Morgunblaðið - 24.02.2000, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
McCain sigrar í tveimur ríkjum með miklum stuðningi demókrata og óháðra
Þarf nú að
auka fylgi sitt
meðal hægri-
manna
John McCain vann mikilvægan sigur í for-
kosningum bandarískra repúblikana í
tveimur ríkjum í fyrradag. En lítið fylgi
meðal hægrimanna gæti orðið honum að
falli í næstu lotu baráttunnar þegar stuðn-
ingur demókrata og óháðra kjósenda verð-
ur ekki eins þýðingarmikill og verið hefur.
John McCain, öldungadeildarþingniaður frá Arizona og eiginkona hans
Cindy fagna sigri í forkosningum í Michigan og Arizona.
JOHN McCain, öldungadeildarþing-
maður frá Arizona, bar sigurorð af
George W. Bush, ríkisstjóra Texas, í
forkosningum repúblikana í Mich-
igan og Arizona í fyrradag. McCain
naut mikils stuðnings meðal óflokks-
bundinna kjósenda og repúblikana í
báðum ríkjunum og lýsti kjósendum
sínum sem „nýjum meirihluta“ er
yrði „versta martröð" Als Gores,
varaforseta og líklegs forsetaefnis
demókrata, í forsetakosningunum í
nóvember.
Sigur McCains í Michigan er mjög
mikilvægur þar sem hann hafði beðið
ósigur fyrir Bush með 11 prósentu-
stiga mun í Suður-Karólínu aðeins
þremur dögum áður. Kjörsóknin í
Michigan var meiri en nokkru sinni
fyrr og helmingi fleiri kusu í ríkinu
en í síðustu forkosningum repúblik-
ana árið 1996. Rúm milljón manna
greiddi atkvæði og þar af taldist
helmingurinn til demókrata eða
óháðra kjósenda.
Þessir hópar réðu úrslitum í kosn-
ingunum í Michigan því tveir af
hverjum þremur óháðu kjósendanna
kusu McCain og um 80% demókrat-
anna, ef marka má útgönguspár
bandarískra Ijölmiðla.
McCain fékk 50% atkvæðanna í
Michigan og Bush 43%. Alan Keyes,
fyrrverandi sendiherra, fékk 5%.
Munurinn var meiri í heimaríki
McCains, Arizona, þar sem hann
fékk 60% atkvæðanna og Bush að-
eins 36%.
McCain fékk alla kjörmennina í
Arizona, eða 30, og að minnsta kosti
46 af 58 kjörmönnum Michigan.
Annar hvor frambjóðendanna þarf
að fá 1.034 kjörmenn til að verða til-
nefndur forsetaefni repúblikana á
landsfundi þeirra í sumar. McCain
hefur nú fengið 90 kjörmenn og
Bush 67.
Stefnir í mjög tvísýna baráttu
Forkosningarnar í Michigan voru
hinar mikilvægustu til þessa og ráð-
gjafar McCains höfðu viðurkennt að
FORMAÐUR þingnefndar, sem
rannsakar barnavændismálið í
Lettlandi, sagði á mánudag að
skýrslur hennar yrðu ekki lagðar
fram fyrr en nýr ríkissaksóknari
yrði skipaður. Málið snýst meðal
annars um ásakanir um að þrír
háttsettir embættismenn, þeirra á
meðal forsætisráðherra landsins,
séu viðriðnir bamaklám og kyn-
ferðislega misnotkun á börnum.
Janis Skrastins ríkissaksóknari
sagði af sér eftir að þingmenn sök-
uðu hann um að hafa leitt ásakan-
irnar hjá sér í fyrstu og kröfðust
rannsóknar á framgöngu hans í
málinu. Janis Adamsons, formaður
nefndarinnar sagði að hann myndi
ekki leggja fram öll gögn málsins
fyrr en eftirmaður Skrastins yrði
hann gæti ekki gert sér miklar vonir
um tilnefninguna ef hann biði ósigur
í ríkinu. Ráðgjafar Bush höfðu spáð
honum sigri í Michigan og vonast til
þess að hann gæti þar með gert vonir
keppinautarins um tilnefningu að
engu.
Sigur McCains varð hins vegar til
þess að jafnvel bjartsýnustu stuðn-
ingsmenn Bush geta nú ekki lengur
litið á hann sem „ósigranlegan fram-
bjóðanda" í forkosningum repúblik-
ana. Stuðningsmenn McCains geta
nú hamrað á því í kosningabarátt-
unni að Bush sé of veikur frambjóð-
andi til að geta sigrað forsetaefni
demókrata í nóvember þegar líklegt
er að atkvæði miðjumanna og
óflokksbundinna kjósenda ráði úr-
slitum.
Mikil spenna hefur nú færst í
kosningabaráttuna eftir sigur
McCains í Michigan og flest bendir
til þess að þetta verði tvísýnustu for-
kosningar repúblikana frá 1976 þeg-
ar Ronald Reagan var nálægt því að
sigra Gerald Ford, þáverandi for-
seta.
Bush og ráðgjafar hans voru fljót-
ir að benda á að mikill stuðningur
óháðra kjósenda og demókrata við
McCain væri meginskýringin á sigri
hans.
Líkt og í Suður-Karólínu voru for-
kosningamar í Michigan „opnar“,
þannig að allir kjósendur ríkisins
máttu taka þátt í þeim óháð því í
hvaða flokki þeir voru. Bush fékk 40
prósentustigum meira fylgi meðal
yfirlýstra repúblikana í Michigan og
takist McCain ekki að fá fleiri flokks-
bræður sína á sitt band gæti það orð-
ið honum að falli þar sem aðeins
repúblikanar geta kosið í mörgum
ríkjanna þar sem baráttan verður
háð næsta hálfa mánuðinn. McCain
verður því að einbeita sér að því að
auka fylgi sitt meðal repúblikana.
„Það er nánast óskiljanlegt að
John McCain skuli hafa sigrað í
Michigan eftir að hafa goldið afhroð í
Suður-Karólínu,“ hafði The Wash-
skipaður. Hann kvaðst einnig ætla
að veita hæstarétti upplýsingar um
þátt Skrastins í málinu síðar í vik-
unni.
Dómsmálaráðherrann
í mótmælasvelti
Adamson skýrði frá því í vikunni
sem leið að Andris Skele forsætis-
ráðherra, Valdis Birkavs dóms-
málaráðherra og Andrejs Sonciks,
yfirmaður skattheimtunnar, hefðu
verið sakaðir um að vera viðriðnir
ington Post eftir Lindu DiVall, ráð-
gjafa repúblikana. „En hann verður
nú að snúa sér snarlega til hægri til
að ná árangri í þeim ríkjum þar sem
forkosningamar verða lokaðar."
700 kjörmenn í veði
Alls verða 700 fulltrúar kjömir í
forkosningum repúblikana næstu
tvær vikurnar. Þar af verða 288 kjör-
menn valdir í ríkjum þar sem demó-
krötum og óháðum verður ekki leyft
að kjósa, 96 í ríkjum þar sem kosn-
ingarnar einskorðast við repúblik-
ana og óháða og 316 í ríkjum þar sem
allir kjósendumir geta greitt at-
kvæði.
Næstu forkosningar verða í Virg-
iníu, Washington og Norður-Dakota
á þriðjudaginn kemur og allir kjós-
endumir hafa þá atkvæðisrétt.
Forkosningar fara síðan fram í
Kaliforníu, New York og ellefu öðr-
um ríkjum 7. mars. í mörgum þeirra
verður aðeins repúblikönum heimilt
að kjósa, til að mynda í New York og
Connecticut.
Hörð barátta framundan
í Kaliformu
Baráttan verður að öllum líkind-
um hörðust í Kaliforníu, ekki aðeins
vegna þess að þar em fleiri kjör-
menn í veði en í nokkm öðm ríki
heldur einnig vegna þess að atkvæð-
in hafa þar mismikið vægi. Allir kjós-
endur Kalifomíu hafa atkvæðisrétt í
forkosningunum en kjörmönnunum
verður hins vegar aðeins úthlutað í
hlutfalli við fylgi frambjóðendanna
meðal repúblikana. Atkvæði demó-
krata og óháðra gilda því ekki við út-
hlutun kjörmanna.
Talið er að Bush hafi náð miklu
forskoti í baráttunni um kjörmenn-
ina í Kaliforníu en munurinn á fylgi
frambjóðendanna meðal allra kjós-
endanna er miklu minni. Scott Reed,
sem stjórnaði kosningabaráttu Rob-
erts Dole fyrir fjómm áram, sagði að
heildaratkvæðin hefðu mikla þýð-
ingu þar sem mikilvægt væri fyrir
frambjóðendurna að sýna að þeir
gætu sigrað forsetaefni demókrata í
þessu fjölmennasta ríki Bandaríkj-
anna í kosningunum í nóvember.
Ken Khachigian, ráðgjafí Mc-
Cains, kvaðst þó ætla að ráðleggja
málið. Þeir hafa harðneitað allri sök
og hefur Birkavs hótað að fara í
hungurverkfall verði nafn hans ekki
hreinsað.
Dómsmálaráðherrann hefur verið
í mótmælasvelti í sex daga og kraf-
ist rannsóknar á því hvort Adam-
sons hafi gerst sekur um rógburð.
Verði Adamsons fundinn sekur um
ærameiðingar kann hann að verða
dæmdur í allt að árs fangelsi og til
að greiða andvirði 180.000 króna í
sekt.
honum að einbeita sér að baráttunni
um kjörmennina og því að auka fylgi
sitt meðal repúblikana.
McCain gaf strax til kynna í ræðu
sinni eftir sigurinn í Michigan og Ar-
izona að hann myndi leggja mikið
kapp á að höfða til íhaldssamra
repúblikana. Hann lýsti sér sem
„stoltum íhaldsmanni í anda Reag-
ans“ og skoraði á repúblikana að
hræðast hann ekki, heldur ganga til
liðs við hann.
McCain sagði að forkosningamar í
Michigan staðfestu að hann nyti
meiri stuðnings meðal óháðra kjós-
enda og miðjumanna en Bush og
væri því líklegri til að geta sigrað
forsetaefni demókrata í nóvember.
Hann kvaðst því telja að fleiri
repúblikanar myndu styðja hann í
komandi forkosningum.
Bush sagði hins vegar að þótt
hann hefði tapað í Michigan væri það
góðs viti að hann hefði fengið stuðn-
ing „yfirgnæfandi" meirihluta repú-
blikana. „McCain á eftir að komast
að því að það em repúblikanar og
óháðir kjósendur, sem aðhyllast
svipaða stefnu, sem ráða úrslitum í
forkosningum repúblikana,“ sagði
hann.
Ken Khachigian sagði að ósigur
Bush í Michigan yrði til þess að fleiri
kjósendur misstu trú á honum og
snerast á sveif með McCain.
Ráðgjafar Bush sögðu hins vegar
að mestu máli skipti fyrir repúblik-
ana að tilnefna forsetaefni sem gæti
sameinað flokksbræður sína og höfð-
að til óháðra kjósenda. Demókrat-
arnir sem kusu McCain í Michigan
myndu ekki kjósa repúblikana í
kosningunum í nóvember.
Bush enn sigurstranglegri
Hlutlausir ráðgjafar repúblikana
sögðu að Bush væri sigurstranglegri
í komandi forkosningum þar sem
hann nyti meira fylgis meðal
repúblikana og töldu að erfitt yrði
fyrir McCain að fá nógu marga
flokksbræður sína á sitt band á þeim
skamma tíma sem er til stefnu.
McCain hefur þó tvisvar sinnum
komið á óvart í kosningabaráttunni,
fyrst með stórsigri í New Hampshire
og svo aftur í Michigan þar sem
margir höfðu spáð Bush sigri.
Adamsons sagði að allt að tíu
vitni nefndarinnar hefðu haldið því
fram að embættismennirnir þrír
væra viðriðnir málið. Nefndin hefur
hins vegar verið sökuð um að nota
rannsóknina til að koma höggi á
ríkisstjómina.
Málið kom upp á síðasta ári þeg-
ar lögreglan handtók nokkra menn
sem vora granaðir um dreifingu á
barnaklámi. Rannsóknin varð að
pólitísku hitamáli eftir að rannsókn-
arblaðamenn skýrðu frá því að
nokkur börn hefðu verið neydd til
vændis og segðust hafa haft kyn-
mök við háttsetta embættismenn.
Margir Lettar óttast jafnvel að
málið geti dregið úr líkunum á því
að landið fái aðild að Atlantshafs-
bandalaginu og Evrópusambandinu.
OfgVT-
menn am-
ast við
páfaferð
ÖFGAMENN í ísrael hafa hót-
að að spilla ferð Jóhannesar
Páls páfa II til landsins í næsta
mánuði. Hafa þeir dreift þús-
undum áróðursspjalda í Jer-
úsalem og víðar þar sem segir,
að efnt verði til mótmæla er
páfi kemur og komið í veg fyrir,
að ferð „hins illa“ eins og þeir
kalla páfa gangi hljóðalaust
fyrir sig. „Við munum aldrei
gleyma því, að í nafni Krists og
páfans voru gyðingar drepnir í
Helforinni og fyrir Rannsókn-
arréttinum," sagði Noam Fed-
erman, leiðtogi öfgamannanna.
Kallast hreyfing þeirra Kach
og var stofnuð 1973.
Eftirmaður
Camdessus?
JAPANINN Eisuke Sakakib-
ara og Bandaríkjamaðurinn
Stanley Fischer hafa verið til-
nefndir hugsanlegir eftirmenn
Michel Camdessus, fráfarandi
yfirmanns Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins. Sakakibara var áður
aðstoðarfjármálaráðherra Jap-
ans en Fischer, sem er hag-
fræðingur, er nú settur fram-
kvæmdastjóri sjóðsins. Þá
hefur þýski hagfræðingurinn
Caio Koch-Weser einnig verið
nefndur til en hann hefur ekki
lagt fram umsókn enn.
Ráðherrar
dæmdir
ÞRIR fyrrverandi ráðherrar í
Frakklandi voru dæmdir í gær
fyrir falsanir og svik varðandi
fjármögnun miðjuflokksins
CDS. Pierre Mehaignerie, fyrr-
verandi dómsmálaráðherra, og
Jacques Barrot, fyrrverandi at-
vinnumálaráðherra, vora
dæmdir í átta mánaða fangelsi
skilorðsbundið og Bernard
Bosson, fyrrverandi samgöng-
uráðherra, í fjögurra mánaða
fangelsi, einnig skilorðsbundið.
1986 fengu þeir ráðgjafarfyrir-
tæki til að annast verkefni, sem
aldrei vora unnin en greidd af
ríkissjóði.
Kohl-veislum
aflýst
AFLÝST hefur verið tveimur
miklum veislum, sem halda átti
í tilefni af sjötugsafmæli Helm-
uts Kohls, fyrrverandi kanslara
Þýskalands, 3. og 5. apríl nk.
Ráðgert hafði verið, að allt
helsta fyrirfólkið í Þýskalandi
sæti þær og erlendir fulltrúar,
þar á meðal þeir Míkhaíl Gorb-
atsjev, fyrrverandi leiðtogi
Sovétríkjanna, og George
Bush, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna. Kohl neitar
enn að gefa upp hverjir gáfu
Kristilega demókrataflokknum
fé, sem síðan var falið á leyni-
reikningum.
Missti hreyfíl
ANNAR hreyfill Boeing 767-
farþegaflugvélar í eigu egypska
ríkisflugfélagsins EgyptAir
rifnaði af í gær í erfiðri lend-
ingu í Harare, höfuðborg
Zimbabwes. Var veður mjög
slæmt og mikill hliðarvindur.
Atta farþegar af 76 skrámuðust
lítillega.
Rannsókn þingnefndar á barnavændismálinu í Lettlandi
Riga. The Daily Telegp-aph, AFP.
Beðið eftir nýjum
ríkissaksóknara