengt.
Connectix-menn þurftu því að
hætta sölu á herminum snimm-
hendis meðan málarekstur vegna
lögbannsins gengi yfir. f gær féll
svo dómur í málinu þar sem lög-
bannið var fellt úr gildi og Conn-
ectix heimilað að hefja sölu á
herminum aftur. Fyrirtækið var
ekki lengi á sér að hefja söluna
aftur, því nú geta þeir sem vilja
keypt sér herminn á vefsetri fyr-
irtækisins og skammt að bíða
þess, að sögn starfsmanna fyrir-
tækisins, að hann verði fáanlegur
hvarvetna.
Ekki er bara að Connectix
fagni því að mega loks selja
PlayStation-hermi fyrir Makka
heldur hyggur fyrirtækið á fram-
leiðslu á slíkum hermi fyrir
Windows-stýrikerfið og er vænt-
anlegur á næstu dögum. Á því
sviði verður Connectix í sam-
keppni við Bleem! sem hefur líka
orðið fyrir barðinu á Sony í
hermisframleiðslu sinni.
Connectix framleiðir þó fleira
en leikjatölvuherma, því fyrir-
tækið vakti fyrst athygli fyrir
Windows-hermi fyrir Makka sem
kallast Virtual PC. Fyrir stuttu
kom út útgáfa af Virtual PC sem
styður Windows 2000, en einnig
kom á markað útgáfa af Virtual
PC sem keyrir Linux.
IBM blæs
til sóknar
IBM hefur gengið brösulega á
borðtölvumarkaði og hyggst
snúa þeirri þróun við ef marka
má yfirlýsingar um veralegar
breytingar á framleiðslulínu fyr-
irtækisins. Á næstu mánuðum
hyggst fyrirtækið breyta vera-
lega PC-framleiðslulínu sinni,
kynna nýjar gerðir tölva með
breyttu útliti og á lægra verði en
hingað til.IBM hyggst kynna á
CeBIT-tölvu- og tæknisýning-
unni í Hannover undir lok mán-
aðarins ýmsar nýjungar, þar á
meðal nýjar gerðir tölva sem
koma á markað á næstu mánuð-
um. f apríl kemur þannig á
markað ný tölvugerð, kölluð
Luxor sem stendur, sem verður
sambyggð tölva með flötum skjá
og optical-drifi. Þannig verður
tölvan sambyggð skjánum ef svo
má segja, en drifið sígur niður
undan skjánum sé smellt á við-
eigandi hnapp.
Um líkt leyti kemur á markað
fyrirtækja borðtölva, sem IBM-
menn kalla Stardust, sem á að
kosta innan við 40.000 kr. vestan
hafs, en verðinu er náð niður
meðal annars með því að sleppa
ýmislegum gamaldags tengi-
möguleikum, til að mynda ISA-
og PCI-raufum.
Þriðja tölvan er svo iCruiser,
sem er nokkurskona nettölva
sem keyrt getur ýmis stýrikerfi,
til að mynda Linux, og verðlögð
með það í huga að netþjónustur
geti gefið viðskiptavinum sínum
slíkar tölvur eða selt gegn vægu
verði.
VERSLUIMIIM HÆTTIR
á Laugavegi 49
Rýmingarsala
Opið laugard,
kl. 10-18,
sunnud.
kl. 10-21
Allt að
70°/c
O , . . , . SPORTVORUVERSLUNIN '
afslattur SPARTA
Laugaveyi 49 -101 Reyklavik - slmi 5S1 2024
síðustu dagarnir