Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 37
la og félaga verkafólks
rkfall á
semur?
rarannsóknanefnd
ingar takist á næstu dögum. Ræða á um
alla þætti samnings á samningafundi á
morgun og er allt eins gert ráð fyrir að
haldið verði áfram viðræðum um helgi-
na. Halldór Björnsson, formaður Efl-
ingai-, segir að þó viðræður hafi gengið
allvel geti brugðið til beggja vona um
árangur. Hann segir að Flóabandalagið
muni halda áfram viðræðum óháð því
hvað gerist hjá öðrum félögum í VMSÍ.
Samninganefnd VMSÍ sleit viðræð-
um við vinnuveitendur sl. mánudag og
eru félögin nú að undirbúa að leggja til-
lögu um verkfall fyrir félagsmenn.
Ákveðið verður á næstu dögum hvaða
dagsetning verður í tillögunni, en geng-
ið er út frá því að hún miðist við miðjan
mars.
Flókin
staða
Eftir þær breytingar sem gerðar
voru á vinnulöggjöfinni geta félögin
ekki veitt samninganefnd umboð til að
boða verkfall. Leggja þarf tillögu um
verkfall, sem inniheldur upphaf verk-
falls og til hvaða hóps það á að ná til, fyr-
ir félögin. Til að tillaga um verkfall öðl-
ist samþykki verða a.m.k. 20% félags-
manna að taka þátt í atkvæðagreiðsl-
unni nema að um sé að ræða póst-
atkvæðagreiðslu.
Forystumenn stéttarfélaga á lands-
byggðinni segja að það komi mjög á
óvart ef tillaga um verkfall verði ekki
samþykkt. Kröfugerð hafi verið undir-
búin í samráði við félagsmenn og þeir
hljóti að vera reiðubúnir til að berjast
fyrir henni.
Takist Flóabandalaginu að semja við
vinnuveitendur á næstu dögum gæti sú
staða komið upp að atkvæðagreiðsla um
verkfall stæði yfir hjá félögunum á
landsbyggðinni á sama tíma og félögin á
höfuðborgarsvæðinu skrifa undir samn-
inga. Sú spurning hlýtur að vakna hvaða
áhrif það hefur á atkvæðagreiðsluna.
Sætti félögin á landsbyggðinni sig ekki
við þann launaramma sem Flóabanda-
lagið hefur þá markað verða þau að
reyna að brjótast út úr honum.
Staðan er því flókin. Segja má að
fyrst viðræðuslit hafi orðið í viðræðum
VMSÍ og vinnuveitenda sé ekki um ann-
að að ræða fyrir vinnuveitendur en að
reyna að ná samningum við Flóabanda-
lagið og síðan Samiðn, Rafiðnaðarsam-
bandið og verslunarmenn. Staða Flóa-
bandalagsins tU að ná fram kröfum
sínum við þessar aðstæður er að sumu
leyti sterk því að ef slitnar upp úr við-
ræðum bandalagsins og SA mun það
væntanlega fara að huga að aðgerðum
líkt og VMSÍ-félögin úti á landi.
Forystumenn félaga á landsbyggð-
inni sem Morgunblaðið
ræddi við í gær sögðust
reikna með að vinnuveit-
endur reyndu að einangra
Verkamannasambandið
með því að einbeita sér að
þvi að semja við Flóabandalagið. Þeir
sögðu að VMSÍ yrði að sjálfsögðu að
skoða stöðuna á hverjum tíma. Ekki
væri útilokað að menn myndu endur-
meta stöðuna ef samningar tækjust á al-
mennum markaði, en eins og málin
horfðu við í dag myndu félögin einbeita
sér að því að undirbúa verkfall.
g hugsan-
rkfalls
Fljótlega
Þorsteinn Ölafsson, fráfarandi stjórnarformaður Fjárfestingarbanka
atvinnulífsins, segir bankann brautryðjanda á íslenskum fiármálamarkaði
Arangur bank-
ans fram úr
björtustu vonum
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins er orðinn
verðmætasta fjármálafyrirtækið á Verð-
bréfaþingi Islands og annað verðmætasta
fyrirtækið á eftir Eimskip. Þorsteinn
Olafsson hefur verið formaður stjórnar
bankans frá upphafí og í samtali við Hall
Þorsteinsson segir hann að vel hafí tekist
að skila bankanum fram á veginn og hans
bíði spennandi framtíð.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þorsteinn Ólafsson, fráfarandi stjórnarformaður FBA.
Fjárfestingarbanki
atvinnulífsins hf. var stofn-
aður 30. júní 1997 og hófst
starfsemi hans 1. janúar
1998. Frá upphafi hefur stjóm bank-
ans lagt áherslu á að hagkvæmni yrði
gætt í starfsemi bankans, bæði tH að
tryggja góða afkomu og tryggja ís-
lenskum fyrirtækjum aðgang að fjár-
magni á hagstæðum kjörum. Þá var
strax lögð áhersla á að auka þjónustu
við viðskiptamenn og breikka þjón-
ustusviðið.
Þorsteinn Ólafsson hefur verið for-
maður stjómar FBA frá stofnun
bankans og segir hann að sá árangur
sem hafi náðst hafi farið fram úr
björtustu vonum. Bankinn hafi mark-
að ákveðin þáttaskil á íslenskum fjár-
málamarkaði og þrátt fyrir vantrú
ýmissa utanaðkomandi í upphafi hafi
bankinn sannað tilverurétt sinn eftir-
minnilega.
„Margir töldu að þessi nýi banki
hefði engu hlutverki að gegna og að
ungir stjómendur hans myndu ekki
ráða við verkefnið. Það hefur hins
vegar sýnt sig að þessar gagnrýnis-
raddir áttu ekki við rök að styðjast.
Bankanum hefur fylgt ferskur blær
og hann hefur verið brautryðjandi á
margan hátt, og það hefur komið í
ljós hve vel var að verki staðið að
innri uppbyggingu hans. Hluthafar
bankans uppskera nú árangur þess
undirbúnings," segir Þorsteinn.
Alþjóðlegt þekkingarfyrirtæki
á sviði fjármála
í upphafi var hlutverk FBA skil-
greint á þann hátt að bankinn veitti
íslensku atvinnulífi víðtæka þjónustu
við öflun, stýringu og hreyfingu á
fjármagni. Síðastliðið haust ákvað
stjórn bankans að hefja undirbúning
að því að endurskoða stefnu bankans
í ljósi fenginnar reynslu og lauk
vinnu við þá endurskoðun skömmu
fyrir áramót. Þá samþykkti stjórnin
nýja stefnumótun fyrir bankann sem
felur í sér ákveðnar gmndvallar-
breytingar, en bankinn er nú skil-
greindur sem alþjóðlegt þekkingar-
fyi-irtæki á sviði fjármála.
„Þetta er í fyrsta skipti sem íslensk
fjármálastofnun er skilgreind á þenn-
an hátt og ég tel þessa skilgreiningu
þá metnaðarfyllstu sem íslenskt fjár-
málafyiirtæki hefur markað. Með
þessu er lögð áhersla á að FBA lítur á
sig sem alþjóðlegt fyrirtæki og bank-
inn einskorðar sig ekki lengur við að
þjóna íslensku atvinnulífi heldur ætl-
ar hann sér jafnframt að hasla sér
völl erlendis. í þessu er fólgin viður-
kenning á því að starfsmenn bankans
búi yfir hæfni sem gjaldgeng er í al-
þjóðlegum samanburði og að helsta
verðmæti bankans sé fólgið í þekk-
ingu starfsmanna þess. Auk þess er
lögð áhersla á að helsta verkefni
starfsmannanna sé að þjóna við-
skiptavinum hans sem best,“ segir
Þorsteinn.
Þjónusta við erlend sjávar-
útvegsfyrirtæki
I samræmi við nýja stefnu FBA
mun bankinn á næstu mánuðum
byggja upp þjónustu við erlend sjáv-
arútvegsfyrirtæki og fjársterka ein-
staklinga, en liður í því síðarnefnda
er kaup FBA á enska einkabankan-
um R. Raphael & Sons. Fyrirtækja-
svið bankans hefur nú þegar hafið
viðskipti við nokkur sjávarútvegsfyr-
irtæki í Kanada og að sögn Þorsteins
er tíðinda að vænta innan skamms af
frekard útrás.
„Þau stóru sjávarútvegsfyrirtæki
sem við höfum verið í sambandi við í
Kanada hafa lýst yfir mikilli ánægju
með þá þekkingu sem FB A hefur yfir
að ráða varðandi málefni sjávarút-
vegsins. Jafnframt hafa þau látið í
ljós að ekki sé saman að jafna þekk-
ingu okkar á því sviði
og hinna hefðbundnu
viðskiptabanka þar
sem sjávarútvegur er
eðli málsins sam-
kvæmt mjög lítill þátt-
ur í starfsemi viðkomandi banka.
Þetta endurspeglar vel að á þessu
sviði höfum við sérþekkingu sem ég
tel að sé alþjóðlega samkeppnishæf,"
segir Þorsteinn.
Sölu á meirihluta ríkisins í FBA
lauk um miðjan nóvember síðastlið-
inn og segir Þorsteinn það hafa verið
mikla framsýni hjá rfldsstjóminni að
hnykkja á einkavæðingu bankans og
ljúka því verkefni.
„Fyrir sitt leyti getur rfldsstjómin
verið mjög ánægð með þann árangur
sem náðst hefur. Þama er kominn
dreifður hópur hluthafa og þar af
nokkrir kjölfestufjárfestar og ég tel
að það sé bankanum til góðs. Þama
er um að ræða bakhjarla sem gott er
fyrir hvaða fjármálastofnun sem er
að hafa sem hluthafa, en jafnframt
teldi ég mjög æskilegt að almenning-
ur sæi sér fært að fjárfesta með virk-
um hætti í bankanum. Nú þegar era
hluthafamir um 4.000 talsins, en þar
af fara 3.900 þeirra aðeins með 10%
hlutafjárins. Eg vildi gjaman sjá að
almenningur væri með ennþá stærri
hlut í bankanum með dreifðri aðild,“
segir hann.
Þorsteinn leggur áherslu á að
bankar séu ekki eins og hvert annað
fyrirtæki þar sem þeim fylgi mikið
vald og ábyrgð þeirra sem hafa á
höndum yfirstjórn og rekstur sé mik-
il. Dreifð eignaraðild tryggi trúverð-
ugleika út á við og komi í veg fyrir að
einstakir hluthafar hafi óeðlileg áhrif
á starfsemi viðkomandi banka í krafti
stórs eignarhluta. Þetta hljóti sér-
staklega að eiga við ef viðkomandi
hluthafar stunda hliðstæða starfsemi
og viðkomandi banki eða ef þeir geti
verið í samkeppni við viðskiptavini
bankans með þátttöku sinni í við-
skipta- og atvinnulífi.
Aðeins rúm fyrir tvo
viðskiptabanka
Þær forsendur sem á sínum tíma
vora fyrir þátttöku ríkisins í fjár-
málastofnunum telur
Þorsteinn vera fyrir
löngu brostnar og
eignarhald rfldsins í
viðskiptabönkum
skekki samkeppnis-
stöðu á markaði, auk þess sem það
komi í veg fyrir nauðsynlega hagræð-
ingu í bankakerfinu.
„Eg tel að það sé í raun aðeins rúm
fyrir tvo viðskiptabanka hér á landi
fyrir utan sparisjóðina, en knýjandi
er orðið að gera breytingar á spari-
sjóðunum hvað varðar félagaform
þeirra. Stjómvöld eiga að hraða
einkavæðingu rfldsbankanna tveggja
og tryggja dreifða eignaraðild að
þeim, en þama er um mikil verðmæti
að ræða og það verður að ígranda vel
hvemig þessu verður komið á án þess
að ofbjóða markaðnum."
Fordæmi FBA hvati fyrir
önnur fyrirtæki
FBA hefur verið fyrst fyrirtækja á
VÞÍ til að birta afkomutölur sínar
fyrir liðið ár, en þær vora birtar 3.
febrúar síðastliðinn, og einnig er það
með fyrstu fyrirtækja á Verðbréfa-
þingi til að halda aðalfund sinn. Þor-
steinn segir að þetta lýsi því að
grannkerfi bankans, bakvinnslan og
innri uppbygging virld mjög vel og
gangi í dag eins og smurð vél.
„Þetta gæti verið hvati fyrir önnur
fyrirtæki til þess að hraða því að birta
uppgjör og halda aðalfundi, en ekki
draga það fram á mitt ár eins og verið
hefur lenska. Þá finnst mér nauðsyn-
legt að þau fyrirtæki sem era á Verð-
bréfaþingi birti upplýsingar m-
rekstri sínum reglulega og eins hratt
og við verður komið, og þá finnst mér
þriggja mánaða viðmiðunin ákaflega
heppileg. Það á við um alla verðbréfa-
markaði að þeir era viðkvæmfr fyrir
innheijaupplýsingum og því oftar
sem slík uppgjör era gerð því betra.
Þetta þjónar því að gera markaðinn
skilvirkari og koma í veg fyrir óþarfa
spekúlasjónir á markaðnum.“
Bankinn kominn með
gæðastimpil
Skuldabréfaútgáfa FBA á alþjóða-
markaði í byrjun síðasta árs olli
þáttaskilum í fjármögn-
un bankans, að sögn
Þorsteins, og segir hann
það vera einstaklega
ánægjulegt að útgáfa
bankans á þessum bréf-
um fékk sérstaka viðurkenningu á al-
þjóðavettvangi þar sem FBA var val-
inn besti útgefandi skuldabréfa af
þessu tagi í Evrópu á árinu 1999.
Þannig sé bankinn kominn með
ákveðinn gæðastimpil og viðurkenn-
ingu alþjóðlegra fjármálastofnana.
og þetta sé mikil traustsyfirlýsing.
„Við höfúm þegar fjármagnað allt að
54 milljarða króna með þessum hætti
en núna er meiningin að tvöfalda út-
gáfu bankans í lok mánaðarins upp ÍÝ
1,5 milljarð evra, eða 108 milljarða ís-
lenskra króna. Útgáfan hefur haft
lánshæfismatið A3 sem telst mjög
gott af tiltölulega litlum hlutafélaga-
banka, en ég sé ekkert í veginum fyr-
ir því að með tíð og tíma geti þessi
lánshæfiseinkunn hækkað enn frek-
ar. Það myndi koma viðskiptavinum
okkar til góða í formi lækkaðs lán-
tökukostnaðar bankans," segir Þor-
steinn.
Áhættumat sé
faglegt
Áhættu- og fjárstýring FBA er að
mati Þorsteins til fyrirmyndar og
einnig gæði útlánasafns bankans.
Hann segir mikilvægt að íslenskar
lánastofnanfr gæti mikillar varfæmi
á þessu sviði og það sé mjög áríðandi
að áhættumat í lánastofnunum sé
faglegt.
„Menn verða að verðleggja útlán
sín í Ijósi áhættu, en mér finnst nokk-
uð hafa borið á því í samkeppni lána-
stofnana að það hafi verið tilhneiging
til þess í verðlagningu útlána að taka
ekki tillit til áhættu með nægilegum
hætti. Það er grandvallaratriði og hjá
okkur er það líka nýjung að við höf-
um frá upphafi gefið framkvæmda-
stjóm bankans skýrt afmarkaðar
heimildir til ákvarðana um einstök»-
mál. Samhliða höfum við lagt áherslu
á ny'ög góða upplýsingagjöf til stjóm-
aiinnar, þannig að hún sé reglulega
upplýst um áhættur bankans og
stöðu hans, og fái samstundis vitn-
eskju um það ef einhver vandamál
koma upp. Með þessu móti hefur
framkvæmdastjóm bankans fengið
mikið frelsi til einstakra ákvarðana.
Þetta tel ég mjög heilbrigt og eðlilegt
í nútímastjómun, en að sjálfsögðu
ber stjóm bankans ábyrgð á öllum
þeim ákvörðunum sem era teknar.. -
Það er fyrst því og fremst hlutveric
stjórnarinnar að fylgjast með því að
verklagsreglum stjómarinnar sé
fylgt, að áhættustýring sé í góðu lagi,
áhættudreifing skynsamleg, og að
fylgt sé mjög ströngum reglum um
að umboð til ákvarðana sé virt,“ segir
Þorsteinn.
Vaxandi íjárfestingar í
óskráðum félögum
FBA hefur í vaxandi mæli tekið
þátt í fjárfestingum í óskráðum félög-
um og í því sambandi telur Þorsteinn
að þekking starfsmanna bankans og
hæfni til mats á nýjum fyrirtækjum
og viðskiptatækifærum sé mjög mik-
ilvæg, en margar af þessum fjárfest-
ingum segir hann að séu að skila*
bankanum umtalsverðum tekjum.
Með þessu móti leiki bankinn stórt
hlutverk í nýsköpun í atvinnulífinu og
hann geti í raun og vera nálgast þau
verkefni með mun sveigjanlegri og
hraðvirkari hætti en t.d. þeir opin-
berir aðilar sem hafa látið að sér
kveða á þessu sviði.
„Þá má geta þess að bankinn braut
blaðer hann tók þátt í að kaupa hlut
eigenda í Hagkaup og tengdum fé-
lögum og seldi síðan þegar Baugur
fór á markað. Þannig getur bankinn
tekið þátt í endurskipulagningu eign-
arhalds í atvinnulífinu og hjálpað til
við markaðsvæðingu þess. Þá var það
tímamótamál þegar bankinn keypti
ásamt öðram eignarhlut í DeCode^-
Genetics, en með því var meirihluta
eignarhaldi í félaginu komið í íslensk-
ar hendur."
Spennandi
framtíð
Þorsteinn segir það hafa verið
mjög ánægjulegt að taka þátt í því að
móta þennan nýja banka, áherslur og
fyrirtækjabrag og að
bankinn hafi ákveðið að
reisa nýjar höfuðstöðv-
ar.
„Ég hverf mjög sátt-*
ur og ánægður frá^
borði og tel að okkur sem trúað var
fyrir þessu verkefni á sínum tíma hafi
tekist að skila bankanum mjög vel á
veg og hans bíði spennandi framtíð á
grandvelli hinnar nýju stefnu sem
mótuð hefur verið. Hún lýsfr mikilli
trú á íslenskt framtak og þekkingu á
nýrri öld,“ segii- Þorsteinn Ólafsson. ^
Bankanum
hefur fylgt ferskur
blær
FBA lltur á sig
sem alþjóðlegt
fyrirtæki