Morgunblaðið - 24.02.2000, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Skólastjóri Tónskóla Hörpunnar vill breytingar á leiðakerfí SVR innan Grafarvogshverfís
Tekinn verði upp hring-
akstur innan hverfisins
Grafarvogur
KJARTAN Eggertsson,
skólastjóri Tónskóla Hörp-
unnar í Grafarvogi, segir að
börn sem stunda nám í skól-
anum, og koma víða að úr
Grafarvogshverfinu, geti
ekki nýtt sér leiðakerfi SVR
nema að mjög takmörkuðu
leyti. Hann hefur því sent
hverfisnefnd Grafarvogs er-
indi þar sem hann óskar eft-
ir að nefndin beiti sér fyrir
því að tekinn verði upp
hringakstur strætisvagns
um Grafarvogshverfi. Þá
óskar hann einnig eftir að
vagninn stoppi á fleiri stöð-
um og þéttar en vagnarnir
gera núna.
Að sögn Kjartans er þetta
ekki aðeins brýnt hags-
munamál fyrir Tónskólann,
heldur sé það almenn nauð-
syn fyrir börnin að komast
leiðar sinnar á auðveldari
hátt með strætó innan Graf-
arvogshverfis.
Þá hefur Kjartan óskað
eftir því að vagn hafi stoppi-
stöð við Strandveg fyrir
framan hús Allrahanda, þar
sem nú er bekkur og að
lagður verði gangstígur þar
yfir mýrarfenið að Gylfaflöt.
Þurfa að skipta um vagn
í öðru hverfi
Tónskóli Hörpunnar
stendur við Gylfaflöt 5 og
var stofnaður sl. haust.
Skólinn er í nálægð Rima-
hverfis og segist Kjartan
hafa reiknað með því að
flestir nemendur í skólanum
kæmu úr þeim hluta Grafar-
vogshverfis. Hins vegar hafa
nemendur komið af öllum
svæðum Grafarvogs, þ.e.
Hamra-, Folda-, Húsa-,
Rima-, Engja-, Víkur-,
Borga- og Staðahverfi. í
upphafi skólans í haust
komu flest barnanna gang-
andi í skólann, en þegar tók
að kólna og snjóa er þeim
flestum ekið til og frá skól-
anum.
Strætisvagn nr. 8 stoppar
skammt frá skólanum, en
hann er að koma úr Breið-
holti og tekur síðan hring
um hverfið og fer út úr því
aftur án þess að koma aftur
að skólanum. Margir nem-
endur þurfa því að taka
vagn upp í Ártún og skipta
þar um vagn til að komast
nálægt skólanum.
„En það er alveg grund-
vallaratriði fyrir börn sem
eru 9-11 ára gömul, sem er
fjölmennasti aldurshópurinn
í skólanum og er að taka sín
fyrstu skref í strætó, að
þurfa ekki að skipta um
vagn á leiðinni og allra síst í
öðrum hverfum.“
Kjartan telur það vera til-
raunarinnar virði að reyna
að hafa einn strætisvagn
sem gengi einungis um
Grafarvogshverfi og út í alla
anga þess. Vagn sem gengi
réttsælis um hverfið um alla
hluta þess kæmi öllum íbú-
unum að góðum notum, sér-
staklega börnum og ungling-
um. Hann segist heyra það á
foreldrum að þeir myndu
senda börnin í skólann með
strætó ef hann gengi hring-
inn um hverfið og að þeim
þætti það góð tilfínning að
vita til þess að vagninn færi
ekki út úr hverfinu.
Hagsmunamál allra íbúa
og stofnana hverfísins
Að sögn Kjartans yrði
vagninn að ganga réttsælis
um hverfið, vegna þess að
ekki er hægt að hafa hring-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kjartan Eggertsson, skólastjóri Tónskóla Hörpunnar í
Grafarvogshverfí.
akstur um aðalgöturnar
rangsælis, eins og t.d. fram
hjá skólanum við Gylfaflöt,
en þá þyrftu börnin að fara
yfir stórar umferðargötur til
að komast í skólann.
Þetta mál snýst að mati
Kjartans um meira en þarfir
lítils tónskóla. Hann segir
þetta vandamál vera það
sama og annarra skóla og
stofnana í Grafarvogshverfi.
Hverfið sé mjög afmörkuð
heild með eitt íþróttafélag,
eina sundlaug, eina kirkju,
nokkra grunnskóla, tónlist-
arskóla, heilsugæslustöð,
verslanaþyrpingar o.s.frv.
Kjartan telur því að það sé
sameiginlegt hagsmunamál
allra íbúa og stofnana Graf-
arvogshverfis, að samgöng-
ur með strætisvögnum séu
góðar innan hverfisins.
Mégane Classic er öruggari, stærri og kraftmeiri
i
1
Gijótháls 1
Sfmi 575 1200
Söludeiid 575 1220
Mégane Classic kostar frá 1.398.000 kr.
Renault Mégane Classic er fallegur bíll í millistærð en fæst þó á svipuðu verði og lítill fólksbíll.
Sem dæmi um stærðina má nefna farangursrými Classic sem er hvorki meira né minna en
510 lítrar. Þá er Classic bæði öruggari og kraftmeiri en bflar í sama stærðarflokki. Classic
fæst til dæmis bæði með 95 ha. 1400 vél og 107 ha. 1600 vél ef þú vilt enn meiri kraft.
Prófaðu Renault Mégane Classic; stærri, kraftmeiri og öruggari bfl.
RENAULT