Morgunblaðið - 24.02.2000, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kári borgi fólkinu
ienn tilbúnir að annast úr
de CODE
- lögmenn tilbúnir að annast úrsögn úr gagnagrunninum og veita aðstoð.
Þessi er ein með öllu, nefndu það bara og það er að finna á minni skrá, Kári minn.
þavf ekki
að kosta
meira
Þú kemst að því þegar þú heimsækir okkur.
Með því að auka fjölbreytni í þjónustu okkar viljum við spara
húseigendum dýrmætan tíma og fjármuni. Það hefur
ótvíræða kosti að geta gengið að gæðunum vísum á sama
stað - hvort sem um er að ræða heimilistæki, innréttingar
- eða allt hitt sem Bræðurnir Ormsson hafa upp á að bjóða.
Glæsilegur sýningarsalur í Lágmúla 8,
3. hæð - líttu við
Ráðstefna um beitarfriðun á miðhálendinu
Friðun
hálendisins
nauðsyn?
Ólafur Arnalds
RÁÐSTEFNA um
jarðvegsrof og
beitarfriðun á mið-
hálendinu verður haldin á
laugardaginn kemur
klukkan 13 í Odda, stofu
101. Ráðstefna þessi er
haldin á vegum Úmhverf-
isvemdarsamtaka Islands.
Vigdís Finnbogadóttir-
.{yrrverandi forseti ís-
lands, setur ráðstefnuna
en síðan verða haldnir fjór-
ir fyrirlestrar. Dr. Ólafur
Arnalds heldur fyrirlestur
um jarðvegsrof og mikil-
vægi beitarfriðunar á há-
lendinu.
-En er ástandið hvað
snertir jarðvegsrof á há-
lendinu mjög slæmt?
„Já, það er vissulega
slæmt, það er trúlega með
því versta sem þekkist í veröldinni
á stómm hluta hálendisins ef und-
an em skilin samfelld gróðurlendi
sem finnast einkum á vestan- og
norðvestanverðu hálendinu."
- Eru það tildrög þessarar ráð-
stefnu?
„Já, vissulega. Umhverfísmál í
heiminum em á tímamótum sem
kenna má við Dagskrá 21 og ráð-
stefnuna miklu í Ríó. Öll nýting
náttúruauðlinda á nú að vera sjálf-
bær. íslendingar hafa gengist
undir þessa stefnu, hafa stofnað
sérstakt ráðuneyti umhverfismála
og samið ýmis ný lög um nýtingu
náttúrunnar og skipulagsmál. En
þama hefur beitarnýting orðið út-
undan og þá ekki síst með tillliti til
hálendisins. Forsaga málsins er
sú að árið 1997 birtu Landgræðsla
ríkisins og RALA ítarlega skýrslu
um ástand landsins með tilliti til
jarðvegsrofs. Þetta viðamikla
verkefni aflaði stofnunum um;
hverfisverðlauna Norðurlanda. I
skýrslunni kemur skýrt fram
slæmt ástand hálendisins sem að
stómm hluta er auðnir og fjall-
lendi sem hentar ekki til beitar.
Hafa verður í huga að íslenskum
jarðvegi er sérstaklega hætt við
eyðingu og það hefur lengi legið
fyrir að ekki er forsvaranlegt að
nýta hálendi Islands til sauðfjár-
beitar. Það hefur m.a. lengi verið
stefna Landgræðslu ríkisins að
friða illa farna hálendisafrétti fyr-
ir beit. En þrátt f yrir ítarlegar
rannsóknir hefur í raun lítið mið-
að. Við það verður ekki unað leng-
ur. Það er t.d. vert að hafa í huga
að nú er unnið að samningi ríkis-
valdsins við sauðfjárbændur sem
mun kosta hátt í tvo milljarða
króna á ári og það hlýtur að vera
eðlileg krafa að tryggt sé að slíkar
greiðslur stuðli ekki að eyðingu
lands og í raun fráleitt að greiða
bændum fyrir afurðir sem em
framleiddar á auðnum
og rofsvæðum hálend-
isins. Bændur og ráða-
menn landbúnaðar-
mála verða að stíga sín
skref inn í 21. öldina
eins og aðrir og ég tek
fram að ég hef ekki ástæðu til að
halda annað en þeir séu reiðubún-
ir til þess.“
- Þýðir þetta í raun að bændur
verða að hætta að beita búfé sínu á
háiendið að þínu mati?
„Við erum einvörðungu að ræða
um lítinn hluta sauðfjái'beitar í
landinu. A nokkmm landsvæðum
era vel grónir afréttir sem vel
henta til beitar, t.d. í Vestur-
Húnavatnssýslu, en það sauðfé
sem gengur á auðnum og rofsvæð-
► Ólafur Arnalds fæddist í
Reykjavík 1954. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1974, BS-prófi frá Há-
skóla íslands 1980 og doktors-
prófi í jarðvegsfræði frá Texas
A&M University 1990. Hann hef-
ur starfað við rannsóknir á
Rannsóknast ofnun Iandbúnaðar-
ins frá 1980 ef undan eru skilin
námshlé. Ólafur er nú sviðstjóri
umhverfissviðs RALA og starfar
við rannsóknir á jarðvegi og á
sviði landverndar. Ólafur er
kvæntur dr. Ásu L. Aradóttur,
vistfræðingi og yfirmanni rann-
sóknarsviðs Landgræðslu ríkis-
ins. Þau eiga tvö böm.
um hálendisins er í raun fátt.“
- Hvar er ástand landsins
verst?
„Það er á þeim afréttum sem
liggja á gosbeltinu og þeim sem
hæst standa, svo sem á Suðurlandi
og norður um í Þingeyjarsýslur."
- Hverjir eiga að hafa forgöngu
um að friða þessi illa fömu svæði
aðþínu áliti?
„Það væri farsælast að bændur
hefðu sjálfír fmmkvæði í þeim
efnum en jafnframt er mjög brýnt
að þjóðfélagið og stjórnsýslan taki
mið af eigin ákvörðunum og lög-
festi sjálfbæra nýtingu landsins.
Það felur m.a. í sér að marka
stefnu sem miðast að beitarfriðun
hálendisins sem meginreglu enda
þótt sjálfsagt sé að nýta þau svæði
þar sem gróður er samfelldur og
ástand landsins gott. Hitt er svo
annað mál að vinna verður að
þessu í hæfilegum en vel vörðuð-
um áföngum og á þann hátt að það
skerði sem minnst kjör bænda.“
- Hverjir aðrir halda fyrirlestra
á þessari ráðstefnu?
„Kristín Svavarsdóttir og Þóra
Ellen Þórhallsdóttir
halda íyrirlestur um
gróður á miðhálendi Is-
lands, verndun hans og
nýtingu. Meðal fram-
mælenda verður einnig
einn frammámanna
sauðfjárbænda, Aðalsteinn Jóns-
son, sem fjallar um sauðfjárrækt í
sátt við land og þjóð. Bjöm Bark-
arson ætlar svo að velta fyrir sér
hvort beit á hálendinu geti verið
sjálfbær eða vistvæn og síðast
mun ég eins og fyrr sagði fjalla um
jarðvegsrof og mikilvægi beitar-
friðunar á hálendinu. Gefinn verð-
ur rúmur tími til umræðna sem
væntanlega geta orðið bæði fjör-
ugar og snarpar. Júlíus Sólnes
mun stjórna þeim umræðum."
Bændur verða
að stiga sín
skref inn í 21.
öldina