Morgunblaðið - 24.02.2000, Page 46

Morgunblaðið - 24.02.2000, Page 46
16 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ BRIDS Uinsjón Arnór G. Ragnarsson 9 Bridsfélag SÁÁ af stað áný Næsta sunnudag, 27. febrúar, verður starfsemi Bridsfélags SAA endurvakin á nýjum spilastað. Staðurinn er efsta hæð gamla Grandahússins, á milli Ellingsen og Kaffivagnsins. Sem fyrr verða spilaðir eins kvölds tvímenningar og keppt verð- ur um verðlaunapeninga. Spilamennskan hefst klukkan '' 19.30. Umsjónarmaður er sá sami og áður, Matthías Þorvaldsson. Við treystum á að hinir tryggu spilarar félagsins mæti nú og byggi upp sterkan félagsskap. Allir eru velkomnir. Bridsfélag Hafnarfjarðar Þriðja og síðasta umferðin í SIF- hraðsveitakeppninni fór fram mið- vikudaginn 16. febrúar. Úrslit það kvöld urðu þannig: Sveit Hafþórs Kristjánssonar 629 Sveit Guðmundar Magnússonar 599 Sveit Erlu Sigurjónsdóttur 587 SveitArsælsVignissonar 585 , Sveit Hafþórs náði þeim ágæta Girangri að verða efst í öllum þremur umferðunum og sigraði því með yfir- burðum, en lokastaðan varð þannig: Sveit Hafþórs Kristjánssonar 1974 Sveit Guðna Ingvarssonar 1784 Sveit Huldu Hjálmarsdóttur 1749 Sveit Erlu Sigurjónsdóttur 1710 í mótslok afhenti framkvæmda- stjóri SÍF á íslandi þremur efstu sveitunum verðlaun, sem voru keppnisgjald í sveitakeppni Brids- hátíðar BSÍ og Flugleiða. Félagið kann SIF bestu þakkir ^yrir stuðninginn. Bridsdeild félags eldri borgara í Reykjavík Bridskeppni spiluð i Ásgarði, Glæsibæ, mánudaginn 14. febrúar. Sveitakeppni. A mánudögum stend- ur nú yfir sveitakeppni með þátttöku 10 sveita. Eftir 4 umferðir er staða efstu sveita þannig: Rafn Kristjánsson 82 Albert Þorsteinsson 79 Sigurður Pálsson 78 Fimmtudaginn 17. febrúar. Tví- menningskeppni, 18 pör. Meðalskor 216 stig. NS Þorl. Þórarinss. - Sæmundur Bjomss. 281 Olíver Kristóferss. - Kristján Ólafss. 267 Ólafur Ingvarss. - Þorsteinn Laufdal AV Hannes Ingibergss. - Anton Sigurðss. 256 Júlíus Guðmundss. - Rafn Kristjánss. 245 Perla Kolka - Stefán Sörenss. 241 Bridsfélagið Muninn, Sandgerði Miðvikudaginn 16. febrúar var haldið annað kvöldið af 5 í Board-A- Match-keppninni hjá félaginu og er staða efstu sveita þessi: Sveit Svölu Pálsdóttur með 65 stig eftir 4 leiki Sveit Heiðars Sigurjónssonar með 65 stig eftir 4 leiki Sveit Karls G. Karlssonar með 58 stig eftir 3 leiki. Sveit Guðjóns Óskarssonar með 57 stig eftir 4 leiki. Sveit Kristjáns Kristjánssonar með 53 st. eftir 4 leiki. Brids í Gullsmára 21. febrúar var spilað á 9 borðum 8 umferðir, meðalskor 168. Efstu pör NS Jón Andréss. - Guðm. Á. Guðmundss. 227 Þórhildur Magnúsd. - Helga Helgad. 184 Karl Gunnarsson - Emst Backman 180 AV Gunnar Gíslason - Sigurberg Sigurðss. 213 Sverrir Gunnarss. - Einar Markúss. 211 Kristinn Guðmundss. - Guðm. Pálsson 203 UMRÆÐAN ,, U mh verfis vinir “ leita ásjár! ISLAND er þekkt fyrir, að þar hefur lýð- ræði öðru fremur ráðið gerðum manna frá örófi alda. Ein afdrifaríkasta ákvörðun fyrri tíma var við kristnitöku á Al- þingi fyrir 1.000 árum, þegar sagt var „at allir skyldu ein lög hafa“. Hefur svo jafnan verið á landi hér, og sett hafa verið lög um byggingu Fljótsdalsvirlgunar. Því er minnt á þetta, að Alþingi staðfesti ný- lega framhald fram- Sveinn kvæmda við Fljóts- Jdnsson dalsvirkjun og tók með því formlega ákvörðun, sem nokkrir þingmenn höfðu þó í hótunum um að aldrei skuli verða að veruleika. Vart verður annað um landsmenn sagt en þeir séu sér meðvitandi um umhverfi sitt rétt eins og fommenn töldu sig trúaða þó ekki hefðu þeir allir einn guð. Sagt hafa menn að það væri „dapur dagur“ og að þeir „sætti sig aldrei við að Eyjabökkum verði sökkt“ en fullyrt skal að það sé ánægjuvert að vilji meiri hlutans komi ijóslega fram og verði ekki fót- um troðinn af minni hluta. „Umhverfisvinir" og ýmsir sjálf- skipaðir trúboðar hins litla minni- hluta þjóðarinnar um lögformlegt umhverfismat hafa talið sig þess um- komna að hafa vit fyrir þjóðinni og rekið þann fleyg milli fylkinga að ekki verður séð að þeir ætli að lúta vifja meirihlutans. Og tíl eru þeir sem hafa Foreldrar börn) Mætum saman á ráðstefnuna Fjölskyldan og Internetið Ráðstefnan verður haldin á vegum Heimilis og skóla og Símans-lnternet á Hótel Loftleiðum laugardaginn 26. febrúar frá kl. 10 til 14. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir hádegi föstudaginn 25. febrúar í síma 562 7475, á faxi 552 2721 eða á netfangið heimskol@heímskol.is 10:00 Jónína Bjartmarz formaður Heimilis og skóla setur ráðstefnuna. 10:10 Ólafur Stephensen forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála Símans: Netið ogfjölskyldulífframtíðarinnar. 10:30 Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur: Unglingurinn og netnotkun. Þörfá árvekniforeldra. 11:00 Guðmann Bragi Birgisson forstöðumaður Símans-lnternet: Óæskilegt efni á Internetinu og síur. 11:30 Hádegishlé, léttar veitingar í boði Símans. Sýning á tölvum á vegum ACO. 12:20 Sigrún Gunnarsdóttirverkefnastjóri hjá rannsóknardeild Símans: Verkefni á vegum Eurescom: Félagsleg áhrif upplýsingatækninnar á skóla, heimili og samfélagið. 12:40 Hafsteinn Karlsson skólastjóri: Samskipti fjölskyldna og skóla á Netinu. 13:00 Pallborðsumræður. JM SfMINNintérntt 300 lagst svo lágt að ganga á fund erlendra þjóð- höfðingja eða samtaka og klaga meirihlutavilja sjálfstæðrar þjóðar Is- lendinga. Þjóðskáldið Hákon Aðalsteinsson lagðist þannig svo lágt að ætla að færa Noregs- konungi drápu en fékk að sjálfsögðu ekki áheym. Nú hafa enn aðrir í nafni Umhverfis- vina gengið sambæri- legra erinda til Norsk Hydro og afhent þar illa skilgreind og seint fram komin mótmæli við áformuðum virkjana- framkvæmdum. Aðrir ætla að íslensk þjóð skuli lúta dómum evrópskra og/ eða alþjóðlegra dómstóla. Sagan segir af för manna og afdrif- um fyrr á tímum í sögu þjóðarinnar og ætla verður að það kunni að fara fyrir þessum sendiboðum nú rétt sem fýr. Flestum þeirra varð ekki langrar ævi auðið. Ætla verður þó, að á tímum nútíma margmiðlunar látí þjóðin nægja að beita kyngi orða og rök- semda þegar vegið verður að þessum háðulegu landráðamönnum. Það á ekki að hafa dulist neinun sem fylgst hefur með fylgiskönnun- um undanfarinna mánaða að það er yfirgnæfandi meirihluti með því að áfram verði haldið að virkja fallvötn landsins tíl raforkuframleiðslu og það þó því fylgi oft röskun af völdum miðl- unarlóna. Þannig voru því í einhverri könnuninni 59% fylgjandi en aðeins 24% andvíg og 18% hlutlaus og/eða óviss. Eins er þannig yfirgnæfandi meirhluti hlynntur byggingu Fljóts- dalsvirkjunar og hópur þeirra, sem þar telja sig hlutlausa og/eða óvissa og láta sig það engu varða er stór eða um 40%. Það hefur verið um það þjóðarsátt um aldir að hér lifi þjóð við landsins gagn og nauðsynjar. Hér þraukaði þjóðin við kröpp kjör um aldir af því sem landið gaf og nokkru sjávarfangi. Sjávarútvegur hefur svo sem öllum má ljóst vera eflst og í það minnsta verið undirstaða velmegunar þjóðar- innar alla síðustu öld. Löngum hefur verið horft til þess að frekari þörfum þjóðarinnar yrði mætt með nýtingu á orku fallvatna og jarðhita og hefur það vel tekist. Þessi auðlind er þó enn aðeins nýtt að tiltölulega litlum hluta. Það dylst vart nokkrum mikilvægi hitaveitna, sem lagðar hafa verið frá því fyrir miðja síðustu öld og í seinni tíð nýting jarðgufu til raforkuvinnslu. íslendingar eru þannig í fremstu röð og engin þjóð í heiminum nýtir brenn- anlegt eldsneyti til upphitunar híbýla sinna í hlutfallslega minni mæli. Nýting orku fallvatna Islands er nú Umhverfismat Færðar hafa verið með óyggjandi hætti og öllum skiljanlegar, segir Sveinn Jónsson, sönnur á hverju vinnsla og nýting endurnýtan- legrar orku hefur skilað í þjóðarbúið. senn aðeins um einn fjórði af því, sem talið hefur verið hagkvæmt að ná. Norðmenn hafa hins vegar virkjað um þrjá fjórðu og meir en helming höfðu þeir nýtt fyrir meir en aldai’- fjórðungi. Enn eiga þeir þó eftir frið- aða virkjanavalkosti með samtals um 35.3 TWh. Það er meiri orka en öll samanlögð orka íslenskra fallvatna, sem hingað til hefur verið talið hag- kvæmt að virkja. Og enn er í Noregi verið að virkja og endurbyggja eldri virkjanir til að auka nýtingu og hag- kvæmni þótt einhveijir hafi reynt að halda öðru fram. Og jafnharðan og aðstæður skapast endumýja þeir ál- ver sín og stækka. Auðvitað hefur íslensk þjóð verið fátæk, smá og lengi fákunnandi en hefur það verið tóm vitleysa sem hún hefur verið að gera á undanfomum áratugum? Vafalaust em þeir til sem vilja halda því fram. Aldrei hefði átt að byggja álver í Straumsvík og á Grundartanga eða kísiljámverk- smiðju svo það helsta sé nefnt. En hefði þá íslenskt athafnalíf verið í dag, sem það er? Færðar hafa verið með óyggjandi hætti og öllum skiljanlegar sönnur á hveiju vinnsla og nýting endumýtanlegrar orku hefur skilað í þjóðarbúið. Enda hefur því líka verið haldið fram að aldrei hafi verið byggð svo vitlaus virkjun á íslandi að hún hafi ekki borgað sig. Þó koma af og til fram einhveijir, sem vara við því að Fljótsdalsvirkjun muni seint borga sig. Sjálfsagat er það vel meint og þannig að þeim gangi gott eitt til. Bygging Fljótsdalsvirkjunar hefur lengi verið talin ein sú hagkvæmasta, sem völ væri á en sakir stærðar sinn- ar yrði samhliða að vera hæfilegur nýtingarvalkostur. Sama gildir um aðra stærstu virkjanakostí, sem væntanlega verða fyrir valinu í náinni framtíð. Þeir munu eiga sinn þátt i því að skapa meira jafnvægi í byggð landsins og knýja þá eílingu menn- ingar og þekkingar, sem því hefur hvarvetna fylgt í heiminum. Höfundur er verkfrædingur. Grjóthólsi I Sími 575 1230/00

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.