Morgunblaðið - 02.03.2000, Síða 48

Morgunblaðið - 02.03.2000, Síða 48
48 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000 y---------------------- UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Ætlum við að tapa ' einstöku tækifæri? Alagning í verslun UM langt skeið hafa íslenskir mat- reiðslumeistarar sýnt það og sannað að þeir standa erlendum starfssystkinum sín- um fyllilega á sporði. Þetta hafa íslenskir matreiðslumeistarar sannað í fjölmörgum *alþjóðlegum keppnum sem þeir hafa tekið þátt í á undanförnum áratug og náð einstök- um árangri sem tekið hefur verið eftir hér heima og erlendis. Einstaka framleiðend- ur íslenskra matvæla gera sér grein fyrir þeim mögu- leikum sem sem eru fólgnir í starfi matreiðslumeistaranna, þó eru þeir í raun alltof fáir. Um nokkurt skeið hafa matreiðslumeistararnir kynnt íslenskt lambakjöt hér á landi og er það vel. Hins vegar hef ég tekið eftir að íslenskir fiskút- flytjendur nýta ekki þá miklu -.ikynningarmöguleika sem fólgnir eru í kynningarþætti matreiðslum- eistaranna. Frændur okkar Norð- menn hafa hins vegar nýtt sér sína matreiðslumeistara til hins ýtrasta til þess að kynna matvæli frá Nor- egi t.d. fisk hvort heldur fisk veiddan í sjó eða lax. Það er jafn- vel talið að hinn mikla útbreiðsla á norskum laxi um heiminn sé m.a. kynningarstarfi norskra mat- reiðslumanna að þakka. Af þessu getum við að sjálfsögðu lært. Ég hef um nokkurt árabil fylgst vel 'V.eð starfi Klúbbs matreiðslu- meistara og gert það sem í mínu valdi stendur til þess að styðja við þeirra mikilvæga starf. Það eru fólgnir ómældir möguleikar í kynn- ingarþætti á íslenskum matvælum í gegnum keppnir sem haldnar eru hér heima og erlendis. Metnaður þeirra er mikill og þess vegna er það ekki úr vegi að kalla þá nýja sendiherra þjóðarinnar á erlendum vettvangi eins og hr. Olafur Ragn- ar Grímsson forseti hefur margoft gert. I handraðanum er gullið tæki- færi til þess að kynna íslenskt lambakjöt í mjög frægri mat- reiðslukeppni í Lyon í Frakklandi ■ sem nefnist Bocuse d’Or. Þarna keppa 22 af fremstu matreiðslu- meisturum heimsins sem eru sérstaklega útvaldir og koma alls staðar að úr heimin- um. Sturla Búgisson, matreiðslumeistari í Perlunni, keppti í þessari heimsfrægu keppni síðast við mjög góðan orðstír og nú hefur Hákoni Örvars- syni, matreiðslumeist- ara á Hótel Holti, ver- ið boðið að taka þátt í keppninni. Ég gleðst auðvitað mjög yfir því að íslendingur tekur þátt í þessari keppni í annað sinn, en hitt sem vekur ekki síður athygli mína og er gullið tækifæri fyrir okkur Is- lendinga er það, að í aðalrétt að Matvæli Við höfum verið ein- staklega óheppnir og klaufalegir við að koma þessu heilnæma hráefni á erlenda markaði, segir ísólfur Gylfi Pálmason, þrátt fyrir tugi milljarða sem við höfum varið til þess. þessu sinni er lambakjöt. Við höf- um verið einstaklega óheppnir og klaufalegir við að koma þessu heil- næma hráefni á erlenda markaði þrátt fyrir tugi milljarða sem við höfum varið til þess. Það er ekkert séríslenskt fyrirbrigði að ríkisvald- ið styðji landbúnaðarframleiðslu og í raun ekkert athugavert við það. Þetta er gert víða um heim og sér- staklega meðal ESB-landanna. Það er einnig svo ótalmargt annað sem við greiðum niður í gegnum ríkis- sjóð. Nú hefur íslenskum afurða- stöðvum tekist að vinna nokkurn lambakjötsmarkað í dönskum stór- ísólfur Gylfi Pálmason Stofnun Félags heyrnarlausra Á ÞESSU ári eru 40 ár síðan Félag heyrna- rlausra var stofnað. Af því tilefni var haldin sögusýning í Gerðu- bergi í febrúar síðast- liðnum. Á sýningunni var m.a. greint frá —iupphafi skólagöngu heyrnarlausra á Is- landi og þróun skóla- mála með áherslu á mismunandi stefnur í kennsluaðferðum, stofnun Félags heyrnarlausra og ýms- um félagslegum úrbót- um. Mig langar að ræða hér um þann þátt sém varðar stofn- un Félags heyrnarlausra. Áður hef- ur komið fram í grein sem rituð var i Fréttabréfi Félags heyrnarlausra aú Færeyingur sem kom til íslands 1950 átti að hafa drifið í því að setja á laggimar Félag heymarlausra. Þessi umræddi Færeyingur ritaði grein í Morgunblaðið fimmtudag- inn 29. apríl 1999 og leiðrétti þessa „söguvillu". Hins vegar kemur þessi „sögutilbúningur" aftur fram spjöld sögunnar sem rituð var í ferðubergi. Það er ekki ætlan mín að gera lítið úr kæmm fjölskylduvini ættuðum frá Færeyj- um, en ég get ekki set- ið aðgerðarlaus þegar aðrir félagar mínir sem komu að stofnun félagsins fá ekki verð- skuldaða viðurkenn- ingu. Færeyingurinn átti að hafa komið til landsins árið 1950 sem fyrr segir, en hið rétta er að hann kom 12. júlí 1956 og átti því engan þátt í stofnun fyrsta Félags heymarlausra árið 1952. Þeir Haraldur Árnason, Marteinn Friðjónsson, Guðmundur Björnsson og Markús Loftsson stóðu að stofnun þessa fyrsta fé- lags sem varð þó ekki langlíft. Það félag sem lifir í dag var svo stofnað 1960 með forgöngu Guðmundar Björnssonar, Markúsar Loftsson- ar, Jóns Leifs Ólafssonar auk und- irritaðrar. Við fengum til liðs við okkur Brand Jónsson, þáverandi skólastjóra Málleysingjaskólans, eins og skólinn hét þá. Á þessum tíma starfaði undirrituð við heima- Hervör Guðjónsdóttir mörkuðum s.s. verslunarkeðjunni Netto í Danmörku og er það vel. Hins vegar er það tækifæri sem nú gefst einstakt í sinni röð og get- ur orðið langt þangað til slíkt tæki- færi býðst. Beinn kostnaður er einnig viðráðanlegur eða um 10 milljónir króna. Þetta er í raun lít- ill kostnaður í markaðsstarfi, kynningarþátturinn getur verið ótrúlega mikill, því að ef vel tekst til fær það hráefni sem notað er í aðalrétt í Bocues d’Or keppninni sérstaka athygli og keppendur kappkosta að reyna á bjóða upp á það á þeim veitingahúsum sem þeir vinna fyrir. Það er langt síðan ég benti fyrst á þessa möguleika. Eg hef m.a. lagt fram þingsálykt- unartillögu vegna þessa í Alþingi. Því miður hef ég ekki fengið hana samþykkta enn. Það sem verst er að tíminn æðir áfram og við miss- um af þessu einstaka tækifæri ef við vinnum ekki hratt. Mál þetta hefur m.a. verið kynnt fyrir land- búnaðarráðherra sem hefur sýnt því áhuga. Nú verðum við að láta hendur standa fram úr ermum. Orð um heilnæmi og ágæti þessarar vöru eru góð. Omegasýrurnar sem í kjötinu eru geta komið í veg fyrir krabbamein. Við vitum líka hvern- ig kjötið er framleitt á hreinu landi þar sem fjölmargir bændur leggja sig fram af natni við framleiðsluna. Hér er ekki um verksmiðjufram- leidda vöru að ræða, þótt hún sé allra góðra gjalda verð. Við meg- um alls ekki láta þetta tækifæri úr greipum okkar ganga. Ég treysti í raun engum betur til þess að ljúka þessu máli og nýta þetta tækifæri íslenskum landbúnaði til heilla en mínum góða félaga, landbúnaðar- ráðherranum Guðna Ágústssyni, sem veit manna best hve nauðsyn- legt er að mál sem þetta gangi með leifturhraða. Það þekkir líka hans harðsnúna lið í ráðuneytinu. Því annars hefur tækifærið gengið okkur úr greipum og Nýsjálend- ingar standa þá væntanlega með pálmann í höndunum. Látum það ekki gerast. Því tækifærið er ein- stakt og kemur vart aftur. Höfundur er alþingismziður. Samtök Eg get ekki setið að- gerðarlaus, segir Hervör Guðjónsddttir, þegar aðrír félagar mínir sem komu að stofnun félagsins fá ekki verðskuldaða viðurkenningu. vist Málleysingjaskólans og var í miklu og nánu sambandi við Brand. Hann undirbjó með mér á þessum tíma fyrstu félagslögin auk þess sem Brandur veitti aðra aðstoð við félagsstofnunina. Félagið fékk inni í Málleysingjaskólanum í Stakk- holti 3 þar sem stofnfundur Félags heyrnarlausra var haldinn 11. febr- úar 1960. Á fundinum voru 33 stofnfélagar, þar á meðal Færey- ingurinn umtalaði, sem varð svo nokkrum árum síðar formaður fé- lagsins. Á tímamótum sem þessum er eðlilegt að þessa heiðursfólks sé getið svo og Brands Jónssonar, sem var ötull stuðningsmaður Fé- lags heyrnarlausra. Með bestu óskum til Félags heyrnarlausra. Höfundur er einn af stofnendum Félags heymarlausra. VERÐBÓLGA er flókið fyrirbæri og eru jafnan uppi margar skoðanir á orsökum hennar. Mikilvægt er þó að gefast ekki upp við það verkefni að greina þær ef ætlunin er að ráðast að rótun- um og halda henni í skefjum. Sjónum hefur verið beint að þróun matvöruverðs og kast- að fram tölum um að smásöluverð á innflutt- um matvælum hafi hækkað um tæplega 10 Jón Scheving % á síðustu 12 mánuð- Thorsteinsson um. Samkvæmt athug- unum þróunarsviðs Baugs, sem byggðar eru á tölum Hagstofunnar, er rauntalan ekki nema um 5% sem er þó talsverð hækkun. Mikilvægir innlendir matvöru- og drykkjarvöru- framleiðendur hafa á sama tíma hækkað verð til verslana um 10%. Þegar við þetta bætast hækkanir á Matvöruverð Framlegðar- og álagningarprósenta hjá Baugi er á svipuðu róli, segir Jón Scheving Thorsteinsson, og hjá Wal-Mart. launum, húsnæði og margskonar þjónustu má Ijóst vera að matvöru- kaupmenn geta ekki tekið á sig allar hækkanir með hagræðingu, enda þótt hún hafi verið umtalsverð á matvörumarkaði að undanförnu. I umræðum á opinberum vett- vangi hefur því verið haldið fram að engu líkara sé en að aðilar á matvör- umarkaði misnoti stöðu á markaði neytendum í óhag. Hægt er að skoða framlegð og álagningu hjá verslun- arkeðjum sem eru á hlutabréfa- markaði þar eð þeim er skylt að láta í té allar upplýsingar. Þróunarsvið Baugs hefur litið á tölur níu verslun- arkeðja á Norðurlöndum, í Bret- landi, Frakklandi og í Bandaríkjun- um með það fyrir augum að bera þær saman við sambærilegar tölur hjá Baugi. í þessum samanburði söknum við Danmerkur, en það skýrist af því að danskar keðjur eru ekki á markaði og því engar upp- lýsingar um þær að hafa í fljótu bragði. Baugur og Wal-Mart Framlegð er mismunur á útsölu- verði og verði aðkeyptrar vöru. Hún er sá hlutur sem kaupmaðurinn fær til þess að greiða laun og rekstrar- kostnað og mynda hagnað af starf- seminni. Alagningin er á hinn bóginn það sem kaupmaðurinn leggur ofan á verð aðkeyptrar vöru. Ef verslun- arkeðjur á Islandi væru að taka til sín óeðlilega stóran hlut miðað við verslunarsamsteypur í helstu viðskiptalöndum okkar kæmi það fram í hærri framlegðar- og álagningarprósentu en gengur og gerist erlendis. Eins og fram gengur af meðfylgjandi samanburð- artöflu er Baugur hf. á svipuðu róli og Wal-Mart í Bandaríkjunum, sem þyk- ir fyrirmynd á matvörum- arkaði, og Hemköp í Sví- þjóð hvað framlegð og álagningu áhrærir. Það er einungis Kesko í Finnlandi sem sker sig úr með veru- lega lægri prósentum, en það á sér sérstaka skýr- ingu. Hins vegar er Albert Heijn með ívið hærri og al- þekktar verslunarkeðjur eins og Al- bertson, Narvesen, Safeway og Stockman með veru- lega hærri framlegðar- og álagningartölur. Þessi samanburður styður því engan veg- inn þá fullyrðingu að á Islandi sé um að ræða misnotkun á ráðandi stöðu. Wal-Mart vinnur verkið í Bretlandi Eftirtektarvert er í þessu sambandi að skoða umræðuna í Bretlandi þar sem breska samkeppnis- stofnunin hefur staðið fyrir rannsókn á meint- um fáokunargróða stórmarkaða í kjölfar mikillar gagnrýni, m.a. af hálfu stjórnvalda, á verðlagsþróun matvöru. Financial Times í Lundún- um skýrði frá því 2. febrúar sl. að niðurstaða stofnunarinnar væri sú að matvöruverð hefði hækkað minna en almennt verðlag í Bretlandi. Ekki væri hægt að skjóta styrkum stoðum undir fullyrðingar um óeðlilegan fá- okunargróða á markaðnum. Sam- keppnisstofnunin heldur áfram að skoða bresku stórmarkaðina, meðal annars risana Asda, Safeway, Sains- burys, Tesco og William Morrisson, og er niðurstöðu í næsta stigi rann- sóknarinnar að vænta í mars. Fram- haldið beinist að ýmum öðrum atrið- um en vöruverði, m.a. verðsam- keppni, kostnaðarmyndun, birgja- tengslum og eigna- og lóðaumsýslu. Mikil samkeppni er nú á breska markaðnum, m.a. vegna kaupa Wal- Mart á Asda-keðjunni, en eins og áð- ur hefur komið fram er framlegðar- og álagningai prósenta á líku róli hjá Wal-Mart og Baugi. í viðtali við Financial Time segir Steve Woolf, sem er smásölusérfræðingur Com- merzbank, m.a.: „Ég held að Wal- Mart hafi í meginatriðum unnið verkið fyrir ríkisstjórnina." Hagnaður í lægri kanti Það væri fróðlegt að bera saman hagnaðartölur stórmarkaða og verslunarkeðja milli landa, en slíkur samanburður er ýmsum erfiðleikum háður vegna mismunandi skatta, af- skriftarreglna og vaxtakjara. Engu að síður er hægt að halda því fram með nokkurri vissu að hagnaðarstig íslenskra matvörukeðja sé í lægri kantinum í alþjóðlegum samanburði. Þar mun seint verða hægt að renna stoðum undir fullyrðingar um fáok- unargróða á íslandi. Þær tölur sem stuðst er við í sam- anburðinum eru byggðar á ársreikn- ingum ársins 1998. Af þeim árs- reikningum alþjóðlegra verslunar- keðja sem þegar hafa verið birtir má draga þá ályktun að tölur ársins 1999 muni ekki breyta myndinni sem hér hefur verið dregin upp. Niðurstaðan er því þessi: Fram- legðar- og álagningarprósenta hjá Baugi er svipuð og hjá Wal-Mart sem nú stendur m.a. fyrir grimmri samkeppni á breska matvörumark- aðnum. Verslunarkeðjur á hlutabr.mörkuðum Framlegð Álagning Kesko, Finnlandi * 13% 15% Carrefour, Frakklandi 21% 25,6% Wal-Mart, Bandar. 21% 26% Baugur, fslandi 21,7% 27,7% Hemköp, Svíþjóð 22% 28% Albert Heijn, Hollandi** 23,3% 30,4% Albertson.Bandar. 27% 37,5% Narvesen, Noregi 28% 38% Safeway, Bandar. 28% 38% • Stockman, Finnlandi 30% 42% * Stór hluti veltu Kesko er heildsala svo að félagið stenst ekki að öllu leyti samanburð við hin fyrirtækin. ** Albert Heijn í Hollandi á 50% af ICA sem er stærsta verslanakeðja Svíþjóðar og 50% af Hakan Gruppen í Nor- egi sem er næst stærsta keðjan í Noregi. Höfundur er framkvæmdastjóri þróunarsviðs Baugs hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.