Morgunblaðið - 24.02.2000, Side 58

Morgunblaðið - 24.02.2000, Side 58
58 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Hundalíf Ferdinand IM 60INS OVER. TO VOUR DAD‘5 BARBER. 5HOP, CHARLIE 6ROWN.. Ég ætla að fara yfir til rakarans hans pabba þíns, Kalli Bjama Gefur hann ekki reiðhjól með hverri klippingu? Það Það væri heillöng biðröð held ég af krökkum hjá honum ekki. ef hann gæfi reiðhjól. Ætti ég Nei, segðu honum að segja bara að snyrta honum hliðarnar og taka það? svolítið af toppnum. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Minning um menn Frá Hauki Haukssyni: FORSÆTISRÁÐHERRA íslands var spældur nú á dögunum yfir því að grunnskólanemendur voru illa að sér í sögu þessarar aldar og þekktu ekki myndir af forverum hans í stjómarráðinu. Nú er það svo að sagan geymir margan manninn, ým- ist þekkta af góðu eða illu. Minna er þeim þó hampað sem hafa vond verk framið og sérstaklega þegar nær dregur samtímanum. En hinum er hampað mjög. Afkomendur þeirra sem ill verk frömdu eru trúlega þeirri stundu fegnastir þegar forfeð- urnir hafa fallið í gleymsku. Fyrir hvað ætli stjómmálamanna á ofanverðri 20. öld verði helst minnst? Lög um stjóm fiskveiðar sem standast illa eða ekki stjórnar- skrá! Hunsa meirihluta þjóðarinnar í málefnum NA-öræfanna og sökkva þar landi fyrir stundarhagsmuni! Gagnagmnnsfmmvarpið sem efast má um að standist lög! Pólitískar stöðuveitingar í feitustu og bestu embætti landsins! Að missa stjóm á sér í beinni og hóta uppgjöf og brott- för til heitari landa! Hafna málefna- legum umræðum þegar mikilvæg ut- anríkismál ber á góma! Afkomendur þeirra munu verða mjög fegnir þegar þeir hafa fallið í gleymsku og enginn unglingur veit lengur hver réð Finn í Seðlabank- ann. Eða hver Finnur er. Þegar minnst er á Finn þá dettur mér í hug að Valgerður frá Lómatjöm væri því meiri maður ef hún væri til í að heita því að láta setja upp styttu af sér við virkjunarlónið fyrirhugaða, þannig að það sé tryggt að ekki falli í gleymsku hver var iðnaðarráðherra þegar Eyjabökkum var sökkt. Og Siv, hún gæti líka fengið styttu við helstu ferðamannastaðina til minn- ingar um umhverfisráðherrann sem leyfði og studdi framkvæmdir án lögformlegs umhverfismats. Auðvelt er að skilja Austfirðinga um þessar stundir. Eins og Smári Geirsson era þeir margir fylgjandi stórvirkjun og risaálbræðslu. Og af hverju? Vegna þess að þegar fram- kvæmdir hefjast hefst þenslan og fasteignir sem vora illseljanlegar áð- ur verða söluvara og stórhækka í verði. Og þá munu margir þeirra auðvitað selja húsin sín í snarheitum og flytja burt. í hvelli. Ekki bíða of lengi því tækifærið til að flytja og komast skikkanlega frá því fjárhags- lega kemur trúlega ekki aftur. Og hver kaupir? Það er ekki svo gott að spá í það á þessari stundu en ég hugsa með meðaumkun til þeirra sem það gera. En kannski gerir rík- isstjórnin eitthvað nýtt í byggðamál- um svo þau geti líka selt á viðunandi kjöram. Og framlengt vandamálið um 10-20 ár. Ekki nema þau geti leigt það Pól- verjunum sem þá hafa væntanlega verið fluttir inn til að vinna verka- mannastörf á Austfjörðum, í fiski og áli. í stað þessarra fáránlegu fram- kvæmda væri nær að sætta sig við að einhverjir staðir fyrir austan og vestan fari smám saman í eyði og skapa þar með lítt snortnar náttúra- perlur líkt og Homstrandir, sem þéttbýlingar gætu heimsótt með bakpoka og tjald, sér til slökunar. Og hjálpa þeim sem vilja flytja á brott á annan hátt en nú er fyrirhugað. Alltaf verða nógir til að vera áfram í litlum og mannvænum kauptúnum úti um land. Og fólk verður að velja sér búsetu á eigin ábyrgð. Ekki að það geti sett sig niður hvar sem er og fengið alla þjónustu um leið. Allt hef- ur kosti og galla, búa hér eða þar, það verður hver og einn að velja sér sinn stað. Oft er talað um stressið og lætin í Reykjavík og marga þekki ég, búsetta á landsbyggðinni, sem segj- ast þeirri stundu fegnastir þegar þeir komast aftur burt frá borginni. Austfirðingar lærið að njóta! HAUKUR HAUKSSON, Stórholti 5, Akureyri. „Á fyrsta aldurs- árinu...“ Frá CarliJ. Eiríkssyni: ALVEG er það stórfurðulegt að sumt fólk sem virðist að mörgu leyti skynsamt og sem kemur með hár- réttar athugasemdir skuli samt koma með niðurstöðu sem er þveröf- ug við þær og röng. Helga R. Ingi- bjargardóttir skrifar í Mbl. 6. febr- úar sl. að börn sem séu svo og svo margra daga, vikna eða mánaða gömul séu á fyrsta aldursárinu. Hár- rétt! Allir vita að það sem er fyrst er númer eitt eins og fyrsti dagur árs- ins er númer eitt, þ.e. fyrsti janúar. Næst á eftir kemur síðan númer tvö. Á hvaða aldursári era börnin þá þeg- ar þau era nýorðin tólf mánaða göm- ul? Á öðra aldursári að sjálfsögðu, það er ár númer tvö. Þá era börnin nýorðin eins árs. Á þriðja aldursári era þau tveggja ára, á fjórða aldurs- ári era þau þriggja ára o.s.frv. Alltaf er aldur barnanna táknaður með tölu sem er einum lægri en það sem við köllum aldursár bamsins. Á tvöþús- undasta aldursári er Jesús á sama hátt 1999 ára. Það er ár númer 2000, við köllum það árið 2000. í byrjun ársins 2001 á tvöþúsundasta og fyrsta aldursári Jesú er hann 2000 ára, þá fyrst era aldamót og þá fyrst er Jesús orðinn 20 alda gamall. Þetta segir brjóstvitið án þess að leitað sé til tryggingastærðfræðinga. Það kemur ekkert málinu við þótt Rómverja vantaði tákn fyrir núll. Við höfum tákn fyrir núll en köllum samt fyrsta dag ársins númer eitt en ekki „númer núll“. Tímabil era nefnilega talin alveg eins og fingur eða kartöfl- ur upp úr poka. Það fyrsta er nr. 1. CARL J. EIRÍKSSON, Skólagerði 47, Kópavogi. Allt efni sem birtist i Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.