Morgunblaðið - 24.02.2000, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
RYIVIUM FYRIR NYJUM SVEFNHERBERGISHUSGOGNUM
Grímseyingar
skemmtu sér
konunglega á
þorrablóti
Grímsey - Grímseyingar héldu sitt
árlega þorrablót í lok þorrans á
föstudaginn var í félagsheimilinu
Múla. Um 75 manns voru mættir á
blótið sem telst mjög gott því eyjar-
skeggjar eru rétt um 100. Komu um
20 manns úr landi, sumir alla leið-
ina frá Reykjavík.
Dagskrá kvöldsins var fjölbreytt;
Einar Georg Einarsson, kennari við
Reykjaskóla í Hrútafirði, var aðal-
skemmtikraftur kvöldsins og
veislusljóri, hljómsveitin Bahoja frá
Bakkafirði spilaði undir söng og
dansi, lesið var upp heimasmfðað
grín og farið var í samkvæmisleiki.
Almennt segist fólk hafa skemmt
sér konunglega, það var hlegið
mikið langt fram eftir kvöldi og
dansað framundir morgun.
Þorrablótið var haldið af Kven-
félaginu Baugi og skipuðu þorra-
blótsnefnd að þessu sinni Guðbjörg
Henningsdóttir, Jónína Sigurðar-
dóttir, Margit Elva Einarsdóttir og
Steinunn Stefánsdóttir.
Átta ára telpu var bjargað úr lífsháska með snarræði
Hettureim festist
í skíðalyftunni
ÁTTA ÁRA barn var á
laugardaginn hætt kom-
ið á skíðasvæðinu í Staf-
dal við Seyðisfjörð þeg-
ar reim festist í höldu
skíðalyftu og hertist að
hálsi barnsins.
Telpan, Ester Rut
Þórisdóttir, var á leið
upp í fjall með skíðalyft-
unni og ætlaði að fara að
renna sér niður neðar-
lega í brekkunum. Þeg-
ar hún hafði sleppt tak-
inu kom í ijós að plast á
enda reimar í hettu
hennar hafði farið í
gegnum gat á höldunni
og dróst hún því með
lyftunni. Reimin var það
löng að hún náði ekki
aftur taki og hertist reimin því að
hálsi hennar þar til hún missti með-
vitund. Strákar á skíðabrettum sem
voru á leið niður fjallið sáu til henn-
ar og létu eftirlitsmanninn vita.
Slökkt var á lyftunni umsvifalaust.
Svo vel vildi til að vélsleði stóð í
gangi utan við lyftuhúsið og eftir-
Iitsmaður svæðisins, Gunnþór Jóns-
son, settist á bak og hélt á slysstað.
Þegar hann kom á staðinn var ekk-
ert lífsmark með stúlkunni. Hann
hóf þegar lífgunaraðgerðir og tókst
að koma öndun hennar af stað á ný.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson.
Ester Rut ásamt móður sinni, Láru G. Vil-
hjálmsdóttur.
Farið var með stúlkuna á Heil-
brigðisstofnunina á Seyðisfirði.
Hún dvaldist síðan þar um nóttina
en fékk að fara heim um morgun-
inn. Svo virðist sem henni hafi ekk-
ert orðið meint af. Hún er glaðlynd
og lífsglöð stúlka og var strax kom-
in á skíði tveimur dögum eftir slys-
ið. Hún segist þó hafa lært tvennt af
reynslunni sem aðrir krakkar geta
lært af; „að hafa ekki reimar og
svoleiðis hangandi og að fara ekki
glannalega“.
Að sögn Gunnþórs eru öryggis-
málin í stöðugri endurskoðun og
ætíð höfð að leiðarljósi við rekstur
skíðasvæðisins. Vinnueftirlitið
kemur á hveiju hausti til þess að
taka út öryggismál á svæðinu áður
en lyftan er opnuð almenningi.
Hann sagði mikið gert af því að
upplýsa böm og aðra gesti um ör-
yggisatriði á skíðasvæðinu og reynt
er eftir megni að fylgjast með bún-
aði gesta og benda á það sem betur
má fara. Umsjónarmenn skíða-
svæðisins taka öryggismálin mjög
alvarlega og hafa þegar gert nokk-
uð til þess að auka öryggið á svæð-
inu.
Eftir slysið á laugardaginn var
strax farið í að auka eftirlit á staðn-
um með því að bæta við starfsmanni
sem hefur þegar verið ráðinn.
Einnig var ákveðið að skipta út öll-
um höldum lyftunnar og hafa nýjar
verið pantaðar. Auk þess hafa
neyðarrofar verið settir á þijá lyft-
ustaura til viðbótar við þá neyðar-
rofa sem fyrir vom á endastaurum.
Um sjálfa atburðina á laugardag-
inn er Gunnþór Jónsson heldur fá-
máll, segir einfaldlega að hann óski
ekki nokkrum manni það að lenda I
samskonar lífsreynslu og hann varð
fyrir á laugardaginn, og segist jafn-
framt vera feginn því að hafa farið
á námskeið í fyrstu hjálp. „Það er
námskeið sem hefur borgað sig.“
Skaut tófu í
hlaðvarpanum
Skjaldfönn - Snemma að morgni
konudags vaknaði húsfreyjan á
Skjaldfönn við ísafjarðadjúp við
það að bóndi hennar Indriði Aðal-
steinsson skaut tófu í hlaðvarpan-
um. Hún hugsaði með sér að ævin-
lega skyldi hann vera svona
hugulsamur, nú væri hann farinn
að safna skinnum í pels handa
henni.
Reyndar er þetta ekki fyrsta
tófan sem Indriði skýtur á þessum
vetri, því frá fyrsta febrúar hefur
hann skotið þrjár. Þær fara reynd-
ar ekki í pels og allra síst þessi
tófa, því hún var merkt á báðum
eyrum og með sendi um hálsinn og
því send suður á Líffræðistofnun
Háskólans til nánari athugunar,
ásamt hinum tveimur.
Páll Hersteinsson merkti hana
sem yrðling ’98 í Kjaransvík á
Hornströndum, en alls merkti
hann þá 24 yrðlinga og þar af voru
9 með senditæki. Af þessum dýr-
um hafa nú 4 verið skotin, eitt við
Rauðamýri v/Djúp, eitt í Ófeigs-
firði, eitt á Snæfjallaströnd og eitt
á Skjaldfönn.
Opið bréf í ljóðaformi
Allt frá því að frumvarp til laga
frá ’94 um friðun refa og minka á
Hornströndum tók gildi hefur
Indriði ásamt flestum bændum í
nágrenni friðlandsins verið á móti
friðuninni og talið fullvíst að þegar
sulturinn sverfði að legðu dýrin
land undir fót og leituðu fanga þar
sem ætis væri von, en líffræðingar
hafa haldið hinu gagnstæða fram,
þ.e. að dýrin haldi sig á sínum
heimaslóðum. Því þótti honum
fengur í merktu tófunni sem með
komu sinni hingað, ásamt hinum
þremur merktu tófum, sannar
kenningar þeirra fyrrnefndu.
í fyrra vetur stóðu deilur þeirra
Morgunblaðið/Margit Elva
Það var mikið fjör á þorrablótinu í Grímsey.
Gestir á árlegu þorrablóti Grímseyinga f félagsheimilinu Múla fá sér á
diskana og að veqju svignuðu borð undan krásunum.
i/ú
Morgunblaðið/Kristbjörg Lóa Arnadóttir
Indriði Aðalsteinsson með tóf-
urnar þijár sem hann skaut.
Indriða og Páls sem hæst og eftir
að merkta tófan var pkotin á
Rauðamýri sendi Indriði opið bréf
til Páls í blaðið Vestra á Isafirði,
þar sem þetta ljóð fylgdi með:
Refa tryggð við heimahaga
höfðu bændur rægt til baga.
„Vísindin" því vildu sanna
vit og gildi kenninganna.
Líffræðinga flokkur fríður
ferðar ekki lengi býður.
Og í blaði, séð ég hef,
sóttist vel að merkja ref.
Haustið kom með hríðar kargar,
heldur var þá fátt til bjargar.
Ef friðland ekki fæðu gefur
til ferðar býr sig svangur refur.
Austur og vestur heldur hjörðin,
hverfa að baki Drangaskörðin.
Yfir jökul aðrir blína,
ekki spara fætur sína.
Mannabyggðir heilla hugann,
hér er fjölmörg matarsmugan.
Lyftast vonglöð loðin stýri,
líta við á Rauðamýri.
Fjórir þeirra feigir hittu
fantagóða refaskyttu.
Svo í pósti sendir vini
sjálfum Páli Hersteinssyni.
„Vísindanna“ vöskum smið
varð þá heldur illa við.
Skynsemi fyrir skaut því loku:
„Skömmin hefur villst í þoku!“
Opið hrað-
skákmót á
Akranesi
SKÁKFÉLAG Grandrokk
heldur opið hraðskákmót á
Grandrokk, Akranesi, laugar-
daginn 22. febrúar klukkan 14.
Mótið er haldið í tilefni af því
að veitingastaðurinn Grand-
rokk hefur nú fært út kvíarnar,
en um síðustu helgi var Grand-
rokk opnað á Akranesi, þar sem
áður var Langisandur.
Grandrokk á Akranesi verð-
ur í fyrstu opið fimmtudaga,
föstudaga og laugardaga og
lögð verður áhersla á að gera
vel við skákáhugamenn.
Mótið er öllum opið og verður
sætaferð frá Grandrokk,
Smiðjustíg 6, klukkan 13, og
farið verður aftur til Reykjavík-
ur að loknu móti og verðlauna-
afhendingu. Fyrstu verðlaun
eru 30 þúsund krónur. Þátttak-
endur skrá sig á staðnum, en
eru vinsamlega beðnir um að
vera mættir nokkru fyrir klukk-
an 14. Keppnisgjald er 500 kr.
Frábær tilboð á rúmum, náttborðum, kommóðum v 1 R s 1 11 " 1 "
og klæðaskápum.
Opið: laugardag 10-17
15% afsláttur af fylgihlutum (dýnum, dýnuhlífum, koddum o.fl.) þegar keypt er rúm. sUútuvogi u • Sími 568 5588