Morgunblaðið - 23.02.2000, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000 1 5
FRÉTTIR
Starfsemi hafín hjá Sindrabergi á fsafírði
Framleiða sushi-rétti
fyrir Bretlandsmarkað
FRAMLEIÐSLA á sushi-réttum
hófst formlega í gær í verksmiðju
Sindrabergs hf. á ísaflrði. Afurð-
irnar eru fluttar til Bretlands en
verða einnig á boðstólum á markaði
hér innanlands.
Sindraberg hefur á undanförnum
mánuðum verið að koma upp vélum
til framleiðslu á sushi í húsnæði
sem félagið keypti af Básafelli. Til-
raunaframleiðsla hófst í byrjun
mánaðarins og nú þegar umbúðir
eru komnar getur framleiðslan haf-
ist. Gunnar Þórðarson fram-
kvæmdastjóri segir að uppsetning
véla og tilraunaframleiðsla hafí
gengið samkvæmt áætlun og menn
séu mjög bjartsýnir á framhaldið.
Tæknivædd verksmiðja
Verksmiðjan er mjög tæknivædd.
Hrísgrjónin fá sérstaka meðferð og
eru soðin í tölvustýrðum vélum.
Þjarki (róbót) býr til úr þeim rúllur
og fingur. Þaðan fara hrísgrjónin á
flæðilínu, þá fyrstu sinnar tegundar
í sushi-verksmiðju, þar sem fiskur-
inn, eggin eða annað sem tilheyrir
er sett á þau. Grjónin eru enn volg
þegar varan er snöggfryst í 80-90
gráður. Síðan er henni pakkað í
heildsölu- eða smásölupakkningar
og er þá tilbúin til neyslu eftir þíð-
ingu í 2-3 tíma við stofuhita.
Viðskiptahugmyndin er unnin í
samvinnu við stórt breskt dreifing-
arfyrirtæki sem eigendur Sindra-
bergs hafa lengi selt rækju. Fer af-
urðin bæði í neytendapakkningum
til stórmarkaða og heildsölupakkn-
ingum til veitingahúsa. Jafnframt
Morgunblaðið/Golli
Gunnar Þórðarson stendur fyrir framan eldspúandi drekann sem
skreytir veggi sushi-verksmiðjunnar. Á bakkanum sem hann heldur á
er sýnishorn af framleiðslunni en í upphafi verða framleiddir sjö réttir.
verður sushi frá ísafirði á markaði
hér innanlands. Gunnar segir að
hluti tilraunaframleiðslunnar hafi
farið til sölu í verslun Samkaupa á
Isafirði og runnið þar út á stuttum
tíma.
Gunnar segir að gott sé að fram-
leiða þessa vöru á ísafirði og nefnir
tvennt sérstaklega til sögunnar í
þvi sambandi: Möguleika á fersku
og góðu hráefni og framboð af góðu
starfsfólki sem fengið hefur þjálfun
í matvælaframleiðslu í rækjuiðnað-
inum.
SteRliÍÍiSL
s m sslgi §ffii i
mrnmm
Njóttu stemmningar við flöktandi eld
Við bjóðum úrval enskra rafmagnskamína með kola- eða viðarglóð
og flöktandi kamínuloga. Þær henta hvar sem er:
I stofur, sólstofur, forstofur og sumarbústaði.
Útvegum einnig viðar- og kolaeldstæði tengd rafmagni,
sem setja má í opnar kamínur.
Einar
Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 ° 562 2901 og 562 2900
www.ef.is
Fréttir á Netinu
vAÚmbl.is
^ALLTAf= GITTHXSAÐ NÝTT