Morgunblaðið - 24.02.2000, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 63
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/J6n Svavarsson
Bjartmar Þórðarson í hlutverki skúrksins Tartuffe og Hlynur
Páll Pálsson sem húsbóndinn Orgon.
Þóra Karítas Árnadóttir, sem dóttir húsbóndans Orgons, Halldór
Vésteinn Sveinsson, vonbiðill hennar, og Anna Svava Knútsdóttir
í hlutverki þernunnar.
Stúdentaleikhúsid sýnir Platarann í Kaffileikhúsinu
Svik og prettir Tartuffe
STÚDE NTALEIKHÚSIÐ frum-
sýnir í kvöld „Platarann" sem byggt
er á sígildu leikverki Moliére sem alla
jafna nefnist „Tartuffe". Stúdenta-
leikhúsið er leikfélag nemenda við
Háskóla íslands en starfsemi þess
hefur verið nokkuð slitrótt upp á
síðkastið. Síðastliðið haustmisseri
tóku áhugasamir nemendur í leiklist-
arfræðum við íslenskuskor Háskól-
ans sig hinsvegar saman, ásamt
kennara sínum Terry Gunnell, og af-
réðu að setja upp leikrit. Um síðir tók
hópurinn nafn Stúdentaleikhússins
upp á arma sína enda ekki vanþörf á
að endurvekja það. Stúdentasjóði
leist vel á framtakið og styrkti upp-
setninguna, en sá stuðningur skipti
að sögn sköpum um að hún varð að
veruleika.
Ólafur Egilsson, nemandi í Leik-
listarskóla Islands, var fenginn til
þess að leikstýra verkinu en nokkrar
þýðingar eru til á því en stuðst var við
nýlega þýðingu Péturs Gunnarsson-
ar og endurvann hópurinn verkið í
samvinnu við leikstjórann. „Við ák-
váðum að nefna verídð fremur
„Platarinn" en „Tartuffe", því við
breytum nokkrum meginþáttum
þess, styttum það bæði og hnitmiðum
til samræmis við kröfur samtímans,"
segir Hlynur Páll Pálsson formaður
Félags bókmenntafræðinema og einn
leikenda í sýningunni. „Til að mynda
breytum við endinum talsvert frá
upprunalega verkinu."
Svikull
trúarhræsnari
Bjartmar Þórðarson fer með hlut-
verk platarans Tartuffe og lýsir því
svo: „Verkið fjallar um franska há-
stéttarfjölskyldu á sautjándu öld sem
skýtur skjóli yfii- mann að nafni Tart-
uffe sem reynist svo vera hinn mesti
svikahrappur og trúarhræsnari.
Hann svífst einskis til þess að ná því
fram sem hann vill, hvort sem það
eru fjármunir eða nautnir kynlífs-
ins.“ Húsbóndinn Orgon og móðir
hans vilja hinsvegar ekkert illt um
hann heyra og því kemur það í hlut
annarra fjölskyldumeðlima að leiða
hin auðtrúa mæðgin í sannleikann
Um þennan skaðræðis úlf í sauðar-
gæru. „Þrátt fyrir að upprunalegt
sögusvið hafi verið Frakkland sautj-
ándu aldar ákváðum við að gera upp-
setninguna tímalausa, sem kemm’
bæði fram í textameðferð og útliti,“
bætir Elín Smáradóttir við, en hún
leikur móður Orgons.
Boðskapinn segir Bjartmar vera
þann að ekki skuli dæma fólk af orð-
um þess heldur gjörðum. „Trúhræsn-
in sem fram kemur í sýningunni á
líka svo vel við í dag,“ segir Hlynur.
„Sölumennskan og afskræming
trúarinnar, misnotkun hennar í þágu
eiginhagsmuna er oddhvass ádeilu-
broddur í sýningunni. Tartuffe laum-
ar sér inn á heimili hinnar trúgjömu
fjölskyldu og vélar frá henni allt. Slík
græðgi í skjóli trúarinnar hefur verið
gegnumgangandi allar aldir.“ Verkið
vai- valið að vel athuguðu máli. Nem-
endur á námskeiðinu skoðuðu og lásu
mörg verk og komust á endanum að
þeirri sameiginlegu niðurstöðu að
„Tartuffe" væri tilvalið. Það væri í
senn harmrænt og farsakennt, inni-
héldi djúpstæða og beitta ádeilu og
hefði að geyma mörg og ólík hlut-
verk. Það að auki telui’ hópurinn
verkið sérlega aðgengilegt og að það
höfði til mjög breiðs hóps.
Stúdentaleikhúsið sterkt á ný
Leikhópurinn hefur æft stíft síð-
ustu daga og er ekki laust við að aðal-
vinnan, háskólanámið, hafi setið
nokkuð á hakanum en þau Bjartmar
og Elín eru samsinna um að þetta
tímafreka áhugamál sé liður í að gera
skólasetuna áhugaverðari og sé þar
að auki mjög lærdómsríkt út af fyrir
sig.
Það er sannarlega gleðiefni að búið
sé að endurvekja Stúdentaleikhúsið
og hugurinn í aðstandendum er mik-
ill. Þeir vonast til þess að hið skamm-
arlega áhugaleysi sem þau telja að
ríkt hafi meðal stúdenta gagnvart
leikhúsinu undanfarið sé á bak og
burt og nú megi framvegis treysta á
öfluga og frjósama starfsemi.
Barcelona
kr. 27.500
Alicante
kr. 27.500
Malaga
kr. 29.900
London
kr. 7.900
Heimsferðir bjóða vikulegt flug
til Barcelona, Alicante og
London og tvö flug í viku til
Malaga í allt sumar. Njóttu
þess að fljúga beint í íríið í
sumar, á lægsta verðinu.
Tilboð gilda ef bókað fyrir 15.
mars, tilboð til Alicante gilda
fyrir Félag húseigenda á Spáni.
Flugvallarskattar kr. 2.490
bætast við fargjald. Flugsæti til
London er verð aðra leiðina.
Austurstræti 17, 2. hæð,
sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
mbl.is
UTSOLULOK
OPIÐ sunnudag
til sunnudags
aldrei
meiri
afsláttu
uíian
Laugavegi