Morgunblaðið - 24.02.2000, Qupperneq 72
ÚÚMf42)?Wep
AlÍW'ihtfW!■■-'■
Oliver
'Pévký&K
KOMIN ÚT
ÁSÖLUMYNDBANDI
fratmHiifeifr
VMjÉI
Traustsr
Kelgk íslenskam
fs/ múruarur
Siðan 1972 ■■ I
Leítíð tnboða! ■! st6inpryoi
MORGUNBLAÐW, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI569II00, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTII
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Fulltrúar lífeyrissjóða óánægðir eftir stjórnarkjör í FBA
,Stóðu ekki að tillögu
um menn í stjórn
FULLTRÚAR stórra lífeyrissjóða stóðu ekki að
tillögu um skipan stjómar Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins á aðalfundi félagsins í gær. Segja þeir
að ekki hafi náðst samkomulag við fulltrúa Orca-
hópsins vegna kröfu hans um að tilnefna meirihluta
stjómar. Einn af fulltrúum Orca vísar því á bug,
segir að skipan stjómar hafi verið ákveðin eftir ít-
arlegt samráð allra stærstu hluthafanna.
Magnús Gunnarsson, fyrrverandi formaður
Vinnuveitendasambands íslands, er nýr formaður
4 ■jS*tjórnar FBA og Eyjólfur Sveinsson, útgáfustjóri
DV, varaformaður. Aðrir í stjóm em Bogi Pálsson,
framkvæmdastjóri P. Samúelssonar hf., Finnbogi
Jónsson, aðstoðarforstjóri SÍF, og Jón Ingvarsson,
fyrrverandi stjómarformaður SH.
Samkomulag náðist ekki
Eyjólfur Sveinsson lagði tiilöguna um stjómar-
menn fram en hann er einn af eigendum þess hluta-
fjár í FBA sem kennt er við eignarhaldsfélagið
Orca, nú FBA Holdings. Ekki komu fram aðrar til-
lögur og náði tillaga Eyjólfs því fram að ganga.
Ljóst er þó að ekki er fuÚ sátt um þessa skipan
stjómar. Þannig lýstu Víglundur Þorsteinsson, for-
- *?naður stjómar Lífeyrissjóðs verslunarmanna, og
Halldór Bjömsson, varaformaður Lífeyrissjóðsins
Framsýnar, óánægju sinni með það eftir fundinn að
ekld skyldi nást samstaða um tilnefningar í stjóm
FBA,
Víglundur sagði að töluverðar þreifingar hefðu
átt sér stað meðal hluthafa til að reyna að viðhalda
sátt um starf FBA, Hins vegar hefði ekki náðst
samkomulag vegna þess að Orca-hópurinn hefði
ekki getað sætt sig við minna en þrjá stjómarmenn
af fimm. „Þá ákváðum við að hverfa frá þeim málum
og láta þá axla ábyrgðina á tilnefningum og stjóm
fyrirtækisins,“ sagði Víglundur eftir fundinn.
Spurður að því hvort hann teldi að þessi þróun mála
væri brot á því samstarfi, sem tókst við kaupin á
hlut ríkisins í haust, sagði Víglundur að hann teldi
hana ekki í þeim samstarfsanda sem þá ríkti. Þá
hefði því verið lýst yfir að eigendur Orca-bréfanna
kæmu aldrei fram sem ein heild heldur hver um sig
sem sjálfstæður aðili. í því ljósi hefði verið ákveðið
að efna ekki strax til hluthafafundar heldur láta þá-
verandi stjóm Ijúka sínum starfstíma og efna að því
loknu til samstarfs um kjör stjómar.
Halldór Bjömsson sagði að ekki hefði tekist að
ná samkomulagi um kjör stjómar vegna þess að
Orca-hópurinn hefði myndað blokk utan um þá
menn sem kjömir voru. Fulltrúar nýju hluthafanna
hefðu viljað að tveir stjómarmenn kæmu úr þeirra
röðum og tveir frá Orca-hópnum og aðilar kæmu
sér saman um formanninn. Hann sagðist telja það
brot á þeim yfirlýsingum sem gefnar voru í haust að
Orca-hópurinn hefði nú komið fram sem einn aðili.
Samráð við stærstu hluthafa
Eyjólfur Sveinsson sagði í samtali eftir fundinn
að tillaga um stjóm FBA hafi orðið til eftfr ítarleg
samtöl allra stærstu hluthafa bankans. „Eg tel að
hún endurspegli vel þau sjónarmið sem komu upp í
öllum þeim samtölum og jafnvel þá einstaklinga
sem rætt var um,“ sagði Eyjólfur. Lét hann þess
getið að tillaga um Magnús Gunnarsson sem stjóm-
arformann hefði komið frá lífeyrissjóðunum.
Hann neitaði þyí að Orca-hópurinn hefði krafist
þriggja stjómarmanna. Sagði að eigendur FBA
Holdings (áður Orca) hefðu hver um sig farið með
sinn hlut, sjálfur sagðist hann einungis vera fulltrúi
sinnar hlutafjáreignar og hefði sem slíkur unnið að
því að ná fram farsælli lausn. Markalínur og
blokkamyndanir innan FB A heyrðu sögunni til.
Magnús Gunnarsson sagðist ekki tilnefndur af
neinum sérstökum hluthafahópi. „Ég var beðinn
um að taka þetta að mér í gær og varð við því.“
■ Stjórnendur með/6
Stúdentaráðskosn-
ingar í Háskólanum
Deilt um
utankjör-
fundarat-
kvæði
ÞÁTTTAKA í stúdentaráðskosning-
um Háskóla íslands í gær var dræm
en talningu var ekki lokið þegar
Morgunblaðið fór í prentun eftir
miðnætti.
Bjarni Ólafsson, formaður kjör-
stjórnar, sagðist telja að slæmt veð-
ur hefði sett mark sitt á kosninga-
þátttökuna.
Listarnir í framboði vora Vaka og
Röskva, og kosið var um helming
sæta í Stúdentaráði.
Fyrir kjörstjóm lá í gærkvöldi að
taka afstöðu til þess hvort telja bæri
nokkra tugi utankjörfundaratkvæða
gild atkvæði, en Röskva hafði gert
athugasemd við utankjörfundar-
atkvæðagreiðslu sem tveir kjör-
stjómarmeðlimir stóðu fyrir um síð-
astliðna helgi. Uni menn ekki
málsmeðferð kjörstjórnar er unnt að
skjóta úrskurði hennar til lögskýr-
ingarnefndar Háskóla íslands.
Talning atkvæða hófst klukkan 19
í gærkvöldi eftir að kjörstöðum var
lokað klukkan 18 og stóð fram á nótt.
Ný flensa af A-stofni hefur greinst hér
Leggst aðal-
lega á börn 10
ára o g yngri
FLENSA af A-stofni, sem síðast
gekk hér fyrir tíu árum, hefur
greinst í sjö tilfellum síðustu daga.
Að sögn Lúðvíks Ólafssonar,
héraðslæknis í Reykjavík, eru það
aðallega börn tíu ára og yngri sem
hafa veikst.
Mikil afföll hafa verið í skólum
borgarinnar og dæmi eru um að
tveir þriðju nemenda í einstökum
bekkjum hafi veikst í byrjun vik-
unnar. Þá hafa borist fregnir af
veikindum skólabarna á lands-
byggðinni, t.d. á Akureyri.
Þá er einnig að ganga bakteríu-
hálsbólga og kvefpest, sem hefur
lagst bæði á unga sem aldna.
Lúðvík sagði að flensan af A-
stofni sem gekk fyrir áramót væri
gengin yfir og að flensan, sem ný-
lega hefði verið greind væri einnig
af A-stofni, en væri ekki með sömu
hjúpgerð.
„Þessi A-stofn gekk hér síðast
veturinn 1990-1991, þannig að þeir
sem veikjast era börn 10 ára og
yngri,“ sagði hann. „Aðrir ættu að
vera ónæmir. Þessi A-stofn gekk
hér fyrst árið 1977 og var þá köll-
uð Rússaflensa." Sagði hann að
veikindamynstrið virtist ekki vera
líkt flensu en að vera mætti að
börn lýstu vanlíðan með öðram
hætti en fullorðnir. Reikna mætti
með fimm daga veikindum með
hita.
Flensusprautan dugir
gegn nýja stofninum
Lúðvík benti á að þeir sem voru
sprautaðir gegn flensu í haust
ættu einnig að vera ónæmir fyrir
þessum stofni.
Tugþúsundir íslendinga vora
sprautaðar gegn inflúensu í haust,
aðallega fullorðið fólk.
Morgunblaðið/Eyjólfur Guðmundsson
Tafir við
Vatnsfells-
virkjun
vegna snjóa
VEÐURFARIÐ að undanfórnu
hefur haft sín áhrif á byggingu
Vatnsfellsvirkjunar eins og smiðir
og byggingaverkamenn við virkj-
unina hafa fengið að reyna, að
ógleymdum vélamönnum sem þar
vinna einnig.
Eftir hríðarskotin í febrúarmán-
uði hefur farið drjúgur tími í að
moka burtu snjónum sem kyngt
hefur niður, svo vinnufært verði á
nýjan leik.
Að sögn Sigurjóns Sigurjónsson-
ar aðstoðarstöðvarstjóra vinna um
90 menn undir beru lofti við
mannvirkið og hefur fram-
leiðsluhraði minnkað litið eitt sök-
um fannfergis eftir tvær eftir-
minnilegar óveðurshelgar.
Þetta er fyrsti veturinn sem
virkjunarsmiðir þreyja, en smíði
virkjunarinnar hófst í haust og er
áætlað að rekstur hefjist á haust-
mánuðum 2001.
Alls vinna 110 manns við virkj-
unina, sem er í 550 metra hæð yfír
sjávarmáli. Að sögn Sigurjóns
telst það nokkuð sérstakt að unnið
sé að smiði mannvirkis að vetrar-
lagi í svo mikilli hæð. Til saman-
burðar má nefna að Sultar-
tangavirkjun er í um 320 metra
hæð yfir sjó.
Vatnsfellsvirkjun er ætlað að
nýta fallið í veituskurðinum á milli
Þórislóns og Krókslóns, uppistöðu-
lóns Sigöldustöðvar. Virkjunin
verður nokkuð sérstök fyrir þær
sakir að hún verður ekki í rekstri
nema þegar verið er að miðla
vatni úr Þórisvatni yfir í Krókslón.
Áformað er að stöðin verði um
90 MW að afli. Fallhæðin verður
65 metrar. Með tilkomu virkjunar-
innar mun orkugeta raforkukerf-
isins aukast um 430 GWst á ári.